Erlent Margrét drottning ræddi við Karl konung fyrir ávarpið Margrét Þórhildur Danadrottning ræddi við frænda sinn, Karl Gústaf Svíakonung, og tilkynnti honum um ákvörðun sína að afsala sér krúnunni áður en hún greindi dönsku þjóðinni frá hinu sama í áramótaávarpi sínu í gærkvöldi. Erlent 1.1.2024 10:42 Flóðbylgjuviðvörun gefin út í Japan eftir skjálfta 7,6 að stærð Yfirvöld í Japan hafa gefið út flóðbylgjuviðvörun eftir að skjálfti 7,6 að stærð reið yfir í Japanshafi, vestur af landinu. Erlent 1.1.2024 08:06 Selenskí boðar stóraukna vopnaframleiðslu á nýju ári Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur heitið því að eigin vopnaframleiðsla Úkraínumanna muni stóraukast á nýju ári. Erlent 1.1.2024 07:51 Margrét Þórhildur stígur til hliðar Margrét Þórhildur Danadrottning ætlar að stíga til hliðar hinn 14. janúar næst komandi. Hún tilkynnti þetta í áramótaávarpi sínu í dag. Erlent 31.12.2023 17:16 Tugir særðir í hefndaraðgerðum Rússa Rússar gerðu loftárásir á Úkraínu í nótt og nokkrir tugir eru særðir. Árásirnar eru hefndaraðgerðir Rússa eftir að tuttugu og fjórir féllu í umfangsmikilli árás Úkraínu á rússnesku borgina Belgorod í gær. Hún er að sögn rússneskra stjórnvalda sú versta á Rússland frá upphafi stríðsins. Erlent 31.12.2023 12:12 Danska flutningaskipið varð fyrir annarri árás Danska fragtskipið sem varð í gær fyrir loftárás í Rauðahafinu varð fyrir annarri árás í morgun. Miðlæg stjórnstöð Bandaríkjahers, Centcom, greinir frá þessu. Erlent 31.12.2023 11:46 Nýjar myndir af eldfjallatunglinu Íó NASA deildi í nótt nýjum myndum af Íó tungli Júpíters. Myndirnar voru teknar af svokallaðri JunoCam í geimfarinu Juo sem er um þessar mundir á sveimi um sólkerfið okkar. Erlent 31.12.2023 08:43 Danskt fragtskip hæft af eldflaug Danskt fragtskip í eigu olíu- og flutningarisans Mærsk var hæft af eldflaug í gærkvöldi á siglingu um Rauðahafið. Þessu greinir DR frá. Erlent 31.12.2023 08:19 Segir hatursfulla umræðu ekki hafa haft neitt að gera með stjórnmálin Sanna Marin fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands segir margar ungar konur velta fyrir sér að fara í stjórnmál en hika við það vegna hatursfullar umræðu á samfélagsmiðlum. Erlent 30.12.2023 22:40 Fleiri látnir í loftárás á rússnesku borgina Belgorod Átján manns létu lífið í árás Úkraínumanna á rússnesku borginni Belgorod í dag. Þar af þrjú börn, samkvæmt rússneskum yfirvöldum. Einnig særðust 111 manns. Erlent 30.12.2023 21:44 Hræðilegt og sorglegt morðmál skekur Danmörku 81 árs gamall maður hefur verið handtekinn fyrir að myrða eiginkonu sína þremur mánuðum eftir að þau stigu fram í fjölmiðlum og lýstu yfir ósk sinni að deyja. Erlent 30.12.2023 17:39 Hæfðu flóttamannabúðir á Gasa þar sem mannfall nálgast 22 þúsund Herflugvélar á vegum Ísraelshers hæfðu tvær flóttamannabúðir á miðri Gasaströndinni í dag og er lítið útlit fyrir að nokkurt hlé verði gert á átökum fyrir botni Miðjarðarhafs. Mannfall þar er nú sagt nálgast 22 þúsund manns. Hátt settur ráðamaður innan Hamas segir samtökin enn standa fast á því að fleiri gíslum verði ekki sleppt úr haldi þeirra fyrr en komið verði á ótímabundnu vopnahléi á svæðinu. Erlent 30.12.2023 15:24 Úkraínsk körfuboltahetja fórst í stórfelldum árásum Rússa Einn fórst og fjórir særðust í loftárásum Úkraínuhers á landamærahéraðið Belgorod í suðurhluta Rússlands í