Erlent Þak mosku hrundi er maður sprengdi sig í loft upp Minnst 27 eru látnir og 147 særðir eftir sprengjuárás í mosku í Peshawar í Pakistan í morgun. Maður er sagður hafa sprengt sig í loft upp á bænartíma þegar moskan var full af fólki. Erlent 30.1.2023 10:56 Mossad beitti sjálfsprengidrónum í Íran Ísraelar gerðu um helgina drónaárás á skotmörk í borginni Isfahan í Íran. Árásin er sögð hafa verið framkvæmd af leyniþjónustu Ísraels og hafa mögulega beinst gegn eldflaugaframleiðslu Írans. Erlent 30.1.2023 10:29 Blinken heimsækir Miðausturlönd Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Antony Blinken er mættur til Egyptalands þar sem þriggja daga heimsókn hans til Miðausturlanda hefst. Erlent 30.1.2023 09:29 Segir Tyrki mögulega munu hleypa Finnum inn án Svía Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir Tyrki mögulega munu leggja blessun sína yfir aðildarumsókn Finna að Atlantshafsbandalaginu án þess að samþykkja að hleypa Svíum inn á sama tíma. Erlent 30.1.2023 08:14 Pútín sagðist geta skotið eldflaug á Bretland á innan við mínútu Að sögn Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sagðist Vladimir Pútín Rússlandsforseti geta skotið eldflaug í átt að Bretlandi „á innan við mínútu“ í símtali sem átti sér stað skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 30.1.2023 07:16 Átta hundruð slösuðust í jarðskjálfta Átta hundruð slösuðust og þrír létust í jarðskjálfta af stærðinni 5,9 í Íran í gær. Jarðskjálftinn skall á rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Erlent 29.1.2023 21:48 Tíu börn drukknuðu í skólaferðalagi Tvö hræðileg slys urðu í Pakistan í dag. Annars vegar mannskætt bílslys og hins vegar þegar bátur sökk. Að minnsta kosti fimmtíu hafa látið lífið í slysunum tveim. Erlent 29.1.2023 17:11 Vill að stærsti flokkurinn fái að ráða öllu Leiðtogi hægri manna á Spáni hefur lagt til að ekki þurfi lengur að mynda meirihlutastjórnir í bæjar- og borgarstjórnum landsins. Sá flokkur sem fái flest atkvæði í kosningum fái einfaldlega að ráða öllu. Sósíalistar segja tillöguna lélegan brandara. Erlent 29.1.2023 17:00 Biðja sænska ríkisborgara að gæta sín Sænsk yfirvöld biðja ríkisborgara sína að forðast mannmergð í Tyrklandi. Kveikt var í Kóraninum á mótmælafundi í sænsku höfuðborginni Stokkhólmi í vikunni og sögðu tyrknesk stjórnvöld að Svíar ættu ekki að gera ráð fyrir stuðningi þeirra vegna umsóknar að NATO. Erlent 28.1.2023 22:04 Ofbeldi gegn mótmælendum örvæntingarfull tilraun til að halda völdum Fjórir hafa verið teknir af lífi fyrir að taka þátt í mótmælum í Íran. Mótmælin eru meðal þeirra verstu sem brotist hafa út síðan klerkaveldið var stofnað fyrir rúmum fjörutíu árum. Framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty segir augljóst að írönsk stjórnvöld hræðist afleiðingar mótmælanna. Erlent 28.1.2023 18:31 Yfirburðasigur hershöfðingjans í Tékklandi Petr Pavel, fyrrverandi NATO hershöfðingi og háttsettur starfsmaður tékkneska hersins, hefur verið kjörinn forseti Tékklands. Pavel hlaut 57 prósent atkvæða en mótframbjóðandi hans, Andrej Babiš fyrrverandi forsætisráðherra, laut í lægra haldi með tæp 43 prósent. Erlent 