Innlent Mótmælendur höfða mál á hendur ríkinu Daníel Þór Bjarnason er í hópi átta mótmælenda tók þátt í mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu þann 31. maí síðastliðinn sem hafa ákveðið að leita réttar síns vegna þess sem þau kalla ólögmætrar og óhóflegrar valdbeitingar lögreglunnar. Undirbúningur er hafinn á höfðun dómsmáls á hendur embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 7.6.2024 16:19 Strandveiðimenn mótmæltu við Alþingishúsið: „Þurfum að gera talsverðar breytingar á kerfinu“ Stór hópur strandveiðimanna gekk frá Hörpu að Alþingishúsinu í dag og krafðist þess að veiðitímabil þeirra yrði tryggt út ágúst. Hópurinn afhenti matvælaráðherra kröfubréf þess efnis, en hún segir þörf á talsverðum breytingum á strandveiðikerfinu. Innlent 7.6.2024 15:53 Settu af stað umbótaáætlun sem skilaði ekki árangri „Við settum af stað ákveðna umbótaáætlun og hún hefur ekki skilað þeim árangri sem ég hafði séð fyrir að myndi gerast. Að sjálfsögðu fer ég í það mál sem ráðherra og það á ekki að líðast að það séu svo miklar tafir á málaferlum.“ Innlent 7.6.2024 15:30 Íbúar óánægðir með borgina sem kemur í veg fyrir Bónusverslun Um níu þúsund íbúar í Úlfarsárdal og Grafarholti eru án matvörubúðar í hverfinu næstu vikurnar vegna framkvæmda í Krónunni í Grafarholti. Íbúi í hverfinu gagnrýnir Reykjavíkurborg fyrir að standa í vegi fyrir að Bónusverslun verði reist við Úlfarsárdal en aðalskipulag sem gildir til ársins 2040 kemur í veg fyrir þær framkvæmdir. Innlent 7.6.2024 15:00 Koma upp viðbragðshóp vegna áhrifa kuldakastsins Settur hefur verið á laggirnar sérstakur viðbragðshópur á vegum stjórnvalda vegna erfiðleika sem skapast hafa í landbúnaði vegna kuldatíðar undanfarið. Í honum sitja fulltrúar matvæla- og innviðaráðuneyta, Bændasamtakanna, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Almannavarna og lögregluembættana á Norðurlandi vestra og eystra. Innlent 7.6.2024 14:21 Dómur vegna skotárásar þyngdur verulega Hrannar Fossberg Viðarsson, 24 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi í Landsrétti fyrir skotárás í Grafarholti í febrúar í fyrra. Innlent 7.6.2024 14:14 Vill upplýsingar um bótasvik öryrkja Birgir Þórarinsson hefur lagt fram fyrirspurn til félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem hann kallar eftir upplýsingum um umfang bótasvika og áhrif á útgjöld ríkisins. Frumvarp um heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu liggur fyrir Alþingi og viðbúið að tekist verði á um málið í þingsal. Innlent 7.6.2024 14:06 Kjartan Bjarni skipaður landsréttardómari Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Kjartan Bjarni Björgvinsson verði skipaður dómari við Landsrétt frá 1. september 2024. Innlent 7.6.2024 14:05 „Ótímabært“ að segja til um hvort hún sækist eftir forystu Rætt verður um að flýta landsfundi VG á stjórnarfundi flokksins í dag. Svandís Svavarsdóttir segir tímabært að hreyfingin stilli saman strengi í ljósi fylgistaps. Innlent 7.6.2024 13:57 Strákarnir fengu að fylgjast með verðlaunaafhendingunni Í vikunni var útskrift hjá 10. bekk í Háteigsskóla sem eru krakkar á aldrinum 15 til 16 ára. Helmingur barnanna fékk viðurkenningu fyrir árangur af einhverju tagi. Hinn helmingurinn sat eftir úti í sal, tuttugu strákar og tvær stelpur. Innlent 7.6.2024 13:35 Krefja Vinnslustöðina um 1,5 milljarða króna Vestmannaeyjabær og HS Veitur hafa sent Vinnslustöð Vestmannaeyja hf. og tryggingafélagi fyrirtækisins kröfubréf þar sem farið er fram á að tjónið á vatnslögn til Eyja verði að fullu bætt. Eins og staðan er í dag er áætlað heildartjón á bilinu 1.380 til 1.485 milljónir króna. Innlent 7.6.2024 13:34 Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan mann í skemmtiferðaskip Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar í morgun vegna veikinda farþega um borð í erlendu skemmtiferðaskipi. Um eldri mann er að ræða. Innlent 7.6.2024 12:56 Óska eftir sameiningarviðræðum þrátt fyrir andstöðu meirihluta Hreppsnefnd Ásahrepps ætlar að óska eftir viðræðum um sameiningu við tvö önnur sveitarfélög, þrátt fyrir að tillaga um slíkt hafi ekki hlotið brautargengi í skoðanakönnun íbúa. Sveitarstjórinn segir að íbúar muni fá lokaorðið um sameiningu. Innlent 7.6.2024 12:01 Augljóslega þurfi að aðstoða bændur Matvælaráðherra segir augljóst að stjórnvöld þurfi að grípa inn í aðstæður bænda sem nú berjast margir í bökkum vegna kuldatíðar. Veita þurfi þeim stuðning með einhverjum hætti í gegnum bjargráðasjóð. Innlent 7.6.2024 12:01 Umsóknum í HA fjölgaði um tuttugu prósent á tveimur árum Umsóknum í Háskólann á Akureyri fjölgaði um tuttugu prósent frá árinu 2022 og sjö prósent frá síðasta ári. Þá var mikil fjölgun umsókna um nám við kennaradeild skólans. Innlent 7.6.2024 11:54 Stolið af Grænum skátum fyrir tvær til þrjár milljónir á mánuði Tveimur til þremur milljónum króna hefur verið stolið frá Grænum skátum í formi dósa og flaska á söfnunarstöðum. Jón Ingvar Bragason, framkvæmdastjóri Grænna skáta, segir að staðfestur grunur sé um að ákveðinn aðili sé á bak við verknaðinn. Innlent 7.6.2024 11:41 Ása Laufey skipuð prestur í Háteigskirkju Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir, prestur innflytjenda, hefur verið skipuð prestur í Háteigskirkju. Innlent 7.6.2024 11:40 Bjargráð fyrir bændur og ósáttir trillukarlar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við formann Bændasamtaka Íslands um það tjón sem bændur á Norður- og Austurlandi eru að verða fyrir í kuldatíðinni sem nú gengur yfir. Innlent 7.6.2024 11:38 Hjúkrunarfræðingar fordæma aukið aðgengi að áfengi Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur skorað á Alþingi og Ríkisstjórn að takmarka sölu á áfengi og standa þannig vörð um lýðheilsu þjóðarinnar. Innlent 7.6.2024 11:16 Læknar sagðir útbýta vottorðum eins og sælgæti Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri félags atvinnurekenda tók upp þann þráð sem Kristján Berg Fiskikóngur hóf um brottrekna starfsmenn í viðtali í Bítinu. Helst var á honum að skilja að læknar séu ævintýralega glaðir að skrifa út vottorð. Innlent 7.6.2024 10:39 Hafró ráðleggur eins prósents hækkun aflamarks þorsks Hafrannsóknastofnun kynnti úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár í morgun. Aflamark fyrir á þriðja tug stofna var lagt til á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu. Innlent 7.6.2024 10:27 Hraungígur brast í morgun Hraun úr eldgosinu á Reykjanesskaga streymir úr barmi gígs sem brast um klukkan fimm í morgun. Hraunstreymið ógnar engum innviðum eins og stendur en grannt er fylgst með. Innlent 7.6.2024 10:16 Erfitt fyrir konur að fara frá heimili í langan tíma fyrir fæðingu Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands og Heiðdís Anna Marteinsdóttir, verðandi ljósmóðir, segja fæðingarþjónustu á landsbyggðinni ábótavant. Heiðdís og Unnur fóru yfir stöðuna í faginu í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 7.6.2024 09:53 Bein útsending: Hafró kynnir komandi fiskveiðiár Hafrannsóknastofnun kynnir í dag úttekt á ástandi helstu nytjastofna og ráðgjöf fyrir komandi fiskveiðiár. Kynningin hefst klukkan níu og fer fram í höfuðstöðvum stofnunarinnar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Innlent 7.6.2024 08:31 Eldur í íbúð í Kóngsbakka Eldur kom upp í íbúð í Kóngsbakka í Breiðholti fyrir skömmu. Allar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út. Innlent 7.6.2024 