gær. Þetta segir héraðsstjóri Belgorod en Bryansk-hérað varð sömuleiðis fyrir eldflaugaárásum Úkraínumanna. Erlent 30.12.2023 10:28 Minnst þrjátíu látnir í umfangsmestu loftárásum Rússa til þessa Minnst þrjátíu manns létu lífið í umfangsmestu loftárásum Rússa í Úkraínu til þessa. Einnig særðust meira en 160 þegar sprengjum ringdi yfir Kænugarð, Ódessu, Dnípropetrovsk, Karkív og Lvív í morgun. Erlent 29.12.2023 22:32 Ísraelsmenn dregnir fyrir dóm fyrir þjóðarmorð Suður-Afríka kærði í dag Ísraelsríki í Alþjóðadómstólnum fyrir brot á þjóðarmorðslögum vegna innrásar þess í Gasa. Erlent 29.12.2023 20:33 Létust í snjóflóði á skíðum í Ölpunum Bresk kona og sonur hennar eru sögð hafa látist í frönsku Ölpunum þegar snjóflóð féll við Mont Blanc. Erlent 29.12.2023 19:24 Danir senda freigátu í Rauðahafið Danir ætla að senda freigátu í Rauðahafið og Adenflóa sem öryggisráðstöfun í kjölfar fjöldamargra árása Húta á svæðinu. Þetta segja utanríkisráðherra Lars Løkke Rasmussen og varnamálaráðherra Troels Lund Poulsen. Erlent 29.12.2023 18:46 Heimsótti bæ sem Rússar reyna að umkringja Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, virðist hafa heimsótt hermenn við og í bænum Avdívka, sem Rússar hafa reynt að umkringja frá því í október. Forsetinn birti myndband af sér standa við skilti bæjarins þar sem hann sagðist hafa þakkað hermönnum á svæðinu fyrir harða og erfiða baráttu þeirra og veitti hann hermönnum orður. Erlent 29.12.2023 16:56 Þrýst á hæstarétt vegna kjörgengis Trumps Maine varð í gær annað ríki Bandaríkjanna þar sem Donald Trump, fyrrverandi forseta, var meinað að vera á kjörseðlum í nóvember á næsta ári. Hæstiréttur Colorado hafði áður komist að sömu niðurstöðu þar og hafa lögsóknir, sem ætlað er að koma í veg fyrir kjörgengi Trumps, verið höfðaðar í á annan tug ríkja til viðbótar. Erlent 29.12.2023 16:00 Kínverjar að verða vinalausir í Taívan Þegar styttist í að haldnar verða forsetakosningar í Taívan standa ráðamenn í Peking frammi fyrir því í fyrsta sinn í nokkurn tíma að eiga fáa vini á eyjunni. Viðhorf Taívana til meginlandsins og tilkalls ráðamanna þar til eyríkisins hefur breyst töluvert á undanförnum árum og það sama á við forsetaframbjóðendur. Erlent 29.12.2023 13:43 Lést þegar vörubíl var ekið inn í hóp fólks Þrjátíu og sjö ára gömul kona er látin og fjórir alvarlega slasaðir eftir að vörubíl var ekið inn í hóp fólks í þýska bænum Passau í suðausturhluta Þýskalands í morgun. Erlent 29.12.2023 13:29 Fimmtán ára drengur lést í hákarlaárás Fimmtán ára drengur lést eftir að hann var bitinn af hákarli undan ströndum Suður-Ástralíu í gær. Drengurinn var að æfa sig á brimbretti á Ethel Beach þegar hákarl beit hann en þetta er í þriðja sinn sem hákarl banar manni undan ströndum fylkisins á undanförnum mánuðum. Erlent 29.12.2023 11:21 Leynilegt geimfar á hærri sporbraut en áður Starfsmenn geimfyrirtækisins SpaceX skutu í nótt leynilegu geimfari bandaríska hersins út í geim. Geimfarið X-37B er talið eiga að vera á braut um jörðu í að minnsta kosti tvö ár. Enginn er um borð en eins og áður ber geimfarið leynilegar tilraunir bandarískra vísindamanna. Erlent 29.12.2023 09:52 Umfangsmestu loftárásir Rússa hingað til Talsmaður flughers Úkraínu segist aldrei hafa upplifað jafn margar árásir á sama tíma eins og Rússar hafa gert nú í morgun. Rússar gerðu loftárásir um allt land og