28.1.2023 18:29 Ríki lýsir yfir stríði gegn smáfuglum Stjórnvöld í Kenía hafa lýst yfir stríði við lítinn 12 sentímetra smáfugl og ætla sér að drepa sex milljónir þeirra á næstunni. Dýrafræðingar hafa miklar áhyggjur og segja aðgerðirnar ógna mörgum öðrum dýrategundum. Erlent 28.1.2023 17:00 Sýnir hvernig harkaleg meðferð lögreglu leiddi til dauða Nichols: „Ég er bara að reyna að komast heim“ Nýbirt myndskeið sýnir hvernig hópur lögreglumanna kýldi og sparkaði ítrekað í Tyre Nichols á meðan hann lá máttlítill á jörðinni og kallaði eftir aðstoð móður sinnar. Atvikið, sem átti sér stað í Memphis í Bandaríkjunum þann 7. janúar síðastliðinn, hefur vakið upp mikla reiði í þar í landi en þremur dögum síðar lést hinn 29 ára Nichols á sjúkrahúsi af völdum áverka. Erlent 28.1.2023 10:33 Illa haldinn eftir hnífstunguárás í matvöruverslun í Kaupmannahöfn 21 árs gamall karlmaður var stunginn í matvöruverslun fyrr í kvöld og liggur þungt haldinn. Þrír hafa verið stungnir í Kaupmannahöfn í dag í tveimur aðskildum stunguárásum. Erlent 28.1.2023 00:11 Dómari útskýrir gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Tate-bræðrum Dómstóll í Búkarest segir í yfirlýsingu að áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Andrew Tate og Tristan Tate hafi verið nauðsynlegt til að tryggja almannahagsmuni. Dómari telur hættu stafa af bræðrunum og segir þá hafa sérstakt lag á því að beita sálrænni misneytingu. Í einhverjum tilvikum hafi verið gripið til líkamlegs ofbeldis. Erlent 27.1.2023 23:19 Myndband sýnir árásina á Pelosi Lögreglan í Bandaríkjunum hefur birt myndband af árás innbrotsþjófs á eiginmann Nancy Pelosi, fyrrverandi fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Innbrotsþjófurinn réðst að hinum 82 ára gamla Paul Pelosi með hamri. Erlent 27.1.2023 22:28 Á annan tug handteknir í tengslum við ofbeldisöldu í Svíþjóð Lögreglan í Stokkhólmi hefur handtekið sextán einstaklinga og lagt hald á fjölda vopna og sprengiefna síðastliðinn sólarhring í tengslum við alvarlega ofbeldisglæpi undanfarið. Fjórir eru í haldi í tengslum við sprengjuárásir í síðustu viku. Erlent 27.1.2023 18:22 Mótmæltu eftir grimmilegt morð á sex lögregluþjónum Rúmlega hundrað núverandi og fyrrverandi lögregluþjónar mótmæltu á götum Port-au-Prince, höfuðborgar Haítí, í gær. Þeir lokuðu götum, skutu út í loftið og brutu sér leið inn í flugvöll borgarinnar og heimili forsætisráðherra landsins til að mótmæla því hve margir lögregluþjónar hafa verið skotnir til bana af meðlimum glæpagengja að undanförnu. Erlent 27.1.2023 16:08 Biden fær nýjan starfsmannastjóra Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að Jeff Zients verður nýr starfsmannastjóri Hvíta hússins. Hann mun taka við af Ron Klain, sem hefur lengi starfað með Biden. Starfsmannavelta hefur verið tiltölulega lítil í Hvíta húsinu síðustu tvö ár. Erlent 27.1.2023 15:21 Lá dáin í íbúð sinni í rúm þrjú ár Bresk kona sem átti við mikil geðræn vandamál að stríða fannst í íbúð hennar rúmum þremur árum eftir að hún dó. Fjölskylda hennar kennir heilbrigðiskerfinu um og segir kerfið hafa brugðist henni. Enginn hafi fylgst með henni þrátt fyrir veikindi