Innlent Braut gegn tveimur konum og þremur unglingsstúlkum Karlmaður á fertugsaldri hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í þessum mánuði vegna tveggja kynferðisbrota. Sami maður hlaut átta mánaða fangelsisdóm í apríl vegna kynferðisbrota í garð þriggja unglingsstúlkna. Innlent 24.6.2024 18:08 Dapurlegar aðstæður heimilislausra og sögufrægur þristur Lögregla greinir mikla aukningu á stórfelldum líkamsárásum, sem framin eru af ungmennum á aldrinum tíu til sautján ára. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við afbrotafræðing, sem segir góð samskipti við börn vera bestu forvörnina. Innlent 24.6.2024 18:00 Þriðji stríðsþristurinn á leiðinni til Reykjavíkur Tvær Douglas Dakota-flugvélar, sem tóku þátt í seinni heimsstyrjöld, hófu sig til flugs frá Reykjavíkurflugvelli í dag, önnur í morgun en hin í hádeginu, eftir nokkurra daga viðdvöl á Íslandi. Þeir flugáhugamenn sem misstu af vélunum þurfa þó ekki að örvænta. Þær verða sýndar í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 24.6.2024 17:11 Þakklát eftir fund með „viljugum“ Bjarna Sylvía Briem Friðjónsdóttir, sem síðustu daga hefur vakið athygli bágri stöðu nýbakaðra foreldra í tengslum við leiksólapláss og fæðingarorlof, átti fund með forsætisráðherra í dag og fór yfir stöðuna. Innlent 24.6.2024 16:58 Tækniskólinn og Kvennaskólinn vinsælastir Innritun nemenda í framhaldsskóla er nú lokið en alls bárust 4.677 umsóknir fyrir haustið. Flestar umsóknir voru með Tækniskólann eða Kvennaskólann í vali eitt eða tvo. Öllum umsækjendum var tryggt pláss í skóla fyrir veturinn. Innlent 24.6.2024 16:57 FA gagnrýnir reglugerð Willums Þórs harðlega Ljóst er að þeir hjá Félagi atvinnurekenda vita vart hvort þeir eiga að hlæja eða gráta vegna ákvæðis í drögum að reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra þess efnis að pakka beri inn öllu tóbaki í einsleitar umbúðir. Innlent 24.6.2024 16:34 „Árás á frjálsan fjölmiðil er atlaga að lýðræðinu“ Stjórn Blaðamannafélagsins vill að yfirvöld rannsaki netárásar á miðla Árvakurs í gær. Gera þurfi ráðstafanir til að verja mikilvæga samfélagslega innviði á borð við fréttamiðla. Innlent 24.6.2024 16:29 Grikkir fengu verðlaun í nafni Vigdísar Grísku grasrótarsamtökin Irida Women‘s Center hlutu í dag ný alþjóðleg jafnréttisverðlun í nafni Vigdísar Finnbogadóttur, Vigdís Prize for Women‘s Empowerment, sem afhent voru í fyrsta sinn á vettvangi Evrópuráðsins í Strassborg í Frakklandi. Innlent 24.6.2024 15:56 Eldgosinu lauk á laugardaginn Eldgosinu við Sundhnúk lauk á laugardaginn. Landris við Svartsengi er þegar hafið á ný og að mati náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni er atburðarásin svipuð þeirri sem áður hefur sést milli gosa. Innlent 24.6.2024 15:43 Búturinn úr eyranu fannst og mönnunum sleppt úr haldi Bútur úr eyra manns sem var ráðist á inni á salerni á skemmtistað á Laugaveginum fannst á vettvangi stuttu eftir árásina aðfaranótt sunnudags. Innlent 24.6.2024 15:09 Innheimta bílastæðagjöld við innanlandsvelli á morgun Isavia Innanlandsflugvellir, dótturfélag Isavia, hefur gjaldtöku á bílastæðum þriggja innanlandsflugvalla á morgun. Um er að ræða flugvöllinn á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu. Innlent 24.6.2024 14:29 Samsæriskenningar eru ekki endilega rangar Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, hefur sent frá sér nýja bók sem heitir Weaponizing Conspiracy Theories. Þar fjallar hann um það meðal annars hvernig samsæriskenningar vefja sig inn í orðræðu stjórnmálamanna. Innlent 24.6.2024 14:22 Forsætisráðherra vill ekki víkja fyrir forsetanum á 17. júní Bjarni Benediktsson telur ekki tímabært að breyta þeirri hefð að forsætisráðherra