Erlent Segja ráðamenn í Kína hafa sagt Rússum að bíða með innrásina þar til eftir Ólympíuleikana Ráðamenn í Kína vissu af fyrirætlunum Rússa um að ráðast inn í Úkraínu ef marka má gögn sem yfirvöld í Bandaríkjunum og Evrópu hafa undir höndum. Komu þeir þeim skilaboðum á framfæri við Rússa að láta ekki til skarar skríða fyrr en að Ólympíuleikunum, sem haldnir voru í Pekíng, væri lokið. Erlent 3.3.2022 05:00 Rússar hafa náð Kherson á sitt vald Rússar hafa náð borginni Kherson á sitt vald. Þetta hefur New York Times eftir heimildarmönnum í Úkraínu. Borgarstjóri borgarinnar og bandarísk yfirvöld höfðu áður sagt að óvíst væri um stöðu mála þar sem bardagar stæðu enn yfir. Erlent 3.3.2022 04:34 Húsið hristist eftir öflugar sprengingar í miðborg Kænugarðs Óskar Hallgrímsson, íslenskur ljósmyndari sem búsettur er í Kænugarði, segir að borgin minni á draugaborg. Fregnir af gríðarlangri hergagnalest Rússa sem sögð er stefna í átt að borginni vekur ugg. Erlent 2.3.2022 20:47 Biden segir Pútín hafa hitt ofjarl sinni í úkraínsku þjóðinni Rússar hafa hert mjög loftárásir sínar á borgir víðs vegar um Úkraínu í dag og fullyrða að þeir hafi náð einni þeirra alfarið á sitt vald. Forseti Bandaríkjanna segir Rússa eiga eftir að finna fyrir afleiðingum innrásarinnar á stöðu sína um langa framtíð. Talið er að um tvö þúsund óbreyttir borgarar hafi fallið frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 2.3.2022 19:21 Allsherjarþingið fordæmir innrásina og krefst þess að herlið verði dregið til baka Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun þar sem innrás Rússa í Úkraínu er fordæmd og þess krafist að rússneskir hermenn verði dregnir til baka. Erlent 2.3.2022 17:55 Einkaþjálfari innbyrti ígildi tvö hundruð kaffibolla og lést Velskur einkaþjálfari, sem hugðist blanda sér drykk með koffíndufti, ruglaðist á mælieiningum og innbyrti skammt sem jafngildir koffínmagni í tvö hundruð kaffibollum. Maðurinn lést úr koffíneitrun rúmum hálftíma síðar. Erlent 2.3.2022 17:45 Versti dagur stríðsins hingað til Harðir bardagar hafa staðið yfir í allan dag í Kharkív, Mariupol og Kherson. Eldflaugum hefur rignt yfir borgirnar og stórskotalið herjað á þær. Rússar hafa bætt verulega í árásir á skotmörk í borgum sem ekki þjóna hernaðarlegum tilgangi. Erlent 2.3.2022 16:31 Blaðamannafélagið safnar fyrir úkraínska blaðamenn Blaðamannafélag Íslands hefur hafið fjársöfnun til stuðnings blaðamönnum í Úkraínu. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að mikilvægi fjölmiðla á stríðstímum sé óumdeilt og blaðamenn í Úkraínu þurfi aðstoð til að geta stuðlað að öryggi sínu á meðan þeir miðli til umheimsins fréttum af ástandinu í kjölfar innrásar Rússa. Erlent 2.3.2022 15:36 Maltverjar loka á vegabréfakaup Rússa Malta hefur ákveðið að loka fyrir umsóknir Rússa og Hvítrússa fyrir svokölluð „gyllt vegabréf“ vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins gegn ríkjunum tveimur. Erlent 2.3.2022 15:14 Erlendum ríkisborgurum meinað að flýja Úkraínu Erlendir ríkisborgarar, sérstaklega af afrískum uppruna, hafa lent í miklum vandræðum við að flýja Úkraínu. Margir þeirra segja að þeim hafi verið vísað úr lestum og þeim