08:26 Gular viðvaranir enn í kortunum Meginþunginn af langvinnu norðanhreti er afstaðinn en þó eru enn gular viðvaranir í kortunum. Slyddu eða snjókomu er spáð á Norðurlandi í kvöld, líklega síðustu gusunni af kaldri úrkomu í bili. Innlent 7.6.2024 07:52 Bjarni vill fjölga meðmælendum Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur boðað formenn allra flokka á fund í dag að loknum ríkisstjórnarfundi. Tilefni fundarins er að ræða hugsanlegar breytingar á stjórnarskrá. Líklegt er að þar verði breytingar á meðmælendafjölda forsetaframbjóðenda til umræðu. Innlent 7.6.2024 07:30 Íbúar óttast nýtt hverfi og að ekki verði tekið tillit til þeirra Hópur íbúa í Garðabæ skoðar nú að stofna hagsmunasamtök til að mótmæla fyrirhugaðri uppbyggingu í Arnarlandi í Garðabæ. Sigurður Hólmar Jóhannesson er hluti af þeim hópi. Hann mætti á fund bæjarstjórnar í dag, ásamt um þrettán öðrum, til að mótmæla samráðsleysi við íbúa. Hann segir íbúa ekki mótfallna uppbyggingu á svæðinu en þau telji að hún ætti að vera meira í takt við það sem fyrir er. Innlent 6.6.2024 23:55 Halla lætur lítið fyrir sér fara næstu vikurnar Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands, ætlar að láta lítið fyrir sér fara á samfélagsmiðlum og fjölmiðlum næstu vikurnar. Halla tekur við embætti forseta í ágúst og segir í nýrri færslu á Instagram-síðu sinni að hún ætli að nýta næstu vikurnar til að koma fyrra starfi sínu í góðan farveg og til að hvílast. Innlent 6.6.2024 22:45 Tilkynnt um ungmenni með byssur í 101 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í dag vegna ungmenna með byssur í miðborg eða Vesturbæ Reykjavíkur í dag. Í dagbók lögreglu segir að komið hafið svo í ljós að um var að ræða krakka í „byssu og bófa leik“. Lögreglan sinnti fjölda annarra verkefna í dag varðandi ýmis mál. Innlent 6.6.2024 22:09 « ‹ 154 155 156 157 158 159 160 161 162 … 334 ›
Mótmælendur höfða mál á hendur ríkinu Daníel Þór Bjarnason er í hópi átta mótmælenda tók þátt í mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu þann 31. maí síðastliðinn sem hafa ákveðið að leita réttar síns vegna þess sem þau kalla ólögmætrar og óhóflegrar valdbeitingar lögreglunnar. Undirbúningur er hafinn á höfðun dómsmáls á hendur embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 7.6.2024 16:19
Strandveiðimenn mótmæltu við Alþingishúsið: „Þurfum að gera talsverðar breytingar á kerfinu“ Stór hópur strandveiðimanna gekk frá Hörpu að Alþingishúsinu í dag og krafðist þess að veiðitímabil þeirra yrði tryggt út ágúst. Hópurinn afhenti matvælaráðherra kröfubréf þess efnis, en hún segir þörf á talsverðum breytingum á strandveiðikerfinu. Innlent 7.6.2024 15:53
Settu af stað umbótaáætlun sem skilaði ekki árangri „Við settum af stað ákveðna umbótaáætlun og hún hefur ekki skilað þeim árangri sem ég hafði séð fyrir að myndi gerast. Að sjálfsögðu fer ég í það mál sem ráðherra og það á ekki að líðast að það séu svo miklar tafir á málaferlum.“ Innlent 7.6.2024 15:30
Íbúar óánægðir með borgina sem kemur í veg fyrir Bónusverslun Um níu þúsund íbúar í Úlfarsárdal og Grafarholti eru án matvörubúðar í hverfinu næstu vikurnar vegna framkvæmda í Krónunni í Grafarholti. Íbúi í hverfinu gagnrýnir Reykjavíkurborg fyrir að standa í vegi fyrir að Bónusverslun verði reist við Úlfarsárdal en aðalskipulag sem gildir til ársins 2040 kemur í veg fyrir þær framkvæmdir. Innlent 7.6.2024 15:00
Koma upp viðbragðshóp vegna áhrifa kuldakastsins Settur hefur verið á laggirnar sérstakur viðbragðshópur á vegum stjórnvalda vegna erfiðleika sem skapast hafa í landbúnaði vegna kuldatíðar undanfarið. Í honum sitja fulltrúar matvæla- og innviðaráðuneyta, Bændasamtakanna, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Almannavarna og lögregluembættana á Norðurlandi vestra og eystra. Innlent 7.6.2024 14:21