flytji ávarp við hátíðarhöld á Austurvelli hinn 17. júní og í hans stað flytji forsetinn ávarp eins og Guðni Th. Jóhannesson lagði til við frestun þingfunda. Hins vegar komi til álita að útbúa aðstöðu fyrir forsetann á Þingvöllum eins og Guðni lagði til. Innlent 24.6.2024 14:20 Mögulegt að einhverjir stofnar séu þegar glataðir Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun segir að ráðast þurfi í bráðaaðgerðir til að koma vatni í Grenlæk í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu. Hann segir stöðuna sem þar er uppi grafalvarlega fyrir lífríkið, og að mögulega séu einhverjir stofnar þar þegar útdauðir. Innlent 24.6.2024 14:00 Hjólabrautin búin að liggja eins og hráviði í tvær vikur Hjólabrautin sem var áður á Miðbakka í Reykjavík liggur nú á víð og dreif á malarplani á Klambratúni. Hún var fjarlægð fyrir um tveimur vikum þegar að parísarhjólið var sett upp á höfninni. Innlent 24.6.2024 13:58 Tveir veiðihundar í haldi Dýraþjónustunnar Dýraþjónusta Reykjavíkur sótti í gær tvo hunda sem gengu lausir í Laugardalnum í Reykjavík. Hundar af sömu tegund og frá sama eiganda eru grunaðir um að hafa drepið kött í hverfinu í síðustu viku. Innlent 24.6.2024 12:54 „Mikið þrekvirki“ að koma Morgunblaðinu út í morgun Árvakur er fjórða fórnarlamb rússneska netglæpahópsins Akira á Íslandi á skömmum tíma. Hópurinn virðist komast upp með að stunda glæpastarfsemi sína óáreittur í Rússlandi að sögn netöryggissérfræðings. Árásin sem gerð var á Árvakur í gær er litin grafalvarlegum augum og litlu mátti muna að Morgunblaðið kæmi ekki út í morgun, sem sjaldan eða aldrei hefur gerst í yfir hundrað ára sögu blaðsins að sögn aðstoðarritstjóra. Innlent 24.6.2024 12:48 Börn hagnýtt í skipulagðri brotastarfsemi Lögregla greinir mikla aukningu þegar kemur að stórfelldum líkamsárásum sem framin eru af ungmennum á aldrinum 10 til 17 ára. Þá benda gögn til þess að börn séu hagnýtt í skipulagðri brotastarfsemi. Innlent 24.6.2024 12:35 Fullir á rafhlaupahjóli mega búast við sektum Ölvunarakstur rafhlaupahjóla er orðinn refsiverður með breytingu á umferðarlögum sem samþykkt voru fyrir frestun Alþingis fram á haust. Miðað er við sömu mörk og akstur bíla og annarra vélknúinna ökutækja. Innlent 24.6.2024 11:59 Komu slösuðum skipverja til bjargar Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Neskaupstað og á Patreksfirði voru kölluð út í nótt og snemma í morgun til aðstoða tvo fiskibáta. Innlent 24.6.2024 11:54 Netárásir Akira og börn í skipulagðri brotastarfsemi Árvakur er fjórða íslenska fórnarlamb rússneska netglæpahópsins Akira á skömmum tíma. Árásin er litin grafalvarlegum augum. Rætt verður við netöryggissérfræðing um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 24.6.2024 11:30 Ekki lengur áhættulaust að svindla á bílprófinu Fólk sem verður staðið að svindli í ökuprófum má svipta réttinum til að þreyta ökuprófið að nýju í allt að hálft ár. Áður gátu viðkomandi mætt aftur í prófið viku síðar. Innlent 24.6.2024 11:15 Allt önnur viðbrögð við lúsmýbiti í dag Gísli Már Gíslason prófessor emeritus í vatnalíffræði segist sjálfur ekki finna lengur fyrir þeim lúsmýbitum sem hann verði fyrir í sveitinni. Enn er óljóst hvaðan flugan á uppruna sinn í lífríkinu hér á landi en alveg ljóst að hún er komin til að vera og tímaspursmál hvenær moskítóflugan bætist í hópinn. Innlent 24.6.2024 10:51 Æfa sig með franskan ísbrjót í togi Varðskipið Þór er þessa stundina með franska ísbrjótinn Le Commandant Charcot í togi suður af Látrabjargi á Breiðarfirði. Um æfingu er að ræða. Innlent 24.6.2024 10:34 Hafa áhyggjur af hópamyndun ungra karlmanna Heilt yfir hefur ofbeldisbrotum ungmenna ekki fjölgað hér á landi frá árinu 