meinaður aðgangur að almenningssamgöngum á leið úr landinu. Erlent 2.3.2022 14:09 Veruleiki Úkraínumanna á sjöunda degi stríðs Fátt grípur veruleikann betur en ljósmyndir enda segja þær meira en þúsund orð. Það getur reynst okkur á Íslandi erfitt að gera okkur grein fyrir veruleika Úkraínumanna þessa dagana. Erlent 2.3.2022 13:24 Rússar segja aðra umferð friðarviðræðna fara fram í dag Önnur umferð friðarviðræðna milli Úkraínu og Rússlands fer fram síðar í dag. Þetta kemur fram í frétt rússneska ríkisútvarpsins Tass og þar vísað í starfsmann úkraínska forsetaembættisins. Erlent 2.3.2022 11:59 Grunnskólabörn handtekin í Moskvu fyrir að leggja blóm við úkraínska sendiráðið Að minnsta kosti fjögur grunnskólabörn og foreldrar þeirra voru handtekin í Moskvu í gær þegar þau lögðu blóm við úkraínska sendiráðið og héldu á skiltum sem á stóð „Nei við stríði“. Erlent 2.3.2022 11:37 Navalní kallar eftir mótmælum: „Pútín er ekki Rússland“ Rússneski andófsmaðurinn Alexei Navalní kallar eftir því að Rússar haldi umfangsmikil mótmæli gegn innrásinni í Úkraínu. Þetta segir Navalní í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér þar sem hann situr í fangelsi í Rússlandi. Erlent 2.3.2022 11:02 Evrópusambandið boðar hertar refsiaðgerðir gegn Hvíta-Rússlandi Evrópusambandið hefur samþykkt að beita Hvítrússa hertum refsiaðgerðum vegna hlutverks þeirra í innrás Rússa í Úkraínu. Þegar eru í gildi fjöldi þvingana á landið vegna mannréttindabrota sem stjórnvöld hafa framið gegn andstæðingum sínum undanfarin tæp tvö ár. Erlent 2.3.2022 10:16 Pútín sagður einangraður og með ofsóknaræði Starfsmenn leyniþjónusta í Bandaríkjunum og Evrópu vinna hörðum höndum þessa dagana að því að átta sig á hugarástandi Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Erlent 2.3.2022 09:52 Vildi sannfæra þjóðina um árangur sinn Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hélt sína fyrstu stefnuræðu fyrir báðar deildar Bandaríkjaþings í nótt. Þar hét Biden því að halda aftur af innrás Rússa í Úkraínu, koma böndum á verðbólgu í Bandaríkjunum og kveða niður kórónuveiruna. Erlent 2.3.2022 08:55 Íslendingur í Kænugarði segir ýmis vandamál virðast plaga Rússa Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem búsettur er í Kænugarði, segir síðasta sólahring hafa verið nokkuð rólegan í borginni, fyrir utan tvær stórar sprengingar í gær þar sem ráðist var á sjónvarpsturn annars vegar og minnisvarða um Helförina hins vegar. Erlent 2.3.2022 07:45 Vaktin: Ísland á meðal ríkja sem vísa meintum stríðsglæpum Rússa til rannsóknar Alþjóðasakamáladómstólsins Vika er liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með þróun mála í vaktinni hér fyrir neðan. Erlent 2.3.2022 06:49 Hart barist í Karkív eftir að rússneskar hersveitir lenda í borginni Rússneskar hersveitir lentu í Karkív um klukkan 3 í nótt og harðir bardagar standa nú yfir milli þeirra og úkraínska hersins. Úkraínsk yfirvöld greindu frá því í nótt að ráðist hefði verið á hersjúkrahús í borginni og að bardagar hefðu brotist út á milli „innrásarhermanna og úkraínskra varnaraðila“. Erlent 2.3.2022 06:22 Úkraínumenn segjast ætla að endursmíða Drauminn Flugheimurinn virðist hafa