Menning Þetta er frekar melódískt verk og lætur vonandi þægilega í eyrum Hafdís Bjarnadóttir rafgítarleikari er staðartónskáld Sumartónleika Skálholtskirkju þetta árið. Nýtt verk eftir hana verður frumflutt á laugardag af sönghópnum Hljómeyki og tveimur gítarleikurum. Hún er nýlega vöknuð á hinum helga stað þegar við sláum á þráðinn til hennar. "Ég hef búið hér í Skálholti þessa viku og það er alveg yndislegt. Maður kemst í svo góð tengsl við sjálfan sig og tónlistina að vera svona uppi í sveit. Þá er ekkert verið að taka til í geymslunni eða láta glepjast af annarri vitleysu. Ég nota líka sénsinn og hvíli Facebook á meðan," segir Hafdís Bjarnadóttir, gítarleikari og staðartónskáld Skálholts, glaðlegri röddu. Ný tónlist eftir hana verður frumflutt í Skálholtskirkju á laugardaginn við ljóð eftir Einar Má Guðmundsson. Sönghópurinn Hljómeyki undir stjórn Mörtu G. Halldórsdóttur flytur og Hafdís sjálf og Ragnar Emilsson spila með á rafgítara. Menning 5.7.2012 16:00 Gefa út nýtt túristablað á frönsku "Flestir Frakkar skilja ekki ensku og við viljum útskýra fyrir þeim íslenska menningu í raun og veru og sleppa öllum klisjum,“ segir Lea Gestsdóttir Gayet sem gaf út fyrsta tölublað fríblaðsins Le Pourquoi Pas? síðasta föstudag. Blaðið er ætlað frönskumælandi ferðalöngum en Leu hefur þótt skorta slíkt rit. "Þetta er ætlað fólki til dæmis frá Frakklandi, Sviss, Belgíu og Kanada. Ég hef líka tekið eftir Ítölum og Spánverjum að lesa blaðið en þeir skilja margir frönsku mun betur en ensku,“ segir Lea og nefnir Grapevine máli sínu til stuðnings um mikilvægi fríblaða sem fjalla um íslenska menningu á erlendu tungumáli. Menning 4.7.2012 17:00 M&M býður myndlist heim Ný bók eftir Hugleik Dagsson, Enn fleiri íslensk dægurlög, kemur út í dag. Samhliða verður opnuð sýning á verkum hans í nýju galleríi Bókabúðar Máls og menningar á Laugavegi 18. "Hugleikur fær þann heiður að vígja galleríið okkar bæði með glænýjum myndum úr bókinni, sem hann er að gefa út í dag, og eldra efni,“ segir Kristján Freyr Halldórsson, verslunarstjóri í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18. "Galleríið verður opnað formlega á þriðju hæðinni klukkan 17 í dag með tilheyrandi gleði. Frændi Hugleiks, Örn Eldjárn, ætlar meðal annars að spila nokkur lög fyrir gesti og gangandi.“ Menning 28.6.2012 15:30 Útskriftarverkefni verður heil teiknimyndasería "Myndin var mjög áberandi og fólk talaði mikið um hana,“ segir leikstjórinn Þorvaldur S. Gunnarsson. Menning 28.6.2012 11:00 Mannætusöngleikur verðlaunaður í New York "Ég held að þetta séu ein stærstu verðlaun sem íslensk leikhúsframleiðsla hefur fengið,“ segir Óskar Eiríksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Leikhúsmógulsins en framleiðsla þeirra, söngleikurinn Silence!, var í vikunni kosinn besti söngleikur í New York af The Broadway Alliance. Menning 23.6.2012 10:00 Leita styrkja fyrir sýningarferð „Við nennum ekki að sitja heima og bora í nefið,“ segir leiklistarneminn Dagur Snær Sævarsson, eða Daily Snow líkt og hann er kallaður erlendis, sem ferðast um landið í sumar með frumsaminn einleik