Innlent Staða sauðfjárræktarinnar er björt segir fjallkóngur „Lömbin koma væn af fjalli og eru harðholda “segir fjallkóngur Hrunamanna en réttað var í Hrunaréttum Í Hrunamannahreppi í dag og í Skaftholtsréttum í Skeiða og Gnúpverjahreppi. Innlent 13.9.2024 20:04 „Ég stend við þessa ákvörðun“ Dómsmálaráðherra stendur keik við ákvörðun sína um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki lausn frá störfum, þrátt fyrir gagnrýni. Hún segir eðlilegt að fram komi ólík sjónarmið enda eigi málið sér fá sem engin fordæmi. Ríkissaksóknari telur umræðu um málið hafa verið óvægna gagnvart embættinu. Innlent 13.9.2024 19:26 Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna á fundum í Reykjavík Utanríkisráðherra og aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna funduðu í dag í Reykjavík um tvíhliða samskipti þjóðanna, stöðu átakanna í Úkraínu og á Gaza. Bandaríski ráðherrann segir stöðuna á Indo-Kyrrhafssvæðinu snerta Evrópubúa þar sem Kína og Norður Kórea styðji stríðsrekstur Rússa í Úkraínu með beinum hætti. Innlent 13.9.2024 19:22 Ráðherra stendur fastur á sínu og möguleg ofgreining á ADHD Dómsmálaráðherra stendur keikur við ákvörðun sína um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki lausn frá störfum, þrátt fyrir gagnrýni. Farið verður yfir gagnrýnina og þróun málsins í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 13.9.2024 18:12 „Við erum hundfúl yfir þessu“ Bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar var í síðustu viku falið að krefja Vegagerðina svara um stöðu framkvæmda á Dynjandiheiði, en aðeins sjö kílómetra vantar upp á að bundið slitlag verði á heiðinni allri. Svarið sem barst var einfalt; fjármagn skortir og ekkert verður aðhafst í bili. Innlent 13.9.2024 17:01 Rúta í ljósum logum á Ísafirði Eldur logar í rútu í Tungudal í Ísafirði. Slökkvilið á Ísafirði sinnir verkefninu en getur engar frekari upplýsingar veitt að svo stöddu. Innlent 13.9.2024 15:15 Hallað hafi á embættið í moldviðri Helga Magnúsar Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir fjölmiðlaumfjöllun um mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara hafa verið mjög á einn veg og lítið hafa farið fyrir gagnrýnum spurningum til Helga Magnúsar. Þannig hafi hallað verulega á embætti ríkissaksóknara og ákæruvaldið í moldviðri, sem Helga Magnúsi hafi tekist að magna. Innlent 13.9.2024 14:33 Elvar á Ítalíu viðurkennir erfiðleika við launagreiðslur Elvar Ingimarsson, eigandi veitingastaðarins Ítalíu, viðurkennir að félagið hafi átt í erfiðleikum með að greiða út laun. Hann segir að sem stendur skuldi veitingastaðurinn tvær milljónir króna í ógreidd laun, sem samsvari um tveimur prósentum af launum sem hafa verið til greiðslu á þessu ári. Innlent 13.9.2024 14:11 Grænt ljós á Flensborgarhöfn Flensborgarhöfn stígur inn í framtíðina með nýju deiliskipulagi sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær og verður nú sett í auglýsingu. Innlent 13.9.2024 14:05 Lagði á flótta á Vegmúla Ökumaður lagði á flótta frá lögreglu eftir að hún hafði afskipti af ökutæki hans við Vegmúla í Reykjavík í dag, örskammt frá vegamótunum við Suðurlandsbraut. Innlent 13.9.2024 14:05 Sýkna Sólveigar stendur Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Áslaugar Björnsdóttur um áfrýjunarleyfi í máli hennar á hendur Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur, fyrrverandi þingmanni og dómsmálaráðherra. Áslaug krafði Sólveigu um greiðslu 28 milljóna króna í málinu en í tengdum málum hefur Sólveig verið krafin um milljarða króna. Innlent 13.9.2024 13:52 Bjóða almenningi í heimsókn Almenningi verður biðið að skoða Alþingishúsið og Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis á morgun, laugardag. Viðburðurinn er liður í dagskrá áttatíu ára afmælis lýðveldisins. Innlent 13.9.2024 13:33 „Upp með pelana og fjörið“ Smölun er nú að ljúka eftir níu daga rekstur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Vísir var að sjálfsögðu á staðnum og náði tali af hinum knáa fjallkóngi Guðmundi Árnasyni, sem hafði reyndar takmarkaðan tíma til að spjalla við blaðamann. Innlent 13.9.2024 12:10 Áhersla á stuðning við jaðarsetta hópa í menntakerfinu Mennta- og barnamálaráðherra segir fjármagn verða sett í þjóðarleikvanga á næsta ári og 250 milljónir verði settar aukalega til afreksíþrótta. Brugðist verði við aukinni aðsókn í verknám nám fyrir jaðarsetta hópa í samfélaginu eflt. Innlent 13.9.2024 12:01 Samningur um bakaðgerðir á lokametrunum og mótmælt fyrir utan Ítalíu Í hádegisfréttum verður rætt við heilbrigðisráðherra um bakaðgerðir en unnið er að því að semja við einkaaðila um að vinna á biðlistum. Innlent 13.9.2024 11:42 Útför Bryndísar Klöru frá Hallgrímskirkju Útför Bryndísar Klöru Birgisdóttur verður frá Hallgrímskirkju klukkan 15 í dag. Útförinni verður streymt á Vísi. Innlent 13.9.2024 11:01 Telur Guðrúnu vilja halda hlífiskildi yfir ráðuneytinu Almar M. Möller lögmaður gagnrýnir þau sjónarmið sem fram komu í grein Róberts Spanó frá í gær að ákvörðun Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra um að Helgi Magnús Gunnarsson haldi stöðu sinni sem vararíkissaksóknari stangist á við lög. Hann telur dómsmálaráðherra skilgreina málið of þröngt að gefnum forsendum og í raun megi rekja allt tal um lögleysu til ríkissaksóknara sjálfs. Innlent 13.9.2024 10:55 Þiggja boð konungs um sögulega heimsókn Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason eiginmaður hennar hafa þegið boð Friðriks tíunda Danakonugs um heimsókn til Danmerkur dagana 8. til 9. október. Innlent 13.9.2024 10:38 Virkjanaleyfið kært aftur Önnur kæra hefur borist úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna veitingar Orkustofnunar á virkjanaleyfi fyrir vindorkuver í Búrfellslundi. Að þessu sinni eru það náttúruverndarsamtökin Náttúrugrið sem kæra. Innlent 13.9.2024 10:27 Viðgerð lokið eftir að strengur slitnaði við Elliðaárbrú Strengur hefur slitnað á stofnleið við brú yfir Elliðaár í Reykjavík. Unnið er að viðgerð en slitið hefur meðal annars áhrif á netþjónustu í Norðlingaholti. Innlent 13.9.2024 10:21 Ákærður fyrir að kasta óþekktum hlut í konu sem höfuðkúpubrotnaði Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að ráðast á konu á heimili sínu á laugardagskvöldi í janúar 2022. Innlent 13.9.2024 06:47 Lögregla kölluð til vegna manns með eggvopn í strætó Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar í gærkvöldi vegna manns sem var sagður með eggvopn í strætó. Mögulega er um að ræða eina og sama manninn. Innlent 13.9.2024 06:18 Kynntu rafmagnsflugvélina sem Icelandair hefur pantað Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace kynnti í dag fyrsta tilraunaeintak þrjátíu sæta rafmagnsflugvélar. Hún gæti orðið fyrsta rafknúna flugvélin í innanlandsflugi hérlendis en Icelandair hefur skráð sig fyrir fimm eintökum. Innlent 12.9.2024 22:40 „Hann hefur fyrir vana að ráða fólk til vinnu en greiða þeim svo ekki laun“ Formaður Eflingar segir mótmæli fyrir utan Ítalíu tilkomin vegna stórfellds launaþjófnaðar eigandans. Vandinn sé að á Íslandi er ekkert mál að stela launum. Menn komi sér því upp viðskiptamódeli sem gangi út að ráða erlent verkafólk og greiða þeim ekki laun. Innlent 12.9.2024 21:44 Dularfullt „draugahljóð“ spillir fyrir svefni íbúa Dularfullt ýl eða