misst stærstu flugvél heims, úkraínsku þotuna Antonov 225, sem fullyrt er að hafi eyðilagst í árás Rússa á heimaflugvöll hennar í Úkraínu. Ný gervihnattamynd virðist þó sýna stél hennar óskemmt. Risaþotan var aðeins til í einu eintaki og kom nokkrum sinnum til Íslands. Erlent 1.3.2022 22:20 Tárvot þrumuræða úkraínskrar blaðakonu vekur heimsathygli Daria Kaleniuk, úkraínskur blaðamaður, grátbað Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um aukna aðstoð til að berjast gegn innrás Rússa í Úkraínu á blaðamannafundi í dag. Myndband af þrumuræðu hennar hefur vakið heimsathygli. Erlent 1.3.2022 21:37 Forseti Evrópuþingsins segir Putin verða dreginn til ábyrgðar Forseti Úkraínu sakar Rússa um hryðjuverk eftir eldflaugaárás á miðborg næst stærstu borgar landsins í dag. Forseti Evrópuþingsins segir forseta Rússlands og Hvítarússlands verða dregna til ábyrgðar vegna stríðsins í Úkraínu. Erlent 1.3.2022 19:21 „Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni“ „Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni,“ sagði dóttir Juliu Petryk, íbúa í Kænugarði, þegar mæðgurnar tóku tvo ókunnuga stúdenta inn á heimili sitt um helgina. Stúdentarnir voru þeim alls ókunnugir áður en Rússar réðust inn í Úkraínu en eru nú eins og hluti af fjölskyldunni þeirra. Erlent 1.3.2022 14:32 Diplómatar Sameinuðu þjóðanna snúa baki við Lavrov Diplómatar hjá Sameinuðu þjóðunum hafa margir neitað að hlusta á málflutning Sergei Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, í dag. Erlent 1.3.2022 13:36 Rússar áhyggjufullir um samskipti Norðmanna og Dana vegna breytinga á götuheiti Rússneska sendiráðið í Danmörku hefur lýst yfir áhyggjum af samskiptum Norðmanna og Dana vegna umræðna um að breyta heiti götunnar Kristianiagade í Ukrainegade. Rússneska sendiráðið stendur við fyrrnefnda götu og einn borgarstjóra Kaupmannahafnar hefur lýst yfir vilja til að skoða það að breyta götuheitinu í Ukrainegade. Erlent 1.3.2022 12:30 Selenskí segir árásina á ráðhúsið í Karkív vera hryðjuverk Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugaárásin á ráðhúsið í Karkív í morgun sé hryðjuverk. Í nýju ávarpi segir forsetinn að Rússar ætli sér að nota slík ódæði til að draga úr baráttuanda Úkraínumanna. Erlent 1.3.2022 11:57 Segir Rússa ekki ætla að breyta um stefnu vegna refsiaðgerða Refsiaðgerðir munu aldrei fá Rússa til að hætta innrás þeirra í Úkraínu. Þetta sagði Dmitry Peskov, talsmaður Valdimírs Pútín, forseta, við blaðamenn í morgun. Erlent 1.3.2022 11:24 Búa til bensínsprengjur og smyrja brauð Íslendingur í Kænugarði segir það hafa verið magnað að fylgjast með samstöðu Úkraínumanna á síðustu dögum. Hann heimsótti sjálfboðaliða í borginni í gær sem elda mat ofan úkraínska hermenn í fremstu víglínu. Erlent 1.3.2022 11:20 Hver er Vólódímír Selenskí? Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu hefur verið til mikillar umræðu undanfarna daga. Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst hefur Selenskí haldið þjóð sinni upplýstri með reglulegum færslum á samfélagsmiðlum og ákveðið að halda kyrru fyrir í heimalandinu, þrátt fyrir boð um aðstoð til flótta. Erlent 1.3.2022 11:10 « ‹ 302 303 304 305 306 307 308 309 310 … 334 ›
