Erlent Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Ferðamenn fá leyfi til þess að fara til Grindavíkur en eingöngu í skipulögðum rútuferðum á veitingastaði samkvæmt nýjum reglum sem lögreglan hefur gefið út. Aðkomufólki verður áfram bannað að ferðast á eigin vegum til bæjarins. Erlent 18.4.2024 19:13 Johnson í erfiðri stöðu Frumvarp um frekari hernaðaraðstoð frá Bandaríkjunum til Úkraínu hefur færst nær því að verða lagt fyrir fulltrúadeild Bandaríkjaþings, eftir að hafa setið þar fast í marga mánuði. Mike Johnson, þingforseti, kæmi frumvarpinu ekki í gegnum þingið án aðstoðar Demókrata og það gæti þar að auki kostað hann embættið. Erlent 18.4.2024 16:38 Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Lögreglan í borginni Abbotsford í Kanada telur sig hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem hefur flúið réttvísina í borginni vegna ákæru um vörslu og dreifingu á barnaníðsefni. Maðurinn sem um ræðir heitir Jóhann Scott Sveinsson. Erlent 18.4.2024 16:01 Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Lögregluþjónar í Bæjarlandi í Þýskalandi hafa handtekið tvo menn sem grunaðir eru um njósnir fyrir yfirvöld í Rússlandi. Þeir eru meðal annars sakaðir um að skipuleggja skemmdarverk og fyrir að ætla að framleiða sprengiefni, með því markmiði að skaða hernaðaraðstoð Þjóðverja til Úkraínu. Erlent 18.4.2024 14:27 Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Minnst tuttugu eru látnir í Óman og einn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum eftir fordæmalausa úrkomu á tá Arabíuskagans á þriðjudaginn og í gær. Skyndiflóð fóru víða yfir og sat fólk fast víða í umferð og á flugvöllum. Erlent 18.4.2024 13:31 Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna staðfestu á dögunum að áfram stæði til að senda þyrludróna til Títan, tungls Satúrnusar. Þyrludróni þessi er á stærð við lítinn bíl og kallast Drekafluga (Dragonfly) en hann á meðal annars að nota til að leita lífrænna sameinda og mögulegra ummerkja lífs. Erlent 18.4.2024 11:43 Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Hundruð manna hafa þurft að flýja heimili sín og loka þurfti flugvelli á svæðinu þegar Ruang-eldfjallið í Indónesíu gaus í gær. Eldfjallið sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð en einnig þurfti að rýma nærliggjandi sjúkrahús, auk heimila, þegar grjót og aska úr eldfjallinu byrjaði að lenda á þökum húsanna. Erlent 18.4.2024 10:19 Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Réttarhöld hefjast í dag yfir einum af helstu leiðtogum þýska stjórnmálaflokksins Valkostir fyrir Þýskaland en hann hefur verið ákærður fyrir að nota eitt helsta slagorð nasista. Erlent 18.4.2024 07:56 Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Stjórnvöld í Katar segjast vera að endurskoða hlutverk sitt sem sáttasemjarar í deilum Ísraelsmanna og Hamas. Friðarviðræður hafa nú staðið yfir í margar vikur án árangurs. Erlent 18.4.2024 06:54 Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Yulia Navalnaya, ekkja pólitíska andófsmannsins Alexei Navalní, réði sér lífvörð eftir að ráðist var á bandamann hans til margra ára með hamri í Vilníus, höfuðborg Litháen, í síðasta mánuði. Erlent 17.4.2024 23:44 Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Marty Small eldri, borgarstjóri Atlantic City í New Jersey-ríki Bandaríkjanna, og eiginkona hans La’Quetta Small, forstöðukona almenningsskóla í borginni, eru grunuð um að beita táningsdóttur sína ofbeldi. Erlent 17.4.2024 21:57 Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Síðustu skref við uppsetningu hæstu