Innlent Umtalsverðar breytingar á skipulagi Keflavíkurflugvallar Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar hefur samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Keflavíkurflugvallar. Um er að ræða umtalsverða breytingu á gildandi skipulagi en meginbreytingin felst í að aðlaga núverandi deiliskipulagsáætlun í „átt að nýrri þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar eins og eðlilegt þykir“. Innlent 22.5.2024 19:14 Ráðherra skapi ríkinu milljarðatjón með töfum Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að með töfum matvælaráðherra á að veita leyfi til hvalveiða sé hann mögulega að skapa ríkissjóði milljarðatjón. Vinstri grænum sé samt sem áður að takast ætlunarverk sitt: að binda enda á hvalveiðar. Innlent 22.5.2024 18:30 Stefna ríkinu eftir andlát tveggja ára dóttur og örlög sjómanna sem hurfu Fimm klukkustundir liðu frá skoðun hjúkrunarfræðings og þar til tveggja ára stúlka lést úr Covid-19. Þrátt fyrir að óháður sérfræðingur telji lækni hafa sýnt af sér vanrækslu í málinu telur landlæknir að brestum í kerfislægum og mannlegum þáttum sé um að kenna. Foreldarnir ætla að stefna ríkinu. Innlent 22.5.2024 18:00 Ákærður fyrir stunguárás á akbraut Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að stinga annan mann tvisvar sinnum um nótt á þessu ári, en dagsetning atviksins kemur ekki fram í nafnhreinsaðri ákæru sem fréttastofa hefur undir höndum. Innlent 22.5.2024 16:47 Árás á tólf ára stúlku fór betur en á horfðist Helgi Ingason, faðir tólf ára gamallar stúlku sem ráðist var á í morgun á leið sinni í skólann í Hafnarfirði, er nýkominn frá lögreglu þar sem hann gaf skýrslu. Hann segir stúlkuna furðu bratta eftir allt sem á gekk. Innlent 22.5.2024 16:00 Bjarni sagður lítillátur í samanburði við Keníuforseta Opinber heimsókn Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra til Malaví er sögð lítillát í samanburði við ferðalag William Ruto, forseta Kenía, til Bandaríkjanna. Kenískir fjölmiðlar fjalla um ferðalög stjórnmálamannanna tveggja, en Bjarni fór með farþegaflugvél í sína heimsókn á meðan sérstök einkaflugvél var leigð fyrir ferðalag Ruto. Innlent 22.5.2024 15:52 Sleppt úr haldi lögreglu Einum hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Atburðarásin er að skýrast að sögn lögreglu. Innlent 22.5.2024 15:43 Draumórar að löggæsla muni ekki skerðast Stjórn Landssambands lögreglumanna mótmælir harðlega fyrirætlunum stjórnvalda um niðurskurð til löggæslumála sem boðaður er í fjármálaáætlun 2025-2029 og harmar þá stöðu sem uppi er í húsnæðismálum lögreglunnar á Íslandi. Innlent 22.5.2024 15:01 Segir fangaverði sinna starfi sínu af stakri trúmennsku Páll Winkel fangelsismálastjóra sárnar eitt og annað sem fram kemur í orðum Ólafs Ágústs Hraundal fanga sem heldur því fram að lítið sé gert fyrir fanga og úrræðaleysið mikið. Páll segir þetta ekki rétt og stöðuna miðað við sem var miklu betri. Innlent 22.5.2024 14:47 Íslendingurinn á meðal þeirra sem slösuðust Íslendingurinn sem var meðal farþega í þotu Singapore Airlines sem lenti í mikilli ókyrrð í gær var meðal þeirra þrjátíu sem fluttir voru á sjúkrahús. Einn lést í ókyrrðinni og sjö slösuðust alvarlega. Innlent 22.5.2024 14:44 Sker úr um hvort sáðlát yfir andlit með valdi sé nauðgun Hæstiréttur hefur veitt Gareese Joshua Gray, sem var sakfelldur fyrir nauðgun í Landsrétti, áfrýjunarleyfi. Að mati Hæstaréttar er ekki útilokað að hann komist að annarri niðurstöðu en Landsréttur um hvort það teljist nauðgun að hafa sáðlát yfir andlit með valdi. Innlent 22.5.2024 14:11 Björn Þorláks segir Katrínu ekki virða sig viðlits Svo virðist sem Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi, sem nú fer um víðan völl við að kynna sig sem slíka, vilji síður ræða spillingu og annan óskunda við þá Björn Þorláksson og Gunnar Smára Egilsson sem halda úti viðtalsþáttum á Samstöðinni. Innlent 22.5.2024 