hennar. Erlent 27.1.2023 14:20 Sakamálarannsóknin sneri að Trump sjálfum Sérstakur rannsakandi sem William Barr, dómsmálaráðherra Donalds Trumps, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, skipaði til að rannsaka uppruna Rússarannsóknarinnar svokölluðu, rannsakaði Trump sjálfan um tíma. Erlent 27.1.2023 12:25 Töluverðar áhyggjur uppi vegna stöðunnar á Vesturbakkanum Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, óttast að ástandið á Vesturbakkanum eigi eftir að versna enn frekar eftir að tveimur eldflaugum var skotið frá Gaza í morgun og svarað með loftárásum Ísraelsmanna. Erlent 27.1.2023 11:05 Felldu háttsettan ISIS-liða í hellum í Sómalíu Bandarískir sérsveitarhermenn bönuðu í gær háttsettum leiðtoga Íslamska ríkisins í Afríku og tíu vígamönnum í árás í norðurhluta Sómalíu á miðvikudaginn. Bilal al-Sudani er sagður hafa verið einn af fjármálastjórum hryðjuverkasamtakanna en hann var felldur í árás á hella sem hann hélt til í fjöllum Sómalíu. Erlent 27.1.2023 10:24 Frökkum gert að yfirgefa Búrkína Fasó Franskir hermenn munu yfirgefa Búrkína Fasó í næsta mánuði. Herforingjastjórn Afríkuríkisins hefur krafist þess að fyrrverandi nýlenduherrar þess fari á brott en herforingjastjórnin hefur að undanförnu leitað frekar til Rússlands eftir aðstoð gegn umsvifamiklum vígahópum á Sahel-svæðinu svokallaða. Erlent 27.1.2023 09:03 Biden biður fólk um að halda ró sinni Joe Biden Bandaríkjaforseti hvetur fólk í Tennessee ríki til að halda ró sinni en þar ríkir mikil reiði eftir að fimm lögreglumenn í Memphis börðu tuttugu og níu ára gamlan mann til dauða. Erlent 27.1.2023 07:56 Trans kona dæmd fyrir nauðganir tekur dóminn út í karlafangelsi Trans kona í Skotlandi var í vikunni fundin sek um að hafa nauðgað tveimur konum áður en hún kom út úr skápnum. Eftir að dómurinn féll var hún flutt í kvennafangelsi en yfirvöld segja hana ekki munu verða vistaða þar, hvorki til skemmri né lengri tíma. Erlent 26.1.2023 23:51 Árásarmaðurinn ekki talinn tengjast hryðjuverkasamtökum Þrjátíu og þriggja ára gamall karlmaður sem stakk tvo til bana í lest í Norður-Þýskalandi í gær er ekki talinn tengjast hryðjuverkasamtökum. Maðurinn særði að minnsta kosti fimm til viðbótar, þar af eru tveir taldir í lífshættu. Erlent 26.1.2023 22:44 Mögulega elsta múmía sem hefur fundist Fornleifafræðingar í Egyptalandi telja að 4.300 ára gömul múmía sé sú elsta sem fundist hefur í landinu. Múmían fannst á botni fimmtán metra langra jarðaganga í grafhýsi í Saqqara, nálægt höfuðborginni Kaíró. Erlent 26.1.2023 21:13 Loftsteinn á ógnarhraða nær jörðu en gervitungl Á miðnætti mun loftsteinn þjóta framhjá jörðinni í minni fjalægð en mörg gervitungl eða um 3,600 kílómetrum frá. Litlu má því muna að steinninn skelli á jörðinni en einungis vika er liðin frá því loftsteinninn uppgötvaðist. Erlent 26.1.2023 20:43 Bandarískir lögreglumenn ákærðir fyrir að hafa barið mann til dauða Fimm bandarískir lögreglumenn hafa verið ákærðir fyrir að hafa barið mann til dauða. Lögregla stöðvaði manninn, Tyre Nichols, við umferðareftirlit í borginni Memphis í Tennessee fyrr í mánuðinum. Erlent 26.1.2023 19:25 « ‹ 180 181 182 183 184 185 186 187 188 … 334 ›
