Innlent Eigi ekki eftir að eyðileggja menntakerfið Gervigreindartól á borð við ChatGPT, Gemini og CoPilot hafa komið eins og stormsveipur inn í íslenskt menntakerfi og vakið upp spurningar um áhrif þeirra á kennslustarfið. Framhaldsskólakennari sem vildi í fyrstu banna notkun þeirra hefur nú tekið þau í sátt. Hann telur nýju tólin komin til að vera og nýtir þau með virkum hætti í kennslunni. Innlent 20.8.2024 07:01 Óvenjumörg útköll vegna vatnsleka á höfuðborgarsvæðinu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur farið í óvenjulega mörg útköll í kvöld vegna vatnsleka. Það vekur athygli að allir lekarnir nema eitt hafi verið í þeim hverfum höfuðborgarsvæðisins þar sem skrúfað hefur verið fyrir heita vatnið vegna vinnu Veitna við tengingu á Suðuræð 2. Innlent 20.8.2024 00:15 Vill neyðarlög verði stýrivextir ekki lækkaðir „Ég tel bara að ef vextir eiga að haldast óbreyttir, þá þurfi hreinlega að setja neyðarlög. Ég er bara komin þangað.“ Þetta segir Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður hagsmunasamtaka Heimilanna, þingmaður Flokks Fólksins og nefndarmaður í efnahags og viðskiptanefnd Alþingis. Innlent 19.8.2024 22:24 Kynnti „einhverjar mestu breytingar á námsgagnaútgáfu í áratugi“ Námsgögn verða gjaldfrjáls fyrir framhaldsskólanema að átján ára aldri og fjárframlag til námsgagnagerðar mun tvöfaldast nái frumvarp barnamálaráðherra fram að ganga. Útgefandi fagnar því að stjórnvöld séu farin að átta sig á umfangi vandans, úrelt námsgögn séu alvarlegt samfélagsmein. Innlent 19.8.2024 22:06 Stjórnlaus sprenging í bílastæðagjöldum við náttúruperlur Á fáeinum árum hefur orðið sprenging í bílastæðagjöldum við margar af helstu náttúruperlum landsins. Ferðamálastjóri segir stjórnleysi ríkja í málaflokknum og gjöldin leggist misvel í landann. Nauðsynlegt sé að koma böndum á þessa þróun. Innlent 19.8.2024 21:08 Jódísi ofbýður áfengisneysla á Alþingi Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, segist hafa gert athugasemd innan forsætisnefndar Alþingis vegna áfengisneyslu þingmanna við þinglok í vor. Hún segir það ekki boðlegt að þingmenn skuli standa í ræðustól á Alþingi Íslendinga undir áhrifum áfengis. Það sé gríðarleg vanvirðing við land og þjóð. Innlent 19.8.2024 20:36 97 ára og 81 árs dömur á ísrúnti á Dalvík Þær eru yfir sig ánægðar með sig, 97 ára og 81 árs vinkonurnar á Dalbæ, hjúkrunarheimili á Dalvík þegar þær fara saman á ísrúnt á sérstöku hjóli þar sem þær sitja í vagni eins og prinsessur með hattana sína og sólgleraugun á nefinu. Innlent 19.8.2024 20:05 Ráðherrar tala út og suður um útlendingamál Dómsmálaráðherra boðar frumvarp í haust um breytingar á útlendingalögum sem meðal annars feli í sér lokað búsetuúrræði fyrir hælisleitendur við komuna til landsins og þá sem hafa fengið synjun um alþjóðlega vernd. Félagsmálaráðherra telur hins vegar enga þörf á þessum breytingum. Innlent 19.8.2024 19:21 Fimmtíu ár frá opnun Hringvegar Fimmtíu ár eru frá því að Skeiðarárbrú var vígð í júlí 1974, og Hringveginum þar með lokað. Í telefni af þessum tímamótum standa Vegagerðin og sveitarfélagið Hornafjörður fyrir málþingi og hátíðardagskrá föstudaginn 30. ágúst 2024. Innlent 19.8.2024 19:12 Beiðnin afturkölluð og Helgi þarf ekki að skila lyklum Beiðni ríkissaksóknara um að Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari skili lyklum að húsnæði embættisins, fartölvu og öðru slíku hefur verið afturkölluð. Helgi fékk tölvupóst þess efnis fyrir um fjórum klukkutímum en fékk svo annan fyrir hálftíma þar sem beiðnin var afturkölluð. Innlent 19.8.2024 18:42 Bæjarstjórn hefur ekki gefið