ásamt Magnúsi Þór Ólafssyni gítarleikara. Dagur nemur leiklist við leiklistarskólann í Holberg og Magnús er á kandídatsári við Konunglega danska Konservatoríið. Leikritið ber heitið Pabbi er dáinn og er fyrsta leikritun Dags. Verkið segir frá 26 ára gömlum Kára sem vitjar leiðis föður síns, mánuði eftir andlát hans, til að tala við hann eftir tuttugu ára aðskilnað. Menning 21.6.2012 15:00 Myndirnar á Time Square "Það var verið að auglýsa eftir listamönnum til að taka þátt í sýningunni og ég ákvað að senda inn nokkrar myndir. Almenningur kaus svo um það hverjir kæmust áfram og ég náði þeim kvóta sem til þurfti og fékk því að vera með,“ útskýrir Björn Árnason ljósmyndari en myndir eftir hann voru sýndar á Time Square í New York á mánudag. Menning 21.6.2012 15:00 Samdi nýja skáldsögu sem er framhald Borgríkis "Það er ótrúlega skemmtilegt að skrifa bók með karakterum sem voru algjörlega lifandi í höfðinu á manni,“ segir rithöfundurinn Óttar Martin Norðfjörð. Hann sendir í haust frá sér skáldsöguna Blóð hraustra manna. Hið óvenjulega er að hún er framhald glæpamyndarinnar Borgríkis sem kom út á síðasta ári við góðar undirtektir. Til stendur að byggja framhaldmynd hennar, sem er í undirbúningi, að stórum hluta á sögu Óttars Menning 20.6.2012 13:00 Kvikmyndaþátturinn Kviksjá aftur á dagskrá í sumar Kvikmyndaþátturinn Kviksjá í umsjón Sigríðar Pétursdóttur hefur göngu sína annað kvöld, annað árið í röð. Sýndar verða tíu íslenskar kvikmyndir sem fylgt er úr hlaði með viðtölum Sigríðar við leikstjóra, leikara eða handritshöfunda. Á dagskrá eru nýjar myndir og eldri í bland, til dæmis Á annan veg og Skilaboð til Söndru. Þrjár þeirra mynda sem sýndar verða í sumar segist Sigríður hafa leitast sérstaklega við hafa með: Stellu í Orlofi, Benjamín dúfu og Húsið. Menning 18.6.2012 16:00 Líf og fjör á Grímunni Uppskeru- og verðlaunahátíð leikarastéttarinnar Gríman fór fram með pompi og prakt í Hörpu á fimmtudagskvöldið. Leiksýningin Tengdó var sigurvegari hátíðarinnar. Menning 16.6.2012 15:00 Fyrirlestur og bók um mannsheilann „Við viljum sanna að leiðinlegt fólk geti haldið skemmtilega fyrirlestra,“ segir myndlistarneminn Sigrún Hlín Sigurðardóttir um verkefni sitt og nýútskrifuðu leikkonunnar Sögu Garðarsdóttur en þær vinna í sumar við að kanna fyrirlestraformið og mannsheilann. Verkefnið hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóð námsmanna hjá Rannís og lýkur með fræðilegum fyrirlestri sem verður hálfgerð sýning. Menning 15.6.2012 13:00 Gleði á Kjarvalsstöðum Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum ríkti mikil gleði á opnun sýningarinnar Gálgaklettur og órar sjónskynsins sem stendur yfir til 26. ágúst á Kjarvalsstöðum... Menning 15.6.2012 09:15 Reykvélin veitir leikhúsverðlaun Leikverkið Tengdó eftir Val Frey Einarsson er sýning ársins að mati gagnrýnenda Reykvélarinnar, vefrits sem helgað er leiklist. Reykvélin veitir nú í fyrsta sinn leiklistarverðlaunin Leikvélina, en þau falla í skaut "eftirtektarverðustu og mikilvægustu“ leiksýningu ársins, að mati gagnrýnenda miðilsins. Menning 14.6.2012 20:30 