Þak mosku hrundi er maður sprengdi sig í loft upp Minnst 27 eru látnir og 147 særðir eftir sprengjuárás í mosku í Peshawar í Pakistan í morgun. Maður er sagður hafa sprengt sig í loft upp á bænartíma þegar moskan var full af fólki. Erlent 30.1.2023 10:56
Mossad beitti sjálfsprengidrónum í Íran Ísraelar gerðu um helgina drónaárás á skotmörk í borginni Isfahan í Íran. Árásin er sögð hafa verið framkvæmd af leyniþjónustu Ísraels og hafa mögulega beinst gegn eldflaugaframleiðslu Írans. Erlent 30.1.2023 10:29
Blinken heimsækir Miðausturlönd Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Antony Blinken er mættur til Egyptalands þar sem þriggja daga heimsókn hans til Miðausturlanda hefst. Erlent 30.1.2023 09:29
Segir Tyrki mögulega munu hleypa Finnum inn án Svía Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir Tyrki mögulega munu leggja blessun sína yfir aðildarumsókn Finna að Atlantshafsbandalaginu án þess að samþykkja að hleypa Svíum inn á sama tíma. Erlent 30.1.2023 08:14
Pútín sagðist geta skotið eldflaug á Bretland á innan við mínútu Að sögn Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sagðist Vladimir Pútín Rússlandsforseti geta skotið eldflaug í átt að Bretlandi „á innan við mínútu“ í símtali sem átti sér stað skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 30.1.2023 07:16
Átta hundruð slösuðust í jarðskjálfta Átta hundruð slösuðust og þrír létust í jarðskjálfta af stærðinni 5,9 í Íran í gær. Jarðskjálftinn skall á rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Erlent 29.1.2023 21:48
Tíu börn drukknuðu í skólaferðalagi Tvö hræðileg slys urðu í Pakistan í dag. Annars vegar mannskætt bílslys og hins vegar þegar bátur sökk. Að minnsta kosti fimmtíu hafa látið lífið í slysunum tveim. Erlent 29.1.2023 17:11
Vill að stærsti flokkurinn fái að ráða öllu Leiðtogi hægri manna á Spáni hefur lagt til að ekki þurfi lengur að mynda meirihlutastjórnir í bæjar- og borgarstjórnum landsins. Sá flokkur sem fái flest atkvæði í kosningum fái einfaldlega að ráða öllu. Sósíalistar segja tillöguna lélegan brandara. Erlent 29.1.2023 17:00
Biðja sænska ríkisborgara að gæta sín Sænsk yfirvöld biðja ríkisborgara sína að forðast mannmergð í Tyrklandi. Kveikt var í Kóraninum á mótmælafundi í sænsku höfuðborginni Stokkhólmi í vikunni og sögðu tyrknesk stjórnvöld að Svíar ættu ekki að gera ráð fyrir stuðningi þeirra vegna umsóknar að NATO. Erlent 28.1.2023 22:04
Ofbeldi gegn mótmælendum örvæntingarfull tilraun til að halda völdum Fjórir hafa verið teknir af lífi fyrir að taka þátt í mótmælum í Íran. Mótmælin eru meðal þeirra verstu sem brotist hafa út síðan klerkaveldið var stofnað fyrir rúmum fjörutíu árum. Framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty segir augljóst að írönsk stjórnvöld hræðist afleiðingar mótmælanna. Erlent 28.1.2023 18:31
Yfirburðasigur hershöfðingjans í Tékklandi Petr Pavel, fyrrverandi NATO hershöfðingi og háttsettur starfsmaður tékkneska hersins, hefur verið kjörinn forseti Tékklands. Pavel hlaut 57 prósent atkvæða en mótframbjóðandi hans, Andrej Babiš fyrrverandi forsætisráðherra, laut í lægra haldi með tæp 43 prósent. Erlent 28.1.2023 18:29
