Viðskipti innlent Byggt yrði við hús Súfistans í Hafnarfirði og hann gerður að mathöll Hugmyndir eru uppi um að byggja við Strandgötu 9 í Hafnarfirði, þar sem nú má finna kaffihúsið Súfistann, og breyta jarðhæðinni í litla mathöll. Þá yrði að finna níu smáíbúðir á efri hæðum viðbyggingarinnar. Viðskipti innlent 3.12.2020 08:34 Gjaldþrot í ferðaþjónustu færri en óttast var Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að gjaldþrot fyrirtækja í ferðaþjónustu á árinu 2020 verði færri en óttast var í sumar. Þá var vonast til að gjaldþrot fyrirtækja í greininni yrðu ekki fleiri en 30 til 40 prósent af heildarfjölda fyrirtækja en nú sé vonast til að hlutfallið gæti mögulega orðið lægra en svo. Viðskipti innlent 3.12.2020 07:36 Vilja sameina kosti útsýnis, gróðurs og heita vatnsins úr göngunum í nýjum baðstað Nýr baðstaður í Eyjafirði er í undirbúningi og er stefnt að opnun hans snemma árs 2022, gangi áætlanir eftir. Viðskipti innlent 2.12.2020 15:12 Kyrrsetningu Heinaste aflétt og skipið selt Namibísk yfirvöld hafa aflétt kyrrsetningu á togaranum Heinaste, sem kyrrsettur var þar í landi í nóvember 2019. Bréf um afléttingu kyrrsetningarinnar var undirritað í gær samhliða sölu á togaranum. Viðskipti innlent 2.12.2020 13:48 Íslandsbanki lækkar vexti Útlánavextir Íslandsbanka munu lækka um allt að 0,25 prósentustig á föstudag. Innlánsvextir vextir haldast að mestu leyti óbreyttir. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Edda Hermannsdóttir, forstöðumaður Markaðs- og samskiptasviðs, sendir fyrir hönd bankans. Viðskipti innlent 2.12.2020 11:51 510 milljóna gjaldþrot Hópferðabifreiða Akureyrar Skiptum á þrotabúi Hópferðabifreiða Akureyrar er lokið en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í maí í fyrra. Lýstar kröfur í þrotabúið námu samanlagt 510 milljónum króna og fengust greiddar um 26 milljónir. Viðskipti innlent 2.12.2020 10:07 Davíð í Unity keypti glæsihýsi Skúla Mogensen af Arion Davíð Helgason, einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Unity Technologies, hefur keypt glæsihýsið við Hrólfsskálavör 2 á Seltjarnarnesi af Arion banka. Húsið, sem er eitt verðmætasta íbúðarhús landsins, var áður í eigu Skúla Mogensen, stofnanda og fyrrverandi forstjóra WOW air. Viðskipti innlent 2.12.2020 08:16 Ósanngjarnt að fá aðeins að taka á móti 10 manns í 3000 fm húsnæði Kristín Helga Gísladóttir, framkvæmdastjóri Garðheima, segir að það hafi verið erfitt að fá þær fréttir að tíu manna fjöldatakmarkanir verði áfram í gildi, þó þær hafi vissulega verið viðbúnar. Ósanngjarnt sé að mega ekki taka á móti fleirum en tíu í einu í þessu gríðarstóra húsnæði en að gert sé það besta úr hlutunum með hólfaskiptingum. Viðskipti innlent 1.12.2020 20:01 Vísuðu 2.500 manns frá eftir að ákvörðun ráðherra lá fyrir Veitingamenn höfðu margir gert sér vonir um að geta tekið fleiri viðskiptavini inn á staði sína í aðdraganda jólanna. Eftir að heilbrigðisráðherra kynnti ákvörðun sína fyrr í dag að svo verður ekki er ljóst að áhrifin á rekstur þeirra verða talsverð. Viðskipti innlent 1.12.2020 18:22 Ríkið dæmt til að greiða Elko 18,7 milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða Elko hf, rekstraraðila raftækjaverslana Elko, 18,7 milljónir vegna ólögmætrar gjaldtöku ríkisins í tengslum við innflutning á raftækjum. Viðskipti innlent 1.12.2020 14:52 Kjartan til Isavia Kjartan Briem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Isavia ANS og mun hann hefja störf 1. janúar næstkomandi. Viðskipti innlent 1.12.2020 12:46 Prentsmiðjur sameinast undir merkjum Litrófs Prentsmiðjurnar