Hádegiserindi í Hafnarhúsi Hlynur Helgason, myndlistarmaður og heimspekingur, flytur hádegisfyrirlestur í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu í dag undir yfirskriftinni Af auðveldi og myndlistarheimi – lærdómur dreginn af ástandinu. Menning 14.6.2012 11:30 Rúrí á ítölsku Hulda Hlín Magnúsdóttir, listfræðingur og myndlistarmaður, leiðir gesti um sýningarnar Rúrí, Hættumörk, Ölvuð af Íslandi og Dáleidd af Íslandi á Listasafni Íslands í dag klukkan 13. Leiðsögnin verður á ítölsku. Menning 14.6.2012 11:00 Nautn að sýna í skjaldborgarbíói Heimildarmyndin Hreint hjarta eftir Grím Hákonarson bar sigur úr býtum í áhorfendakosningu á Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði á dögunum. Grímur segir mjög ánægjulegt að fá þessi verðlaun fyrir mynd sem hann gerði án nokkurra styrkja. Menning 6.6.2012 21:00 Samleikurinn leikhús-Viagra „Það er heiður að leika á móti svona reyndum leikara,“ segir Melkorka Óskarsdóttir. Hún hefur hlotið mikið lof fyrir leik sinn í leikritinu Beast í London, sem frumsýnt var síðasta miðvikudag. Menning 6.6.2012 10:00 Gera heimildarmynd um tónlistarsögu Suðurnesja Heimildarmynd um tónlistarsögu Suðurnesja er í undirbúningi. Tökur hefjast á tónlistarhátíðinni Keflavík Music Festival á fimmtudaginn. Menning 6.6.2012 09:15 Leikhúss listamanna heldur sumargjörningakvöld Leikhús listamanna heldur sumargjörningakvöld í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld, þriðjudaginn 5. júní, klukkan 21. Gestalistamaður kvöldsins er hinn tékkneski Jan Fiurasek, sem er daufbumbur. Menning 5.6.2012 09:30 Frumflytur dansverk í Tókýó Danslistakonan Ragnheiður Bjarnason frumflutti um helgina dansverkið Frosting í galleríinu XYZ collective í Tókýó. Frosting er lifandi innsetning þar sem dans, tónlist og myndlist mynda eitt listaverk. Ragnheiður Bjarnason er höfundur verksins, en hún bjó einnig til sviðsmynd og búninga, auk þess að dansa í verkinu. Belginn Benjamin Dousselaere sá um tónlistina. Menning 4.6.2012 17:00 Mary Poppins svífur á íslenskt svið í fyrsta skipti „Það er enn ekki búið að ákveða hver fari með hlutverk sjálfrar Mary Poppins en það er verið að skoða málið þessa dagana. Þetta er viðamikið verkefni og ekki búið að ráða í nein hlutverk," segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins, um söngleikinn um Mary Poppins sem verður frumsýndur þar í febrúar 2013. Menning 4.6.2012 11:45 Bastard á svið í kvöld Leikritið Bastard – fjölskyldusaga eftir Gísla Örn Garðarsson og bandaríska handritshöfundinn Richard Lagravenese verður sýnt í Borgarleikhúsinu á föstudags- og laugardagskvöld. Verkið er samstarfsverkefni Borgarleikhússins, Vesturports, borgarleikhússins í Malmö og Teater Får302 í Kaupmannahöfn. Menning 1.6.2012 12:30 Poppið fyrirferðarmeira en klassíkin í Hörpunni Fleiri popp- og rokktónleikar hafa verið haldnir í Hörpunni en klassískir síðan húsið var opnað í maí í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hörpunni um þá tónleika sem þar hafa verið haldnir á fyrsta starfsári hennar. Menning 26.5.2012 15:00 Pósa nakin fyrir sýningu í Ósló "Rauði þráðurinn