notuðu til þess bæði eldflaugar og dróna. Erlent 29.12.2023 08:24 Tugþúsundir flýja miðhluta Gasa Um 150 þúsund Palestínumenn hafa nú verið neyddir til að flýja miðhluta Gasasvæðisins undan Ísraelsher sem gerir nú atlögu að flóttamannabúðum á svæðinu. Erlent 29.12.2023 07:48 Dæmdir í áralangt fangelsi fyrir ljóðlestur gegn átökunum í Úkraínu Dómstóll í Moskvu í Rússlandi hefur dæmt tvo menn fyrir að flytja ljóð og vera viðstaddir upplesturinn en um var að ræða mótmæli gegn átökunum í Úkraínu. Erlent 29.12.2023 07:04 Trump ekki kjörgengur í Maine Innanríkisráðherra Maine í Bandaríkjunum, sem meðal annars hefur umsjón með framkvæmd kosninga í ríkinu, hefur ákveðið að Donald Trump sé ekki kjörgengur vegna framgöngu hans þegar ráðist var inn í þinghúsið í Washington árið 2021. Erlent 29.12.2023 06:51 Eldur í toppi turns reyndist vera net Maður hefur verið handtekinn á Englandi eftir að tilkynning um eldsvoða í hinum fræga Blackpool-turni reyndist vera appelsínugult net að blakta í vindinum. Erlent 28.12.2023 22:36 Disney kærir bílaþvottastöð í Síle Lucasfilm, fyrirtæki í eigu Disney-samsteypunnar sem framleiddi Stjörnustríðsmyndirnar og myndirnar um Indiana Jones, er að kæra síleska bílaþvottastöð fyrir vörumerkjastuld. Erlent 28.12.2023 21:13 Segja rangar sprengjur hafa leitt til mikils mannfalls Yfirmaður í ísraelska hernum segir að notkun rangrar tegundar skotfæra í mannskæðum loftárásum á Gasaströndinni á aðfangadag hafi leitt til umfangsmikils mannfalls, sem hægt hefði verið að komast hjá. Umræddar árásir voru gerðar í Maghazi-flóttamannabúðunum en að minnsta kosti 86 eru sagðir hafa fallið í þeim. Erlent 28.12.2023 16:32 « ‹ 81 82 83 84 85 86 87 88 89 … 334 ›
Margrét drottning ræddi við Karl konung fyrir ávarpið Margrét Þórhildur Danadrottning ræddi við frænda sinn, Karl Gústaf Svíakonung, og tilkynnti honum um ákvörðun sína að afsala sér krúnunni áður en hún greindi dönsku þjóðinni frá hinu sama í áramótaávarpi sínu í gærkvöldi. Erlent 1.1.2024 10:42
Flóðbylgjuviðvörun gefin út í Japan eftir skjálfta 7,6 að stærð Yfirvöld í Japan hafa gefið út flóðbylgjuviðvörun eftir að skjálfti 7,6 að stærð reið yfir í Japanshafi, vestur af landinu. Erlent 1.1.2024 08:06
Selenskí boðar stóraukna vopnaframleiðslu á nýju ári Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur heitið því að eigin vopnaframleiðsla Úkraínumanna muni stóraukast á nýju ári. Erlent 1.1.2024 07:51
Margrét Þórhildur stígur til hliðar Margrét Þórhildur Danadrottning ætlar að stíga til hliðar hinn 14. janúar næst komandi. Hún tilkynnti þetta í áramótaávarpi sínu í dag. Erlent 31.12.2023 17:16
Tugir særðir í hefndaraðgerðum Rússa Rússar gerðu loftárásir á Úkraínu í nótt og nokkrir tugir eru særðir. Árásirnar eru hefndaraðgerðir Rússa eftir að tuttugu og fjórir féllu í umfangsmikilli árás Úkraínu á rússnesku borgina Belgorod í gær. Hún er að sögn rússneskra stjórnvalda sú versta á Rússland frá upphafi stríðsins. Erlent 31.12.2023 12:12
Danska flutningaskipið varð fyrir annarri árás Danska fragtskipið sem varð í gær fyrir loftárás í Rauðahafinu varð fyrir annarri árás í morgun. Miðlæg stjórnstöð Bandaríkjahers, Centcom, greinir frá þessu. Erlent 31.12.2023 11:46
Nýjar myndir af eldfjallatunglinu Íó NASA deildi í nótt nýjum myndum af Íó tungli Júpíters. Myndirnar voru teknar af svokallaðri JunoCam í geimfarinu Juo sem er um þessar mundir á sveimi um sólkerfið okkar. Erlent 31.12.2023 08:43