13:36 Vilja upplýsingar frá Strætó vegna framkomu í garð barna Umboðsmaður barna hefur sent Strætó bréf þar sem óskað er eftir upplýsingum um verklagsreglur þess varðandi samskipti við börn og hvernig vagnstjórum beri að tryggja öryggi þeirra. Innlent 22.5.2024 13:30 Beint streymi: Kynferðisofbeldi og önnur áföll á Íslandi Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir málþingi um niðurstöður nýrra rannsókna á áhrifum og afleiðingum kynferðisofbeldis og annarra áfalla á líf fólks á Íslandi. Innlent 22.5.2024 12:30 Kona sem sendi nektarmyndir í bræði fær grænt ljós Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni konu um að taka mál hennar fyrir, en það varðar sendingar hennar af nektarmyndum sem sýndu eiginmann hennar og aðra konu. Innlent 22.5.2024 12:20 Telja að Quang gæti spillt rannsókninni gangi hann laus Quang Lé og tveir sem grunaðir eru um mansal munu þurfa að sæta gæsluvarðhaldi lengur en lög kveða almennt á um. Lögreglufulltrúi segir að umfang málsins kalli á lengra varðhald svo rannsóknarhagsmunum verði ekki spillt áður en ákæra er gefin út. Innlent 22.5.2024 12:03 Hendrik Hermannsson bráðkvaddur Hendrik Björn Hermannsson veitingamaður er látinn en hann var aðeins 49 ára gamall. Hendrik varð bráðkvaddur, hann hneig niður um hádegi á mánudag og tókst ekki að hnoða í hann lífi en sjúkrabíll fór með hann til móts við sjúkraþyrlu. Innlent 22.5.2024 11:50 Fangi segir fangelsin „mislélegar kjötgeymslur“ Ólafur Ágúst Hraundal fangi segir of lítið gert fyrir fanga og úrræðaleysið mikið. Hann segir metnaðarleysi núverandi forstöðumanns fangelsanna að Litla-Hrauni, Hólmsheiði og Sogni nær algert. Hann gagnrýnir sinnuleysi starfsmanna og spyr hvernig samfélagið vilji fá fanga aftur út eftir afplánun. Innlent 22.5.2024 11:45 AGS vill skattahækkanir og Norðmenn viðurkenna Palestínu Í hádegisfréttum verður rætt við formann sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem verið hefur hér á landi síðustu daga. Innlent 22.5.2024 11:39 Æsandi bíltúr norður í land Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ástþór Magnússon og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir ætla að bruna sem leið liggur norður til Akureyrar í dag þar sem forsetakvöldvaka fer fram á Græna hattinum. Von er á æsandi bíltúr að sögn Steinunnar. Auk þeirra þriggja mæta Helga Þórisdóttir og Viktor Traustason á samkomustað þeirra Akureyringa í göngugötunni. Auglýst er eftir gítarleikara. Innlent 22.5.2024 11:17 Enn frestast utankjörfundaratkvæðagreiðslan Utanríkisráðuneytið neyðist til að fresta til föstudags boðaðri utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi forsetakosninga sem átti að fara fram á Gran Canaria á Spáni í dag. Það stafar af því að hluti kjörgagna sem send voru með forgangi á staðinn skiluðu sér ekki á áfangastað. Innlent 22.5.2024 10:48 Þjóðin klofin hvað varðar hvalveiðar Samkvæmt nýrri könnun Maskínu eru 49 prósent þjóðarinnar andvíg því að leyfi Hvals hf. til veiða á langreyði verði endurnýjað. 35 prósent eru því hlynnt og 16,5 prósent eru hvorki hlynnt né andvíg. Innlent 22.5.2024 10:09 Aþena Sif dæmd fyrir stórfellda líkamsárás með Butterfly-hnífi Aþena Sif Eiðsdóttir, 23 ára kona, hefur verið dæmd í fjögurra ára óskilorðsbundið fangelsi. Hún var sakfelld fyrir stórfellda líkamsárás, með því að stinga aðra konu með svokölluðum butterfly-hnífi fimm sinnum í september árið 2022. Ekki var fallist á að um hafi verið að ræða tilraun til manndráps. Innlent 22.5.2024 09:25 Yngstu börnin um 14 til 15 mánaða við innritun í haust Innritun leikskólabarna er vel á veg komin í flestum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Í Reykjavík er búið að bjóða 1.715 börnum leikskólapláss. Meðalaldur við innritun er í kringum 22 mánuðir. Innlent 22.5.2024 08:00 Veittist að fólki með hníf í miðborginni Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi eftir að tilkynnt var um mann sem var að veitast að fólki með hníf í miðborg Reykjarvíkur. Við rannsókn á málinu reyndist enginn alvarlega slasaður. Innlent 22.5.2024 06:25 Ekur 44 kílómetra með ruslið og er ósáttur við sorphirðugjald Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu íbúa í Borgarbyggð um að felld verði úr gildi ákvörðun sveitarfélagsins Borgarbyggðar um álagningu gjalds vegna reksturs grenndar- og móttökustöðvar sorps í sveitarfélaginu. Gjaldið er um 32 þúsund krónur. Innlent 22.5.2024 06:16 Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Flugáhugamönnum bauðst í kvöld að skoða eldgamlar herflugvélar úr seinni heimsstyrjöld á Reykjavíkurflugvelli. Þrjár flugvélanna fljúga áleiðis til Bretlands í fyrramálið. Innlent 21.5.2024 23:30 Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Magnús Davíð Norðdahl, borgarfulltrúi Pírata, segir þá fimm frambjóðendur sem búa yfir mestu fylgi í komandi forsetakosningum hafa tromp á hendi séu þeir ekki sigurvissir er nær dregur kjördegi. Ekki geti þeir allir orðið forseti en dragi eitt þeirra framboð sitt til baka og lýsi yfir stuðningi við meðframbjóðenda gæti sá hinn sami ráðið úrslitum að miklu leyti. Innlent 21.5.2024 21:41 Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur Pétri Jökli Jónassyni fyrir aðild að innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni til landsins fyrir tveimur árum síðan. Fjórir hafa þegar verið dæmdir í þessu svokallaða stóra kókaínmáli sem er stærsta kókaínmál Íslandssögunnar. Innlent 21.5.2024 20:26 Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Tveir nýir prestar og tveir nýir djáknar hafa verið vígðir til embættis í fjórum mismunandi kirkjum. Athöfnin fór fram í Skálholtsdómkirkju þar sem vígslubiskupinn á staðnum brá sér í hlutverk biskups Íslands til að sjá um vígsluna að viðstöddum tíu prestum, sem voru vígsluvottar, auk þriggja djákna. Innlent 21.5.2024 20:15 « ‹ 172 173 174 175 176 177 178 179 180 … 334 ›
Umtalsverðar breytingar á skipulagi Keflavíkurflugvallar Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar hefur samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Keflavíkurflugvallar. Um er að ræða umtalsverða breytingu á gildandi skipulagi en meginbreytingin felst í að aðlaga núverandi deiliskipulagsáætlun í „átt að nýrri þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar eins og eðlilegt þykir“. Innlent 22.5.2024 19:14
Ráðherra skapi ríkinu milljarðatjón með töfum Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að með töfum matvælaráðherra á að veita leyfi til hvalveiða sé hann mögulega að skapa ríkissjóði milljarðatjón. Vinstri grænum sé samt sem áður að takast ætlunarverk sitt: að binda enda á hvalveiðar. Innlent 22.5.2024 18:30
Stefna ríkinu eftir andlát tveggja ára dóttur og örlög sjómanna sem hurfu Fimm klukkustundir liðu frá skoðun hjúkrunarfræðings og þar til tveggja ára stúlka lést úr Covid-19. Þrátt fyrir að óháður sérfræðingur telji lækni hafa sýnt af sér vanrækslu í málinu telur landlæknir að brestum í kerfislægum og mannlegum þáttum sé um að kenna. Foreldarnir ætla að stefna ríkinu. Innlent 22.5.2024 18:00
Ákærður fyrir stunguárás á akbraut Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að stinga annan mann tvisvar sinnum um nótt á þessu ári, en dagsetning atviksins kemur ekki fram í nafnhreinsaðri ákæru sem fréttastofa hefur undir höndum. Innlent 22.5.2024 16:47
Árás á tólf ára stúlku fór betur en á horfðist Helgi Ingason, faðir tólf ára gamallar stúlku sem ráðist var á í morgun á leið sinni í skólann í Hafnarfirði, er nýkominn frá lögreglu þar sem hann gaf skýrslu. Hann segir stúlkuna furðu bratta eftir allt sem á gekk. Innlent 22.5.2024 16:00
