Innlent Hættustig í Grindavík og veiklulegur Biden Þrátt fyrir að almannavarnir hafi lýst yfir hættustigi er gist í þrjátíu til sextíu húsum í bænum og starfsemi í fullum gangi. Við verðum í beinni útsendingu frá Grindavík í hádegisfréttum. Innlent 25.7.2024 11:44 „Hvað ertu að gera í þessum karlrembuflokki?“ Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og fyrsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi er gestur Einar Bárðarsonar í nýjasta þættinum hans af Einmitt. Innlent 25.7.2024 11:42 Meðalævilengd Íslendinga styttist Meðalævilengd karla á Íslandi var 80,7 ár árið 2023 og meðalævilengd kvenna 83,8 ár og styttist í báðum tilfellum á milli ára. Meðalævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Mikil fylgni er milli aukins menntunarstigs og lengra lífs. Innlent 25.7.2024 10:35 Sluppu furðuvel frá heimsókn hesta á golfvöllinn Tiltölulega litlar skemmdir urðu á Hlíðavelli í Mosfellsbæ þegar hestastóð kom í óvelkomna heimsókn þangað seint í gærkvöldi. Vallastjóri telur líklegt að hestarnir hafi sloppið úr gerði nærri vellinum þar sem hann liggur við Leiruvog. Innlent 25.7.2024 09:22 Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf „Menntamálastofnun réð ekki við framkvæmdina þrátt fyrir að við værum búin að aðstoða þá, koma með leiðbeiningar og tillögur að framkvæmd um hvernig væri hægt að gera þetta – þær bara gengu ekki upp.“ Innlent 25.7.2024 06:41 Ágreiningur um kött og hótanir gegn börnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi vegna ágreinings um kött, þar sem tveir deildu um það hvor væri réttmætur eigandi kattarins. Rannsókn lögreglu á vettvangi varð til þess að kötturinn endaði að lokum í höndunum á réttum eiganda. Innlent 25.7.2024 06:19 Fyrirvari fyrir næsta gos gæti verið nokkrar mínútur Hættustig almannavarna var virkjað í dag vegna yfirvofandi eldoss í grennd við Grindavík. Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, segir það áhyggjuefni að viðvörunartími styttist með hverju gosinu sem verður en telur þó öruggt að fólk sé í bænum að degi til. Innlent 24.7.2024 23:36 Kona grunuð um að verða sex ára syni sínum að bana sögð sakhæf Kona sem er grunuð um að hafa orðið syni sínum að bana og sögð hafa reynt að veita öðrum syni sínum bana á Nýbýlavegi í Kópavogi fyrr á þessu ári er sakhæf að mati matsmanna. Innlent 24.7.2024 21:35 „Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst“ Verkefnastjóri segir miður að steypuryk frá niðurrifsframkvæmdum á Kirkjusandi hafi fokið yfir íbúðahverfi í Laugarnesi. Auka hefur þurft öryggisgæslu á svæðinu eftir að í ljós kom að fólk hefur farið inn á svæðið í leyfisleysi. Innlent 24.7.2024 20:30 Öllu gríni fylgi alvara Lögreglan lítur falska aðganga sem eru stofnaðir í þeirra nafni alvarlegum augum þó svo að það sé gert í gríni og minnir á að um lögbrot sé að ræða. Marta Kristín Hreiðarsdóttir, deildarstjóri upplýsinga- og áætlunardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, varar við háttseminni og segir öllu gríni fylgja alvara. Innlent 24.7.2024 20:16 Um 100 manns frá Eþíópíu búa á Íslandi Íbúar frá Eþíópíu, sem búa hér á landi koma saman þessa dagana til að syngja, dansa og biðja, ásamt því að borða góðan mat saman með puttunum. Með því er verið að fagna Gabríel erkiengli en ein slík hátíð var haldin á Flúðum í gær. Innlent 24.7.2024 20:05 Lögreglubíll og pallbíll sennilega ónýtir eftir harðan árekstur Harður árekstur varð þegar bifreið var ekið á lögreglubifreið í forgangsakstri við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í kvöld. Innlent 24.7.2024 