flaut hefur leikið íbúa í Laugarneshverfi grátt síðustu misseri en óvíst er hvaðan hljóðið kemur. Íbúi í hverfinu segir hljóðið spilla fyrir svefni sínum og kvartar undan aðgerðarleysi heilbrigðiseftirlitsins við heilsuspillandi hávaða. Innlent 12.9.2024 21:02 Gagnrýna afnám greiðslu séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán Stjórnarandstaðan telur fátt í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar stuðla að hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Þá gagnrýna margir að afnema eigi heimild til að nýta séreignarsparnað til að greiða niður húsnæðislán. Innlent 12.9.2024 20:52 Telur niðurstöðu dómsmálaráðherra órökrétta Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari telur niðurstöðu dómsmálaráðherra um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki tímabundna lausn frá störfum órökrétta. Innlent 12.9.2024 20:19 Útboðsstopp staðið í heilt ár meðan vegirnir grotna niður Uppsagnir eru hafnar í verktakageiranum vegna verkefnaskorts í jarðvinnu. Ekkert stórt verk hefur verið boðið út hjá Vegagerðinni í heilt ár. Innlent 12.9.2024 20:10 Vonast til að fá vinnu að námi loknu Nýtt nám fyrir fólk með þroskahömlun og aðrar fatlanir hófst í vikunni en ráðist var í verkefnið til að auka atvinnuþátttöku fólks með mismikla starfsgetu. Námið býður upp á starfsþjálfun og fræðslu en nemendur sem fréttastofa ræddi við vonuðust til að verða leikskólakennarar eða starfa í félagsmiðstöð Innlent 12.9.2024 20:02 Þurfum að hafa varann á einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu Sérfræðingur segir Íslendinga þurfa hafa varann á hvað varðar einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu. Formaður BSRB segir vanfjármögnun stjórnvalda meðal annars skýra langa biðlista eftir aðgerðum. Innlent 12.9.2024 20:02 « ‹ 63 64 65 66 67 68 69 70 71 … 334 ›
Staða sauðfjárræktarinnar er björt segir fjallkóngur „Lömbin koma væn af fjalli og eru harðholda “segir fjallkóngur Hrunamanna en réttað var í Hrunaréttum Í Hrunamannahreppi í dag og í Skaftholtsréttum í Skeiða og Gnúpverjahreppi. Innlent 13.9.2024 20:04
„Ég stend við þessa ákvörðun“ Dómsmálaráðherra stendur keik við ákvörðun sína um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki lausn frá störfum, þrátt fyrir gagnrýni. Hún segir eðlilegt að fram komi ólík sjónarmið enda eigi málið sér fá sem engin fordæmi. Ríkissaksóknari telur umræðu um málið hafa verið óvægna gagnvart embættinu. Innlent 13.9.2024 19:26
Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna á fundum í Reykjavík Utanríkisráðherra og aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna funduðu í dag í Reykjavík um tvíhliða samskipti þjóðanna, stöðu átakanna í Úkraínu og á Gaza. Bandaríski ráðherrann segir stöðuna á Indo-Kyrrhafssvæðinu snerta Evrópubúa þar sem Kína og Norður Kórea styðji stríðsrekstur Rússa í Úkraínu með beinum hætti. Innlent 13.9.2024 19:22
Ráðherra stendur fastur á sínu og möguleg ofgreining á ADHD Dómsmálaráðherra stendur keikur við ákvörðun sína um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki lausn frá störfum, þrátt fyrir gagnrýni. Farið verður yfir gagnrýnina og þróun málsins í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 13.9.2024 18:12
„Við erum hundfúl yfir þessu“ Bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar var í síðustu viku falið að krefja Vegagerðina svara um stöðu framkvæmda á Dynjandiheiði, en aðeins sjö kílómetra vantar upp á að bundið slitlag verði á heiðinni allri. Svarið sem barst var einfalt; fjármagn skortir og ekkert verður aðhafst í bili. Innlent 13.9.2024 17:01