vindmyllu heims sem staðsett er á landi verða tekin í dag við höfnina í Thyborøn á Jótlandi í Danmörku í dag. Vindmyllan er tæpum hundrað metrum hærri en hæst punktur landsins. Erlent 17.4.2024 15:38 Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hafnaði því að segja af sér og ítrekaði vilja sinn til þess að afgreiða frumvörp um aðstoð við Úkraínu, Ísrael og fleiri bandamenn í gær. Þrýstingur á Johnson innan eigin þingflokks eykst. Erlent 17.4.2024 15:34 Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Utanríkisráðherra Bretlands segir ljóst að ísraelsk stjórnvöld séu búin að ákveða að grípa til aðgerða gegn Íran eftir drónaárásina um helgina. Erlendir erindrekar hvetja Ísraela til að sýna hófsemd til þess að kveikja ekki frekara ófriðarbál í heimshlutanum. Erlent 17.4.2024 14:09 Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Rúmlega tvöhundruð kílóa sæfíllinn Emerson hefur verið yfirvöldum í Bresku-Kólumbíu í Kanada til mikils ama síðastliðið ár. Þrátt fyrir að hafa keyrt með Emerson tugi kílómetra frá allri byggð þá tekst honum alltaf að snúa aftur. Erlent 17.4.2024 13:41 Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Þrettán eru sagðir fallir í það minnsta og rúmlega sextíu særðir eftir að þrjú rússnesk flugskeyti hæfðu íbúðarblokk nærri miðborg Tsjérnihiv í norðanverðri Úkraínu í morgun. Enn er leitað að fórnarlömbum í húsarústum. Erlent 17.4.2024 11:18 Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Viðbragðsaðilar eru enn við störf við Børsen í Kaupmannahöfn. Rannsókn lögreglu á upptökum brunans er hafin en lögregla hefur enn ekki fengið að fara inn í húsið. Danir eru margir í áfalli yfir brunanum og vilji til að fara í endurbyggingu á því. Erlent 17.4.2024 11:00 Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Fjöldi kóralrifja víðsvegar í höfum jarðar fölnar nú vegna óvenjumikilla hlýinda. Sérfræðingar Haf- og loftslagsstofnunar Bandaríkjanna (NOAA) segja fjórða hnattræna fölnunaratburðinn á síðustu þremur áratugum í gangi. Erlent 17.4.2024 09:32 Eins og hálfs árs úrkoma á einum sólarhring í Dubai Gríðarlega mikil úrkoma hefur fallið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í vikunni, sú mesta í 75 ár. Einn er látinn, 70 ára maður, í Ras Al-Khaimah. Erlent 17.4.2024 08:59 Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Ný skýrsla Dr. Hilary Cass um þjónustu við börn með kynmisræmi og/eða kynama á Bretlandi er þungur áfellisdómur yfir kerfinu. Cass segir langa biðlista og ógagnreyndar meðferðir hafa komið harkalega niður á börnum og ráðleggur víðtækar breytingar. Erlent 17.4.2024 07:30 Greitt fyrir aðgengi andstæðinga þungunarrofs inn á heilbrigðismiðstöðvar Neðri deild ítalska þingsins samþykkti í gær frumvarp ríkisstjórnar Giorgiu Meloni sem meðal annars heimilar andstæðingum þungunarrofs aðgengi að heilbrigðismiðstöðvum þar sem veittar eru upplýsingar um þjónustuna. Erlent 17.4.2024 07:11 Áætla að yfir 50.000 rússneskir hermenn hafi fallið í átökunum Fleiri en 50.000 rússneskir hermenn hafa nú fallið í átökunum í Úkraínu, samkvæmt BBC. Mannfallið var 25 prósent meira á öðru ári átakanna, ef talið er í mánuðum frá því að innrásin hófst, heldur en fyrstu tólf mánuðina. Erlent 17.4.2024 06:49 Segja stunguárásina vera hryðjuverk Lögreglan í Sydney, stærstu borgar Ástralíu, segir stunguárásina í Christ The Good Shepherd-kirkjunni í gær hafa verið hryðjuverk. Fjórir slösuðust í árásinni sem beint var að presti kirkjunnar. Erlent 16.4.2024 14:11 Trump dottaði þegar fyrsta sakamálið var tekið fyrir Ekki tókst að velja neina kviðdómendur á fyrsta