upp von um endurreisn Skagans 3X Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar lýsir yfir miklum harmi yfir þeirri stöðu sem upp er komin í máli Skagans 3X en hún hefur þó ekki gefið upp alla von um endurreista starfsemi fyrirtækisins á Akranesi. Innlent 19.8.2024 18:18 Sprenging í bílastæðagjöldum og hitað upp fyrir heitavatnsleysið Á fáeinum árum hefur orðið sprenging í bílastæðagjöldum við margar af helstu náttúruperlum landsins. Ferðamálastjóri segir villta vestrið ríkja í málaflokknum og að gjöldin fari misvel í landann. Nauðsynlegt sé að koma böndum á þessa þróun. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 19.8.2024 18:00 Helgi beðinn um að skila lyklunum Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hefur verið beðinn um að skila lyklum og fartölvu til embættis ríkissaksóknara, að beiðni skrifstofustjóra embættisins. Hann telur þessa ákvörðun ólögmæta, en dómsmálaráðherra hefur ekki tekið ákvörðun í máli hans. Innlent 19.8.2024 17:53 Sextíu veikir og minnst sex með nóróveiru Búið er að staðfesta að í það minnsta sex af þeim rúmlega sextíu sem veiktust eftir að hafa gist á Rangárvöllum á síðustu vikum séu með nóróveiru. Unnið er að því að greina sýni úr neysluvatni á svæðinu og hvort nóróveirur hafi borist í vatnsból. Innlent 19.8.2024 16:23 Þurfa að leita annað í sund Þónokkrum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað í vikunni vegna framkvæmda Veitna. Heitavatnslaust verður víða á höfuðborgarsvæðinu næstu daga. Innlent 19.8.2024 16:02 Ráðuneyti tína til milljónir fyrir nýjum starfsmanni Tvö ráðuneyti hafa sameinast um að veita Bjarkarhlíð 28 milljóna króna styrk til þess að sinna verkefnum tengdum mansali. Innlent 19.8.2024 15:50 Virðir ekki nálgunarbann og í gæsluvarðhaldi þar til vísað úr landi Karlmaður sem stendur til að vísa úr landi þarf að sæta gæsluvarðhaldi þar til brottflutningurinn er framkvæmdur. Talið er að mikil hætta sé á að hann rjúfi nálgunarbann gagnvart fjórum dætrum sínum. Innlent 19.8.2024 15:01 „Þetta er hundleiðinlegt auðvitað“ Brotist var inn á veitingastaðinn Dirty Burger and Ribs í Fellsmúla aðfaranótt sunnudags og peningaskúffu stolið úr afgreiðslukassa. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu. Innlent 19.8.2024 14:23 „Drengirnir okkar eru líka í hættu“ „Við þurfum ekki aðeins að vernda ungu stúlkurnar okkar fyrir óraunhæfum viðmiðum um útlit. Drengirnir okkar eru líka í hættu.“ Innlent 19.8.2024 14:01 Bein útsending: Málstofa og sýning um íslenskt námsefni Málstofa með yfirskriftinni Íslenskt námsefni – hvað er til? stendur yfir í Laugalækjarskóla dag frá klukkan 14 til 16. Innlent 19.8.2024 13:01 Frost í Reykjavík í nótt Hitastigið fór niður í mínus 0,9 gráður í Víðidal í Reykjavík klukkan sex í morgun. Mælt er í tveggja metra hæð og líklega hefur verið enn kaldara niðri við jörð. Innlent 19.8.2024 13:00 Vilja ekki tæma klósettin við Nykurhylsfoss Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings hefur hafnað beiðni landeigenda jarðarinnar Lindarbrekku í Berufirði um að sveitarfélagið styrki innviði fyrir ferðamenn á plani við Nykurhylsfoss. Innlent 19.8.2024 12:38 Eldglæringar milli VG og Sjálfstæðisflokks Ríkisstjórnarsamstarfið hangir á bláþræði að mati prófessors í stjórnmálafræði. Gríðarleg missklíð og jafnvel eldglæringar séu milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks. Búast megi við algjörri biðstöðu á Alþingi í vetur ákveði ríkisstjórnin að halda samstarfinu áfram. Innlent 19.8.2024 12:24 Höfuðkúpubrotnaði í vinnuslysi í Hafnarfirði Maður slasaðist alvarlega í vinnuslysi við Hringhellu