Tónlist Rödd Bjarkar aðalatriðið Björk Guðmundsdóttir segir í viðtali við tímaritið Plan B að rödd hennar hafi verið aðalmálið í gegnum tíðina, ekki hverja hún hitti eða hvað hún gerði. „Allir segja: „Hún er svo heppin: hún klæddist svanakjólnum og lamdi blaðamanninn,“ og allt þetta klisjukennda bull. Málið er að alveg síðan ég var í Sykurmolunum hefur allt snúist um röddina mína,“ segir Björk. Tónlist 1.7.2007 00:45 Cannibal Corpse áritar í Tónastöðinni Alex Webster og Pat O'Brien, liðsmenn bandarísku dauðarokksveitarinnar Cannibal Corpse, mæta í Tónastöðina í Skipholti og árita á mánudaginn kl. 18.00. Tónlist 30.6.2007 02:45 Algjört dúndur í Höllinni Hljómsveitin Dúndurfréttir spilaði plötu Pink Floyd, The Wall, í Laugardalshöll á miðvikudagskvöld við mjög góðar undirtektir. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék undir á lipurlegan hátt. Tónlist 30.6.2007 01:15 B.Sig. með tónleika Hljómsveitin B.Sig. heldur tónleika á Gauki á Stöng í kvöld. B.Sig., sem er hugarfóstur handboltakappans Bjarka Sigurðssonar, gaf nýlega út sína fyrstu plötu, Good Morning Mr. Evening, sem hefur fengið góðar viðtökur. Tónlist 29.6.2007 10:15 Kryddpíurnar snúa aftur Kryddpíurnar hafa snúið aftur úr áralangri pásu og ætla í tónleikaferð um heiminn í desember og janúar. Allir upprunalegir meðlimir verða með í þetta sinn, þar á meðal Geri Halliwell sem hætti í maí 1998. Tónlist 29.6.2007 09:15 Krossferð Jakobínarínu Fyrsta breiðskífa hafnfirsku hljómsveitarinnar Jakobínarína hefur fengið nafnið The First Crusade, eða Fyrsta krossferðin. Kemur hún út hérlendis og í Bretlandi 24. september næstkomandi. Tónlist 29.6.2007 09:00 Gefa út skástu lögin sín Hvanndalsbræður frá Akureyri hafa gefið út plötuna Skást of, sem hefur að geyma skástu lög sveitarinnar hingað til. Á meðal laga á plötunni eru Svarfdælskir bændur, Upp í sveit, Kisuklessa, Tíu litlir negrastrákar og Maístjarnan. Lögin, sem eru sextán talsins, eru tekin af plötum þeirra Ríða feitum hesti, Út úr kú og Hrútleiðinlegir. Tónlist 29.6.2007 08:00 Dizzee heldur sínu striki Dizzee Rascal vakti athygli árið 2003 þegar hann fékk Mercury-verðlaunin fyrir fyrstu plötuna sína yngstur vinningshafa í sögu verðlaunanna. Hann sendi nýlega frá sér sína þriðju plötu Maths + English. Trausti Júlíusson hlustaði á gripinn og tók stöðuna á bresku rappi. Tónlist 29.6.2007 07:00 Sumartónleikar í Skálholti Á morgun hefjast Sumartónleikar í Skálholti og standa næstu fimm vikur. Eins og áður verður hátíðahald á Skálholtsstað um helgar og á fimmtudögum. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá, en meginþemað helgast af ártíð tveggja af merkari tónskáldum barokktímans, þeirra Buxtehude og Scarlatti. Tónlist 29.6.2007 05:00 Syngja fyrir umhverfið Umhverfisverndarsamtökin Saving Iceland standa fyrir stórtónleikum á Nasa til styrktar ráðstefnu um umhverfisvernd í byrjun næstu viku. Meðal þeirra sem koma fram eru múm, Rúnar Júlíusson og Bogomil Font. Tónlist 28.6.2007 10:00 Ófá gæsahúðaraugnablik Örfáir miðar eru eftir á aukatónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hljómsveitarinnar Dúndurfrétta sem flytja munu stórvirki Pink Floyd, The Wall, í Laugardalshöll í kvöld. Uppselt er á seinni tónleikana á