Ríki lýsir yfir stríði gegn smáfuglum Stjórnvöld í Kenía hafa lýst yfir stríði við lítinn 12 sentímetra smáfugl og ætla sér að drepa sex milljónir þeirra á næstunni. Dýrafræðingar hafa miklar áhyggjur og segja aðgerðirnar ógna mörgum öðrum dýrategundum. Erlent 28.1.2023 17:00
Sýnir hvernig harkaleg meðferð lögreglu leiddi til dauða Nichols: „Ég er bara að reyna að komast heim“ Nýbirt myndskeið sýnir hvernig hópur lögreglumanna kýldi og sparkaði ítrekað í Tyre Nichols á meðan hann lá máttlítill á jörðinni og kallaði eftir aðstoð móður sinnar. Atvikið, sem átti sér stað í Memphis í Bandaríkjunum þann 7. janúar síðastliðinn, hefur vakið upp mikla reiði í þar í landi en þremur dögum síðar lést hinn 29 ára Nichols á sjúkrahúsi af völdum áverka. Erlent 28.1.2023 10:33
Illa haldinn eftir hnífstunguárás í matvöruverslun í Kaupmannahöfn 21 árs gamall karlmaður var stunginn í matvöruverslun fyrr í kvöld og liggur þungt haldinn. Þrír hafa verið stungnir í Kaupmannahöfn í dag í tveimur aðskildum stunguárásum. Erlent 28.1.2023 00:11
Dómari útskýrir gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Tate-bræðrum Dómstóll í Búkarest segir í yfirlýsingu að áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Andrew Tate og Tristan Tate hafi verið nauðsynlegt til að tryggja almannahagsmuni. Dómari telur hættu stafa af bræðrunum og segir þá hafa sérstakt lag á því að beita sálrænni misneytingu. Í einhverjum tilvikum hafi verið gripið til líkamlegs ofbeldis. Erlent 27.1.2023 23:19
Myndband sýnir árásina á Pelosi Lögreglan í Bandaríkjunum hefur birt myndband af árás innbrotsþjófs á eiginmann Nancy Pelosi, fyrrverandi fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Innbrotsþjófurinn réðst að hinum 82 ára gamla Paul Pelosi með hamri. Erlent 27.1.2023 22:28
Á annan tug handteknir í tengslum við ofbeldisöldu í Svíþjóð Lögreglan í Stokkhólmi hefur handtekið sextán einstaklinga og lagt hald á fjölda vopna og sprengiefna síðastliðinn sólarhring í tengslum við alvarlega ofbeldisglæpi undanfarið. Fjórir eru í haldi í tengslum við sprengjuárásir í síðustu viku. Erlent 27.1.2023 18:22
Mótmæltu eftir grimmilegt morð á sex lögregluþjónum Rúmlega hundrað núverandi og fyrrverandi lögregluþjónar mótmæltu á götum Port-au-Prince, höfuðborgar Haítí, í gær. Þeir lokuðu götum, skutu út í loftið og brutu sér leið inn í flugvöll borgarinnar og heimili forsætisráðherra landsins til að mótmæla því hve margir lögregluþjónar hafa verið skotnir til bana af meðlimum glæpagengja að undanförnu. Erlent 27.1.2023 16:08
Biden fær nýjan starfsmannastjóra Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að Jeff Zients verður nýr starfsmannastjóri Hvíta hússins. Hann mun taka við af Ron Klain, sem hefur lengi starfað með Biden. Starfsmannavelta hefur verið tiltölulega lítil í Hvíta húsinu síðustu tvö ár. Erlent 27.1.2023 15:21
Lá dáin í íbúð sinni í rúm þrjú ár Bresk kona sem átti við mikil geðræn vandamál að stríða fannst í íbúð hennar rúmum þremur árum eftir að hún dó. Fjölskylda hennar kennir heilbrigðiskerfinu um og segir kerfið hafa brugðist henni. Enginn hafi fylgst með henni þrátt fyrir veikindi hennar. Erlent 27.1.2023 14:20