Bjarni sagður lítillátur í samanburði við Keníuforseta Opinber heimsókn Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra til Malaví er sögð lítillát í samanburði við ferðalag William Ruto, forseta Kenía, til Bandaríkjanna. Kenískir fjölmiðlar fjalla um ferðalög stjórnmálamannanna tveggja, en Bjarni fór með farþegaflugvél í sína heimsókn á meðan sérstök einkaflugvél var leigð fyrir ferðalag Ruto. Innlent 22.5.2024 15:52
Sleppt úr haldi lögreglu Einum hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Atburðarásin er að skýrast að sögn lögreglu. Innlent 22.5.2024 15:43
Draumórar að löggæsla muni ekki skerðast Stjórn Landssambands lögreglumanna mótmælir harðlega fyrirætlunum stjórnvalda um niðurskurð til löggæslumála sem boðaður er í fjármálaáætlun 2025-2029 og harmar þá stöðu sem uppi er í húsnæðismálum lögreglunnar á Íslandi. Innlent 22.5.2024 15:01
Segir fangaverði sinna starfi sínu af stakri trúmennsku Páll Winkel fangelsismálastjóra sárnar eitt og annað sem fram kemur í orðum Ólafs Ágústs Hraundal fanga sem heldur því fram að lítið sé gert fyrir fanga og úrræðaleysið mikið. Páll segir þetta ekki rétt og stöðuna miðað við sem var miklu betri. Innlent 22.5.2024 14:47
Íslendingurinn á meðal þeirra sem slösuðust Íslendingurinn sem var meðal farþega í þotu Singapore Airlines sem lenti í mikilli ókyrrð í gær var meðal þeirra þrjátíu sem fluttir voru á sjúkrahús. Einn lést í ókyrrðinni og sjö slösuðust alvarlega. Innlent 22.5.2024 14:44
Sker úr um hvort sáðlát yfir andlit með valdi sé nauðgun Hæstiréttur hefur veitt Gareese Joshua Gray, sem var sakfelldur fyrir nauðgun í Landsrétti, áfrýjunarleyfi. Að mati Hæstaréttar er ekki útilokað að hann komist að annarri niðurstöðu en Landsréttur um hvort það teljist nauðgun að hafa sáðlát yfir andlit með valdi. Innlent 22.5.2024 14:11
Björn Þorláks segir Katrínu ekki virða sig viðlits Svo virðist sem Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi, sem nú fer um víðan völl við að kynna sig sem slíka, vilji síður ræða spillingu og annan óskunda við þá Björn Þorláksson og Gunnar Smára Egilsson sem halda úti viðtalsþáttum á Samstöðinni. Innlent 22.5.2024 13:36
Vilja upplýsingar frá Strætó vegna framkomu í garð barna Umboðsmaður barna hefur sent Strætó bréf þar sem óskað er eftir upplýsingum um verklagsreglur þess varðandi samskipti við börn og hvernig vagnstjórum beri að tryggja öryggi þeirra. Innlent 22.5.2024 13:30
Beint streymi: Kynferðisofbeldi og önnur áföll á Íslandi Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir málþingi um niðurstöður nýrra rannsókna á áhrifum og afleiðingum kynferðisofbeldis og annarra áfalla á líf fólks á Íslandi. Innlent 22.5.2024 12:30
Kona sem sendi nektarmyndir í bræði fær grænt ljós Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni konu um að taka mál hennar fyrir, en það varðar sendingar hennar af nektarmyndum sem sýndu eiginmann hennar og aðra konu. Innlent 22.5.2024 12:20
Telja að Quang gæti spillt rannsókninni gangi hann laus Quang Lé og tveir sem grunaðir eru um mansal munu þurfa að sæta gæsluvarðhaldi lengur en lög kveða almennt á um. Lögreglufulltrúi segir að umfang málsins kalli á lengra varðhald svo rannsóknarhagsmunum verði ekki spillt áður en ákæra er gefin út. Innlent 22.5.2024 12:03
Hendrik Hermannsson bráðkvaddur Hendrik Björn Hermannsson veitingamaður er látinn en hann var aðeins 49 ára gamall. Hendrik varð bráðkvaddur, hann hneig niður um hádegi á mánudag og tókst ekki að hnoða í hann lífi en sjúkrabíll fór með hann til móts við sjúkraþyrlu. Innlent 22.5.2024 11:50
Fangi segir fangelsin „mislélegar kjötgeymslur“ Ólafur Ágúst Hraundal fangi segir of lítið gert fyrir fanga og úrræðaleysið mikið. Hann segir metnaðarleysi núverandi forstöðumanns fangelsanna að Litla-Hrauni, Hólmsheiði og Sogni nær algert. Hann gagnrýnir sinnuleysi starfsmanna og spyr hvernig samfélagið vilji fá fanga aftur út eftir afplánun. Innlent 22.5.2024 11:45
AGS vill skattahækkanir og Norðmenn viðurkenna Palestínu Í hádegisfréttum verður rætt við formann sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem verið hefur hér á landi síðustu daga. Innlent 22.5.2024 11:39
