Viðskipti innlent Verðlaunuðu greiningarbúnað fyrir höfuðhögg Seifer, greiningarbúnaður fyrir höfuðhögg íþróttafólks hlaut á dögunum Guðfinnuverðlaunin 2021. Búnaðurinn inniheldur hreyfi- og hröðunarnema sem mæla meðal annars höggkraft, hröðun og horntíðni höfuðhöggs. Viðskipti innlent 20.5.2021 11:33 Tryggvi áfram formaður í nýskipuðu Hugverkaráði SI Tryggvi Hjaltason hjá CCP hefur skipaður formaður í nýju Hugverkaráði Samtaka iðnaðarins. Viðskipti innlent 20.5.2021 11:19 Met slegið í fjölda seldra íbúða Í mars var slegið met í fjölda seldra íbúða í einum mánuði þegar 1.300 kaupsamningar voru útgefnir. Hefur meðalsölutími íbúða aldrei verið styttri á höfuðborgarsvæðinu og seldist tæplega þriðjungur eigna þar yfir ásettu verði. Viðskipti innlent 20.5.2021 10:15 16,9 milljarðar í styrki vegna faraldursins Um 14,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þar með talið einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,4 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki. Viðskipti innlent 20.5.2021 09:54 Hóta málsókn og saka ASÍ um „annarlegan áróður“ Nýja flugfélagið Play hefur lýst yfir sárum vonbrigðum með að Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hafi í dag hvatt landsmenn til að sniðganga flugfélagið vegna lágra launa sem flugfélagið mun bjóða starfsfólki sínu. Félagið krefst þess að ASÍ dragi fullyrðingar sínar til baka annars verði það að leita réttar síns í málinu. Viðskipti innlent 19.5.2021 20:15 Hvetja landsmenn til að sniðganga flugfélagið Play Alþýðusamband Íslands hvetur landsmenn til að sniðganga hið nýja flugfélag Play þar til það hefur „sýnt að það ætli að vera hluti af íslenskum vinnumarkaði og bjóða starfsfólki sínu kaup og kjör sem gilda hér á landi,“ eins og segir í tilkynningu. Viðskipti innlent 19.5.2021 17:37 Dönsk skip flytja koltvísýring til förgunar á Íslandi Samið hefur verið um að danska skipafélagið Dan-Unity CO2 sjái um flutning á koltvísýringi til förgunar í fyrirhugaðri miðstöð Carbfix í Straumsvík. Siglingarnar eiga að hefjast árið 2025 en stefnt er að því að farga allt að þremur milljónum tonna af koltvísýringi árlega árið 2030. Viðskipti innlent 19.5.2021 16:20 Valeria til Advania Advania hefur ráðið Valeriu Rivina sem nýjan forstöðumann veflausna. Hún hefur tíu ára stjórnunarreynslu í upplýsingatæknigeiranum og hefur leitt umfangsmikil stafræn umbóta- og þróunarverkefni. Viðskipti innlent 19.5.2021 15:40 CCP vann til Webby verðlauna CCP Games vann í gær til hinna virtu Webby netverðlauna fyrir smáleik innan leiksins EVE Online. Nánar tiltekið snúast verðlaunin sem CCP vann um samfélagsþjónustu innan tölvuleikja og heitir verkefnið sem vann Project Discovery. Viðskipti innlent 19.5.2021 12:05 Verðbólga yfir markmiði fram á mitt næsta ár Verðbólguhorfur hafa versnað og verðbólga verður ekki komin niður í markmið Seðlabankans fyrr en um mitt næsta ár samkvæmt spá bankans í dag. Meginvextir voru hækkaðir í dag um 0,25 prósentustig. Viðskipti innlent 19.5.2021 11:54 Íbúðaverð hækkað um tæp 14 prósent síðasta árið Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,7% milli mars og apríl. Hefur hún nú hækkað um 6,7% síðastliðna þrjá mánuði og um 13,7% síðastliðið ár. Viðskipti innlent 19.5.2021 10:33 Bein útsending: Seðlabankinn gerir grein fyrir hækkun stýrivaxta Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skýrir frá ákvörðun sinni um að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur á fundi