í Hafnarfirði á miðvikudag. Hann var að vinna við lagfæringu á hurð á vinnugámi en fékk hurðina með miklu afli í höfuðið á sér. Innlent 19.8.2024 12:18 Aukin neysla eykur verðbólgu og dregur úr líkum á vaxtalækkun Markaðasaðilar eru svartsýnni en áður á hjöðnun verðbólgu samkvæmt könnun Seðlabankans sem dregur væntanlega úr líkum á því að bankinn lækki meginvexti sína á miðvikudag. Hagfræðingur Landsbankans segir mikinn kraft í hagkerfinu með aukinni neyslu Íslendinga og erlendra ferðamanna. Innlent 19.8.2024 12:00 Þyrlan sótti veikan farþega skemmtiferðaskips Veikur farþegi skemmtiferðaskips var sóttu með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Grundarfjörð nú fyrir hádegið. Óskað var eftir aðstoð þyrlunnar til þess að koma farþeganum undir læknishendur í Reykjavík. Innlent 19.8.2024 11:38 Fólk með gólfhitakerfi ætti að sýna sérstaka aðgát Stærsta heitavatnslokun í sögu Veitna skellur á í kvöld. Heitavatnslaust verður hjá næstum þriðjungi þjóðarinnar fram á miðvikudag. Pípulagningameistari ráðleggur íbúum að skrúfa fyrir krana og loka fyrir inntak heits vatns. Þá þurfi fólk með gólfhitakerfi að huga sérstaklega að sínum kerfum. Innlent 19.8.2024 11:29 Skjálftar á Reykjanesi, í efnahagslífinu og í pólitíkinni Í hádegisfréttum beinum við sjónum okkar að verðbólgunni og vaxtaákvörðun Seðlabankans síðar í vikunni. Innlent 19.8.2024 11:27 Aðstæður svipaðar og dagana fyrir síðasta gos Um 110 skjálftar mældust í gær við kvikuganginn í Sundhnúksgígaröðinni. Það er umtalsverð fjölgun skjálfta en í síðustu viku voru þeir sextíu til níutíu á sólarhring. Innlent 19.8.2024 10:11 Aukning í skjálftavirkni heldur áfram Áframhaldandi aukning er í skjálftavirkni við Sundhnúksgígaröðinni líkt og verið hefur síðustu daga. Innlent 19.8.2024 07:40 « ‹ 89 90 91 92 93 94 95 96 97 … 334 ›
Eigi ekki eftir að eyðileggja menntakerfið Gervigreindartól á borð við ChatGPT, Gemini og CoPilot hafa komið eins og stormsveipur inn í íslenskt menntakerfi og vakið upp spurningar um áhrif þeirra á kennslustarfið. Framhaldsskólakennari sem vildi í fyrstu banna notkun þeirra hefur nú tekið þau í sátt. Hann telur nýju tólin komin til að vera og nýtir þau með virkum hætti í kennslunni. Innlent 20.8.2024 07:01
Óvenjumörg útköll vegna vatnsleka á höfuðborgarsvæðinu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur farið í óvenjulega mörg útköll í kvöld vegna vatnsleka. Það vekur athygli að allir lekarnir nema eitt hafi verið í þeim hverfum höfuðborgarsvæðisins þar sem skrúfað hefur verið fyrir heita vatnið vegna vinnu Veitna við tengingu á Suðuræð 2. Innlent 20.8.2024 00:15
Vill neyðarlög verði stýrivextir ekki lækkaðir „Ég tel bara að ef vextir eiga að haldast óbreyttir, þá þurfi hreinlega að setja neyðarlög. Ég er bara komin þangað.“ Þetta segir Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður hagsmunasamtaka Heimilanna, þingmaður Flokks Fólksins og nefndarmaður í efnahags og viðskiptanefnd Alþingis. Innlent 19.8.2024 22:24
Kynnti „einhverjar mestu breytingar á námsgagnaútgáfu í áratugi“ Námsgögn verða gjaldfrjáls fyrir framhaldsskólanema að átján ára aldri og fjárframlag til námsgagnagerðar mun tvöfaldast nái frumvarp barnamálaráðherra fram að ganga. Útgefandi fagnar því að stjórnvöld séu farin að átta sig á umfangi vandans, úrelt námsgögn séu alvarlegt samfélagsmein. Innlent 19.8.2024 22:06
Stjórnlaus sprenging í bílastæðagjöldum við náttúruperlur Á fáeinum árum hefur orðið sprenging í bílastæðagjöldum við margar af helstu náttúruperlum landsins. Ferðamálastjóri segir stjórnleysi ríkja í málaflokknum og gjöldin leggist misvel í landann. Nauðsynlegt sé að koma böndum á þessa þróun. Innlent 19.8.2024 21:08