Rúta í ljósum logum á Ísafirði Eldur logar í rútu í Tungudal í Ísafirði. Slökkvilið á Ísafirði sinnir verkefninu en getur engar frekari upplýsingar veitt að svo stöddu. Innlent 13.9.2024 15:15
Hallað hafi á embættið í moldviðri Helga Magnúsar Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir fjölmiðlaumfjöllun um mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara hafa verið mjög á einn veg og lítið hafa farið fyrir gagnrýnum spurningum til Helga Magnúsar. Þannig hafi hallað verulega á embætti ríkissaksóknara og ákæruvaldið í moldviðri, sem Helga Magnúsi hafi tekist að magna. Innlent 13.9.2024 14:33
Elvar á Ítalíu viðurkennir erfiðleika við launagreiðslur Elvar Ingimarsson, eigandi veitingastaðarins Ítalíu, viðurkennir að félagið hafi átt í erfiðleikum með að greiða út laun. Hann segir að sem stendur skuldi veitingastaðurinn tvær milljónir króna í ógreidd laun, sem samsvari um tveimur prósentum af launum sem hafa verið til greiðslu á þessu ári. Innlent 13.9.2024 14:11
Grænt ljós á Flensborgarhöfn Flensborgarhöfn stígur inn í framtíðina með nýju deiliskipulagi sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær og verður nú sett í auglýsingu. Innlent 13.9.2024 14:05
Lagði á flótta á Vegmúla Ökumaður lagði á flótta frá lögreglu eftir að hún hafði afskipti af ökutæki hans við Vegmúla í Reykjavík í dag, örskammt frá vegamótunum við Suðurlandsbraut. Innlent 13.9.2024 14:05
Sýkna Sólveigar stendur Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Áslaugar Björnsdóttur um áfrýjunarleyfi í máli hennar á hendur Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur, fyrrverandi þingmanni og dómsmálaráðherra. Áslaug krafði Sólveigu um greiðslu 28 milljóna króna í málinu en í tengdum málum hefur Sólveig verið krafin um milljarða króna. Innlent 13.9.2024 13:52
Bjóða almenningi í heimsókn Almenningi verður biðið að skoða Alþingishúsið og Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis á morgun, laugardag. Viðburðurinn er liður í dagskrá áttatíu ára afmælis lýðveldisins. Innlent 13.9.2024 13:33
„Upp með pelana og fjörið“ Smölun er nú að ljúka eftir níu daga rekstur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Vísir var að sjálfsögðu á staðnum og náði tali af hinum knáa fjallkóngi Guðmundi Árnasyni, sem hafði reyndar takmarkaðan tíma til að spjalla við blaðamann. Innlent 13.9.2024 12:10
Áhersla á stuðning við jaðarsetta hópa í menntakerfinu Mennta- og barnamálaráðherra segir fjármagn verða sett í þjóðarleikvanga á næsta ári og 250 milljónir verði settar aukalega til afreksíþrótta. Brugðist verði við aukinni aðsókn í verknám nám fyrir jaðarsetta hópa í samfélaginu eflt. Innlent 13.9.2024 12:01
Samningur um bakaðgerðir á lokametrunum og mótmælt fyrir utan Ítalíu Í hádegisfréttum verður rætt við heilbrigðisráðherra um bakaðgerðir en unnið er að því að semja við einkaaðila um að vinna á biðlistum. Innlent 13.9.2024 11:42
Útför Bryndísar Klöru frá Hallgrímskirkju Útför Bryndísar Klöru Birgisdóttur verður frá Hallgrímskirkju klukkan 15 í dag. Útförinni verður streymt á Vísi. Innlent 13.9.2024 11:01
Telur Guðrúnu vilja halda hlífiskildi yfir ráðuneytinu Almar M. Möller lögmaður gagnrýnir þau sjónarmið sem fram komu í grein Róberts Spanó frá í gær að ákvörðun Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra um að Helgi Magnús Gunnarsson haldi stöðu sinni sem vararíkissaksóknari stangist á við lög. Hann telur dómsmálaráðherra skilgreina málið of þröngt að gefnum forsendum og í raun megi rekja allt tal um lögleysu til ríkissaksóknara sjálfs. Innlent 13.9.2024 10:55
Þiggja boð konungs um sögulega heimsókn Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason eiginmaður hennar hafa þegið boð Friðriks tíunda Danakonugs um heimsókn til Danmerkur dagana 8. til 9. október. Innlent 13.9.2024 10:38
