Erlent Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Dómstóll í Úkraínu hefur fyrirskipað handtöku landbúnaðarráðherrans Mykola Solsky vegna gruns um spillingu. Ráðherrann er sá fyrsti í ríkisstjórn Vólódímír Selenskí til að vera nefndur í tengslum við spillingu. Erlent 26.4.2024 08:24 Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Leikkonan Ashley Judd, sem var meðal þeirra fyrstu sem stigu fram og greindu frá því að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein, segir það áfall að dóminum yfir honum hafi verið snúið. Erlent 26.4.2024 06:56 Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómarar Hæstaréttar Bandaríkjanna þykja líklegir til að hafna kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um algera friðhelgi frá lögsókn vegna atvika sem áttu sér stað þegar hann sat í embætti forseta. Líklegt þykir þó að meirihluti dómaranna muni úrskurða á veg sem Trump muni hagnast á. Erlent 25.4.2024 22:30 Dómi Harvey Weinstein snúið við Áfrýjunardómstóll í New York-ríki hefur snúið við nauðgunardómi kvikmyndaframleiðandans alræmda Harvey Weinstein frá árinu 2020. Hann hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð. Erlent 25.4.2024 13:43 Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Sautján ára danskur drengur tekur fyrir það í héraðsdómnum í Holbæk að hafa verið hluti af nýnasískum hryðjuverkasamtökum og að hafa verið „hermaður Hitlers.“ Hann var handtekinn fyrir grun um aðild að alþjóðlegum hryðjuverkasamtökum árið 2022 og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Erlent 25.4.2024 13:33 Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Drengur á grunnskólaaldri varð fyrir stunguárás þegar hann gekk í skólann í bænum Moss í Óslóarfirðí í Noregi í morgun. Karlmaður á sextugsaldri hefur verið handtekinn í tengslum við málið. Erlent 25.4.2024 13:28 Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar og formaður Sósíalistaflokksins, hefur aflýst öllum opinberum störfum sínum út vikuna og segist íhuga að segja af sér. Ástæðuna segir hann vera eineltismál sem hann og konan hans sæti vegna meints spillingarmáls sem eigi ekki við rök að styðjast. Erlent 25.4.2024 09:41 Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Spaðarnir á hinni sögufrægu Rauðu myllu í París hrundu til jarðar í nótt. Ekki urðu slys á fólki og slökkvilið telur ekki hættu á að fleiri hlutar hússins hrynji. Erlent 25.4.2024 07:53 Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Saksóknarar í Þýskalandi hafa ákært sjö menn sem grunaðir eru um að hafa undirbúið hryðjuverkaárásir á vegum Íslamska ríkisins í Khorasan (ISKP) þar í landi og annarsstaðar í Vestur-Evrópu. Mennirnir eru sagðir hafa virt fyrir sér nokkur möguleg skotmörk og munu þeir hafa reynt að safna peningum og vopnum fyrir árásir. Erlent 24.4.2024 22:48 Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, skrifaði seinni partinn í dag undir ný lög um hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum. Eftir það sagði hann að hergögn myndu byrja að berast til Úkraínu „á næstu klukkustundum“ sem gæti þýtt strax í kvöld. Erlent 24.4.2024 18:43 Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Leiðtogi þýska hægrijaðarflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) ætlar ekki að segja af sér þrátt fyrir að aðstoðarmaður hans sé sakaður um að njósna fyrir Kina. Hann hafi sjálfur ekkert gert af sér. Erlent 24.4.2024 13:56 Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Rússnesk yfirvöld handtóku Timur Ivanov, aðstoðarvarnarmálaráðherra, og sökuðu um stórfellda mútuþægni í gær. Ivanov neitar sök en var úrskurðaður í tveggja mánaða gæsluvarðhald. Erlent 24.4.2024 12:11 Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Ekki liggur enn fyrir hvernig eldur kviknaði í Børsen, gömlu kauphöllinni í Kaupmannahöfn, í síðustu viku. Lögreglumenn komust fyrst til þess að kanna bygginguna á mánudag. Erlent 24.4.2024 11:26 Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Rússneska rétttrúnaðarkirkjan hefur sett prest sem stýrði minningarathöfn um Alexei Navalní, stjórnarandstöðuleiðtogann, í þriggja ára bann. Hann þarf að láta sér nægja að lesa sálma þar til ákvörðun verður tekin um hvort hann fær aftur að starfa sem prestur. Erlent 24.4.2024 10:24 Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ástralska lögreglan handtók sjö unglinga sem eru sakaðir um ofbeldiskennda öfgahyggju og eru taldir tengast pilti sem er sakaður um að stinga biskup í kirkju í Sydney í síðustu viku. Handtökurnar voru sagðar gerðar til þess að afstýra frekari árásum. Erlent 