föstudaginn. Tónlist 28.6.2007 09:30 Miðasala á Jethro Tull Miðasala á tvenna tónleika bresku rokksveitarinnar Jethro Tull í Háskólabíói 14. og 15. september er hafin. Jethro Tull kom síðast hingað til lands árið 1992 þegar hún spilaði á Akranesi. Forsprakki sveitarinnar Ian Anderson spilaði síðan í Laugardalshöll á síðasta ári með Sinfóníuhljómsveit Íslands og bandaríska fiðlusnillingnum Lucia Micarelli. Tónlist 28.6.2007 09:00 Mikill áhugi á Toto Miðasala á tónleika bandarísku hljómsveitarinnar Toto í Laugardalshöll 10. júlí gengur vel. Uppselt er í stúku og innan við þúsund miðar eru eftir í stæði. Tónlist 28.6.2007 08:30 Kenya stígur á svið Íslenska söngkonan Kenya heldur sína fyrstu sólótónleika á Gauki á Stöng í kvöld. Lag hennwar, Hot Dancing, hefur verið spilað talsvert það sem af er sumri og kemur það út á stuttplötu í haust. Tónlist 28.6.2007 08:15 Djass fyrir austan Djasshátíð Egilsstaða á Austurlandi, ein elsta sérhæfða tónlistarhátíðin utan Reykjavíkur, er nýhafin. Hátíðin varð til fyrir tuttugu árum í sumarblíðu á Egilsstöðum og varð að veruleika sumarið 1988. Síðan hefur hún fest sig í sessi þótt frumkvöðullinn, Árni Ísleifsson, hafi á tíðum látið hafa eftir sér að nú skorti hann þrek til að halda hátíðinni áfram. Tónlist 28.6.2007 07:00 Bon Jovi snýr aftur Hljómsveitin Bon Jovi er komin á topp bandaríska Billboard-vinsældalistans í fyrsta sinn síðan 1988, eða í nítján ár. Nýjasta plata sveitarinnar, Lost Highway, seldist í tæpum 290 þúsund eintökum sína fyrstu viku á lista. Frá því mælingar hófust árið 1991 hefur sveitin aldrei selt jafnmikið í fyrstu vikunni í heimalandi sínu. Tónlist 28.6.2007 06:45 Balkanskt tempó Þjóðlagahljómsveitin Narodna Musika heldur tónleika á Café Cultura í Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu í kvöld. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar um Ísland. Tónlist 28.6.2007 06:00 Á toppnum í Bretlandi Rokkdúettinn The White Stripes fór beint á toppinn á breska vinsældarlistanum með nýjustu plötu sína Icky Thump. Þetta er betri árangur en sveitin náði með síðustu plötu sinni, Get Behind Me Satan, því hún komst hæst í þriðja sætið á listanum. Síðast fór The White Stripes beint á toppinn í Bretlandi með plötunni Elephant sem kom út fyrir fjórum árum. Tónlist 28.6.2007 06:00 Tónleikar The Rapture - fimm stjörnur Það voru nýstirnin í hljómsveitinni Motion Boys sem hituðu upp fyrir The Rapture á Nasa á þriðjudagskvöldið. Motion Boys er mikið hampað þessa dagana og þess vegna gaman að fá tækifæri til að sjá hvernig sveitin spjarar sig á tónleikum. Tónlist 28.6.2007 04:00 Kim Larsen væntanlegur til Íslands Danski tónlistarmaðurinn Kim Larsen og hljómsveit hans Kjukken heldur tónleika í Vodafonehöllinni hinn 24. nóvember. Tónlist 28.6.2007 03:00 Led Zeppelin íhugar endurkomu Þrír eftirlifandi meðlimir hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Led Zeppelin eru sagðir íhuga að koma saman á ný. Hugmyndin er að koma fram saman á einum tónleikum síðar í sumar. Tónleikarnir verða haldnir til heiðurs Ahmet Ertgun, stofnanda Atlantic Records, en hann lést á síðasta ári. Ertgun þessi vann mikið með Zeppelin á sínum tíma og vilja hljómsveitarmeðlimirnir votta honum virðingu sína með því að stíga aftur