19:30 Hættustig almannavarna og sögulegt ávarp Netanjahú Hættustig almannavarna var virkjað í dag vegna yfirvofandi eldoss í grennd við Grindavík. Víðir Reynisson segir það áhyggjuefni að viðvörunartími styttist með hverju gosinu sem verður en telur þó öruggt að fólk sé í bænum að degi til. Innlent 24.7.2024 18:00 Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Halla Kristín Sveinsdóttir Grindvíkingur rak upp stór augu þegar hún uppgötvaði að loftefni hefði hrunið til jarðar í aðalrými húss í hennar eigu við Borgarhraun í dag. Vegna þess að húsið er í eigu félags hennar fæst það ekki uppkeypt af Þórkötlu og Halla situr uppi með skuldirnar. Innlent 24.7.2024 17:46 Reiðhjólamaður féll af kletti við Jökulsárgljúfur Reiðhjólamaður slasaðist þegar hann féll fram af kletti við Jökulsárgljúfur upp úr hádegi í dag. Hífa þurfti manninn upp úr gljúfrinu. Samferðamaður hans slasaðist þegar hann reyndi að aðstoða hann. Báðir voru fluttir til Akureyrar til frekari aðhlynningar. Innlent 24.7.2024 17:23 Færa börnin eftir að skemmdir í leikskólanum komu í ljós Reiknað álag frá ásteypulagi og torfi á þaki leikskólans Brákarborgar var meira en tilgreint var á teikningum. Sprungur voru byrjaðar að myndast í veggjum og dyrakarmar teknir að skekkjast áður en mistökin uppgötvuðust. Næstu mánuði verða framkvæmdir í húsnæðinu og starfsemi leikskólans flutt í húsnæði í Ármúla. Innlent 24.7.2024 17:13 Þórarinn selur ekki sinn hlut í Búsæld Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis og þingmaður Framsóknarflokksins, ætlar ekki að selja sinn hlut í Búsæld ehf. Heilmikil umræða varð um eignarhald hans og konu hans í félaginu þegar Kaupfélag Skagfirðinga keypti meirihluta hlutafjár í Kjarnafæði Norðlenska. Innlent 24.7.2024 16:32 Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“ Slökkviliðsstjórinn á Vestfjörðum telur það „vísi að misnotkun“ á neyðarþjónustu Landhelgisgæslunnar að þyrla hafi sótt bandarískan ferðamann sem óskaði eftir aðstoð á Jökulfjörðum. Landhelgisgæslan hefur ekki á dagskrá að kryfja málið frekar. Innlent 24.7.2024 16:22 Þrettán vilja stýra ráðuneyti Svandísar Þrettán umsækjendur eru um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins sem auglýst var um miðjan júní sl. en umsóknarfrestur rann út 19. júlí. Innlent 24.7.2024 15:21 Myndband sýnir aðdraganda árásarinnar á Krít Myndband úr öryggismyndavél sýnir aðdraganda og upphaf stórfelldrar líkamsárásar á íslenska fjölskyldu á Krít fyrr í mánuðinum. Fjölskyldufaðirinn sem er grísk-kanadískur og heitir Emmanuel Kakoulakis er illa haldinn eftir árásina. Innlent 24.7.2024 15:19 Halla heimsótti Guðna Rúm vika er til stefnu þar til Halla Tómasdóttir verður formlega sett inn í embætti forseta Íslands. Fjölskyldur Höllu og Guðna Th. Jóhannessonar hittust á Bessastöðum í dag. Innlent 24.7.2024 14:13 Féllu ofan í jökullón Sólheimajökuls Þyrla landhelgisgæslunnar auk björgunarsveita á Norður- og Suðurlandi var kölluð út nú fyrir skömmu. Fyrst vegna reiðhjólaslyss í Ásbyrgi og síðan vegna tveggja ferðalanga sem féllu af sporði Sólheimajökuls og ofan í jökullónið. Innlent 24.7.2024 13:43 Lýsa yfir hættustigi Hættustigi verður lýst yfir vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Hættumat Veðurstofu Íslands verður uppfært í gær en kvika heldur áfram að safnast undir Svartsengi og búist er við kvikuhlaupi eða eldgosi á næstunni. Innlent 24.7.2024 13:25 Söngskólinn í Reykjavík leitar nýs húsnæðis Stjórnendur Söngskólans í Reykjavík leita nýs húsnæðis undir starfsemi skólans. Núverandi húsnæði skólans við Laufásveg í