2007. Hins vegar hefur tilkynningum til lögreglu um alvarleg ofbeldisbrot fjölgað og hafa þau aldrei verið fleiri. Þá hefur lögregla sérstakar áhyggjur af hópamyndun ungmenna og ungra karlmanna í ofbeldismálum. Innlent 24.6.2024 10:28 „Þetta er árás á lýðræðið í landinu” Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir að netárásin sem gerð var á Árvakur í gær jafngildi árás á lýðræðið á Íslandi og frjáls skoðanaskipti í landinu. Þetta skrifar Lilja í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun. Innlent 24.6.2024 10:27 Vandar um við Sigmund Davíð Henry Alexander Henrysson heimspekingur hefur áhyggjur af því að ný Mannréttindastofnun Íslands, verði flokkspólitískum deilum og glósum að bráð. Innlent 24.6.2024 10:08 Gerðu lykiluppgötvun í baráttunni við Alzheimer Fyrsta stökkbreytingin með sterkan víkjandi þátt sem stóreykur líkur á Alzheimur sjúkdómi er fundin. Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar fóru fyrir stórri alþjóðlegri rannsókn á erfðum Alzheimer sjúkdóms. Innlent 24.6.2024 09:54 Skjálftinn við Brennisteinsfjöll líklega ótengdur gosstöðvunum Jarðskjálfti sem reið yfir í Brennisteinsfjöllum í gærkvöldi er ekki talinn tengjast atburðunum í Sundhnúkagígum. Landris heldur áfram við Svartsengi og útlit fyrir að sama ferli sé að hefjast og sést hefur í aðdraganda síðustu eldgosa. Innlent 24.6.2024 08:35 Borgin sendi ömurleg skilaboð út í samfélagið Rithöfundurinn Sverrir Norland segir skammarlegt að starfsemi bókasafna Reykjavíkur verði ekki haldið úti í allt sumar vegna hagræðingarkröfu borgarinnar. Söfnin verða lokuð á víxl í sumar, hvert í þrjár vikur í senn, sparnaðarskyni. Sverrir telur það senda ömurleg skilaboð út í samfélagið, sér í lagi þegar íslenskt efni fyrir börn verður undir í samkeppni við efni á öðrum tungumálum. Innlent 24.6.2024 07:50 « ‹ 135 136 137 138 139 140 141 142 143 … 334 ›
Braut gegn tveimur konum og þremur unglingsstúlkum Karlmaður á fertugsaldri hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í þessum mánuði vegna tveggja kynferðisbrota. Sami maður hlaut átta mánaða fangelsisdóm í apríl vegna kynferðisbrota í garð þriggja unglingsstúlkna. Innlent 24.6.2024 18:08
Dapurlegar aðstæður heimilislausra og sögufrægur þristur Lögregla greinir mikla aukningu á stórfelldum líkamsárásum, sem framin eru af ungmennum á aldrinum tíu til sautján ára. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við afbrotafræðing, sem segir góð samskipti við börn vera bestu forvörnina. Innlent 24.6.2024 18:00
Þriðji stríðsþristurinn á leiðinni til Reykjavíkur Tvær Douglas Dakota-flugvélar, sem tóku þátt í seinni heimsstyrjöld, hófu sig til flugs frá Reykjavíkurflugvelli í dag, önnur í morgun en hin í hádeginu, eftir nokkurra daga viðdvöl á Íslandi. Þeir flugáhugamenn sem misstu af vélunum þurfa þó ekki að örvænta. Þær verða sýndar í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 24.6.2024 17:11
Þakklát eftir fund með „viljugum“ Bjarna Sylvía Briem Friðjónsdóttir, sem síðustu daga hefur vakið athygli bágri stöðu nýbakaðra foreldra í tengslum við leiksólapláss og fæðingarorlof, átti fund með forsætisráðherra í dag og fór yfir stöðuna. Innlent 24.6.2024 16:58
Tækniskólinn og Kvennaskólinn vinsælastir Innritun nemenda í framhaldsskóla er nú lokið en alls bárust 4.677 umsóknir fyrir haustið. Flestar umsóknir voru með Tækniskólann eða Kvennaskólann í vali eitt eða tvo. Öllum umsækjendum var tryggt pláss í skóla fyrir veturinn. Innlent 24.6.2024 16:57
FA gagnrýnir reglugerð Willums Þórs harðlega Ljóst er að þeir hjá Félagi atvinnurekenda vita vart hvort þeir eiga að hlæja eða gráta vegna ákvæðis í drögum að reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra þess efnis að pakka beri inn öllu tóbaki í einsleitar umbúðir. Innlent 24.6.2024 16:34