Æsandi bíltúr norður í land Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ástþór Magnússon og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir ætla að bruna sem leið liggur norður til Akureyrar í dag þar sem forsetakvöldvaka fer fram á Græna hattinum. Von er á æsandi bíltúr að sögn Steinunnar. Auk þeirra þriggja mæta Helga Þórisdóttir og Viktor Traustason á samkomustað þeirra Akureyringa í göngugötunni. Auglýst er eftir gítarleikara. Innlent 22.5.2024 11:17
Enn frestast utankjörfundaratkvæðagreiðslan Utanríkisráðuneytið neyðist til að fresta til föstudags boðaðri utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi forsetakosninga sem átti að fara fram á Gran Canaria á Spáni í dag. Það stafar af því að hluti kjörgagna sem send voru með forgangi á staðinn skiluðu sér ekki á áfangastað. Innlent 22.5.2024 10:48
Þjóðin klofin hvað varðar hvalveiðar Samkvæmt nýrri könnun Maskínu eru 49 prósent þjóðarinnar andvíg því að leyfi Hvals hf. til veiða á langreyði verði endurnýjað. 35 prósent eru því hlynnt og 16,5 prósent eru hvorki hlynnt né andvíg. Innlent 22.5.2024 10:09
Aþena Sif dæmd fyrir stórfellda líkamsárás með Butterfly-hnífi Aþena Sif Eiðsdóttir, 23 ára kona, hefur verið dæmd í fjögurra ára óskilorðsbundið fangelsi. Hún var sakfelld fyrir stórfellda líkamsárás, með því að stinga aðra konu með svokölluðum butterfly-hnífi fimm sinnum í september árið 2022. Ekki var fallist á að um hafi verið að ræða tilraun til manndráps. Innlent 22.5.2024 09:25
Yngstu börnin um 14 til 15 mánaða við innritun í haust Innritun leikskólabarna er vel á veg komin í flestum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Í Reykjavík er búið að bjóða 1.715 börnum leikskólapláss. Meðalaldur við innritun er í kringum 22 mánuðir. Innlent 22.5.2024 08:00
Veittist að fólki með hníf í miðborginni Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi eftir að tilkynnt var um mann sem var að veitast að fólki með hníf í miðborg Reykjarvíkur. Við rannsókn á málinu reyndist enginn alvarlega slasaður. Innlent 22.5.2024 06:25
Ekur 44 kílómetra með ruslið og er ósáttur við sorphirðugjald Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu íbúa í Borgarbyggð um að felld verði úr gildi ákvörðun sveitarfélagsins Borgarbyggðar um álagningu gjalds vegna reksturs grenndar- og móttökustöðvar sorps í sveitarfélaginu. Gjaldið er um 32 þúsund krónur. Innlent 22.5.2024 06:16
Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Flugáhugamönnum bauðst í kvöld að skoða eldgamlar herflugvélar úr seinni heimsstyrjöld á Reykjavíkurflugvelli. Þrjár flugvélanna fljúga áleiðis til Bretlands í fyrramálið. Innlent 21.5.2024 23:30
Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Magnús Davíð Norðdahl, borgarfulltrúi Pírata, segir þá fimm frambjóðendur sem búa yfir mestu fylgi í komandi forsetakosningum hafa tromp á hendi séu þeir ekki sigurvissir er nær dregur kjördegi. Ekki geti þeir allir orðið forseti en dragi eitt þeirra framboð sitt til baka og lýsi yfir stuðningi við meðframbjóðenda gæti sá hinn sami ráðið úrslitum að miklu leyti. Innlent 21.5.2024 21:41
Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur Pétri Jökli Jónassyni fyrir aðild að innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni til landsins fyrir tveimur árum síðan. Fjórir hafa þegar verið dæmdir í þessu svokallaða stóra kókaínmáli sem er stærsta kókaínmál Íslandssögunnar. Innlent 21.5.2024 20:26
Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Tveir nýir prestar og tveir nýir djáknar hafa verið vígðir til embættis í fjórum mismunandi kirkjum. Athöfnin fór fram í Skálholtsdómkirkju þar sem vígslubiskupinn á staðnum brá sér í hlutverk biskups Íslands til að sjá um vígsluna að viðstöddum tíu prestum, sem voru vígsluvottar, auk þriggja djákna. Innlent 21.5.2024 20:15