degi réttarhalda í sakamáli á hendur Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í New York í gær. Trump sást dotta á meðan hæfi mögulegra kviðdómenda var metið. Erlent 16.4.2024 12:03 Svipað og að horfa upp á Notre Dame brenna Slökkvilið berst enn við stórbruna í einu helsta kennileiti Kaupmannahafnar; sögufrægu byggingunni Børsen. Sagnfræðingur segir sárt að horfa upp á eldsvoðann en þó ljós í myrkrinu að hluta málverka og menningarverðmæta hafi verið bjargað Erlent 16.4.2024 11:54 „Ein mikilvægasta bygging Danmerkur“ Eldur logar enn í Børsen í Kaupmannahöfn. Tekist hefur að bjarga miklu magni verðmæta sem geymd voru í byggingunni. Byggingin hýsti dönsku kauphöllina til ársins 1974, en endurbætur á byggingunni hafa staðið yfir síðustu ár. Ekki er talið að neinn hafi slasast vegna brunans. Erlent 16.4.2024 11:39 Ísraelsher staðráðinn í að bregðast við árás Írana Herráð Ísraelsmanna hittist í gær til þess að ræða viðbrögð við drónaárás Írana sem gerð var um helgina. Erlent 16.4.2024 07:34 Mikill eldur í Børsen í Kaupmannahöfn Mikill eldur kom upp í hinni sögufrægu byggingu Børsen í Kaupmannahöfn í morgun. Helsta kennileiti byggingarinnar, spíran sem nær 56 metra hæð, hefur orðið eldinum að bráð. Erlent 16.4.2024 07:23 Langstærsta svartholið í Vetrarbrautinni okkar til þessa Tiltölulega nálægt svarthol sem stjörnufræðingar fundu fyrir tilviljun er það stærsta sem vitað er um í Vetrarbrautinni okkar. Massi svartholsins er á við 33 sólir sem er meira en helmingi stærra en það næststærsta. Erlent 16.4.2024 07:01 Fjórða líkið fundið Lík fjórða verkamannsins sem var við störf á Francis Scott Key-brúnni þegar hún hrundi í síðasta mánuði fannst í dag. Tveggja er enn saknað eftir slyssins og eru þeir taldir af. Erlent 15.4.2024 23:43 « ‹ 53 54 55 56 57 58 59 60 61 … 334 ›
Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Ferðamenn fá leyfi til þess að fara til Grindavíkur en eingöngu í skipulögðum rútuferðum á veitingastaði samkvæmt nýjum reglum sem lögreglan hefur gefið út. Aðkomufólki verður áfram bannað að ferðast á eigin vegum til bæjarins. Erlent 18.4.2024 19:13
Johnson í erfiðri stöðu Frumvarp um frekari hernaðaraðstoð frá Bandaríkjunum til Úkraínu hefur færst nær því að verða lagt fyrir fulltrúadeild Bandaríkjaþings, eftir að hafa setið þar fast í marga mánuði. Mike Johnson, þingforseti, kæmi frumvarpinu ekki í gegnum þingið án aðstoðar Demókrata og það gæti þar að auki kostað hann embættið. Erlent 18.4.2024 16:38
Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Lögreglan í borginni Abbotsford í Kanada telur sig hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem hefur flúið réttvísina í borginni vegna ákæru um vörslu og dreifingu á barnaníðsefni. Maðurinn sem um ræðir heitir Jóhann Scott Sveinsson. Erlent 18.4.2024 16:01
Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Lögregluþjónar í Bæjarlandi í Þýskalandi hafa handtekið tvo menn sem grunaðir eru um njósnir fyrir yfirvöld í Rússlandi. Þeir eru meðal annars sakaðir um að skipuleggja skemmdarverk og fyrir að ætla að framleiða sprengiefni, með því markmiði að skaða hernaðaraðstoð Þjóðverja til Úkraínu. Erlent 18.4.2024 14:27
Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Minnst tuttugu eru látnir í Óman og einn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum eftir fordæmalausa úrkomu á tá Arabíuskagans á þriðjudaginn og í gær. Skyndiflóð fóru víða yfir og sat fólk fast víða í umferð og á flugvöllum. Erlent 18.4.2024 13:31
Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna staðfestu á dögunum að áfram stæði til að senda þyrludróna til Títan, tungls Satúrnusar. Þyrludróni þessi er á stærð við lítinn bíl og kallast Drekafluga (Dragonfly) en hann á meðal annars að nota til að leita lífrænna sameinda og mögulegra ummerkja lífs. Erlent 18.4.2024 11:43
Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Hundruð manna hafa þurft að flýja heimili sín og loka þurfti flugvelli á svæðinu þegar Ruang-eldfjallið í Indónesíu gaus í gær. Eldfjallið sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð en einnig þurfti að rýma nærliggjandi sjúkrahús, auk heimila, þegar grjót og aska úr eldfjallinu byrjaði að lenda á þökum húsanna. Erlent 18.4.2024 10:19
Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Réttarhöld hefjast í dag yfir einum af helstu leiðtogum þýska stjórnmálaflokksins Valkostir fyrir Þýskaland en hann hefur verið ákærður fyrir að nota eitt helsta slagorð nasista. Erlent 18.4.2024 07:56
Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Stjórnvöld í Katar segjast vera að endurskoða hlutverk sitt sem sáttasemjarar í deilum Ísraelsmanna og Hamas. Friðarviðræður hafa nú staðið yfir í margar vikur án árangurs. Erlent 18.4.2024 06:54
Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Yulia Navalnaya, ekkja pólitíska andófsmannsins Alexei Navalní, réði sér lífvörð eftir að ráðist var á bandamann hans til margra ára með hamri í Vilníus, höfuðborg Litháen, í síðasta mánuði. Erlent 17.4.2024 23:44
Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Marty Small eldri, borgarstjóri Atlantic City í New Jersey-ríki Bandaríkjanna, og eiginkona hans La’Quetta Small, forstöðukona almenningsskóla í borginni, eru grunuð um að beita táningsdóttur sína ofbeldi. Erlent 17.4.2024 21:57
Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Síðustu skref við uppsetningu hæstu vindmyllu heims sem staðsett er á landi verða tekin í dag við höfnina í Thyborøn á Jótlandi í Danmörku í dag. Vindmyllan er tæpum hundrað metrum hærri en hæst punktur landsins. Erlent 17.4.2024 15:38
Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hafnaði því að segja af sér og ítrekaði vilja sinn til þess að afgreiða frumvörp um aðstoð við Úkraínu, Ísrael og fleiri bandamenn í gær. Þrýstingur á Johnson innan eigin þingflokks eykst. Erlent 17.4.2024 15:34
Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Utanríkisráðherra Bretlands segir ljóst að ísraelsk stjórnvöld séu búin að ákveða að grípa til aðgerða gegn Íran eftir drónaárásina um helgina. Erlendir erindrekar hvetja Ísraela til að sýna hófsemd til þess að kveikja ekki frekara ófriðarbál í heimshlutanum. Erlent 17.4.2024 14:09
Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Rúmlega tvöhundruð kílóa sæfíllinn Emerson hefur verið yfirvöldum í Bresku-Kólumbíu í Kanada til mikils ama síðastliðið ár. Þrátt fyrir að hafa keyrt með Emerson tugi kílómetra frá allri byggð þá tekst honum alltaf að snúa aftur. Erlent 17.4.2024 13:41
Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Þrettán eru sagðir fallir í það minnsta og rúmlega sextíu særðir eftir að þrjú rússnesk flugskeyti hæfðu íbúðarblokk nærri miðborg Tsjérnihiv í norðanverðri Úkraínu í morgun. Enn er leitað að fórnarlömbum í húsarústum. Erlent 17.4.2024 11:18
Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Viðbragðsaðilar eru enn við störf við Børsen í Kaupmannahöfn. Rannsókn lögreglu á upptökum brunans er hafin en lögregla hefur enn ekki fengið að fara inn í húsið. Danir eru margir í áfalli yfir brunanum og vilji til að fara í endurbyggingu á því. Erlent 17.4.2024 11:00
Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Fjöldi kóralrifja víðsvegar í höfum jarðar fölnar nú vegna óvenjumikilla hlýinda. Sérfræðingar Haf- og loftslagsstofnunar Bandaríkjanna (NOAA) segja fjórða hnattræna fölnunaratburðinn á síðustu þremur áratugum í gangi. Erlent 17.4.2024 09:32
Eins og hálfs árs úrkoma á einum sólarhring í Dubai Gríðarlega mikil úrkoma hefur fallið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í vikunni, sú mesta í 75 ár. Einn er látinn, 70 ára maður, í Ras Al-Khaimah. Erlent 17.4.2024 08:59
Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Ný skýrsla Dr. Hilary Cass um þjónustu við börn með kynmisræmi og/eða kynama á Bretlandi er þungur áfellisdómur yfir kerfinu. Cass segir langa biðlista og ógagnreyndar meðferðir hafa komið harkalega niður á börnum og ráðleggur víðtækar breytingar. Erlent 17.4.2024 07:30
Greitt fyrir aðgengi andstæðinga þungunarrofs inn á heilbrigðismiðstöðvar Neðri deild ítalska þingsins samþykkti í gær frumvarp ríkisstjórnar Giorgiu Meloni sem meðal annars heimilar andstæðingum þungunarrofs aðgengi að heilbrigðismiðstöðvum þar sem veittar eru upplýsingar um þjónustuna. Erlent 17.4.2024 07:11
Áætla að yfir 50.000 rússneskir hermenn hafi fallið í átökunum Fleiri en 50.000 rússneskir hermenn hafa nú fallið í átökunum í Úkraínu, samkvæmt BBC. Mannfallið var 25 prósent meira á öðru ári átakanna, ef talið er í mánuðum frá því að innrásin hófst, heldur en fyrstu tólf mánuðina. Erlent 17.4.2024 06:49
Segja stunguárásina vera hryðjuverk Lögreglan í Sydney, stærstu borgar Ástralíu, segir stunguárásina í Christ The Good Shepherd-kirkjunni í gær hafa verið hryðjuverk. Fjórir slösuðust í árásinni sem beint var að presti kirkjunnar. Erlent 16.4.2024 14:11
Trump dottaði þegar fyrsta sakamálið var tekið fyrir Ekki tókst að velja neina kviðdómendur á fyrsta degi réttarhalda í sakamáli á hendur Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í New York í gær. Trump sást dotta á meðan hæfi mögulegra kviðdómenda var metið. Erlent 16.4.2024 12:03
Svipað og að horfa upp á Notre Dame brenna Slökkvilið berst enn við stórbruna í einu helsta kennileiti Kaupmannahafnar; sögufrægu byggingunni Børsen. Sagnfræðingur segir sárt að horfa upp á eldsvoðann en þó ljós í myrkrinu að hluta málverka og menningarverðmæta hafi verið bjargað Erlent 16.4.2024 11:54
„Ein mikilvægasta bygging Danmerkur“ Eldur logar enn í Børsen í Kaupmannahöfn. Tekist hefur að bjarga miklu magni verðmæta sem geymd voru í byggingunni. Byggingin hýsti dönsku kauphöllina til ársins 1974, en endurbætur á byggingunni hafa staðið yfir síðustu ár. Ekki er talið að neinn hafi slasast vegna brunans. Erlent 16.4.2024 11:39
Ísraelsher staðráðinn í að bregðast við árás Írana Herráð Ísraelsmanna hittist í gær til þess að ræða viðbrögð við drónaárás Írana sem gerð var um helgina. Erlent 16.4.2024 07:34
Mikill eldur í Børsen í Kaupmannahöfn Mikill eldur kom upp í hinni sögufrægu byggingu Børsen í Kaupmannahöfn í morgun. Helsta kennileiti byggingarinnar, spíran sem nær 56 metra hæð, hefur orðið eldinum að bráð. Erlent 16.4.2024 07:23
Langstærsta svartholið í Vetrarbrautinni okkar til þessa Tiltölulega nálægt svarthol sem stjörnufræðingar fundu fyrir tilviljun er það stærsta sem vitað er um í Vetrarbrautinni okkar. Massi svartholsins er á við 33 sólir sem er meira en helmingi stærra en það næststærsta. Erlent 16.4.2024 07:01
Fjórða líkið fundið Lík fjórða verkamannsins sem var við störf á Francis Scott Key-brúnni þegar hún hrundi í síðasta mánuði fannst í dag. Tveggja er enn saknað eftir slyssins og eru þeir taldir af. Erlent 15.4.2024 23:43