Sakamálarannsóknin sneri að Trump sjálfum Sérstakur rannsakandi sem William Barr, dómsmálaráðherra Donalds Trumps, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, skipaði til að rannsaka uppruna Rússarannsóknarinnar svokölluðu, rannsakaði Trump sjálfan um tíma. Erlent 27.1.2023 12:25
Töluverðar áhyggjur uppi vegna stöðunnar á Vesturbakkanum Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, óttast að ástandið á Vesturbakkanum eigi eftir að versna enn frekar eftir að tveimur eldflaugum var skotið frá Gaza í morgun og svarað með loftárásum Ísraelsmanna. Erlent 27.1.2023 11:05
Felldu háttsettan ISIS-liða í hellum í Sómalíu Bandarískir sérsveitarhermenn bönuðu í gær háttsettum leiðtoga Íslamska ríkisins í Afríku og tíu vígamönnum í árás í norðurhluta Sómalíu á miðvikudaginn. Bilal al-Sudani er sagður hafa verið einn af fjármálastjórum hryðjuverkasamtakanna en hann var felldur í árás á hella sem hann hélt til í fjöllum Sómalíu. Erlent 27.1.2023 10:24
Frökkum gert að yfirgefa Búrkína Fasó Franskir hermenn munu yfirgefa Búrkína Fasó í næsta mánuði. Herforingjastjórn Afríkuríkisins hefur krafist þess að fyrrverandi nýlenduherrar þess fari á brott en herforingjastjórnin hefur að undanförnu leitað frekar til Rússlands eftir aðstoð gegn umsvifamiklum vígahópum á Sahel-svæðinu svokallaða. Erlent 27.1.2023 09:03
Biden biður fólk um að halda ró sinni Joe Biden Bandaríkjaforseti hvetur fólk í Tennessee ríki til að halda ró sinni en þar ríkir mikil reiði eftir að fimm lögreglumenn í Memphis börðu tuttugu og níu ára gamlan mann til dauða. Erlent 27.1.2023 07:56
Trans kona dæmd fyrir nauðganir tekur dóminn út í karlafangelsi Trans kona í Skotlandi var í vikunni fundin sek um að hafa nauðgað tveimur konum áður en hún kom út úr skápnum. Eftir að dómurinn féll var hún flutt í kvennafangelsi en yfirvöld segja hana ekki munu verða vistaða þar, hvorki til skemmri né lengri tíma. Erlent 26.1.2023 23:51
Árásarmaðurinn ekki talinn tengjast hryðjuverkasamtökum Þrjátíu og þriggja ára gamall karlmaður sem stakk tvo til bana í lest í Norður-Þýskalandi í gær er ekki talinn tengjast hryðjuverkasamtökum. Maðurinn særði að minnsta kosti fimm til viðbótar, þar af eru tveir taldir í lífshættu. Erlent 26.1.2023 22:44
Mögulega elsta múmía sem hefur fundist Fornleifafræðingar í Egyptalandi telja að 4.300 ára gömul múmía sé sú elsta sem fundist hefur í landinu. Múmían fannst á botni fimmtán metra langra jarðaganga í grafhýsi í Saqqara, nálægt höfuðborginni Kaíró. Erlent 26.1.2023 21:13
Loftsteinn á ógnarhraða nær jörðu en gervitungl Á miðnætti mun loftsteinn þjóta framhjá jörðinni í minni fjalægð en mörg gervitungl eða um 3,600 kílómetrum frá. Litlu má því muna að steinninn skelli á jörðinni en einungis vika er liðin frá því loftsteinninn uppgötvaðist. Erlent 26.1.2023 20:43
Bandarískir lögreglumenn ákærðir fyrir að hafa barið mann til dauða Fimm bandarískir lögreglumenn hafa verið ákærðir fyrir að hafa barið mann til dauða. Lögregla stöðvaði manninn, Tyre Nichols, við umferðareftirlit í borginni Memphis í Tennessee fyrr í mánuðinum. Erlent 26.1.2023 19:25