Segja ráðamenn í Kína hafa sagt Rússum að bíða með innrásina þar til eftir Ólympíuleikana Ráðamenn í Kína vissu af fyrirætlunum Rússa um að ráðast inn í Úkraínu ef marka má gögn sem yfirvöld í Bandaríkjunum og Evrópu hafa undir höndum. Komu þeir þeim skilaboðum á framfæri við Rússa að láta ekki til skarar skríða fyrr en að Ólympíuleikunum, sem haldnir voru í Pekíng, væri lokið. Erlent 3.3.2022 05:00
Rússar hafa náð Kherson á sitt vald Rússar hafa náð borginni Kherson á sitt vald. Þetta hefur New York Times eftir heimildarmönnum í Úkraínu. Borgarstjóri borgarinnar og bandarísk yfirvöld höfðu áður sagt að óvíst væri um stöðu mála þar sem bardagar stæðu enn yfir. Erlent 3.3.2022 04:34
Húsið hristist eftir öflugar sprengingar í miðborg Kænugarðs Óskar Hallgrímsson, íslenskur ljósmyndari sem búsettur er í Kænugarði, segir að borgin minni á draugaborg. Fregnir af gríðarlangri hergagnalest Rússa sem sögð er stefna í átt að borginni vekur ugg. Erlent 2.3.2022 20:47
Biden segir Pútín hafa hitt ofjarl sinni í úkraínsku þjóðinni Rússar hafa hert mjög loftárásir sínar á borgir víðs vegar um Úkraínu í dag og fullyrða að þeir hafi náð einni þeirra alfarið á sitt vald. Forseti Bandaríkjanna segir Rússa eiga eftir að finna fyrir afleiðingum innrásarinnar á stöðu sína um langa framtíð. Talið er að um tvö þúsund óbreyttir borgarar hafi fallið frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 2.3.2022 19:21
Allsherjarþingið fordæmir innrásina og krefst þess að herlið verði dregið til baka Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun þar sem innrás Rússa í Úkraínu er fordæmd og þess krafist að rússneskir hermenn verði dregnir til baka. Erlent 2.3.2022 17:55
Einkaþjálfari innbyrti ígildi tvö hundruð kaffibolla og lést Velskur einkaþjálfari, sem hugðist blanda sér drykk með koffíndufti, ruglaðist á mælieiningum og innbyrti skammt sem jafngildir koffínmagni í tvö hundruð kaffibollum. Maðurinn lést úr koffíneitrun rúmum hálftíma síðar. Erlent 2.3.2022 17:45
Versti dagur stríðsins hingað til Harðir bardagar hafa staðið yfir í allan dag í Kharkív, Mariupol og Kherson. Eldflaugum hefur rignt yfir borgirnar og stórskotalið herjað á þær. Rússar hafa bætt verulega í árásir á skotmörk í borgum sem ekki þjóna hernaðarlegum tilgangi. Erlent 2.3.2022 16:31
Blaðamannafélagið safnar fyrir úkraínska blaðamenn Blaðamannafélag Íslands hefur hafið fjársöfnun til stuðnings blaðamönnum í Úkraínu. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að mikilvægi fjölmiðla á stríðstímum sé óumdeilt og blaðamenn í Úkraínu þurfi aðstoð til að geta stuðlað að öryggi sínu á meðan þeir miðli til umheimsins fréttum af ástandinu í kjölfar innrásar Rússa. Erlent 2.3.2022 15:36
Maltverjar loka á vegabréfakaup Rússa Malta hefur ákveðið að loka fyrir umsóknir Rússa og Hvítrússa fyrir svokölluð „gyllt vegabréf“ vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins gegn ríkjunum tveimur. Erlent 2.3.2022 15:14
Erlendum ríkisborgurum meinað að flýja Úkraínu Erlendir ríkisborgarar, sérstaklega af afrískum uppruna, hafa lent í miklum vandræðum við að flýja Úkraínu. Margir þeirra segja að þeim hafi verið vísað úr lestum og þeim meinaður aðgangur að almenningssamgöngum á leið úr landinu. Erlent 2.3.2022 14:09