Litróf, GuðjónÓ og Prenttækni hafa sameinast undir merki Litrófs. Viðskipti innlent 1.12.2020 12:17 FA sakar ráðherra um að láta undan þrýstingi frá sérhagsmunum Félag atvinnurekenda sakar landbúnaðarráðherra um láta undan þrýstingi frá sérhagsmunum og fara gegn hagsmunum innflutningsfyrirtækja og neytenda. Það sé gert í nýju frumvarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um fyrirkomulag útboðs tollkvóta fyrir búvörur. Viðskipti innlent 1.12.2020 11:16 Þóra nýr dagskrárstjóri Stöðvar 2 Þóra Björg Clausen hefur verið ráðin dagskrárstjóri Stöðvar 2. Hún tekur við starfinu af Jóhönnu Margréti Gísladóttur sem lætur af störfum. Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla Sýnar, staðfestir þetta við fréttastofu. Viðskipti innlent 1.12.2020 10:28 Stærsta „Covid-þrotið“ til þessa skekur Bretland Breska eignarhaldsfélagið Arcadia Group, sem rekur m.a. fataverslanirnar Topshop, Topman og Miss Selfridge, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Breskir fjölmiðlar segja þrotið hið stærsta í bresku efnahagslífi af völdum kórónuveirufaraldursins til þessa. Viðskipti innlent 30.11.2020 23:31 Meintur ólöglegur ágóði Samherja sagður 4,7 milljarðar Meintur ólöglegur ágóði sem Samherji fékk af milliríkjasamningi namibískra og angólskra yfirvalda er metinn á um 4,7 milljarða íslenskra króna. Ríkisútvarpið greinir frá og hefur upp úr beiðni sem namibískur saksóknari hefur lagt fram fyrir dómstól í Namibíu. Viðskipti innlent 30.11.2020 22:42 Óskastaðan að lágmarksfjöldi yrði hækkaður í tuttugu Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, kallar eftir því að lágmarksfjöldi í verslunum verði hækkaður upp í tuttugu og að stærri verslanir fái heimild til að taka á móti allt að hundrað manns í einu. „Það er staða sem við getum auðveldlega lifað með til jóla,“ segir Andrés í samtali við fréttastofu. Viðskipti innlent 30.11.2020 18:46 Kjartan kveður eftir tuttugu ára starf Kjartan Briem, framkvæmdastjóri tæknisviðs Vodafone, hefur ákveðið að láta af störfum frá og með næstkomandi áramótum. Að þeim tíma loknum mun Kjartan hverfa til annarra verkefna að því er segir í tilkynningu til Kauphallar. Viðskipti innlent 30.11.2020 15:06 „Ormagryfja“ fjölmiðlanefndar Hugi Halldórsson, sem stendur fyrir hlaðvarpinu FantasyGandalf, segir fjölmiðlanefnd þurfa að rökstyðja það og skýra hvernig hún ætlar að gera greinarmun á þeim hlaðvörpum sem þurfa að skrá sig sem fjölmiðla og þeirra sem þurfa þess ekki. Viðskipti innlent 30.11.2020 15:04 Þjóðverjarnir keyptu Hjörleifshöfða á 489 milljónir króna Power Minerals Iceland, íslenskt félag í 100 prósent eigu þýska fyrirtækisins STEAG Beteilungsgesellschaft, greiddi 489 milljónir króna fyrir Hjörleifshöfða í Mýrdalshreppi. Vísir greindi frá sölunni í síðustu viku en fékk ekki upplýsingar frá kaupendum eða seljendum um hve miklir fjármunir skiptu um hendur. Systkinin Áslaug, Halla og Þórir Níels Kjartansbörn voru eigendur jarðarinnar. Viðskipti innlent 30.11.2020 14:00 350 starfsmenn World Class halda vinnunni Björn Leifsson, stofnandi og eigandi World Class, ætlar ekki að segja upp þeim 350 starfsmönnum sem eru á launaskrá hjá félaginu. Björn lýsti því yfir fyrir helgi að hann lægi undir feldi vegna óvissunnar sem framundan væri vegna kórónuveirufaraldursins. Möguleiki væri að hann segði upp öllum 350 starfsmönnum World Class í dag. Viðskipti innlent 30.11.2020 13:01 Dökkar samdráttartölur áfram í kortunum Hvergi er meiri samdráttur í Evrópu en á Íslandi, samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Hagfræðingur segir fyrirséð að tölurnar