Danskt fragtskip hæft af eldflaug Danskt fragtskip í eigu olíu- og flutningarisans Mærsk var hæft af eldflaug í gærkvöldi á siglingu um Rauðahafið. Þessu greinir DR frá. Erlent 31.12.2023 08:19
Segir hatursfulla umræðu ekki hafa haft neitt að gera með stjórnmálin Sanna Marin fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands segir margar ungar konur velta fyrir sér að fara í stjórnmál en hika við það vegna hatursfullar umræðu á samfélagsmiðlum. Erlent 30.12.2023 22:40
Fleiri látnir í loftárás á rússnesku borgina Belgorod Átján manns létu lífið í árás Úkraínumanna á rússnesku borginni Belgorod í dag. Þar af þrjú börn, samkvæmt rússneskum yfirvöldum. Einnig særðust 111 manns. Erlent 30.12.2023 21:44
Hræðilegt og sorglegt morðmál skekur Danmörku 81 árs gamall maður hefur verið handtekinn fyrir að myrða eiginkonu sína þremur mánuðum eftir að þau stigu fram í fjölmiðlum og lýstu yfir ósk sinni að deyja. Erlent 30.12.2023 17:39
Hæfðu flóttamannabúðir á Gasa þar sem mannfall nálgast 22 þúsund Herflugvélar á vegum Ísraelshers hæfðu tvær flóttamannabúðir á miðri Gasaströndinni í dag og er lítið útlit fyrir að nokkurt hlé verði gert á átökum fyrir botni Miðjarðarhafs. Mannfall þar er nú sagt nálgast 22 þúsund manns. Hátt settur ráðamaður innan Hamas segir samtökin enn standa fast á því að fleiri gíslum verði ekki sleppt úr haldi þeirra fyrr en komið verði á ótímabundnu vopnahléi á svæðinu. Erlent 30.12.2023 15:24
Úkraínsk körfuboltahetja fórst í stórfelldum árásum Rússa Einn fórst og fjórir særðust í loftárásum Úkraínuhers á landamærahéraðið Belgorod í suðurhluta Rússlands í gær. Þetta segir héraðsstjóri Belgorod en Bryansk-hérað varð sömuleiðis fyrir eldflaugaárásum Úkraínumanna. Erlent 30.12.2023 10:28
Minnst þrjátíu látnir í umfangsmestu loftárásum Rússa til þessa Minnst þrjátíu manns létu lífið í umfangsmestu loftárásum Rússa í Úkraínu til þessa. Einnig særðust meira en 160 þegar sprengjum ringdi yfir Kænugarð, Ódessu, Dnípropetrovsk, Karkív og Lvív í morgun. Erlent 29.12.2023 22:32
Ísraelsmenn dregnir fyrir dóm fyrir þjóðarmorð Suður-Afríka kærði í dag Ísraelsríki í Alþjóðadómstólnum fyrir brot á þjóðarmorðslögum vegna innrásar þess í Gasa. Erlent 29.12.2023 20:33
Létust í snjóflóði á skíðum í Ölpunum Bresk kona og sonur hennar eru sögð hafa látist í frönsku Ölpunum þegar snjóflóð féll við Mont Blanc. Erlent 29.12.2023 19:24
Danir senda freigátu í Rauðahafið Danir ætla að senda freigátu í Rauðahafið og Adenflóa sem öryggisráðstöfun í kjölfar fjöldamargra árása Húta á svæðinu. Þetta segja utanríkisráðherra Lars Løkke Rasmussen og varnamálaráðherra Troels Lund Poulsen. Erlent 29.12.2023 18:46
Heimsótti bæ sem Rússar reyna að umkringja Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, virðist hafa heimsótt hermenn við og í bænum Avdívka, sem Rússar hafa reynt að umkringja frá því í október. Forsetinn birti myndband af sér standa við skilti bæjarins þar sem hann sagðist hafa þakkað hermönnum á svæðinu fyrir harða og erfiða baráttu þeirra og veitti hann hermönnum orður. Erlent 29.12.2023 16:56
Þrýst á hæstarétt vegna kjörgengis Trumps Maine varð í gær annað ríki Bandaríkjanna þar sem Donald Trump, fyrrverandi forseta, var meinað að vera á kjörseðlum í nóvember á næsta ári. Hæstiréttur Colorado hafði áður komist að sömu niðurstöðu þar og hafa lögsóknir, sem ætlað er að koma í veg fyrir kjörgengi Trumps, verið höfðaðar í á annan tug ríkja til viðbótar. Erlent 29.12.2023 16:00