Reykjavík, sem gjarnan er kallað Sturluhallir, hefur þegar verið selt. Innlent 24.7.2024 12:34 Viðvarandi vætutíð og áfram rigning í kortunum Viðvarandi vætutíð hefur verið sunnan- og vestanlands í sumar og er áfram rigning í kortunum næstu daga. Of snemmt er að spá í spilin um veðrið um verslunarmannahelgina að sögn veðurfræðings. Innlent 24.7.2024 12:30 „Auðvitað mjög margir sem eru óttaslegnir“ Enn er stefnt að umfangsmiklum framkvæmdum í Grindavík þrátt fyrir uppfært hættumat Veðurstofunnar sem segir mikla hættu á eldgosi innan bæjarmarkanna. Þetta segir formaður Grindavíkurnefndar en kostnaður hleypur á hundruðum milljóna. Innlent 24.7.2024 12:20 Arnar Þór íhugar að stofna stjórnmálaflokk Arnar Þór Jónsson, lögmaður og forsetaframbjóðandi, íhugar að stofna stjórnmálaflokk. Hann segir stjórnarflokkana orðna viðskila við hugsjónir sínar og að þörf sé á heilindum í íslenskum stjórnmálum. Innlent 24.7.2024 12:09 Verðbólga eykst og áfram rigning í kortunum Verðbólga tók nokkuð óvæntan kipp upp á við í júlí. Hagfræðingur telur það geta haft talsverð áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, sem verður kynnt í ágúst. Innlent 24.7.2024 11:47 Kæra vararíkissaksóknara vegna ummæla um innflytjendur Stjórn Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hefur lagt fram kæru á hendur Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara vegna ummæla sem hann lét falla um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum og um Solaris-samtökin í síðustu viku. Innlent 24.7.2024 11:21 Siggi Kristins gítarleikari og bílaspekúlant er allur Sigurður Kristinsson, sem var meðal stofnmeðlima hinnar fornfrægu hljómsveitar Sniglabandsins, er allur. Hann átti við vanheilsu að stríða síðustu árin. Innlent 24.7.2024 11:02 « ‹ 109 110 111 112 113 114 115 116 117 … 334 ›
Hættustig í Grindavík og veiklulegur Biden Þrátt fyrir að almannavarnir hafi lýst yfir hættustigi er gist í þrjátíu til sextíu húsum í bænum og starfsemi í fullum gangi. Við verðum í beinni útsendingu frá Grindavík í hádegisfréttum. Innlent 25.7.2024 11:44
„Hvað ertu að gera í þessum karlrembuflokki?“ Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og fyrsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi er gestur Einar Bárðarsonar í nýjasta þættinum hans af Einmitt. Innlent 25.7.2024 11:42
Meðalævilengd Íslendinga styttist Meðalævilengd karla á Íslandi var 80,7 ár árið 2023 og meðalævilengd kvenna 83,8 ár og styttist í báðum tilfellum á milli ára. Meðalævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Mikil fylgni er milli aukins menntunarstigs og lengra lífs. Innlent 25.7.2024 10:35
Sluppu furðuvel frá heimsókn hesta á golfvöllinn Tiltölulega litlar skemmdir urðu á Hlíðavelli í Mosfellsbæ þegar hestastóð kom í óvelkomna heimsókn þangað seint í gærkvöldi. Vallastjóri telur líklegt að hestarnir hafi sloppið úr gerði nærri vellinum þar sem hann liggur við Leiruvog. Innlent 25.7.2024 09:22
Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf „Menntamálastofnun réð ekki við framkvæmdina þrátt fyrir að við værum búin að aðstoða þá, koma með leiðbeiningar og tillögur að framkvæmd um hvernig væri hægt að gera þetta – þær bara gengu ekki upp.“ Innlent 25.7.2024 06:41
Ágreiningur um kött og hótanir gegn börnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi vegna ágreinings um kött, þar sem tveir deildu um það hvor væri réttmætur eigandi kattarins. Rannsókn lögreglu á vettvangi varð til þess að kötturinn endaði að lokum í höndunum á réttum eiganda. Innlent 25.7.2024 06:19