verði áfram dökkar. Viðskipti innlent 30.11.2020 11:42 Þrettán sagt upp hjá fyrirtæki sem tengist ferðaþjónustu Þrettán hefur verið sagt upp í hópuppsögn hjá fyrirtæki sem tengist ferðaþjónustu. Viðskipti innlent 30.11.2020 11:18 10,4% samdráttur landsframleiðslunnar á þriðja ársfjórðungi Verulegur samdráttur varð á landsframleiðslunni á þriðja árfjórðungi en þar vegur einna þyngst samdráttur í útflutningi ferðaþjónustu, sem dróst saman um 77%. Viðskipti innlent 30.11.2020 10:17 29 starfsmönnum Borgunar sagt upp 29 starfsmönnum Borgunar var sagt upp í hópuppsögn í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 30.11.2020 10:09 Ferðaskrifstofa Íslands vill kaupa rekstur Heimsferða Viljayfirlýsing hefur verið undirrituð um kaup Ferðaskrifstofu Íslands á rekstri ferðaskrifstofunnar Heimsferða. Stefnt er að því að klára kaupsamning í næstu viku. Viðskipti innlent 27.11.2020 20:41 Kristján í Samherja keypti Landsbankahúsið á 350 milljónir Landsbankinn hefur tekið 352 milljóna króna tilboði Sigtúns þróunarfélags í Landsbankahúsið á Selfossi og var kaupsamningur þess efnis undirritaður í dag. Viðskipti innlent 27.11.2020 14:50 Ómaklega að frumkvöðlum vegið í matarkörfumálinu Finnbogi Magnússon formaður Landbúnaðarklasans segir ósanngjarnt að tengja frumkvöðla við mútur og lobbíisma. Viðskipti innlent 27.11.2020 13:54 Flogið til Boston minnst tvisvar í viku út árið Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur framlengt samning sinn við Icelandair sem ætlað er að tryggja lágmarksflug til Bandaríkjanna út árið. Viðskipti innlent 27.11.2020 13:01 Arnar Helgi og Hildur Helga ráðin til Aton.JL Arnar Helgi Garðarsson og Hildur Helga Jóhannsdóttir hafa verið ráðin til starfa sem hönnuðir hjá Aton.JL. Viðskipti innlent 27.11.2020 12:56 « ‹ 192 193 194 195 196 197 198 199 200 … 334 ›
Byggt yrði við hús Súfistans í Hafnarfirði og hann gerður að mathöll Hugmyndir eru uppi um að byggja við Strandgötu 9 í Hafnarfirði, þar sem nú má finna kaffihúsið Súfistann, og breyta jarðhæðinni í litla mathöll. Þá yrði að finna níu smáíbúðir á efri hæðum viðbyggingarinnar. Viðskipti innlent 3.12.2020 08:34
Gjaldþrot í ferðaþjónustu færri en óttast var Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að gjaldþrot fyrirtækja í ferðaþjónustu á árinu 2020 verði færri en óttast var í sumar. Þá var vonast til að gjaldþrot fyrirtækja í greininni yrðu ekki fleiri en 30 til 40 prósent af heildarfjölda fyrirtækja en nú sé vonast til að hlutfallið gæti mögulega orðið lægra en svo. Viðskipti innlent 3.12.2020 07:36
Vilja sameina kosti útsýnis, gróðurs og heita vatnsins úr göngunum í nýjum baðstað Nýr baðstaður í Eyjafirði er í undirbúningi og er stefnt að opnun hans snemma árs 2022, gangi áætlanir eftir. Viðskipti innlent 2.12.2020 15:12
Kyrrsetningu Heinaste aflétt og skipið selt Namibísk yfirvöld hafa aflétt kyrrsetningu á togaranum Heinaste, sem kyrrsettur var þar í landi í nóvember 2019. Bréf um afléttingu kyrrsetningarinnar var undirritað í gær samhliða sölu á togaranum. Viðskipti innlent 2.12.2020 13:48
Íslandsbanki lækkar vexti Útlánavextir Íslandsbanka munu lækka um allt að 0,25 prósentustig á föstudag. Innlánsvextir vextir haldast að mestu leyti óbreyttir. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Edda Hermannsdóttir, forstöðumaður Markaðs- og samskiptasviðs, sendir fyrir hönd bankans. Viðskipti innlent 2.12.2020 11:51
510 milljóna gjaldþrot Hópferðabifreiða Akureyrar Skiptum á þrotabúi Hópferðabifreiða Akureyrar er lokið en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í maí í fyrra. Lýstar kröfur í þrotabúið námu samanlagt 510 milljónum króna og fengust greiddar um 26 milljónir. Viðskipti innlent 2.12.2020 10:07