í gegnum sýninguna er okkar upplifun af umhverfinu sem við erum í,“ segir ljósmyndarinn Jóhannes Kjartansson sem stendur að sýningunni You"reavision í Ósló ásamt kærustu sinni Hildi Hermannsdóttur og Ernu Einarsdóttur. Menning 26.5.2012 06:30 Glymskrattinn í leikhúskjallaranum Dans-og tónleikaverkið Glymskrattinn var frumsýnt á miðvikudaginn í Þjóðleikhúskjallaranum fyrir fullu húsi. Sýningin er í tengslum við Listahátíð í Reykjavík en Valdimar Jóhannesson tónlistarmaður og dansararnir Sigríður Soffía Níelsdóttir og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir eru höfundar verksins. Það má segja að Þjóðleikhúskjallaranum hafi verið breytt í dansvænan tónleikastað fyrir verkið og virtust áhorfendur hafa gaman af. Menning 25.5.2012 11:00 Utah út um hliðarrúðuna Svavar Jónatansson er nýsnúinn heim eftir tíu daga ferðalag um Utah-ríki í Bandaríkjunum. Afraksturinn er um 55 þúsund ljósmyndir sem teknar voru út um hliðarrúðu bíls í akstri eftir saltsléttunum frægu. Árið 2007 hóf Svavar Jónatansson ljósmyndari að mynda Ísland út um hliðarrúður vöru- og fólksflutningabifreiða. Hann fór á annan tug hringja í kringum landið, sem skiluðu sér í Innland/Útland-Ísland; myndbandsverki sem kom út 2010 og samanstóð af 40 þúsund ljósmyndum og frumsaminni tónlist Daníels Ágústs Haraldssonar. Menning 23.5.2012 13:00 Sveinbjörg sýnir hjá Ófeigi Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar sýning Sveinbjargar Hallgrímsdóttur var opnuð formlega á laugardaginn hjá Ófeigi á Skólavörðustíg 5... Menning 22.5.2012 17:15 Gleðikabarett með samtímatvisti "Við erum eiginlega að búa til tónleika og reynum um leið að varpa ljósi á sviðsframkomuna, eins og þekkt dansspor í poppkúltúrnum,“ útskýrir listdansarinn Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, en hún auk dansarans Sigríðar Soffíu Níelsdóttur, frumsýna nokkurskonar danstónleika í Þjóðleikhúskjallaranum næsta miðvikudagskvöld. Þeim til fulltingis eru tónlistarmaðurinn Valdimar Jóhannsson, leikmyndahönnuðurinn Brynja Björnsdóttir og stílistinn Ellen Loftsdóttir. Menning 21.5.2012 12:54 Facebook-samskipti í raunheimi Halldóra Rut Baldursdóttir og Katrín Halldóra Sigurðardóttir, leiklistarnemar við Listaháskóla Íslands, vinna að lítilli, sjálfstæðri leiksýningu sem frumsýnd verður föstudaginn 25. maí á heimili Halldóru í Grjótaþorpinu. Sýningin nefnist Heim og er alfarið byggð á Facebook-færslum. Menning 18.5.2012 13:00 Lét gamlan draum rætast Aldís Snorradóttir rekur Gallerí Þoku sem staðsett er í kjallara Hríms hönnunarhúss á Laugavegi. Aldís er nýflutt aftur heim frá Montreal þar sem hún lagði stund á nám í listasögu. "Vinkona mín opnaði Hrím fyrir skömmu og þar var rými í kjallaranum sem mér þótti tilvalið til að nýta undir sýningar enda er mikið af hæfileikaríku, ungu listafólki hér á landi og lítið um sýningarstaði. Við ákváðum því að kýla á þetta, taka rýmið í gegn og opna gallerí,“ segir Aldís. Það er listamaðurinn Magnús Helgason sem ríður á vaðið með sýninguna Guð fær greitt í dollurum sem verður opnuð á laugardag. Menning 18.5.2012 12:30 « ‹ 166 167 168 169 170 171 172 173 174 … 334 ›