Virkjanaleyfið kært aftur Önnur kæra hefur borist úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna veitingar Orkustofnunar á virkjanaleyfi fyrir vindorkuver í Búrfellslundi. Að þessu sinni eru það náttúruverndarsamtökin Náttúrugrið sem kæra. Innlent 13.9.2024 10:27
Viðgerð lokið eftir að strengur slitnaði við Elliðaárbrú Strengur hefur slitnað á stofnleið við brú yfir Elliðaár í Reykjavík. Unnið er að viðgerð en slitið hefur meðal annars áhrif á netþjónustu í Norðlingaholti. Innlent 13.9.2024 10:21
Ákærður fyrir að kasta óþekktum hlut í konu sem höfuðkúpubrotnaði Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að ráðast á konu á heimili sínu á laugardagskvöldi í janúar 2022. Innlent 13.9.2024 06:47
Lögregla kölluð til vegna manns með eggvopn í strætó Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar í gærkvöldi vegna manns sem var sagður með eggvopn í strætó. Mögulega er um að ræða eina og sama manninn. Innlent 13.9.2024 06:18
Kynntu rafmagnsflugvélina sem Icelandair hefur pantað Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace kynnti í dag fyrsta tilraunaeintak þrjátíu sæta rafmagnsflugvélar. Hún gæti orðið fyrsta rafknúna flugvélin í innanlandsflugi hérlendis en Icelandair hefur skráð sig fyrir fimm eintökum. Innlent 12.9.2024 22:40
„Hann hefur fyrir vana að ráða fólk til vinnu en greiða þeim svo ekki laun“ Formaður Eflingar segir mótmæli fyrir utan Ítalíu tilkomin vegna stórfellds launaþjófnaðar eigandans. Vandinn sé að á Íslandi er ekkert mál að stela launum. Menn komi sér því upp viðskiptamódeli sem gangi út að ráða erlent verkafólk og greiða þeim ekki laun. Innlent 12.9.2024 21:44
Dularfullt „draugahljóð“ spillir fyrir svefni íbúa Dularfullt ýl eða flaut hefur leikið íbúa í Laugarneshverfi grátt síðustu misseri en óvíst er hvaðan hljóðið kemur. Íbúi í hverfinu segir hljóðið spilla fyrir svefni sínum og kvartar undan aðgerðarleysi heilbrigðiseftirlitsins við heilsuspillandi hávaða. Innlent 12.9.2024 21:02
Gagnrýna afnám greiðslu séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán Stjórnarandstaðan telur fátt í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar stuðla að hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Þá gagnrýna margir að afnema eigi heimild til að nýta séreignarsparnað til að greiða niður húsnæðislán. Innlent 12.9.2024 20:52
Telur niðurstöðu dómsmálaráðherra órökrétta Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari telur niðurstöðu dómsmálaráðherra um að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara ekki tímabundna lausn frá störfum órökrétta. Innlent 12.9.2024 20:19
Útboðsstopp staðið í heilt ár meðan vegirnir grotna niður Uppsagnir eru hafnar í verktakageiranum vegna verkefnaskorts í jarðvinnu. Ekkert stórt verk hefur verið boðið út hjá Vegagerðinni í heilt ár. Innlent 12.9.2024 20:10
Vonast til að fá vinnu að námi loknu Nýtt nám fyrir fólk með þroskahömlun og aðrar fatlanir hófst í vikunni en ráðist var í verkefnið til að auka atvinnuþátttöku fólks með mismikla starfsgetu. Námið býður upp á starfsþjálfun og fræðslu en nemendur sem fréttastofa ræddi við vonuðust til að verða leikskólakennarar eða starfa í félagsmiðstöð Innlent 12.9.2024 20:02
Þurfum að hafa varann á einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu Sérfræðingur segir Íslendinga þurfa hafa varann á hvað varðar einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu. Formaður BSRB segir vanfjármögnun stjórnvalda meðal annars skýra langa biðlista eftir aðgerðum. Innlent 12.9.2024 20:02