Davíð í Unity keypti glæsihýsi Skúla Mogensen af Arion Davíð Helgason, einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Unity Technologies, hefur keypt glæsihýsið við Hrólfsskálavör 2 á Seltjarnarnesi af Arion banka. Húsið, sem er eitt verðmætasta íbúðarhús landsins, var áður í eigu Skúla Mogensen, stofnanda og fyrrverandi forstjóra WOW air. Viðskipti innlent 2.12.2020 08:16
Ósanngjarnt að fá aðeins að taka á móti 10 manns í 3000 fm húsnæði Kristín Helga Gísladóttir, framkvæmdastjóri Garðheima, segir að það hafi verið erfitt að fá þær fréttir að tíu manna fjöldatakmarkanir verði áfram í gildi, þó þær hafi vissulega verið viðbúnar. Ósanngjarnt sé að mega ekki taka á móti fleirum en tíu í einu í þessu gríðarstóra húsnæði en að gert sé það besta úr hlutunum með hólfaskiptingum. Viðskipti innlent 1.12.2020 20:01
Vísuðu 2.500 manns frá eftir að ákvörðun ráðherra lá fyrir Veitingamenn höfðu margir gert sér vonir um að geta tekið fleiri viðskiptavini inn á staði sína í aðdraganda jólanna. Eftir að heilbrigðisráðherra kynnti ákvörðun sína fyrr í dag að svo verður ekki er ljóst að áhrifin á rekstur þeirra verða talsverð. Viðskipti innlent 1.12.2020 18:22
Ríkið dæmt til að greiða Elko 18,7 milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða Elko hf, rekstraraðila raftækjaverslana Elko, 18,7 milljónir vegna ólögmætrar gjaldtöku ríkisins í tengslum við innflutning á raftækjum. Viðskipti innlent 1.12.2020 14:52
Kjartan til Isavia Kjartan Briem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Isavia ANS og mun hann hefja störf 1. janúar næstkomandi. Viðskipti innlent 1.12.2020 12:46
Prentsmiðjur sameinast undir merkjum Litrófs Prentsmiðjurnar Litróf, GuðjónÓ og Prenttækni hafa sameinast undir merki Litrófs. Viðskipti innlent 1.12.2020 12:17
FA sakar ráðherra um að láta undan þrýstingi frá sérhagsmunum Félag atvinnurekenda sakar landbúnaðarráðherra um láta undan þrýstingi frá sérhagsmunum og fara gegn hagsmunum innflutningsfyrirtækja og neytenda. Það sé gert í nýju frumvarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um fyrirkomulag útboðs tollkvóta fyrir búvörur. Viðskipti innlent 1.12.2020 11:16
Þóra nýr dagskrárstjóri Stöðvar 2 Þóra Björg Clausen hefur verið ráðin dagskrárstjóri Stöðvar 2. Hún tekur við starfinu af Jóhönnu Margréti Gísladóttur sem lætur af störfum. Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla Sýnar, staðfestir þetta við fréttastofu. Viðskipti innlent 1.12.2020 10:28
Stærsta „Covid-þrotið“ til þessa skekur Bretland Breska eignarhaldsfélagið Arcadia Group, sem rekur m.a. fataverslanirnar Topshop, Topman og Miss Selfridge, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Breskir fjölmiðlar segja þrotið hið stærsta í bresku efnahagslífi af völdum kórónuveirufaraldursins til þessa. Viðskipti innlent 30.11.2020 23:31
Meintur ólöglegur ágóði Samherja sagður 4,7 milljarðar Meintur ólöglegur ágóði sem Samherji fékk af milliríkjasamningi namibískra og angólskra yfirvalda er metinn á um 4,7 milljarða íslenskra króna. Ríkisútvarpið greinir frá og hefur upp úr beiðni sem namibískur saksóknari hefur lagt fram fyrir dómstól í Namibíu. Viðskipti innlent 30.11.2020 22:42
Óskastaðan að lágmarksfjöldi yrði hækkaður í tuttugu Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, kallar eftir því að lágmarksfjöldi í verslunum verði hækkaður upp í tuttugu og að stærri verslanir fái heimild til að taka á móti allt að hundrað manns í einu. „Það er staða sem við getum auðveldlega lifað með til jóla,“ segir Andrés í samtali við fréttastofu. Viðskipti innlent 30.11.2020 18:46