Þetta er frekar melódískt verk og lætur vonandi þægilega í eyrum Hafdís Bjarnadóttir rafgítarleikari er staðartónskáld Sumartónleika Skálholtskirkju þetta árið. Nýtt verk eftir hana verður frumflutt á laugardag af sönghópnum Hljómeyki og tveimur gítarleikurum. Hún er nýlega vöknuð á hinum helga stað þegar við sláum á þráðinn til hennar. "Ég hef búið hér í Skálholti þessa viku og það er alveg yndislegt. Maður kemst í svo góð tengsl við sjálfan sig og tónlistina að vera svona uppi í sveit. Þá er ekkert verið að taka til í geymslunni eða láta glepjast af annarri vitleysu. Ég nota líka sénsinn og hvíli Facebook á meðan," segir Hafdís Bjarnadóttir, gítarleikari og staðartónskáld Skálholts, glaðlegri röddu. Ný tónlist eftir hana verður frumflutt í Skálholtskirkju á laugardaginn við ljóð eftir Einar Má Guðmundsson. Sönghópurinn Hljómeyki undir stjórn Mörtu G. Halldórsdóttur flytur og Hafdís sjálf og Ragnar Emilsson spila með á rafgítara. Menning 5.7.2012 16:00
Gefa út nýtt túristablað á frönsku "Flestir Frakkar skilja ekki ensku og við viljum útskýra fyrir þeim íslenska menningu í raun og veru og sleppa öllum klisjum,“ segir Lea Gestsdóttir Gayet sem gaf út fyrsta tölublað fríblaðsins Le Pourquoi Pas? síðasta föstudag. Blaðið er ætlað frönskumælandi ferðalöngum en Leu hefur þótt skorta slíkt rit. "Þetta er ætlað fólki til dæmis frá Frakklandi, Sviss, Belgíu og Kanada. Ég hef líka tekið eftir Ítölum og Spánverjum að lesa blaðið en þeir skilja margir frönsku mun betur en ensku,“ segir Lea og nefnir Grapevine máli sínu til stuðnings um mikilvægi fríblaða sem fjalla um íslenska menningu á erlendu tungumáli. Menning 4.7.2012 17:00
M&M býður myndlist heim Ný bók eftir Hugleik Dagsson, Enn fleiri íslensk dægurlög, kemur út í dag. Samhliða verður opnuð sýning á verkum hans í nýju galleríi Bókabúðar Máls og menningar á Laugavegi 18. "Hugleikur fær þann heiður að vígja galleríið okkar bæði með glænýjum myndum úr bókinni, sem hann er að gefa út í dag, og eldra efni,“ segir Kristján Freyr Halldórsson, verslunarstjóri í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18. "Galleríið verður opnað formlega á þriðju hæðinni klukkan 17 í dag með tilheyrandi gleði. Frændi Hugleiks, Örn Eldjárn, ætlar meðal annars að spila nokkur lög fyrir gesti og gangandi.“ Menning 28.6.2012 15:30
Útskriftarverkefni verður heil teiknimyndasería "Myndin var mjög áberandi og fólk talaði mikið um hana,“ segir leikstjórinn Þorvaldur S. Gunnarsson. Menning 28.6.2012 11:00
Mannætusöngleikur verðlaunaður í New York "Ég held að þetta séu ein stærstu verðlaun sem íslensk leikhúsframleiðsla hefur fengið,“ segir Óskar Eiríksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Leikhúsmógulsins en framleiðsla þeirra, söngleikurinn Silence!, var í vikunni kosinn besti söngleikur í New York af The Broadway Alliance. Menning 23.6.2012 10:00