sem hefst klukkan 9:30 í Seðlabankanum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því eitt prósent. Viðskipti innlent 19.5.2021 09:00 Seðlabankinn hækkar stýrivexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1 prósent. Viðskipti innlent 19.5.2021 08:30 Stjörnutorg Kringlunnar mun færa sig um set Til stendur að ráðast í miklar framkvæmdir á þriðju hæð Kringlunnar sem munu meðal annars skila sér í nýrri mathöll, breyttu Ævintýralandi og svokölluðum búbblublómaskála. Kostnaður er áætlaður um milljarður króna og framkvæmdatíminn um eitt og hált til tvö ár. Viðskipti innlent 19.5.2021 07:39 Árni Huldar til KPMG Law Árni Huldar Sveinbjörnsson hefur hafið störf hjá KPMG Law. Hann starfaði áður sem yfirlögfræðingur Lykils fjármögnunar hf. og nú síðast sem sviðsstjóri viðskiptasviðs Lykils. Viðskipti innlent 18.5.2021 14:03 Spá kröftugum efnahagsbata og að faraldurinn verði kveðinn í kútinn á seinni hluta árs Hagfræðideild Landsbankans segir útlit fyrir að böndum verði komið á heimsfaraldurinn á seinni hluta þessa árs og að landsframleiðsla aukist hérlendis um 4,9% á árinu. Þá er gert ráð fyrir að verðbólga gangi hægt og sígandi niður eftir því sem líður á árið. Viðskipti innlent 18.5.2021 12:56 Ráðin forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins Kristín Inga Jónsdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðsdeildar Póstsins. Hún hefur starfað hjá Póstinum frá árinu 2019 sem markaðssérfræðingur. Viðskipti innlent 18.5.2021 11:54 Mistök Þjóðskrár hafa ekki áhrif á vísitölu neysluverðs Leiðrétting Þjóðskrár á vísitölu íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu hefur engin áhrif á mælingar Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni en greint var frá því í gær að Þjóðskrá hafi gert mistök við birtingu talnanna þann 20. apríl. Viðskipti innlent 18.5.2021 11:34 Bein útsending: Stafræn framtíð íslenskunnar Í dag fer fram ráðstefna um stafræna framtíð íslenskunnar. Stjórnendur framsækinna fyrirtækja fara yfir notkun máltæknilausna á neytendamarkaði og fjölbreytt verkefni máltækniáætlunar verða kynnt. Viðskipti innlent 18.5.2021 08:01 ÁTVR ætlar að kæra vínkaupmann til lögreglu Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur hafið undirbúning að beiðni um lögbann á vefverslunum með áfengi hér á landi, sem ekki eru á vegum ríkisverslunarinnar. Viðskipti innlent 17.5.2021 11:47 Opna kaffihús og boða mikla uppbyggingu í Reykjadal Nýtt kaffihús opnaði um liðna helgi við minni Reykjadals í Hveragerði og hefur vakið þónokkra athygli. Mikil uppbygging hefur farið fram í Reykjadal að undanförnu. Göngustígar þangað hafa verið lagfærðir og búið er að malbika vegin alveg að gönguleiðinni, og sömuleiðis malbika bílastæði sem áður voru malarlögð. Viðskipti innlent 16.5.2021 21:01 Fyrsta flugið verður til London í lok júní Fyrsta flug flugfélagsins Play verður til Stansted-flugvallar í london í lok júní, að sögn forstjóra félagsins. Viðskipti innlent 16.5.2021 12:33 Leyfi í höfn hjá Play og fyrsta flugvélin á leið til landsins Flugfélagið Play hefur fengið flugrekstrarleyfi frá Samgöngustofu. Fyrsta flugvélin var afhent í Houston Texas í Bandaríkjunum. Náið samstarf við stærsta flugvélaleigusala heims er ætlað að tryggja hagstæð kjör á þremur systurvélum. Viðskipti innlent 16.5.2021 11:42 ÁTVR aldrei grætt meira en neftóbakssala hrynur alveg Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur aldrei velt meiru en árið 2020, sem var