„Árás á frjálsan fjölmiðil er atlaga að lýðræðinu“ Stjórn Blaðamannafélagsins vill að yfirvöld rannsaki netárásar á miðla Árvakurs í gær. Gera þurfi ráðstafanir til að verja mikilvæga samfélagslega innviði á borð við fréttamiðla. Innlent 24.6.2024 16:29
Grikkir fengu verðlaun í nafni Vigdísar Grísku grasrótarsamtökin Irida Women‘s Center hlutu í dag ný alþjóðleg jafnréttisverðlun í nafni Vigdísar Finnbogadóttur, Vigdís Prize for Women‘s Empowerment, sem afhent voru í fyrsta sinn á vettvangi Evrópuráðsins í Strassborg í Frakklandi. Innlent 24.6.2024 15:56
Eldgosinu lauk á laugardaginn Eldgosinu við Sundhnúk lauk á laugardaginn. Landris við Svartsengi er þegar hafið á ný og að mati náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni er atburðarásin svipuð þeirri sem áður hefur sést milli gosa. Innlent 24.6.2024 15:43
Búturinn úr eyranu fannst og mönnunum sleppt úr haldi Bútur úr eyra manns sem var ráðist á inni á salerni á skemmtistað á Laugaveginum fannst á vettvangi stuttu eftir árásina aðfaranótt sunnudags. Innlent 24.6.2024 15:09
Innheimta bílastæðagjöld við innanlandsvelli á morgun Isavia Innanlandsflugvellir, dótturfélag Isavia, hefur gjaldtöku á bílastæðum þriggja innanlandsflugvalla á morgun. Um er að ræða flugvöllinn á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu. Innlent 24.6.2024 14:29
Samsæriskenningar eru ekki endilega rangar Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, hefur sent frá sér nýja bók sem heitir Weaponizing Conspiracy Theories. Þar fjallar hann um það meðal annars hvernig samsæriskenningar vefja sig inn í orðræðu stjórnmálamanna. Innlent 24.6.2024 14:22
Forsætisráðherra vill ekki víkja fyrir forsetanum á 17. júní Bjarni Benediktsson telur ekki tímabært að breyta þeirri hefð að forsætisráðherra flytji ávarp við hátíðarhöld á Austurvelli hinn 17. júní og í hans stað flytji forsetinn ávarp eins og Guðni Th. Jóhannesson lagði til við frestun þingfunda. Hins vegar komi til álita að útbúa aðstöðu fyrir forsetann á Þingvöllum eins og Guðni lagði til. Innlent 24.6.2024 14:20
Mögulegt að einhverjir stofnar séu þegar glataðir Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun segir að ráðast þurfi í bráðaaðgerðir til að koma vatni í Grenlæk í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu. Hann segir stöðuna sem þar er uppi grafalvarlega fyrir lífríkið, og að mögulega séu einhverjir stofnar þar þegar útdauðir. Innlent 24.6.2024 14:00
Hjólabrautin búin að liggja eins og hráviði í tvær vikur Hjólabrautin sem var áður á Miðbakka í Reykjavík liggur nú á víð og dreif á malarplani á Klambratúni. Hún var fjarlægð fyrir um tveimur vikum þegar að parísarhjólið var sett upp á höfninni. Innlent 24.6.2024 13:58
Tveir veiðihundar í haldi Dýraþjónustunnar Dýraþjónusta Reykjavíkur sótti í gær tvo hunda sem gengu lausir í Laugardalnum í Reykjavík. Hundar af sömu tegund og frá sama eiganda eru grunaðir um að hafa drepið kött í hverfinu í síðustu viku. Innlent 24.6.2024 12:54
„Mikið þrekvirki“ að koma Morgunblaðinu út í morgun Árvakur er fjórða fórnarlamb rússneska netglæpahópsins Akira á Íslandi á skömmum tíma. Hópurinn virðist komast upp með að stunda glæpastarfsemi sína óáreittur í Rússlandi að sögn netöryggissérfræðings. Árásin sem gerð var á Árvakur í gær er litin grafalvarlegum augum og litlu mátti muna að Morgunblaðið kæmi ekki út í morgun, sem sjaldan eða aldrei hefur gerst í yfir hundrað ára sögu blaðsins að sögn aðstoðarritstjóra. Innlent 24.6.2024 12:48