Jódísi ofbýður áfengisneysla á Alþingi Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, segist hafa gert athugasemd innan forsætisnefndar Alþingis vegna áfengisneyslu þingmanna við þinglok í vor. Hún segir það ekki boðlegt að þingmenn skuli standa í ræðustól á Alþingi Íslendinga undir áhrifum áfengis. Það sé gríðarleg vanvirðing við land og þjóð. Innlent 19.8.2024 20:36
97 ára og 81 árs dömur á ísrúnti á Dalvík Þær eru yfir sig ánægðar með sig, 97 ára og 81 árs vinkonurnar á Dalbæ, hjúkrunarheimili á Dalvík þegar þær fara saman á ísrúnt á sérstöku hjóli þar sem þær sitja í vagni eins og prinsessur með hattana sína og sólgleraugun á nefinu. Innlent 19.8.2024 20:05
Ráðherrar tala út og suður um útlendingamál Dómsmálaráðherra boðar frumvarp í haust um breytingar á útlendingalögum sem meðal annars feli í sér lokað búsetuúrræði fyrir hælisleitendur við komuna til landsins og þá sem hafa fengið synjun um alþjóðlega vernd. Félagsmálaráðherra telur hins vegar enga þörf á þessum breytingum. Innlent 19.8.2024 19:21
Fimmtíu ár frá opnun Hringvegar Fimmtíu ár eru frá því að Skeiðarárbrú var vígð í júlí 1974, og Hringveginum þar með lokað. Í telefni af þessum tímamótum standa Vegagerðin og sveitarfélagið Hornafjörður fyrir málþingi og hátíðardagskrá föstudaginn 30. ágúst 2024. Innlent 19.8.2024 19:12
Beiðnin afturkölluð og Helgi þarf ekki að skila lyklum Beiðni ríkissaksóknara um að Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari skili lyklum að húsnæði embættisins, fartölvu og öðru slíku hefur verið afturkölluð. Helgi fékk tölvupóst þess efnis fyrir um fjórum klukkutímum en fékk svo annan fyrir hálftíma þar sem beiðnin var afturkölluð. Innlent 19.8.2024 18:42
Bæjarstjórn hefur ekki gefið upp von um endurreisn Skagans 3X Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar lýsir yfir miklum harmi yfir þeirri stöðu sem upp er komin í máli Skagans 3X en hún hefur þó ekki gefið upp alla von um endurreista starfsemi fyrirtækisins á Akranesi. Innlent 19.8.2024 18:18
Sprenging í bílastæðagjöldum og hitað upp fyrir heitavatnsleysið Á fáeinum árum hefur orðið sprenging í bílastæðagjöldum við margar af helstu náttúruperlum landsins. Ferðamálastjóri segir villta vestrið ríkja í málaflokknum og að gjöldin fari misvel í landann. Nauðsynlegt sé að koma böndum á þessa þróun. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 19.8.2024 18:00
Helgi beðinn um að skila lyklunum Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hefur verið beðinn um að skila lyklum og fartölvu til embættis ríkissaksóknara, að beiðni skrifstofustjóra embættisins. Hann telur þessa ákvörðun ólögmæta, en dómsmálaráðherra hefur ekki tekið ákvörðun í máli hans. Innlent 19.8.2024 17:53
Sextíu veikir og minnst sex með nóróveiru Búið er að staðfesta að í það minnsta sex af þeim rúmlega sextíu sem veiktust eftir að hafa gist á Rangárvöllum á síðustu vikum séu með nóróveiru. Unnið er að því að greina sýni úr neysluvatni á svæðinu og hvort nóróveirur hafi borist í vatnsból. Innlent 19.8.2024 16:23
Þurfa að leita annað í sund Þónokkrum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað í vikunni vegna framkvæmda Veitna. Heitavatnslaust verður víða á höfuðborgarsvæðinu næstu daga. Innlent 19.8.2024 16:02
Ráðuneyti tína til milljónir fyrir nýjum starfsmanni Tvö ráðuneyti hafa sameinast um að veita Bjarkarhlíð 28 milljóna króna styrk til þess að sinna verkefnum tengdum mansali. Innlent 19.8.2024 15:50