metár í sögu verslunarinnar. Veltan var yfir 50 milljörðum. Viðskipti innlent 15.5.2021 09:44 Erfið ákvörðun að hætta hjá Icelandair Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármála hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Eva Sóley hóf störf í byrjun árs 2019 og hefur að sögn félagsins verið í lykilhlutverki við að koma því í gegnum fordæmalausar rekstraraðstæður. Viðskipti innlent 14.5.2021 19:01 Stytta sér leið með kaupunum á Lumina Origo hefur keypt heilbrigðislausnina Lumina af Lumina Medical Solutions. Hyggst fyrirtækið nýta lausnina í áframhaldandi þróun á notendaviðmóti sjúkraskrárkerfisins Sögu sem er nýtt af meginhluta heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi. Viðskipti innlent 14.5.2021 18:44 Jóhanna Margrét til Skeljungs Jóhanna Margrét Gísladóttir, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, hefur hafið störf sem verkefnastjóri hjá Skeljungi. Viðskipti innlent 14.5.2021 15:36 Björn Ingi dæmdur til að greiða áttatíu milljónir króna Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson, sem í seinni tíð hefur verið kenndur við Viljann, hefur verið dæmdur til að greiða þrotabúi Pressunnar ehf. áttatíu milljónir króna. Viðskipti innlent 14.5.2021 14:12 Björn Þorfinnsson nýr ritstjóri DV Björn Þorfinnsson hefur verið ráðinn ritstjóri DV. Hann tekur við starfinu af Tobbu Marinós sem lét nýlega af störfum. Viðskipti innlent 14.5.2021 13:23 Landsbankinn sér annað en Íslandsbankinn í kristalskúlunni Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslandsi haldi meginvöxtum bankans óbreyttum í 0,75% við næstu vaxtaákvörðun þann 19. maí. Þó telur deildin að óðum styttist í vaxtahækkun. Viðskipti innlent 14.5.2021 12:54 « ‹ 167 168 169 170 171 172 173 174 175 … 334 ›
Verðlaunuðu greiningarbúnað fyrir höfuðhögg Seifer, greiningarbúnaður fyrir höfuðhögg íþróttafólks hlaut á dögunum Guðfinnuverðlaunin 2021. Búnaðurinn inniheldur hreyfi- og hröðunarnema sem mæla meðal annars höggkraft, hröðun og horntíðni höfuðhöggs. Viðskipti innlent 20.5.2021 11:33
Tryggvi áfram formaður í nýskipuðu Hugverkaráði SI Tryggvi Hjaltason hjá CCP hefur skipaður formaður í nýju Hugverkaráði Samtaka iðnaðarins. Viðskipti innlent 20.5.2021 11:19
Met slegið í fjölda seldra íbúða Í mars var slegið met í fjölda seldra íbúða í einum mánuði þegar 1.300 kaupsamningar voru útgefnir. Hefur meðalsölutími íbúða aldrei verið styttri á höfuðborgarsvæðinu og seldist tæplega þriðjungur eigna þar yfir ásettu verði. Viðskipti innlent 20.5.2021 10:15
16,9 milljarðar í styrki vegna faraldursins Um 14,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þar með talið einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,4 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki. Viðskipti innlent 20.5.2021 09:54
Hóta málsókn og saka ASÍ um „annarlegan áróður“ Nýja flugfélagið Play hefur lýst yfir sárum vonbrigðum með að Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hafi í dag hvatt landsmenn til að sniðganga flugfélagið vegna lágra launa sem flugfélagið mun bjóða starfsfólki sínu. Félagið krefst þess að ASÍ dragi fullyrðingar sínar til baka annars verði það að leita réttar síns í málinu. Viðskipti innlent 19.5.2021 20:15
Hvetja landsmenn til að sniðganga flugfélagið Play Alþýðusamband Íslands hvetur landsmenn til að sniðganga hið nýja flugfélag Play þar til það hefur „sýnt að það ætli að vera hluti af íslenskum vinnumarkaði og bjóða starfsfólki sínu kaup og kjör sem gilda hér á landi,“ eins og segir í tilkynningu. Viðskipti innlent 19.5.2021 17:37