Dómur vegna skotárásar þyngdur verulega Hrannar Fossberg Viðarsson, 24 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi í Landsrétti fyrir skotárás í Grafarholti í febrúar í fyrra. Innlent 7.6.2024 14:14
Vill upplýsingar um bótasvik öryrkja Birgir Þórarinsson hefur lagt fram fyrirspurn til félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem hann kallar eftir upplýsingum um umfang bótasvika og áhrif á útgjöld ríkisins. Frumvarp um heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu liggur fyrir Alþingi og viðbúið að tekist verði á um málið í þingsal. Innlent 7.6.2024 14:06
Kjartan Bjarni skipaður landsréttardómari Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Kjartan Bjarni Björgvinsson verði skipaður dómari við Landsrétt frá 1. september 2024. Innlent 7.6.2024 14:05
„Ótímabært“ að segja til um hvort hún sækist eftir forystu Rætt verður um að flýta landsfundi VG á stjórnarfundi flokksins í dag. Svandís Svavarsdóttir segir tímabært að hreyfingin stilli saman strengi í ljósi fylgistaps. Innlent 7.6.2024 13:57
Strákarnir fengu að fylgjast með verðlaunaafhendingunni Í vikunni var útskrift hjá 10. bekk í Háteigsskóla sem eru krakkar á aldrinum 15 til 16 ára. Helmingur barnanna fékk viðurkenningu fyrir árangur af einhverju tagi. Hinn helmingurinn sat eftir úti í sal, tuttugu strákar og tvær stelpur. Innlent 7.6.2024 13:35
Krefja Vinnslustöðina um 1,5 milljarða króna Vestmannaeyjabær og HS Veitur hafa sent Vinnslustöð Vestmannaeyja hf. og tryggingafélagi fyrirtækisins kröfubréf þar sem farið er fram á að tjónið á vatnslögn til Eyja verði að fullu bætt. Eins og staðan er í dag er áætlað heildartjón á bilinu 1.380 til 1.485 milljónir króna. Innlent 7.6.2024 13:34
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan mann í skemmtiferðaskip Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar í morgun vegna veikinda farþega um borð í erlendu skemmtiferðaskipi. Um eldri mann er að ræða. Innlent 7.6.2024 12:56
Óska eftir sameiningarviðræðum þrátt fyrir andstöðu meirihluta Hreppsnefnd Ásahrepps ætlar að óska eftir viðræðum um sameiningu við tvö önnur sveitarfélög, þrátt fyrir að tillaga um slíkt hafi ekki hlotið brautargengi í skoðanakönnun íbúa. Sveitarstjórinn segir að íbúar muni fá lokaorðið um sameiningu. Innlent 7.6.2024 12:01
Augljóslega þurfi að aðstoða bændur Matvælaráðherra segir augljóst að stjórnvöld þurfi að grípa inn í aðstæður bænda sem nú berjast margir í bökkum vegna kuldatíðar. Veita þurfi þeim stuðning með einhverjum hætti í gegnum bjargráðasjóð. Innlent 7.6.2024 12:01
Umsóknum í HA fjölgaði um tuttugu prósent á tveimur árum Umsóknum í Háskólann á Akureyri fjölgaði um tuttugu prósent frá árinu 2022 og sjö prósent frá síðasta ári. Þá var mikil fjölgun umsókna um nám við kennaradeild skólans. Innlent 7.6.2024 11:54
Stolið af Grænum skátum fyrir tvær til þrjár milljónir á mánuði Tveimur til þremur milljónum króna hefur verið stolið frá Grænum skátum í formi dósa og flaska á söfnunarstöðum. Jón Ingvar Bragason, framkvæmdastjóri Grænna skáta, segir að staðfestur grunur sé um að ákveðinn aðili sé á bak við verknaðinn. Innlent 7.6.2024 11:41
Ása Laufey skipuð prestur í Háteigskirkju Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir, prestur innflytjenda, hefur verið skipuð prestur í Háteigskirkju. Innlent 7.6.2024 11:40
Bjargráð fyrir bændur og ósáttir trillukarlar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við formann Bændasamtaka Íslands um það tjón sem bændur á Norður- og Austurlandi eru að verða fyrir í kuldatíðinni sem nú gengur yfir. Innlent 7.6.2024 11:38