Fyrirvari fyrir næsta gos gæti verið nokkrar mínútur Hættustig almannavarna var virkjað í dag vegna yfirvofandi eldoss í grennd við Grindavík. Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, segir það áhyggjuefni að viðvörunartími styttist með hverju gosinu sem verður en telur þó öruggt að fólk sé í bænum að degi til. Innlent 24.7.2024 23:36
Kona grunuð um að verða sex ára syni sínum að bana sögð sakhæf Kona sem er grunuð um að hafa orðið syni sínum að bana og sögð hafa reynt að veita öðrum syni sínum bana á Nýbýlavegi í Kópavogi fyrr á þessu ári er sakhæf að mati matsmanna. Innlent 24.7.2024 21:35
„Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst“ Verkefnastjóri segir miður að steypuryk frá niðurrifsframkvæmdum á Kirkjusandi hafi fokið yfir íbúðahverfi í Laugarnesi. Auka hefur þurft öryggisgæslu á svæðinu eftir að í ljós kom að fólk hefur farið inn á svæðið í leyfisleysi. Innlent 24.7.2024 20:30
Öllu gríni fylgi alvara Lögreglan lítur falska aðganga sem eru stofnaðir í þeirra nafni alvarlegum augum þó svo að það sé gert í gríni og minnir á að um lögbrot sé að ræða. Marta Kristín Hreiðarsdóttir, deildarstjóri upplýsinga- og áætlunardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, varar við háttseminni og segir öllu gríni fylgja alvara. Innlent 24.7.2024 20:16
Um 100 manns frá Eþíópíu búa á Íslandi Íbúar frá Eþíópíu, sem búa hér á landi koma saman þessa dagana til að syngja, dansa og biðja, ásamt því að borða góðan mat saman með puttunum. Með því er verið að fagna Gabríel erkiengli en ein slík hátíð var haldin á Flúðum í gær. Innlent 24.7.2024 20:05
Lögreglubíll og pallbíll sennilega ónýtir eftir harðan árekstur Harður árekstur varð þegar bifreið var ekið á lögreglubifreið í forgangsakstri við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í kvöld. Innlent 24.7.2024 19:30
Hættustig almannavarna og sögulegt ávarp Netanjahú Hættustig almannavarna var virkjað í dag vegna yfirvofandi eldoss í grennd við Grindavík. Víðir Reynisson segir það áhyggjuefni að viðvörunartími styttist með hverju gosinu sem verður en telur þó öruggt að fólk sé í bænum að degi til. Innlent 24.7.2024 18:00
Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Halla Kristín Sveinsdóttir Grindvíkingur rak upp stór augu þegar hún uppgötvaði að loftefni hefði hrunið til jarðar í aðalrými húss í hennar eigu við Borgarhraun í dag. Vegna þess að húsið er í eigu félags hennar fæst það ekki uppkeypt af Þórkötlu og Halla situr uppi með skuldirnar. Innlent 24.7.2024 17:46
Reiðhjólamaður féll af kletti við Jökulsárgljúfur Reiðhjólamaður slasaðist þegar hann féll fram af kletti við Jökulsárgljúfur upp úr hádegi í dag. Hífa þurfti manninn upp úr gljúfrinu. Samferðamaður hans slasaðist þegar hann reyndi að aðstoða hann. Báðir voru fluttir til Akureyrar til frekari aðhlynningar. Innlent 24.7.2024 17:23
Færa börnin eftir að skemmdir í leikskólanum komu í ljós Reiknað álag frá ásteypulagi og torfi á þaki leikskólans Brákarborgar var meira en tilgreint var á teikningum. Sprungur voru byrjaðar að myndast í veggjum og dyrakarmar teknir að skekkjast áður en mistökin uppgötvuðust. Næstu mánuði verða framkvæmdir í húsnæðinu og starfsemi leikskólans flutt í húsnæði í Ármúla. Innlent 24.7.2024 17:13
Þórarinn selur ekki sinn hlut í Búsæld Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis og þingmaður Framsóknarflokksins, ætlar ekki að selja sinn hlut í Búsæld ehf. Heilmikil umræða varð um eignarhald hans og konu hans í félaginu þegar Kaupfélag Skagfirðinga keypti meirihluta hlutafjár í Kjarnafæði Norðlenska. Innlent 24.7.2024 16:32
Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“ Slökkviliðsstjórinn á Vestfjörðum telur það „vísi að misnotkun“ á neyðarþjónustu Landhelgisgæslunnar að þyrla hafi sótt bandarískan ferðamann sem óskaði eftir aðstoð á Jökulfjörðum. Landhelgisgæslan hefur ekki á dagskrá að kryfja málið frekar. Innlent 24.7.2024 16:22
Þrettán vilja stýra ráðuneyti Svandísar Þrettán umsækjendur eru um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins sem auglýst var um miðjan júní sl. en umsóknarfrestur rann út 19. júlí. Innlent 24.7.2024 15:21
Myndband sýnir aðdraganda árásarinnar á Krít Myndband úr öryggismyndavél sýnir aðdraganda og upphaf stórfelldrar líkamsárásar á íslenska fjölskyldu á Krít fyrr í mánuðinum. Fjölskyldufaðirinn sem er grísk-kanadískur og heitir Emmanuel Kakoulakis er illa haldinn eftir árásina. Innlent 24.7.2024 15:19
Halla heimsótti Guðna Rúm vika er til stefnu þar til Halla Tómasdóttir verður formlega sett inn í embætti forseta Íslands. Fjölskyldur Höllu og Guðna Th. Jóhannessonar hittust á Bessastöðum í dag. Innlent 24.7.2024 14:13
Féllu ofan í jökullón Sólheimajökuls Þyrla landhelgisgæslunnar auk björgunarsveita á Norður- og Suðurlandi var kölluð út nú fyrir skömmu. Fyrst vegna reiðhjólaslyss í Ásbyrgi og síðan vegna tveggja ferðalanga sem féllu af sporði Sólheimajökuls og ofan í jökullónið. Innlent 24.7.2024 13:43
Lýsa yfir hættustigi Hættustigi verður lýst yfir vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Hættumat Veðurstofu Íslands verður uppfært í gær en kvika heldur áfram að safnast undir Svartsengi og búist er við kvikuhlaupi eða eldgosi á næstunni. Innlent 24.7.2024 13:25
Söngskólinn í Reykjavík leitar nýs húsnæðis Stjórnendur Söngskólans í Reykjavík leita nýs húsnæðis undir starfsemi skólans. Núverandi húsnæði skólans við Laufásveg í Reykjavík, sem gjarnan er kallað Sturluhallir, hefur þegar verið selt. Innlent 24.7.2024 12:34
Viðvarandi vætutíð og áfram rigning í kortunum Viðvarandi vætutíð hefur verið sunnan- og vestanlands í sumar og er áfram rigning í kortunum næstu daga. Of snemmt er að spá í spilin um veðrið um verslunarmannahelgina að sögn veðurfræðings. Innlent 24.7.2024 12:30
„Auðvitað mjög margir sem eru óttaslegnir“ Enn er stefnt að umfangsmiklum framkvæmdum í Grindavík þrátt fyrir uppfært hættumat Veðurstofunnar sem segir mikla hættu á eldgosi innan bæjarmarkanna. Þetta segir formaður Grindavíkurnefndar en kostnaður hleypur á hundruðum milljóna. Innlent 24.7.2024 12:20
Arnar Þór íhugar að stofna stjórnmálaflokk Arnar Þór Jónsson, lögmaður og forsetaframbjóðandi, íhugar að stofna stjórnmálaflokk. Hann segir stjórnarflokkana orðna viðskila við hugsjónir sínar og að þörf sé á heilindum í íslenskum stjórnmálum. Innlent 24.7.2024 12:09
Verðbólga eykst og áfram rigning í kortunum Verðbólga tók nokkuð óvæntan kipp upp á við í júlí. Hagfræðingur telur það geta haft talsverð áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, sem verður kynnt í ágúst. Innlent 24.7.2024 11:47
Kæra vararíkissaksóknara vegna ummæla um innflytjendur Stjórn Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hefur lagt fram kæru á hendur Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara vegna ummæla sem hann lét falla um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum og um Solaris-samtökin í síðustu viku. Innlent 24.7.2024 11:21
Siggi Kristins gítarleikari og bílaspekúlant er allur Sigurður Kristinsson, sem var meðal stofnmeðlima hinnar fornfrægu hljómsveitar Sniglabandsins, er allur. Hann átti við vanheilsu að stríða síðustu árin. Innlent 24.7.2024 11:02