Kínverjar að verða vinalausir í Taívan Þegar styttist í að haldnar verða forsetakosningar í Taívan standa ráðamenn í Peking frammi fyrir því í fyrsta sinn í nokkurn tíma að eiga fáa vini á eyjunni. Viðhorf Taívana til meginlandsins og tilkalls ráðamanna þar til eyríkisins hefur breyst töluvert á undanförnum árum og það sama á við forsetaframbjóðendur. Erlent 29.12.2023 13:43
Lést þegar vörubíl var ekið inn í hóp fólks Þrjátíu og sjö ára gömul kona er látin og fjórir alvarlega slasaðir eftir að vörubíl var ekið inn í hóp fólks í þýska bænum Passau í suðausturhluta Þýskalands í morgun. Erlent 29.12.2023 13:29
Fimmtán ára drengur lést í hákarlaárás Fimmtán ára drengur lést eftir að hann var bitinn af hákarli undan ströndum Suður-Ástralíu í gær. Drengurinn var að æfa sig á brimbretti á Ethel Beach þegar hákarl beit hann en þetta er í þriðja sinn sem hákarl banar manni undan ströndum fylkisins á undanförnum mánuðum. Erlent 29.12.2023 11:21
Leynilegt geimfar á hærri sporbraut en áður Starfsmenn geimfyrirtækisins SpaceX skutu í nótt leynilegu geimfari bandaríska hersins út í geim. Geimfarið X-37B er talið eiga að vera á braut um jörðu í að minnsta kosti tvö ár. Enginn er um borð en eins og áður ber geimfarið leynilegar tilraunir bandarískra vísindamanna. Erlent 29.12.2023 09:52
Umfangsmestu loftárásir Rússa hingað til Talsmaður flughers Úkraínu segist aldrei hafa upplifað jafn margar árásir á sama tíma eins og Rússar hafa gert nú í morgun. Rússar gerðu loftárásir um allt land og notuðu til þess bæði eldflaugar og dróna. Erlent 29.12.2023 08:24
Tugþúsundir flýja miðhluta Gasa Um 150 þúsund Palestínumenn hafa nú verið neyddir til að flýja miðhluta Gasasvæðisins undan Ísraelsher sem gerir nú atlögu að flóttamannabúðum á svæðinu. Erlent 29.12.2023 07:48
Dæmdir í áralangt fangelsi fyrir ljóðlestur gegn átökunum í Úkraínu Dómstóll í Moskvu í Rússlandi hefur dæmt tvo menn fyrir að flytja ljóð og vera viðstaddir upplesturinn en um var að ræða mótmæli gegn átökunum í Úkraínu. Erlent 29.12.2023 07:04
Trump ekki kjörgengur í Maine Innanríkisráðherra Maine í Bandaríkjunum, sem meðal annars hefur umsjón með framkvæmd kosninga í ríkinu, hefur ákveðið að Donald Trump sé ekki kjörgengur vegna framgöngu hans þegar ráðist var inn í þinghúsið í Washington árið 2021. Erlent 29.12.2023 06:51
Eldur í toppi turns reyndist vera net Maður hefur verið handtekinn á Englandi eftir að tilkynning um eldsvoða í hinum fræga Blackpool-turni reyndist vera appelsínugult net að blakta í vindinum. Erlent 28.12.2023 22:36
Disney kærir bílaþvottastöð í Síle Lucasfilm, fyrirtæki í eigu Disney-samsteypunnar sem framleiddi Stjörnustríðsmyndirnar og myndirnar um Indiana Jones, er að kæra síleska bílaþvottastöð fyrir vörumerkjastuld. Erlent 28.12.2023 21:13
Segja rangar sprengjur hafa leitt til mikils mannfalls Yfirmaður í ísraelska hernum segir að notkun rangrar tegundar skotfæra í mannskæðum loftárásum á Gasaströndinni á aðfangadag hafi leitt til umfangsmikils mannfalls, sem hægt hefði verið að komast hjá. Umræddar árásir voru gerðar í Maghazi-flóttamannabúðunum en að minnsta kosti 86 eru sagðir hafa fallið í þeim. Erlent 28.12.2023 16:32