Leita styrkja fyrir sýningarferð „Við nennum ekki að sitja heima og bora í nefið,“ segir leiklistarneminn Dagur Snær Sævarsson, eða Daily Snow líkt og hann er kallaður erlendis, sem ferðast um landið í sumar með frumsaminn einleik ásamt Magnúsi Þór Ólafssyni gítarleikara. Dagur nemur leiklist við leiklistarskólann í Holberg og Magnús er á kandídatsári við Konunglega danska Konservatoríið. Leikritið ber heitið Pabbi er dáinn og er fyrsta leikritun Dags. Verkið segir frá 26 ára gömlum Kára sem vitjar leiðis föður síns, mánuði eftir andlát hans, til að tala við hann eftir tuttugu ára aðskilnað. Menning 21.6.2012 15:00
Myndirnar á Time Square "Það var verið að auglýsa eftir listamönnum til að taka þátt í sýningunni og ég ákvað að senda inn nokkrar myndir. Almenningur kaus svo um það hverjir kæmust áfram og ég náði þeim kvóta sem til þurfti og fékk því að vera með,“ útskýrir Björn Árnason ljósmyndari en myndir eftir hann voru sýndar á Time Square í New York á mánudag. Menning 21.6.2012 15:00
Samdi nýja skáldsögu sem er framhald Borgríkis "Það er ótrúlega skemmtilegt að skrifa bók með karakterum sem voru algjörlega lifandi í höfðinu á manni,“ segir rithöfundurinn Óttar Martin Norðfjörð. Hann sendir í haust frá sér skáldsöguna Blóð hraustra manna. Hið óvenjulega er að hún er framhald glæpamyndarinnar Borgríkis sem kom út á síðasta ári við góðar undirtektir. Til stendur að byggja framhaldmynd hennar, sem er í undirbúningi, að stórum hluta á sögu Óttars Menning 20.6.2012 13:00
Kvikmyndaþátturinn Kviksjá aftur á dagskrá í sumar Kvikmyndaþátturinn Kviksjá í umsjón Sigríðar Pétursdóttur hefur göngu sína annað kvöld, annað árið í röð. Sýndar verða tíu íslenskar kvikmyndir sem fylgt er úr hlaði með viðtölum Sigríðar við leikstjóra, leikara eða handritshöfunda. Á dagskrá eru nýjar myndir og eldri í bland, til dæmis Á annan veg og Skilaboð til Söndru. Þrjár þeirra mynda sem sýndar verða í sumar segist Sigríður hafa leitast sérstaklega við hafa með: Stellu í Orlofi, Benjamín dúfu og Húsið. Menning 18.6.2012 16:00
Líf og fjör á Grímunni Uppskeru- og verðlaunahátíð leikarastéttarinnar Gríman fór fram með pompi og prakt í Hörpu á fimmtudagskvöldið. Leiksýningin Tengdó var sigurvegari hátíðarinnar. Menning 16.6.2012 15:00
Fyrirlestur og bók um mannsheilann „Við viljum sanna að leiðinlegt fólk geti haldið skemmtilega fyrirlestra,“ segir myndlistarneminn Sigrún Hlín Sigurðardóttir um verkefni sitt og nýútskrifuðu leikkonunnar Sögu Garðarsdóttur en þær vinna í sumar við að kanna fyrirlestraformið og mannsheilann. Verkefnið hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóð námsmanna hjá Rannís og lýkur með fræðilegum fyrirlestri sem verður hálfgerð sýning. Menning 15.6.2012 13:00
Gleði á Kjarvalsstöðum Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum ríkti mikil gleði á opnun sýningarinnar Gálgaklettur og órar sjónskynsins sem stendur yfir til 26. ágúst á Kjarvalsstöðum... Menning 15.6.2012 09:15
Reykvélin veitir leikhúsverðlaun Leikverkið Tengdó eftir Val Frey Einarsson er sýning ársins að mati gagnrýnenda Reykvélarinnar, vefrits sem helgað er leiklist. Reykvélin veitir nú í fyrsta sinn leiklistarverðlaunin Leikvélina, en þau falla í skaut "eftirtektarverðustu og mikilvægustu“ leiksýningu ársins, að mati gagnrýnenda miðilsins. Menning 14.6.2012 20:30