á svið í þetta eina skipti. Tónlist 27.6.2007 06:45 Nhi og bau Víetnamski tónlistarmaðurinn Ngo Hong Quang kynnir hlustendum nýjan hljóðheim á tónleikum í Iðnó í kvöld. Quang útskrifaðist frá Tónlistarháskólanum í Hanoi vorið 2006 eftir tólf ára nám á hefðbundin víetnömsk hljóðfæri. Tónlist 27.6.2007 04:30 Damon frumsýnir óperu Nýtt verk Damons Albarn verður frumsýnt í Manchester á morgun. Verkið er sungið á mandarín-tungu og spilað er undir á glerharmonikku. Ópera eftir popparann Damon Albarn verður frumsýnd í Manchester á Englandi á morgun. Tónlist 27.6.2007 03:30 Tvennir tónleikar Þingeyska gleðisveitin Ljótu hálfvitarnir, sem nýlega gaf út sína fyrstu plötu, heldur tvenna útgáfutónleika á næstunni. Fyrri tónleikarnir verða í Borgarleikhúsinu á laugardag en hinir síðari í Ýdölum í Aðaldal viku síðar. Tónlist 27.6.2007 03:30 Jagúar gefur út nýtt lag Nýtt lag með hljómsveitinni Jagúar, You Want Me, er komið í spilun. Lagið verður að finna á fjórðu plötu sveitarinnar sem var tekin upp í Danmörku síðasta vetur. Er hún væntanleg í ágúst. Tónlist 27.6.2007 02:15 Flestir fá borgað undir borðið „Ég gef allt mitt upp til skatts. Hvað ég tek svo fyrir þetta er síðan bara samkomulag og snýr að umfangi og öðrum þáttum,“ segir Bjarni Arason, söngvarinn góðkunni. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær eru þó nokkrir íslenskir söngvarar margbókaðir í brúðkaup þann 07.07.07 en þá verður væntanlega slegið nýtt met í því að gefa fólk saman frammi fyrir Guði og mönnum. Söngvarar á borð við Diddú og Bjarna voru til að mynda fjórbókaðir þennan dag en sá sem reyndist vera kóngurinn í þessum fræðum var Páll Óskar Hjálmtýsson; hann var bókaður í sjö brúðkaup. Tónlist 27.6.2007 02:00 Heimboð Bjarkar einber uppspuni Breska götublaðið Daily Star birti í gær frétt sem fór eins og eldur í sinu um netið en þar var íslenska söngkonan Björk Guðmundsdóttir sögð hafa boðið poppstjörnunni Britney Spears að hafa afnot af heimili sínu í Reykjavík. Þar að auki var greint frá því að Björk hefði sent henni dagbókarbrot frá þeim tíma sem hún bjó í Lonon og átti í svipuðum vandamálum og Britney hefur glímt við auk bréfs þar sem íslenska stórstjarnan gefur henni góð ráð. Tónlist 27.6.2007 02:00 The Verve koma saman á ný Breska hljómsveitin The Verve hyggst koma aftur saman eftir beiskan aðskilnað fyrir átta árum. Þetta tilkynnir söngvari hljómsveitarinnar, Richard Ashcroft, í yfirlýsingu á heimasíðu sinni. Tónlist 26.6.2007 15:36 Nýstárleg hljóð og spánnýtt verk Tónlistarhópurinn Aton stendur í stórræðum þessa dagana. Hópurinn kom fram á tvennum tónleikum á tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði í síðustu viku og vinnur þessa dagana að fyrstu plötu sinni sem væntanleg er síðar á árinu. Höfundar verka á fyrirhugaðri plötu eru meðal annars Hlynur Aðils Vilmarsson, Hugi Guðmundsson, Steingrímur Rohloff og Guðmundur Steinn Gunnarsson. Verkin eru samin á tímabilinu 1999-2006. Tónlist 26.6.2007 08:00 The Rapture spilar á Nasa í kvöld Bandaríska danspönksveitin The Rapture heldur tónleika á Nasa í kvöld. Sveitin spilaði á Iceland Airwaves-hátíðinni fyrir fimm árum við mjög góðar undirtektir og ætlar nú að endurtaka leikinn. Tónlist 26.6.2007 04:30 « ‹ 194 195 196 197 198 199 200 201 202 … 226 ›