Veruleiki Úkraínumanna á sjöunda degi stríðs Fátt grípur veruleikann betur en ljósmyndir enda segja þær meira en þúsund orð. Það getur reynst okkur á Íslandi erfitt að gera okkur grein fyrir veruleika Úkraínumanna þessa dagana. Erlent 2.3.2022 13:24
Rússar segja aðra umferð friðarviðræðna fara fram í dag Önnur umferð friðarviðræðna milli Úkraínu og Rússlands fer fram síðar í dag. Þetta kemur fram í frétt rússneska ríkisútvarpsins Tass og þar vísað í starfsmann úkraínska forsetaembættisins. Erlent 2.3.2022 11:59
Grunnskólabörn handtekin í Moskvu fyrir að leggja blóm við úkraínska sendiráðið Að minnsta kosti fjögur grunnskólabörn og foreldrar þeirra voru handtekin í Moskvu í gær þegar þau lögðu blóm við úkraínska sendiráðið og héldu á skiltum sem á stóð „Nei við stríði“. Erlent 2.3.2022 11:37
Navalní kallar eftir mótmælum: „Pútín er ekki Rússland“ Rússneski andófsmaðurinn Alexei Navalní kallar eftir því að Rússar haldi umfangsmikil mótmæli gegn innrásinni í Úkraínu. Þetta segir Navalní í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér þar sem hann situr í fangelsi í Rússlandi. Erlent 2.3.2022 11:02
Evrópusambandið boðar hertar refsiaðgerðir gegn Hvíta-Rússlandi Evrópusambandið hefur samþykkt að beita Hvítrússa hertum refsiaðgerðum vegna hlutverks þeirra í innrás Rússa í Úkraínu. Þegar eru í gildi fjöldi þvingana á landið vegna mannréttindabrota sem stjórnvöld hafa framið gegn andstæðingum sínum undanfarin tæp tvö ár. Erlent 2.3.2022 10:16
Pútín sagður einangraður og með ofsóknaræði Starfsmenn leyniþjónusta í Bandaríkjunum og Evrópu vinna hörðum höndum þessa dagana að því að átta sig á hugarástandi Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Erlent 2.3.2022 09:52
Vildi sannfæra þjóðina um árangur sinn Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hélt sína fyrstu stefnuræðu fyrir báðar deildar Bandaríkjaþings í nótt. Þar hét Biden því að halda aftur af innrás Rússa í Úkraínu, koma böndum á verðbólgu í Bandaríkjunum og kveða niður kórónuveiruna. Erlent 2.3.2022 08:55
Íslendingur í Kænugarði segir ýmis vandamál virðast plaga Rússa Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem búsettur er í Kænugarði, segir síðasta sólahring hafa verið nokkuð rólegan í borginni, fyrir utan tvær stórar sprengingar í gær þar sem ráðist var á sjónvarpsturn annars vegar og minnisvarða um Helförina hins vegar. Erlent 2.3.2022 07:45
Vaktin: Ísland á meðal ríkja sem vísa meintum stríðsglæpum Rússa til rannsóknar Alþjóðasakamáladómstólsins Vika er liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með þróun mála í vaktinni hér fyrir neðan. Erlent 2.3.2022 06:49
Hart barist í Karkív eftir að rússneskar hersveitir lenda í borginni Rússneskar hersveitir lentu í Karkív um klukkan 3 í nótt og harðir bardagar standa nú yfir milli þeirra og úkraínska hersins. Úkraínsk yfirvöld greindu frá því í nótt að ráðist hefði verið á hersjúkrahús í borginni og að bardagar hefðu brotist út á milli „innrásarhermanna og úkraínskra varnaraðila“. Erlent 2.3.2022 06:22