Hádegiserindi í Hafnarhúsi Hlynur Helgason, myndlistarmaður og heimspekingur, flytur hádegisfyrirlestur í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu í dag undir yfirskriftinni Af auðveldi og myndlistarheimi – lærdómur dreginn af ástandinu. Menning 14.6.2012 11:30
Rúrí á ítölsku Hulda Hlín Magnúsdóttir, listfræðingur og myndlistarmaður, leiðir gesti um sýningarnar Rúrí, Hættumörk, Ölvuð af Íslandi og Dáleidd af Íslandi á Listasafni Íslands í dag klukkan 13. Leiðsögnin verður á ítölsku. Menning 14.6.2012 11:00
Nautn að sýna í skjaldborgarbíói Heimildarmyndin Hreint hjarta eftir Grím Hákonarson bar sigur úr býtum í áhorfendakosningu á Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði á dögunum. Grímur segir mjög ánægjulegt að fá þessi verðlaun fyrir mynd sem hann gerði án nokkurra styrkja. Menning 6.6.2012 21:00
Samleikurinn leikhús-Viagra „Það er heiður að leika á móti svona reyndum leikara,“ segir Melkorka Óskarsdóttir. Hún hefur hlotið mikið lof fyrir leik sinn í leikritinu Beast í London, sem frumsýnt var síðasta miðvikudag. Menning 6.6.2012 10:00
Gera heimildarmynd um tónlistarsögu Suðurnesja Heimildarmynd um tónlistarsögu Suðurnesja er í undirbúningi. Tökur hefjast á tónlistarhátíðinni Keflavík Music Festival á fimmtudaginn. Menning 6.6.2012 09:15
Leikhúss listamanna heldur sumargjörningakvöld Leikhús listamanna heldur sumargjörningakvöld í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld, þriðjudaginn 5. júní, klukkan 21. Gestalistamaður kvöldsins er hinn tékkneski Jan Fiurasek, sem er daufbumbur. Menning 5.6.2012 09:30
Frumflytur dansverk í Tókýó Danslistakonan Ragnheiður Bjarnason frumflutti um helgina dansverkið Frosting í galleríinu XYZ collective í Tókýó. Frosting er lifandi innsetning þar sem dans, tónlist og myndlist mynda eitt listaverk. Ragnheiður Bjarnason er höfundur verksins, en hún bjó einnig til sviðsmynd og búninga, auk þess að dansa í verkinu. Belginn Benjamin Dousselaere sá um tónlistina. Menning 4.6.2012 17:00
Mary Poppins svífur á íslenskt svið í fyrsta skipti „Það er enn ekki búið að ákveða hver fari með hlutverk sjálfrar Mary Poppins en það er verið að skoða málið þessa dagana. Þetta er viðamikið verkefni og ekki búið að ráða í nein hlutverk," segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins, um söngleikinn um Mary Poppins sem verður frumsýndur þar í febrúar 2013. Menning 4.6.2012 11:45
Bastard á svið í kvöld Leikritið Bastard – fjölskyldusaga eftir Gísla Örn Garðarsson og bandaríska handritshöfundinn Richard Lagravenese verður sýnt í Borgarleikhúsinu á föstudags- og laugardagskvöld. Verkið er samstarfsverkefni Borgarleikhússins, Vesturports, borgarleikhússins í Malmö og Teater Får302 í Kaupmannahöfn. Menning 1.6.2012 12:30
Poppið fyrirferðarmeira en klassíkin í Hörpunni Fleiri popp- og rokktónleikar hafa verið haldnir í Hörpunni en klassískir síðan húsið var opnað í maí í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hörpunni um þá tónleika sem þar hafa verið haldnir á fyrsta starfsári hennar. Menning 26.5.2012 15:00