24.4.2024 08:47 Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Fyrrverandi kennari í Ástralíu sem var dæmdur í fangelsi fyrir að hafa brotið á nemanda sínum hefur áfrýjað dómnum og vill fá hann felldan úr gildi þar sem hún er kona. Erlent 24.4.2024 08:41 Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Lögregla í Södertälje í Svíþjóð hefur handtekið karl og konu vegna gruns um að hafa banað tveimur börnum í gærkvöldi. Erlent 24.4.2024 07:50 Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun David Pecker, fyrrverandi útgáfustjóri National Enquirer, bar vitni fyrir dómstól í New York í gær, þar sem hann greindi frá því að hafa lagt á ráðin um að svæfa óþægilegar fréttir fyrir Donald Trump í aðdraganda forsetakosninganna árið 2016. Erlent 24.4.2024 07:28 Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Öldungadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær að veita samtals 95 milljörðum Bandaríkjadala til Úkraínu, Ísrael og Taívan. Frumvarpið var samþykkt með 79 atkvæðum gegn 18. Erlent 24.4.2024 06:38 Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Starfsmenn geimferðafyrirtækisins Rocket Lab skutu í kvöld litlu geimfari út í geim, sem nota á til að kanna nýja en í senn mjög gamla tækni. Vísindamenn Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna (NASA) vilja nota þetta geimfar til að kanna hvort hægt sé að sigla um sólkerfið okkar og jafnvel út fyrir það á geislum sólarinnar. Erlent 23.4.2024 23:18 Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Volker Türk, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur lýst yfir miklum áhyggjum af fregnum af því að hundruð líka hafi fundist í fjöldagröfum við tvö stærstu sjúkrahús Gasastrandarinnar. Erlent 23.4.2024 18:24 Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Verkfræðingum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA tókst að komast í kringum bilun í Voyager 1-geimfarinu, víðförlasta og langlífasta geimfari sögunnar. Geimfarið sendir nú stöðuuppfærslur í fyrsta skipta frá því bilunin kom upp fyrir fimm mánuðum. Erlent 23.4.2024 14:56 Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Frumvarp sem leyfir breskum stjórnvöldum að senda suma hælisleitendur til Rúanda var samþykkt endanlega á þinginu þar í nótt. Alþjóðleg mannréttindasamtök og stofnanir fordæma lögin og hvetja bresk stjórnvöld til þess að sjá að sér. Erlent 23.4.2024 10:55 Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Þýska lögreglan handtók aðstoðarmann Evrópuþingmanns hægrijaðarflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) sem er grunaður um að njósna fyrir kínversk stjórnvöld. Málið er sagt sérstaklega alvarlegt. Erlent 23.4.2024 08:46 Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hótað því að banna nýja þjónustu Tik Tok nema fyrirtækinu takist að fullvissa framkvæmdstjórnina um að hún muni ekki verða skaðleg börnum. Erlent 23.4.2024 07:55 Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Tugir háskólanema voru handteknir á mótmælum gegn stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gasa við Yale University í Connecticut og New York University á Manhattan í gær. Allir tímar við Columbia University fara nú fram um fjarfundabúnað vegna mótmæla. Erlent 23.4.2024 06:47 Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna undirbýr nú umfangsmikla sendingu hergagna til Úkraínu. Pakkinn mun meðal annars innihalda bryndreka, annarskonar farartæki, skotfæri fyrir stórskotalið og loftvarnarkerfi og langdrægar eldflaugar. Erlent 22.4.2024 22:31 Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Ísraelsk yfirvöld hafa enn ekki komið fram með sönnunargögn sem bendla starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna við aðild að áhlaupi Hamasliða á Ísrael þann sjöunda október síðasta árs. Erlent 22.4.2024 20:26 Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Ráðamenn í Ísrael ætluðu sér að gera mun umfangsmeiri árásir á Íran en þeir ákváðu svo á endanum að gera. Pólitískur þrýstingur frá Joe Biden og nokkrum ráðamönnum í Evrópu er sagður hafa átt stóran þátt í því að þess í stað gerðu Ísraelar minni árás sem klerkastjórn Íran gat sleppt að svara með frekari árásum. Erlent 22.4.2024 18:58 Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Saksóknari í New York fullyrti að Donald Trump hefði lagt á ráðin um glæpsamlega tilrauna til þess að spilla forsetakosningunum árið 2016 með ólöglegri greiðslu til klámstjörnu þegar málflutningur á sakamáli á hendur fyrrverandi forsetanum hófst í dag. Erlent 22.4.2024 15:27 « ‹ 51 52 53 54 55 56 57 58 59 … 334 ›
Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Dómstóll í Úkraínu hefur fyrirskipað handtöku landbúnaðarráðherrans Mykola Solsky vegna gruns um spillingu. Ráðherrann er sá fyrsti í ríkisstjórn Vólódímír Selenskí til að vera nefndur í tengslum við spillingu. Erlent 26.4.2024 08:24
Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Leikkonan Ashley Judd, sem var meðal þeirra fyrstu sem stigu fram og greindu frá því að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein, segir það áfall að dóminum yfir honum hafi verið snúið. Erlent 26.4.2024 06:56
Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómarar Hæstaréttar Bandaríkjanna þykja líklegir til að hafna kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um algera friðhelgi frá lögsókn vegna atvika sem áttu sér stað þegar hann sat í embætti forseta. Líklegt þykir þó að meirihluti dómaranna muni úrskurða á veg sem Trump muni hagnast á. Erlent 25.4.2024 22:30
Dómi Harvey Weinstein snúið við Áfrýjunardómstóll í New York-ríki hefur snúið við nauðgunardómi kvikmyndaframleiðandans alræmda Harvey Weinstein frá árinu 2020. Hann hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð. Erlent 25.4.2024 13:43
Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Sautján ára danskur drengur tekur fyrir það í héraðsdómnum í Holbæk að hafa verið hluti af nýnasískum hryðjuverkasamtökum og að hafa verið „hermaður Hitlers.“ Hann var handtekinn fyrir grun um aðild að alþjóðlegum hryðjuverkasamtökum árið 2022 og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Erlent 25.4.2024 13:33
Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Drengur á grunnskólaaldri varð fyrir stunguárás þegar hann gekk í skólann í bænum Moss í Óslóarfirðí í Noregi í morgun. Karlmaður á sextugsaldri hefur verið handtekinn í tengslum við málið. Erlent 25.4.2024 13:28
Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar og formaður Sósíalistaflokksins, hefur aflýst öllum opinberum störfum sínum út vikuna og segist íhuga að segja af sér. Ástæðuna segir hann vera eineltismál sem hann og konan hans sæti vegna meints spillingarmáls sem eigi ekki við rök að styðjast. Erlent 25.4.2024 09:41
Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Spaðarnir á hinni sögufrægu Rauðu myllu í París hrundu til jarðar í nótt. Ekki urðu slys á fólki og slökkvilið telur ekki hættu á að fleiri hlutar hússins hrynji. Erlent 25.4.2024 07:53
Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Saksóknarar í Þýskalandi hafa ákært sjö menn sem grunaðir eru um að hafa undirbúið hryðjuverkaárásir á vegum Íslamska ríkisins í Khorasan (ISKP) þar í landi og annarsstaðar í Vestur-Evrópu. Mennirnir eru sagðir hafa virt fyrir sér nokkur möguleg skotmörk og munu þeir hafa reynt að safna peningum og vopnum fyrir árásir. Erlent 24.4.2024 22:48
Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, skrifaði seinni partinn í dag undir ný lög um hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum. Eftir það sagði hann að hergögn myndu byrja að berast til Úkraínu „á næstu klukkustundum“ sem gæti þýtt strax í kvöld. Erlent 24.4.2024 18:43
Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Leiðtogi þýska hægrijaðarflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) ætlar ekki að segja af sér þrátt fyrir að aðstoðarmaður hans sé sakaður um að njósna fyrir Kina. Hann hafi sjálfur ekkert gert af sér. Erlent 24.4.2024 13:56
Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Rússnesk yfirvöld handtóku Timur Ivanov, aðstoðarvarnarmálaráðherra, og sökuðu um stórfellda mútuþægni í gær. Ivanov neitar sök en var úrskurðaður í tveggja mánaða gæsluvarðhald. Erlent 24.4.2024 12:11
Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Ekki liggur enn fyrir hvernig eldur kviknaði í Børsen, gömlu kauphöllinni í Kaupmannahöfn, í síðustu viku. Lögreglumenn komust fyrst til þess að kanna bygginguna á mánudag. Erlent 24.4.2024 11:26
Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Rússneska rétttrúnaðarkirkjan hefur sett prest sem stýrði minningarathöfn um Alexei Navalní, stjórnarandstöðuleiðtogann, í þriggja ára bann. Hann þarf að láta sér nægja að lesa sálma þar til ákvörðun verður tekin um hvort hann fær aftur að starfa sem prestur. Erlent 24.4.2024 10:24
Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ástralska lögreglan handtók sjö unglinga sem eru sakaðir um ofbeldiskennda öfgahyggju og eru taldir tengast pilti sem er sakaður um að stinga biskup í kirkju í Sydney í síðustu viku. Handtökurnar voru sagðar gerðar til þess að afstýra frekari árásum. Erlent 24.4.2024 08:47
Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Fyrrverandi kennari í Ástralíu sem var dæmdur í fangelsi fyrir að hafa brotið á nemanda sínum hefur áfrýjað dómnum og vill fá hann felldan úr gildi þar sem hún er kona. Erlent 24.4.2024 08:41
Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Lögregla í Södertälje í Svíþjóð hefur handtekið karl og konu vegna gruns um að hafa banað tveimur börnum í gærkvöldi. Erlent 24.4.2024 07:50
Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun David Pecker, fyrrverandi útgáfustjóri National Enquirer, bar vitni fyrir dómstól í New York í gær, þar sem hann greindi frá því að hafa lagt á ráðin um að svæfa óþægilegar fréttir fyrir Donald Trump í aðdraganda forsetakosninganna árið 2016. Erlent 24.4.2024 07:28
Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Öldungadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær að veita samtals 95 milljörðum Bandaríkjadala til Úkraínu, Ísrael og Taívan. Frumvarpið var samþykkt með 79 atkvæðum gegn 18. Erlent 24.4.2024 06:38
Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Starfsmenn geimferðafyrirtækisins Rocket Lab skutu í kvöld litlu geimfari út í geim, sem nota á til að kanna nýja en í senn mjög gamla tækni. Vísindamenn Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna (NASA) vilja nota þetta geimfar til að kanna hvort hægt sé að sigla um sólkerfið okkar og jafnvel út fyrir það á geislum sólarinnar. Erlent 23.4.2024 23:18
Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Volker Türk, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur lýst yfir miklum áhyggjum af fregnum af því að hundruð líka hafi fundist í fjöldagröfum við tvö stærstu sjúkrahús Gasastrandarinnar. Erlent 23.4.2024 18:24
Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Verkfræðingum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA tókst að komast í kringum bilun í Voyager 1-geimfarinu, víðförlasta og langlífasta geimfari sögunnar. Geimfarið sendir nú stöðuuppfærslur í fyrsta skipta frá því bilunin kom upp fyrir fimm mánuðum. Erlent 23.4.2024 14:56
Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Frumvarp sem leyfir breskum stjórnvöldum að senda suma hælisleitendur til Rúanda var samþykkt endanlega á þinginu þar í nótt. Alþjóðleg mannréttindasamtök og stofnanir fordæma lögin og hvetja bresk stjórnvöld til þess að sjá að sér. Erlent 23.4.2024 10:55
Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Þýska lögreglan handtók aðstoðarmann Evrópuþingmanns hægrijaðarflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) sem er grunaður um að njósna fyrir kínversk stjórnvöld. Málið er sagt sérstaklega alvarlegt. Erlent 23.4.2024 08:46
Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hótað því að banna nýja þjónustu Tik Tok nema fyrirtækinu takist að fullvissa framkvæmdstjórnina um að hún muni ekki verða skaðleg börnum. Erlent 23.4.2024 07:55
Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Tugir háskólanema voru handteknir á mótmælum gegn stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gasa við Yale University í Connecticut og New York University á Manhattan í gær. Allir tímar við Columbia University fara nú fram um fjarfundabúnað vegna mótmæla. Erlent 23.4.2024 06:47
Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna undirbýr nú umfangsmikla sendingu hergagna til Úkraínu. Pakkinn mun meðal annars innihalda bryndreka, annarskonar farartæki, skotfæri fyrir stórskotalið og loftvarnarkerfi og langdrægar eldflaugar. Erlent 22.4.2024 22:31
Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Ísraelsk yfirvöld hafa enn ekki komið fram með sönnunargögn sem bendla starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna við aðild að áhlaupi Hamasliða á Ísrael þann sjöunda október síðasta árs. Erlent 22.4.2024 20:26
Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Ráðamenn í Ísrael ætluðu sér að gera mun umfangsmeiri árásir á Íran en þeir ákváðu svo á endanum að gera. Pólitískur þrýstingur frá Joe Biden og nokkrum ráðamönnum í Evrópu er sagður hafa átt stóran þátt í því að þess í stað gerðu Ísraelar minni árás sem klerkastjórn Íran gat sleppt að svara með frekari árásum. Erlent 22.4.2024 18:58
Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Saksóknari í New York fullyrti að Donald Trump hefði lagt á ráðin um glæpsamlega tilrauna til þess að spilla forsetakosningunum árið 2016 með ólöglegri greiðslu til klámstjörnu þegar málflutningur á sakamáli á hendur fyrrverandi forsetanum hófst í dag. Erlent 22.4.2024 15:27