Rödd Bjarkar aðalatriðið Björk Guðmundsdóttir segir í viðtali við tímaritið Plan B að rödd hennar hafi verið aðalmálið í gegnum tíðina, ekki hverja hún hitti eða hvað hún gerði. „Allir segja: „Hún er svo heppin: hún klæddist svanakjólnum og lamdi blaðamanninn,“ og allt þetta klisjukennda bull. Málið er að alveg síðan ég var í Sykurmolunum hefur allt snúist um röddina mína,“ segir Björk. Tónlist 1.7.2007 00:45
Cannibal Corpse áritar í Tónastöðinni Alex Webster og Pat O'Brien, liðsmenn bandarísku dauðarokksveitarinnar Cannibal Corpse, mæta í Tónastöðina í Skipholti og árita á mánudaginn kl. 18.00. Tónlist 30.6.2007 02:45
Algjört dúndur í Höllinni Hljómsveitin Dúndurfréttir spilaði plötu Pink Floyd, The Wall, í Laugardalshöll á miðvikudagskvöld við mjög góðar undirtektir. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék undir á lipurlegan hátt. Tónlist 30.6.2007 01:15
B.Sig. með tónleika Hljómsveitin B.Sig. heldur tónleika á Gauki á Stöng í kvöld. B.Sig., sem er hugarfóstur handboltakappans Bjarka Sigurðssonar, gaf nýlega út sína fyrstu plötu, Good Morning Mr. Evening, sem hefur fengið góðar viðtökur. Tónlist 29.6.2007 10:15
Kryddpíurnar snúa aftur Kryddpíurnar hafa snúið aftur úr áralangri pásu og ætla í tónleikaferð um heiminn í desember og janúar. Allir upprunalegir meðlimir verða með í þetta sinn, þar á meðal Geri Halliwell sem hætti í maí 1998. Tónlist 29.6.2007 09:15
Krossferð Jakobínarínu Fyrsta breiðskífa hafnfirsku hljómsveitarinnar Jakobínarína hefur fengið nafnið The First Crusade, eða Fyrsta krossferðin. Kemur hún út hérlendis og í Bretlandi 24. september næstkomandi. Tónlist 29.6.2007 09:00
Gefa út skástu lögin sín Hvanndalsbræður frá Akureyri hafa gefið út plötuna Skást of, sem hefur að geyma skástu lög sveitarinnar hingað til. Á meðal laga á plötunni eru Svarfdælskir bændur, Upp í sveit, Kisuklessa, Tíu litlir negrastrákar og Maístjarnan. Lögin, sem eru sextán talsins, eru tekin af plötum þeirra Ríða feitum hesti, Út úr kú og Hrútleiðinlegir. Tónlist 29.6.2007 08:00
Dizzee heldur sínu striki Dizzee Rascal vakti athygli árið 2003 þegar hann fékk Mercury-verðlaunin fyrir fyrstu plötuna sína yngstur vinningshafa í sögu verðlaunanna. Hann sendi nýlega frá sér sína þriðju plötu Maths + English. Trausti Júlíusson hlustaði á gripinn og tók stöðuna á bresku rappi. Tónlist 29.6.2007 07:00
Sumartónleikar í Skálholti Á morgun hefjast Sumartónleikar í Skálholti og standa næstu fimm vikur. Eins og áður verður hátíðahald á Skálholtsstað um helgar og á fimmtudögum. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá, en meginþemað helgast af ártíð tveggja af merkari tónskáldum barokktímans, þeirra Buxtehude og Scarlatti. Tónlist 29.6.2007 05:00
Syngja fyrir umhverfið Umhverfisverndarsamtökin Saving Iceland standa fyrir stórtónleikum á Nasa til styrktar ráðstefnu um umhverfisvernd í byrjun næstu viku. Meðal þeirra sem koma fram eru múm, Rúnar Júlíusson og Bogomil Font. Tónlist 28.6.2007 10:00
Ófá gæsahúðaraugnablik Örfáir miðar eru eftir á aukatónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hljómsveitarinnar Dúndurfrétta sem flytja munu stórvirki Pink Floyd, The Wall, í Laugardalshöll í kvöld. Uppselt er á seinni tónleikana á föstudaginn. Tónlist 28.6.2007 09:30