Pósa nakin fyrir sýningu í Ósló "Rauði þráðurinn í gegnum sýninguna er okkar upplifun af umhverfinu sem við erum í,“ segir ljósmyndarinn Jóhannes Kjartansson sem stendur að sýningunni You"reavision í Ósló ásamt kærustu sinni Hildi Hermannsdóttur og Ernu Einarsdóttur. Menning 26.5.2012 06:30
Glymskrattinn í leikhúskjallaranum Dans-og tónleikaverkið Glymskrattinn var frumsýnt á miðvikudaginn í Þjóðleikhúskjallaranum fyrir fullu húsi. Sýningin er í tengslum við Listahátíð í Reykjavík en Valdimar Jóhannesson tónlistarmaður og dansararnir Sigríður Soffía Níelsdóttir og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir eru höfundar verksins. Það má segja að Þjóðleikhúskjallaranum hafi verið breytt í dansvænan tónleikastað fyrir verkið og virtust áhorfendur hafa gaman af. Menning 25.5.2012 11:00
Utah út um hliðarrúðuna Svavar Jónatansson er nýsnúinn heim eftir tíu daga ferðalag um Utah-ríki í Bandaríkjunum. Afraksturinn er um 55 þúsund ljósmyndir sem teknar voru út um hliðarrúðu bíls í akstri eftir saltsléttunum frægu. Árið 2007 hóf Svavar Jónatansson ljósmyndari að mynda Ísland út um hliðarrúður vöru- og fólksflutningabifreiða. Hann fór á annan tug hringja í kringum landið, sem skiluðu sér í Innland/Útland-Ísland; myndbandsverki sem kom út 2010 og samanstóð af 40 þúsund ljósmyndum og frumsaminni tónlist Daníels Ágústs Haraldssonar. Menning 23.5.2012 13:00
Sveinbjörg sýnir hjá Ófeigi Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar sýning Sveinbjargar Hallgrímsdóttur var opnuð formlega á laugardaginn hjá Ófeigi á Skólavörðustíg 5... Menning 22.5.2012 17:15
Gleðikabarett með samtímatvisti "Við erum eiginlega að búa til tónleika og reynum um leið að varpa ljósi á sviðsframkomuna, eins og þekkt dansspor í poppkúltúrnum,“ útskýrir listdansarinn Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, en hún auk dansarans Sigríðar Soffíu Níelsdóttur, frumsýna nokkurskonar danstónleika í Þjóðleikhúskjallaranum næsta miðvikudagskvöld. Þeim til fulltingis eru tónlistarmaðurinn Valdimar Jóhannsson, leikmyndahönnuðurinn Brynja Björnsdóttir og stílistinn Ellen Loftsdóttir. Menning 21.5.2012 12:54
Facebook-samskipti í raunheimi Halldóra Rut Baldursdóttir og Katrín Halldóra Sigurðardóttir, leiklistarnemar við Listaháskóla Íslands, vinna að lítilli, sjálfstæðri leiksýningu sem frumsýnd verður föstudaginn 25. maí á heimili Halldóru í Grjótaþorpinu. Sýningin nefnist Heim og er alfarið byggð á Facebook-færslum. Menning 18.5.2012 13:00
Lét gamlan draum rætast Aldís Snorradóttir rekur Gallerí Þoku sem staðsett er í kjallara Hríms hönnunarhúss á Laugavegi. Aldís er nýflutt aftur heim frá Montreal þar sem hún lagði stund á nám í listasögu. "Vinkona mín opnaði Hrím fyrir skömmu og þar var rými í kjallaranum sem mér þótti tilvalið til að nýta undir sýningar enda er mikið af hæfileikaríku, ungu listafólki hér á landi og lítið um sýningarstaði. Við ákváðum því að kýla á þetta, taka rýmið í gegn og opna gallerí,“ segir Aldís. Það er listamaðurinn Magnús Helgason sem ríður á vaðið með sýninguna Guð fær greitt í dollurum sem verður opnuð á laugardag. Menning 18.5.2012 12:30