Hjúkrunarfræðingar fordæma aukið aðgengi að áfengi Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur skorað á Alþingi og Ríkisstjórn að takmarka sölu á áfengi og standa þannig vörð um lýðheilsu þjóðarinnar. Innlent 7.6.2024 11:16
Læknar sagðir útbýta vottorðum eins og sælgæti Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri félags atvinnurekenda tók upp þann þráð sem Kristján Berg Fiskikóngur hóf um brottrekna starfsmenn í viðtali í Bítinu. Helst var á honum að skilja að læknar séu ævintýralega glaðir að skrifa út vottorð. Innlent 7.6.2024 10:39
Hafró ráðleggur eins prósents hækkun aflamarks þorsks Hafrannsóknastofnun kynnti úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár í morgun. Aflamark fyrir á þriðja tug stofna var lagt til á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu. Innlent 7.6.2024 10:27
Hraungígur brast í morgun Hraun úr eldgosinu á Reykjanesskaga streymir úr barmi gígs sem brast um klukkan fimm í morgun. Hraunstreymið ógnar engum innviðum eins og stendur en grannt er fylgst með. Innlent 7.6.2024 10:16
Erfitt fyrir konur að fara frá heimili í langan tíma fyrir fæðingu Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands og Heiðdís Anna Marteinsdóttir, verðandi ljósmóðir, segja fæðingarþjónustu á landsbyggðinni ábótavant. Heiðdís og Unnur fóru yfir stöðuna í faginu í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 7.6.2024 09:53
Bein útsending: Hafró kynnir komandi fiskveiðiár Hafrannsóknastofnun kynnir í dag úttekt á ástandi helstu nytjastofna og ráðgjöf fyrir komandi fiskveiðiár. Kynningin hefst klukkan níu og fer fram í höfuðstöðvum stofnunarinnar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Innlent 7.6.2024 08:31
Eldur í íbúð í Kóngsbakka Eldur kom upp í íbúð í Kóngsbakka í Breiðholti fyrir skömmu. Allar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út. Innlent 7.6.2024 08:26
Gular viðvaranir enn í kortunum Meginþunginn af langvinnu norðanhreti er afstaðinn en þó eru enn gular viðvaranir í kortunum. Slyddu eða snjókomu er spáð á Norðurlandi í kvöld, líklega síðustu gusunni af kaldri úrkomu í bili. Innlent 7.6.2024 07:52
Bjarni vill fjölga meðmælendum Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur boðað formenn allra flokka á fund í dag að loknum ríkisstjórnarfundi. Tilefni fundarins er að ræða hugsanlegar breytingar á stjórnarskrá. Líklegt er að þar verði breytingar á meðmælendafjölda forsetaframbjóðenda til umræðu. Innlent 7.6.2024 07:30
Íbúar óttast nýtt hverfi og að ekki verði tekið tillit til þeirra Hópur íbúa í Garðabæ skoðar nú að stofna hagsmunasamtök til að mótmæla fyrirhugaðri uppbyggingu í Arnarlandi í Garðabæ. Sigurður Hólmar Jóhannesson er hluti af þeim hópi. Hann mætti á fund bæjarstjórnar í dag, ásamt um þrettán öðrum, til að mótmæla samráðsleysi við íbúa. Hann segir íbúa ekki mótfallna uppbyggingu á svæðinu en þau telji að hún ætti að vera meira í takt við það sem fyrir er. Innlent 6.6.2024 23:55
Halla lætur lítið fyrir sér fara næstu vikurnar Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands, ætlar að láta lítið fyrir sér fara á samfélagsmiðlum og fjölmiðlum næstu vikurnar. Halla tekur við embætti forseta í ágúst og segir í nýrri færslu á Instagram-síðu sinni að hún ætli að nýta næstu vikurnar til að koma fyrra starfi sínu í góðan farveg og til að hvílast. Innlent 6.6.2024 22:45
Tilkynnt um ungmenni með byssur í 101 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í dag vegna ungmenna með byssur í miðborg eða Vesturbæ Reykjavíkur í dag. Í dagbók lögreglu segir að komið hafið svo í ljós að um var að ræða krakka í „byssu og bófa leik“. Lögreglan sinnti fjölda annarra verkefna í dag varðandi ýmis mál. Innlent 6.6.2024 22:09