Úkraínumenn segjast ætla að endursmíða Drauminn Flugheimurinn virðist hafa misst stærstu flugvél heims, úkraínsku þotuna Antonov 225, sem fullyrt er að hafi eyðilagst í árás Rússa á heimaflugvöll hennar í Úkraínu. Ný gervihnattamynd virðist þó sýna stél hennar óskemmt. Risaþotan var aðeins til í einu eintaki og kom nokkrum sinnum til Íslands. Erlent 1.3.2022 22:20
Tárvot þrumuræða úkraínskrar blaðakonu vekur heimsathygli Daria Kaleniuk, úkraínskur blaðamaður, grátbað Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um aukna aðstoð til að berjast gegn innrás Rússa í Úkraínu á blaðamannafundi í dag. Myndband af þrumuræðu hennar hefur vakið heimsathygli. Erlent 1.3.2022 21:37
Forseti Evrópuþingsins segir Putin verða dreginn til ábyrgðar Forseti Úkraínu sakar Rússa um hryðjuverk eftir eldflaugaárás á miðborg næst stærstu borgar landsins í dag. Forseti Evrópuþingsins segir forseta Rússlands og Hvítarússlands verða dregna til ábyrgðar vegna stríðsins í Úkraínu. Erlent 1.3.2022 19:21
„Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni“ „Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni,“ sagði dóttir Juliu Petryk, íbúa í Kænugarði, þegar mæðgurnar tóku tvo ókunnuga stúdenta inn á heimili sitt um helgina. Stúdentarnir voru þeim alls ókunnugir áður en Rússar réðust inn í Úkraínu en eru nú eins og hluti af fjölskyldunni þeirra. Erlent 1.3.2022 14:32
Diplómatar Sameinuðu þjóðanna snúa baki við Lavrov Diplómatar hjá Sameinuðu þjóðunum hafa margir neitað að hlusta á málflutning Sergei Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, í dag. Erlent 1.3.2022 13:36
Rússar áhyggjufullir um samskipti Norðmanna og Dana vegna breytinga á götuheiti Rússneska sendiráðið í Danmörku hefur lýst yfir áhyggjum af samskiptum Norðmanna og Dana vegna umræðna um að breyta heiti götunnar Kristianiagade í Ukrainegade. Rússneska sendiráðið stendur við fyrrnefnda götu og einn borgarstjóra Kaupmannahafnar hefur lýst yfir vilja til að skoða það að breyta götuheitinu í Ukrainegade. Erlent 1.3.2022 12:30
Selenskí segir árásina á ráðhúsið í Karkív vera hryðjuverk Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugaárásin á ráðhúsið í Karkív í morgun sé hryðjuverk. Í nýju ávarpi segir forsetinn að Rússar ætli sér að nota slík ódæði til að draga úr baráttuanda Úkraínumanna. Erlent 1.3.2022 11:57
Segir Rússa ekki ætla að breyta um stefnu vegna refsiaðgerða Refsiaðgerðir munu aldrei fá Rússa til að hætta innrás þeirra í Úkraínu. Þetta sagði Dmitry Peskov, talsmaður Valdimírs Pútín, forseta, við blaðamenn í morgun. Erlent 1.3.2022 11:24
Búa til bensínsprengjur og smyrja brauð Íslendingur í Kænugarði segir það hafa verið magnað að fylgjast með samstöðu Úkraínumanna á síðustu dögum. Hann heimsótti sjálfboðaliða í borginni í gær sem elda mat ofan úkraínska hermenn í fremstu víglínu. Erlent 1.3.2022 11:20
Hver er Vólódímír Selenskí? Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu hefur verið til mikillar umræðu undanfarna daga. Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst hefur Selenskí haldið þjóð sinni upplýstri með reglulegum færslum á samfélagsmiðlum og ákveðið að halda kyrru fyrir í heimalandinu, þrátt fyrir boð um aðstoð til flótta. Erlent 1.3.2022 11:10