Dönsk skip flytja koltvísýring til förgunar á Íslandi Samið hefur verið um að danska skipafélagið Dan-Unity CO2 sjái um flutning á koltvísýringi til förgunar í fyrirhugaðri miðstöð Carbfix í Straumsvík. Siglingarnar eiga að hefjast árið 2025 en stefnt er að því að farga allt að þremur milljónum tonna af koltvísýringi árlega árið 2030. Viðskipti innlent 19.5.2021 16:20
Valeria til Advania Advania hefur ráðið Valeriu Rivina sem nýjan forstöðumann veflausna. Hún hefur tíu ára stjórnunarreynslu í upplýsingatæknigeiranum og hefur leitt umfangsmikil stafræn umbóta- og þróunarverkefni. Viðskipti innlent 19.5.2021 15:40
CCP vann til Webby verðlauna CCP Games vann í gær til hinna virtu Webby netverðlauna fyrir smáleik innan leiksins EVE Online. Nánar tiltekið snúast verðlaunin sem CCP vann um samfélagsþjónustu innan tölvuleikja og heitir verkefnið sem vann Project Discovery. Viðskipti innlent 19.5.2021 12:05
Verðbólga yfir markmiði fram á mitt næsta ár Verðbólguhorfur hafa versnað og verðbólga verður ekki komin niður í markmið Seðlabankans fyrr en um mitt næsta ár samkvæmt spá bankans í dag. Meginvextir voru hækkaðir í dag um 0,25 prósentustig. Viðskipti innlent 19.5.2021 11:54
Íbúðaverð hækkað um tæp 14 prósent síðasta árið Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,7% milli mars og apríl. Hefur hún nú hækkað um 6,7% síðastliðna þrjá mánuði og um 13,7% síðastliðið ár. Viðskipti innlent 19.5.2021 10:33
Bein útsending: Seðlabankinn gerir grein fyrir hækkun stýrivaxta Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skýrir frá ákvörðun sinni um að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur á fundi sem hefst klukkan 9:30 í Seðlabankanum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því eitt prósent. Viðskipti innlent 19.5.2021 09:00
Seðlabankinn hækkar stýrivexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1 prósent. Viðskipti innlent 19.5.2021 08:30
Stjörnutorg Kringlunnar mun færa sig um set Til stendur að ráðast í miklar framkvæmdir á þriðju hæð Kringlunnar sem munu meðal annars skila sér í nýrri mathöll, breyttu Ævintýralandi og svokölluðum búbblublómaskála. Kostnaður er áætlaður um milljarður króna og framkvæmdatíminn um eitt og hált til tvö ár. Viðskipti innlent 19.5.2021 07:39
Árni Huldar til KPMG Law Árni Huldar Sveinbjörnsson hefur hafið störf hjá KPMG Law. Hann starfaði áður sem yfirlögfræðingur Lykils fjármögnunar hf. og nú síðast sem sviðsstjóri viðskiptasviðs Lykils. Viðskipti innlent 18.5.2021 14:03
Spá kröftugum efnahagsbata og að faraldurinn verði kveðinn í kútinn á seinni hluta árs Hagfræðideild Landsbankans segir útlit fyrir að böndum verði komið á heimsfaraldurinn á seinni hluta þessa árs og að landsframleiðsla aukist hérlendis um 4,9% á árinu. Þá er gert ráð fyrir að verðbólga gangi hægt og sígandi niður eftir því sem líður á árið. Viðskipti innlent 18.5.2021 12:56
Ráðin forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins Kristín Inga Jónsdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðsdeildar Póstsins. Hún hefur starfað hjá Póstinum frá árinu 2019 sem markaðssérfræðingur. Viðskipti innlent 18.5.2021 11:54
Mistök Þjóðskrár hafa ekki áhrif á vísitölu neysluverðs Leiðrétting Þjóðskrár á vísitölu íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu hefur engin áhrif á mælingar Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni en greint var frá því í gær að Þjóðskrá hafi gert mistök við birtingu talnanna þann 20. apríl. Viðskipti innlent 18.5.2021 11:34
