Erlent Búast við stórsókn Rússa í lok febrúar Varnarmálaráðherra Úkraínu fullyrðir að Rússar séu að undirbúa nýja stórsókn sem gæti hafist í lok þessa mánaðar eða í kringum 24. febrúar. Erlent 2.2.2023 07:09 Haley sögð munu tilkynna um forsetaframboð 15. febrúar Nikki Haley, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, er sögð munu tilkynna um framboð sitt til forseta 15. febrúar næstkomandi. Erlent 2.2.2023 06:58 Grunuð um að hafa myrt tvífara sinn Lögreglunni í þýsku borginni Ingolstadt var þann 16. ágúst í fyrra tilkynnt um hvarf 23 ára gamallar þýsk-írakskrar konu sem starfar sem áhrifavaldur. Stuttu síðar fannst bíll hennar í Ingolstadt. Í bílnum var lík konu með afmyndað andlit sem hafði verið stungin ítrekað. Foreldrar þýsk-íröksku konunnar töldu að um lík dóttur sinnar væri að ræða. Erlent 1.2.2023 17:07 Áfrýjun Tate-bræðra hafnað en þeir segjast saklausir Áfrýjun Andrew Tate og bróður hans, Tristan, var hafnað af áfrýjunardómstól Búkarest í dag. Þeir munu þurfa að dvelja í fangelsi þar til undir lok febrúar. Andrew öskraði á aðdáendur sína og fjölmiðla að hann væri saklaus þegar hann var leiddur inn í dómhús í dag. Erlent 1.2.2023 16:32 Alríkislögreglan leitar á heimili Bidens Alríkislögregla Bandaríkjanna leitar nú á heimili Joe Biden Bandaríkjaforseta í Delaware í tengslum við rannsókn embættisins á hvarfi leynilegra skjala. Þetta staðfestir lögmaður Bidens í yfirlýsingu. Erlent 1.2.2023 15:24 Hundruð þúsunda hafa lagt niður störf í dag Um hundrað þúsund opinberir starfsmenn á Bretlandi hafa lagt niður störf í dag, þar á meðal starfsmenn háskóla, kennarar og lestarstjórar. Þetta er fyrsta verkfallið sem farið er í á Bretlandi síðan 2016. Launafólk fer fram á launahækkanir til að bregðast við hækkandi verðlagi. Erlent 1.2.2023 15:01 Kynlífssvall og svefnleysi banar pokaköttum Niðurstöður nýrrar ástralskrar rannsóknar benda til að karlkyns pokakettir fórni svefni til að tryggja sér kynlíf og að þessi forgangsröðun spili stóran þátt í ótímabærum dauða þeirra. Rannsóknin bendir til að karldýrin ferðist langar vegalengdir í von um að finna kvendýr og sleppi því að sofa á meðan. Erlent 1.2.2023 13:37 Allt í volli í dýragarðinum í Dallas: Dýr að sleppa og grunsamlegur dauðdagi hrægamms Dularfull hvörf og grunsamlegur dauðdag hrægamms í dýragarðinum í Dallas eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni í borginni. Í gær komst í ljós að tveimur keisaratamarin öpum hafði verið stolið úr garðinum en skömmu fyrir það fannst hrægammur sem lést dularfullum dauðdaga. Erlent 1.2.2023 10:24 Þingmaðurinn ljúgandi hættir við nefndasetu Bandaríski þingmaðurinn George Santos mun ekki taka sæti í tveimur þingnefndum sem hann hafði verið skipaður í. Hann segist vilja bíða þar til búið væri að hreinsa hann af ásökunum um lygar í ferilskrá sinni og hefur beðið samflokksmenn sína afsökunar á „fjölmiðlafárinu“ sem myndast hefur í kringum hann. Erlent 1.2.2023 09:17 Vilja flytja út norskt gjafasæði til Íslands Livio í Noregi hefur sóst eftir því að hefja útflutning á norsku gjafasæði og horfir sérstaklega til Íslands og Svíþjóðar. Erlent 1.2.2023 09:01 Leit að geislavirkri nál í heystakki bar árangur í Ástralíu Yfirvöld í Ástralíu segjast nú hafa fundið agnarsmátt geislavirkt hylki sem týndist á dögunum. Erlent 1.2.2023 07:54 Neitaði oftar en 400 sinnum að svara spurningum saksóknara Donald Trump neitaði oftar en 400 sinnum að svara spurningum sem lagðar voru fyrir hann við yfirheyrslur vegna rannsóknar yfirvalda í New York. Þetta sést á myndskeiði af yfirheyrslunni sem CBS News hefur undir höndum. Erlent 1.2.2023 07:44 Tékklandsforseti vill Úkraínu í Nató um leið og stríðinu lýkur Nýkjörinn forseti Tékklands segist þeirrar skoðunar að Úkraína eigi að fá inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 1.2.2023 07:38 Leggja til að fangar fái að gefa líffæri gegn styttri afplánunartíma Tveir þingmenn í Massachusetts í Bandaríkjunum hafa lagt fram frumvarp sem kveður á um að fangar fái dóma sína mildaða gegn því að gefa beinmerg eða líffæri. Afplánunartíminn gæti þannig styst um 60 til 365 daga. Erlent 1.2.2023 07:03 Reyna að vekja dódó-fuglinn til lífsins Vísindamenn við Háskólann í Kaliforníu vilja vekja hinn útdauða dódó-fugl aftur til lífs en tegundin dó út á 17. öld. Með nýjum aðferðum við raðgreiningu erfðaefnis og nýjungum í genabreytingartækni telja vísindamennirnir að hægt sé að koma aftur upp stofni af dódó-fuglum. Erlent 