Miðasala á Jethro Tull Miðasala á tvenna tónleika bresku rokksveitarinnar Jethro Tull í Háskólabíói 14. og 15. september er hafin. Jethro Tull kom síðast hingað til lands árið 1992 þegar hún spilaði á Akranesi. Forsprakki sveitarinnar Ian Anderson spilaði síðan í Laugardalshöll á síðasta ári með Sinfóníuhljómsveit Íslands og bandaríska fiðlusnillingnum Lucia Micarelli. Tónlist 28.6.2007 09:00
Mikill áhugi á Toto Miðasala á tónleika bandarísku hljómsveitarinnar Toto í Laugardalshöll 10. júlí gengur vel. Uppselt er í stúku og innan við þúsund miðar eru eftir í stæði. Tónlist 28.6.2007 08:30
Kenya stígur á svið Íslenska söngkonan Kenya heldur sína fyrstu sólótónleika á Gauki á Stöng í kvöld. Lag hennwar, Hot Dancing, hefur verið spilað talsvert það sem af er sumri og kemur það út á stuttplötu í haust. Tónlist 28.6.2007 08:15
Djass fyrir austan Djasshátíð Egilsstaða á Austurlandi, ein elsta sérhæfða tónlistarhátíðin utan Reykjavíkur, er nýhafin. Hátíðin varð til fyrir tuttugu árum í sumarblíðu á Egilsstöðum og varð að veruleika sumarið 1988. Síðan hefur hún fest sig í sessi þótt frumkvöðullinn, Árni Ísleifsson, hafi á tíðum látið hafa eftir sér að nú skorti hann þrek til að halda hátíðinni áfram. Tónlist 28.6.2007 07:00
Bon Jovi snýr aftur Hljómsveitin Bon Jovi er komin á topp bandaríska Billboard-vinsældalistans í fyrsta sinn síðan 1988, eða í nítján ár. Nýjasta plata sveitarinnar, Lost Highway, seldist í tæpum 290 þúsund eintökum sína fyrstu viku á lista. Frá því mælingar hófust árið 1991 hefur sveitin aldrei selt jafnmikið í fyrstu vikunni í heimalandi sínu. Tónlist 28.6.2007 06:45
Balkanskt tempó Þjóðlagahljómsveitin Narodna Musika heldur tónleika á Café Cultura í Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu í kvöld. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar um Ísland. Tónlist 28.6.2007 06:00
Á toppnum í Bretlandi Rokkdúettinn The White Stripes fór beint á toppinn á breska vinsældarlistanum með nýjustu plötu sína Icky Thump. Þetta er betri árangur en sveitin náði með síðustu plötu sinni, Get Behind Me Satan, því hún komst hæst í þriðja sætið á listanum. Síðast fór The White Stripes beint á toppinn í Bretlandi með plötunni Elephant sem kom út fyrir fjórum árum. Tónlist 28.6.2007 06:00
Tónleikar The Rapture - fimm stjörnur Það voru nýstirnin í hljómsveitinni Motion Boys sem hituðu upp fyrir The Rapture á Nasa á þriðjudagskvöldið. Motion Boys er mikið hampað þessa dagana og þess vegna gaman að fá tækifæri til að sjá hvernig sveitin spjarar sig á tónleikum. Tónlist 28.6.2007 04:00
Kim Larsen væntanlegur til Íslands Danski tónlistarmaðurinn Kim Larsen og hljómsveit hans Kjukken heldur tónleika í Vodafonehöllinni hinn 24. nóvember. Tónlist 28.6.2007 03:00
Led Zeppelin íhugar endurkomu Þrír eftirlifandi meðlimir hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Led Zeppelin eru sagðir íhuga að koma saman á ný. Hugmyndin er að koma fram saman á einum tónleikum síðar í sumar. Tónleikarnir verða haldnir til heiðurs Ahmet Ertgun, stofnanda Atlantic Records, en hann lést á síðasta ári. Ertgun þessi vann mikið með Zeppelin á sínum tíma og vilja hljómsveitarmeðlimirnir votta honum virðingu sína með því að stíga aftur á svið í þetta eina skipti. Tónlist 27.6.2007 06:45