Kjartan kveður eftir tuttugu ára starf Kjartan Briem, framkvæmdastjóri tæknisviðs Vodafone, hefur ákveðið að láta af störfum frá og með næstkomandi áramótum. Að þeim tíma loknum mun Kjartan hverfa til annarra verkefna að því er segir í tilkynningu til Kauphallar. Viðskipti innlent 30.11.2020 15:06
„Ormagryfja“ fjölmiðlanefndar Hugi Halldórsson, sem stendur fyrir hlaðvarpinu FantasyGandalf, segir fjölmiðlanefnd þurfa að rökstyðja það og skýra hvernig hún ætlar að gera greinarmun á þeim hlaðvörpum sem þurfa að skrá sig sem fjölmiðla og þeirra sem þurfa þess ekki. Viðskipti innlent 30.11.2020 15:04
Þjóðverjarnir keyptu Hjörleifshöfða á 489 milljónir króna Power Minerals Iceland, íslenskt félag í 100 prósent eigu þýska fyrirtækisins STEAG Beteilungsgesellschaft, greiddi 489 milljónir króna fyrir Hjörleifshöfða í Mýrdalshreppi. Vísir greindi frá sölunni í síðustu viku en fékk ekki upplýsingar frá kaupendum eða seljendum um hve miklir fjármunir skiptu um hendur. Systkinin Áslaug, Halla og Þórir Níels Kjartansbörn voru eigendur jarðarinnar. Viðskipti innlent 30.11.2020 14:00
350 starfsmenn World Class halda vinnunni Björn Leifsson, stofnandi og eigandi World Class, ætlar ekki að segja upp þeim 350 starfsmönnum sem eru á launaskrá hjá félaginu. Björn lýsti því yfir fyrir helgi að hann lægi undir feldi vegna óvissunnar sem framundan væri vegna kórónuveirufaraldursins. Möguleiki væri að hann segði upp öllum 350 starfsmönnum World Class í dag. Viðskipti innlent 30.11.2020 13:01
Dökkar samdráttartölur áfram í kortunum Hvergi er meiri samdráttur í Evrópu en á Íslandi, samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Hagfræðingur segir fyrirséð að tölurnar verði áfram dökkar. Viðskipti innlent 30.11.2020 11:42
Þrettán sagt upp hjá fyrirtæki sem tengist ferðaþjónustu Þrettán hefur verið sagt upp í hópuppsögn hjá fyrirtæki sem tengist ferðaþjónustu. Viðskipti innlent 30.11.2020 11:18
10,4% samdráttur landsframleiðslunnar á þriðja ársfjórðungi Verulegur samdráttur varð á landsframleiðslunni á þriðja árfjórðungi en þar vegur einna þyngst samdráttur í útflutningi ferðaþjónustu, sem dróst saman um 77%. Viðskipti innlent 30.11.2020 10:17
29 starfsmönnum Borgunar sagt upp 29 starfsmönnum Borgunar var sagt upp í hópuppsögn í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 30.11.2020 10:09
Ferðaskrifstofa Íslands vill kaupa rekstur Heimsferða Viljayfirlýsing hefur verið undirrituð um kaup Ferðaskrifstofu Íslands á rekstri ferðaskrifstofunnar Heimsferða. Stefnt er að því að klára kaupsamning í næstu viku. Viðskipti innlent 27.11.2020 20:41
Kristján í Samherja keypti Landsbankahúsið á 350 milljónir Landsbankinn hefur tekið 352 milljóna króna tilboði Sigtúns þróunarfélags í Landsbankahúsið á Selfossi og var kaupsamningur þess efnis undirritaður í dag. Viðskipti innlent 27.11.2020 14:50
Ómaklega að frumkvöðlum vegið í matarkörfumálinu Finnbogi Magnússon formaður Landbúnaðarklasans segir ósanngjarnt að tengja frumkvöðla við mútur og lobbíisma. Viðskipti innlent 27.11.2020 13:54
Flogið til Boston minnst tvisvar í viku út árið Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur framlengt samning sinn við Icelandair sem ætlað er að tryggja lágmarksflug til Bandaríkjanna út árið. Viðskipti innlent 27.11.2020 13:01
Arnar Helgi og Hildur Helga ráðin til Aton.JL Arnar Helgi Garðarsson og Hildur Helga Jóhannsdóttir hafa verið ráðin til starfa sem hönnuðir hjá Aton.JL. Viðskipti innlent 27.11.2020 12:56