Bein útsending: Stafræn framtíð íslenskunnar Í dag fer fram ráðstefna um stafræna framtíð íslenskunnar. Stjórnendur framsækinna fyrirtækja fara yfir notkun máltæknilausna á neytendamarkaði og fjölbreytt verkefni máltækniáætlunar verða kynnt. Viðskipti innlent 18.5.2021 08:01
ÁTVR ætlar að kæra vínkaupmann til lögreglu Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur hafið undirbúning að beiðni um lögbann á vefverslunum með áfengi hér á landi, sem ekki eru á vegum ríkisverslunarinnar. Viðskipti innlent 17.5.2021 11:47
Opna kaffihús og boða mikla uppbyggingu í Reykjadal Nýtt kaffihús opnaði um liðna helgi við minni Reykjadals í Hveragerði og hefur vakið þónokkra athygli. Mikil uppbygging hefur farið fram í Reykjadal að undanförnu. Göngustígar þangað hafa verið lagfærðir og búið er að malbika vegin alveg að gönguleiðinni, og sömuleiðis malbika bílastæði sem áður voru malarlögð. Viðskipti innlent 16.5.2021 21:01
Fyrsta flugið verður til London í lok júní Fyrsta flug flugfélagsins Play verður til Stansted-flugvallar í london í lok júní, að sögn forstjóra félagsins. Viðskipti innlent 16.5.2021 12:33
Leyfi í höfn hjá Play og fyrsta flugvélin á leið til landsins Flugfélagið Play hefur fengið flugrekstrarleyfi frá Samgöngustofu. Fyrsta flugvélin var afhent í Houston Texas í Bandaríkjunum. Náið samstarf við stærsta flugvélaleigusala heims er ætlað að tryggja hagstæð kjör á þremur systurvélum. Viðskipti innlent 16.5.2021 11:42
ÁTVR aldrei grætt meira en neftóbakssala hrynur alveg Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur aldrei velt meiru en árið 2020, sem var metár í sögu verslunarinnar. Veltan var yfir 50 milljörðum. Viðskipti innlent 15.5.2021 09:44
Erfið ákvörðun að hætta hjá Icelandair Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármála hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Eva Sóley hóf störf í byrjun árs 2019 og hefur að sögn félagsins verið í lykilhlutverki við að koma því í gegnum fordæmalausar rekstraraðstæður. Viðskipti innlent 14.5.2021 19:01
Stytta sér leið með kaupunum á Lumina Origo hefur keypt heilbrigðislausnina Lumina af Lumina Medical Solutions. Hyggst fyrirtækið nýta lausnina í áframhaldandi þróun á notendaviðmóti sjúkraskrárkerfisins Sögu sem er nýtt af meginhluta heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi. Viðskipti innlent 14.5.2021 18:44
Jóhanna Margrét til Skeljungs Jóhanna Margrét Gísladóttir, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, hefur hafið störf sem verkefnastjóri hjá Skeljungi. Viðskipti innlent 14.5.2021 15:36
Björn Ingi dæmdur til að greiða áttatíu milljónir króna Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson, sem í seinni tíð hefur verið kenndur við Viljann, hefur verið dæmdur til að greiða þrotabúi Pressunnar ehf. áttatíu milljónir króna. Viðskipti innlent 14.5.2021 14:12
Björn Þorfinnsson nýr ritstjóri DV Björn Þorfinnsson hefur verið ráðinn ritstjóri DV. Hann tekur við starfinu af Tobbu Marinós sem lét nýlega af störfum. Viðskipti innlent 14.5.2021 13:23
Landsbankinn sér annað en Íslandsbankinn í kristalskúlunni Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslandsi haldi meginvöxtum bankans óbreyttum í 0,75% við næstu vaxtaákvörðun þann 19. maí. Þó telur deildin að óðum styttist í vaxtahækkun. Viðskipti innlent 14.5.2021 12:54