Virðir ekki nálgunarbann og í gæsluvarðhaldi þar til vísað úr landi Karlmaður sem stendur til að vísa úr landi þarf að sæta gæsluvarðhaldi þar til brottflutningurinn er framkvæmdur. Talið er að mikil hætta sé á að hann rjúfi nálgunarbann gagnvart fjórum dætrum sínum. Innlent 19.8.2024 15:01
„Þetta er hundleiðinlegt auðvitað“ Brotist var inn á veitingastaðinn Dirty Burger and Ribs í Fellsmúla aðfaranótt sunnudags og peningaskúffu stolið úr afgreiðslukassa. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu. Innlent 19.8.2024 14:23
„Drengirnir okkar eru líka í hættu“ „Við þurfum ekki aðeins að vernda ungu stúlkurnar okkar fyrir óraunhæfum viðmiðum um útlit. Drengirnir okkar eru líka í hættu.“ Innlent 19.8.2024 14:01
Bein útsending: Málstofa og sýning um íslenskt námsefni Málstofa með yfirskriftinni Íslenskt námsefni – hvað er til? stendur yfir í Laugalækjarskóla dag frá klukkan 14 til 16. Innlent 19.8.2024 13:01
Frost í Reykjavík í nótt Hitastigið fór niður í mínus 0,9 gráður í Víðidal í Reykjavík klukkan sex í morgun. Mælt er í tveggja metra hæð og líklega hefur verið enn kaldara niðri við jörð. Innlent 19.8.2024 13:00
Vilja ekki tæma klósettin við Nykurhylsfoss Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings hefur hafnað beiðni landeigenda jarðarinnar Lindarbrekku í Berufirði um að sveitarfélagið styrki innviði fyrir ferðamenn á plani við Nykurhylsfoss. Innlent 19.8.2024 12:38
Eldglæringar milli VG og Sjálfstæðisflokks Ríkisstjórnarsamstarfið hangir á bláþræði að mati prófessors í stjórnmálafræði. Gríðarleg missklíð og jafnvel eldglæringar séu milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks. Búast megi við algjörri biðstöðu á Alþingi í vetur ákveði ríkisstjórnin að halda samstarfinu áfram. Innlent 19.8.2024 12:24
Höfuðkúpubrotnaði í vinnuslysi í Hafnarfirði Maður slasaðist alvarlega í vinnuslysi við Hringhellu í Hafnarfirði á miðvikudag. Hann var að vinna við lagfæringu á hurð á vinnugámi en fékk hurðina með miklu afli í höfuðið á sér. Innlent 19.8.2024 12:18
Aukin neysla eykur verðbólgu og dregur úr líkum á vaxtalækkun Markaðasaðilar eru svartsýnni en áður á hjöðnun verðbólgu samkvæmt könnun Seðlabankans sem dregur væntanlega úr líkum á því að bankinn lækki meginvexti sína á miðvikudag. Hagfræðingur Landsbankans segir mikinn kraft í hagkerfinu með aukinni neyslu Íslendinga og erlendra ferðamanna. Innlent 19.8.2024 12:00
Þyrlan sótti veikan farþega skemmtiferðaskips Veikur farþegi skemmtiferðaskips var sóttu með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Grundarfjörð nú fyrir hádegið. Óskað var eftir aðstoð þyrlunnar til þess að koma farþeganum undir læknishendur í Reykjavík. Innlent 19.8.2024 11:38
Fólk með gólfhitakerfi ætti að sýna sérstaka aðgát Stærsta heitavatnslokun í sögu Veitna skellur á í kvöld. Heitavatnslaust verður hjá næstum þriðjungi þjóðarinnar fram á miðvikudag. Pípulagningameistari ráðleggur íbúum að skrúfa fyrir krana og loka fyrir inntak heits vatns. Þá þurfi fólk með gólfhitakerfi að huga sérstaklega að sínum kerfum. Innlent 19.8.2024 11:29
Skjálftar á Reykjanesi, í efnahagslífinu og í pólitíkinni Í hádegisfréttum beinum við sjónum okkar að verðbólgunni og vaxtaákvörðun Seðlabankans síðar í vikunni. Innlent 19.8.2024 11:27
Aðstæður svipaðar og dagana fyrir síðasta gos Um 110 skjálftar mældust í gær við kvikuganginn í Sundhnúksgígaröðinni. Það er umtalsverð fjölgun skjálfta en í síðustu viku voru þeir sextíu til níutíu á sólarhring. Innlent 19.8.2024 10:11
Aukning í skjálftavirkni heldur áfram Áframhaldandi aukning er í skjálftavirkni við Sundhnúksgígaröðinni líkt og verið hefur síðustu daga. Innlent 19.8.2024 07:40