Börn hagnýtt í skipulagðri brotastarfsemi Lögregla greinir mikla aukningu þegar kemur að stórfelldum líkamsárásum sem framin eru af ungmennum á aldrinum 10 til 17 ára. Þá benda gögn til þess að börn séu hagnýtt í skipulagðri brotastarfsemi. Innlent 24.6.2024 12:35
Fullir á rafhlaupahjóli mega búast við sektum Ölvunarakstur rafhlaupahjóla er orðinn refsiverður með breytingu á umferðarlögum sem samþykkt voru fyrir frestun Alþingis fram á haust. Miðað er við sömu mörk og akstur bíla og annarra vélknúinna ökutækja. Innlent 24.6.2024 11:59
Komu slösuðum skipverja til bjargar Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Neskaupstað og á Patreksfirði voru kölluð út í nótt og snemma í morgun til aðstoða tvo fiskibáta. Innlent 24.6.2024 11:54
Netárásir Akira og börn í skipulagðri brotastarfsemi Árvakur er fjórða íslenska fórnarlamb rússneska netglæpahópsins Akira á skömmum tíma. Árásin er litin grafalvarlegum augum. Rætt verður við netöryggissérfræðing um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 24.6.2024 11:30
Ekki lengur áhættulaust að svindla á bílprófinu Fólk sem verður staðið að svindli í ökuprófum má svipta réttinum til að þreyta ökuprófið að nýju í allt að hálft ár. Áður gátu viðkomandi mætt aftur í prófið viku síðar. Innlent 24.6.2024 11:15
Allt önnur viðbrögð við lúsmýbiti í dag Gísli Már Gíslason prófessor emeritus í vatnalíffræði segist sjálfur ekki finna lengur fyrir þeim lúsmýbitum sem hann verði fyrir í sveitinni. Enn er óljóst hvaðan flugan á uppruna sinn í lífríkinu hér á landi en alveg ljóst að hún er komin til að vera og tímaspursmál hvenær moskítóflugan bætist í hópinn. Innlent 24.6.2024 10:51
Æfa sig með franskan ísbrjót í togi Varðskipið Þór er þessa stundina með franska ísbrjótinn Le Commandant Charcot í togi suður af Látrabjargi á Breiðarfirði. Um æfingu er að ræða. Innlent 24.6.2024 10:34
Hafa áhyggjur af hópamyndun ungra karlmanna Heilt yfir hefur ofbeldisbrotum ungmenna ekki fjölgað hér á landi frá árinu 2007. Hins vegar hefur tilkynningum til lögreglu um alvarleg ofbeldisbrot fjölgað og hafa þau aldrei verið fleiri. Þá hefur lögregla sérstakar áhyggjur af hópamyndun ungmenna og ungra karlmanna í ofbeldismálum. Innlent 24.6.2024 10:28
„Þetta er árás á lýðræðið í landinu” Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir að netárásin sem gerð var á Árvakur í gær jafngildi árás á lýðræðið á Íslandi og frjáls skoðanaskipti í landinu. Þetta skrifar Lilja í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun. Innlent 24.6.2024 10:27
Vandar um við Sigmund Davíð Henry Alexander Henrysson heimspekingur hefur áhyggjur af því að ný Mannréttindastofnun Íslands, verði flokkspólitískum deilum og glósum að bráð. Innlent 24.6.2024 10:08
Gerðu lykiluppgötvun í baráttunni við Alzheimer Fyrsta stökkbreytingin með sterkan víkjandi þátt sem stóreykur líkur á Alzheimur sjúkdómi er fundin. Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar fóru fyrir stórri alþjóðlegri rannsókn á erfðum Alzheimer sjúkdóms. Innlent 24.6.2024 09:54
Skjálftinn við Brennisteinsfjöll líklega ótengdur gosstöðvunum Jarðskjálfti sem reið yfir í Brennisteinsfjöllum í gærkvöldi er ekki talinn tengjast atburðunum í Sundhnúkagígum. Landris heldur áfram við Svartsengi og útlit fyrir að sama ferli sé að hefjast og sést hefur í aðdraganda síðustu eldgosa. Innlent 24.6.2024 08:35
Borgin sendi ömurleg skilaboð út í samfélagið Rithöfundurinn Sverrir Norland segir skammarlegt að starfsemi bókasafna Reykjavíkur verði ekki haldið úti í allt sumar vegna hagræðingarkröfu borgarinnar. Söfnin verða lokuð á víxl í sumar, hvert í þrjár vikur í senn, sparnaðarskyni. Sverrir telur það senda ömurleg skilaboð út í samfélagið, sér í lagi þegar íslenskt efni fyrir börn verður undir í samkeppni við efni á öðrum tungumálum. Innlent 24.6.2024 07:50