Nhi og bau Víetnamski tónlistarmaðurinn Ngo Hong Quang kynnir hlustendum nýjan hljóðheim á tónleikum í Iðnó í kvöld. Quang útskrifaðist frá Tónlistarháskólanum í Hanoi vorið 2006 eftir tólf ára nám á hefðbundin víetnömsk hljóðfæri. Tónlist 27.6.2007 04:30
Damon frumsýnir óperu Nýtt verk Damons Albarn verður frumsýnt í Manchester á morgun. Verkið er sungið á mandarín-tungu og spilað er undir á glerharmonikku. Ópera eftir popparann Damon Albarn verður frumsýnd í Manchester á Englandi á morgun. Tónlist 27.6.2007 03:30
Tvennir tónleikar Þingeyska gleðisveitin Ljótu hálfvitarnir, sem nýlega gaf út sína fyrstu plötu, heldur tvenna útgáfutónleika á næstunni. Fyrri tónleikarnir verða í Borgarleikhúsinu á laugardag en hinir síðari í Ýdölum í Aðaldal viku síðar. Tónlist 27.6.2007 03:30
Jagúar gefur út nýtt lag Nýtt lag með hljómsveitinni Jagúar, You Want Me, er komið í spilun. Lagið verður að finna á fjórðu plötu sveitarinnar sem var tekin upp í Danmörku síðasta vetur. Er hún væntanleg í ágúst. Tónlist 27.6.2007 02:15
Flestir fá borgað undir borðið „Ég gef allt mitt upp til skatts. Hvað ég tek svo fyrir þetta er síðan bara samkomulag og snýr að umfangi og öðrum þáttum,“ segir Bjarni Arason, söngvarinn góðkunni. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær eru þó nokkrir íslenskir söngvarar margbókaðir í brúðkaup þann 07.07.07 en þá verður væntanlega slegið nýtt met í því að gefa fólk saman frammi fyrir Guði og mönnum. Söngvarar á borð við Diddú og Bjarna voru til að mynda fjórbókaðir þennan dag en sá sem reyndist vera kóngurinn í þessum fræðum var Páll Óskar Hjálmtýsson; hann var bókaður í sjö brúðkaup. Tónlist 27.6.2007 02:00
Heimboð Bjarkar einber uppspuni Breska götublaðið Daily Star birti í gær frétt sem fór eins og eldur í sinu um netið en þar var íslenska söngkonan Björk Guðmundsdóttir sögð hafa boðið poppstjörnunni Britney Spears að hafa afnot af heimili sínu í Reykjavík. Þar að auki var greint frá því að Björk hefði sent henni dagbókarbrot frá þeim tíma sem hún bjó í Lonon og átti í svipuðum vandamálum og Britney hefur glímt við auk bréfs þar sem íslenska stórstjarnan gefur henni góð ráð. Tónlist 27.6.2007 02:00
The Verve koma saman á ný Breska hljómsveitin The Verve hyggst koma aftur saman eftir beiskan aðskilnað fyrir átta árum. Þetta tilkynnir söngvari hljómsveitarinnar, Richard Ashcroft, í yfirlýsingu á heimasíðu sinni. Tónlist 26.6.2007 15:36
Nýstárleg hljóð og spánnýtt verk Tónlistarhópurinn Aton stendur í stórræðum þessa dagana. Hópurinn kom fram á tvennum tónleikum á tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði í síðustu viku og vinnur þessa dagana að fyrstu plötu sinni sem væntanleg er síðar á árinu. Höfundar verka á fyrirhugaðri plötu eru meðal annars Hlynur Aðils Vilmarsson, Hugi Guðmundsson, Steingrímur Rohloff og Guðmundur Steinn Gunnarsson. Verkin eru samin á tímabilinu 1999-2006. Tónlist 26.6.2007 08:00
The Rapture spilar á Nasa í kvöld Bandaríska danspönksveitin The Rapture heldur tónleika á Nasa í kvöld. Sveitin spilaði á Iceland Airwaves-hátíðinni fyrir fimm árum við mjög góðar undirtektir og ætlar nú að endurtaka leikinn. Tónlist 26.6.2007 04:30