31.1.2023 23:50 49 börn drukknuðu í skólaferð 51 manns létu lífið er bát hvolfdi á Tanda Dam-vatninu nærri borginni Kohat í Pakistan, þar af 49 börn. Börnin voru ásamt kennurum og skipstjóra í skólaferð á vatninu. Erlent 31.1.2023 23:08 Eldsvoði í Nuuk rannsakaður sem manndráp Lögreglan í Nuuk á Grænlandi hefur til rannsóknar andlát konu sem lét lífið í eldsvoða snemma í morgun. Grunur leikur á að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti. Erlent 31.1.2023 22:34 Alec Baldwin ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Í ákærunni er Baldwin gefið að sök að hafa brotið fjölda laga er hann miðaði byssu í átt að kvikmyndatökustjóranum Halyna Hutchins við tökur á kvikmyndinni Rust. Skot úr byssunni hæfði Hutchins sem lét lífið. Erlent 31.1.2023 21:46 Árásarmaður Pelosi: „Ég hefði átt að vera betur undirbúinn“ Maðurinn sem kærður hefur verið fyrir að hafa ráðist á Paul Pelosi í október síðastliðnum hringdi í fjölmiðla eftir birtingu myndbanda af árásinni. Í símtalinu virðist hann biðjast afsökunar á að hafa ekki staðið sig betur við verknaðinn. Erlent 31.1.2023 20:48 Íslendingurinn sem var stunginn í Noregi kominn til meðvitundar Íslensk kona sem var stungin af fyrrverandi eiginmanni sínum í Noregi fyrr í mánuðinum er komin til meðvitundar. Maðurinn, sem einnig er Íslendingur, er grunaður um tilraun til manndráps og hefur játað á sig árásina. Erlent 31.1.2023 19:07 Fimm til viðbótar reknir vegna dauða Nichols Tveimur lögreglumönnum, til viðbótar við þá fimm sem hafa þegar verið reknir, hefur verið sagt upp vegna dauða Tyre Nichols í Memphis í Bandaríkjunum. Þá hafa þrír sjúkraflutningamenn verið reknir fyrir að hafa ekki brugðist rétt við. Erlent 31.1.2023 14:36 Staðfest að 87 hafi látist í sprengingunni í Pakistan Yfirvöld í Pakistan hafa nú staðfest að 87 hafi látist í árás sjálfsvígssprengjumanns í mosku í pakistanska héraðinu Peshawar í gær. Erlent 31.1.2023 07:52 Fleiri en 600 handteknir í aðgerðum gegn heimilisofbeldi Fleiri en 600 einstaklingar hafa verið handteknir og ákærðir eftir fjögurra daga lögregluaðgerð í Ástralíu sem beindist gegn heimilisofbeldi. Meðal handteknu voru 164 einstaklingar sem lögregla segir hafa verið „mest eftirlýstu“ ofbeldismenn landsins. Erlent 31.1.2023 07:22 Biden segir „nei“ við þotum til handa Úkraínumönnum „Nei,“ svaraði Joe Biden Bandaríkjaforseti einfaldlega þegar hann var spurður að því í Hvíta húsinu í gær hvort Bandaríkjamenn myndu senda F-16 herþotur til Úkraínu. Úkraínumenn kalla nú eftir herþotum eftir að hafa verið lofað skriðdrekum. Erlent 31.1.2023 06:38 Fyrrverandi heimsmeistari annar þeirra látnu Kyle Smaine, fyrrverandi heimsmeistari í skíðum í hálfpípu (e. half-pipe), er annar þeirra sem létust í snjóflóði í Nagano-héraði í Japan í gær. Smaine var 31 árs gamall og hafði ekki keppt í skíðaíþróttum í fimm ár. Erlent 30.1.2023 16:36 Fjöldi lögregluþjóna dó í sprengjuárás í mosku Minnst 44 dóu og 150 særðust þegar maður sprengdi sig í loft upp í mosku í Peshawar í Pakistan í morgun. Flestir hinna látnu eru lögregluþjónar, þar sem moskan er við lögreglustöð. Erlent 30.1.2023 16:23 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við verðum að gera tímann að vopni okkar“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði í gærkvöldi eftir því að bakhjarlar ríkisins flýti vopnasendingum til landsins. Harðir bardagar geisa víða í austurhluta Úkraínu, þar sem Rússar virðast hafa gefið í á undanförnum dögum. Erlent 30.1.2023 15:00 Þrír letibirnir frusu í hel á belgískum flugvelli Þrír letibirnir frusu í hel eftir að þeir voru skildir eftir í flugvél á flugvellinum í Liège í Belgíu um helgina 21. og 22. janúar síðastliðinn. Erlent 30.1.2023 14:53 Tveir létu lífið í snjóflóði í Japan Tveir karlmenn létu lífið í snjóflóði í Nagano-héraði í Japan í gær. Mennirnir voru hluti af fimm manna hóp sem var að skíða í Hakuba Norikura-fjallinu en hinir þrír komust undan flóðinu. Erlent 30.1.2023 14:48 Talsmaður Pútíns segir Boris ljúga um meinta eldflaugarhótun Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, segir ekki rétt að Pútín hafi ógnað Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Boris sagði í nýrri heimildarþáttarröð BBC um átökin í Úkraínu og aðdraganda innrásar Rússa í landið að skömmu fyrir innrásina hefði Pútín ógnað sér og Bretlandi. Erlent 30.1.2023 11:52 « ‹ 179 180 181 182 183 184 185 186 187 … 334 ›
Búast við stórsókn Rússa í lok febrúar Varnarmálaráðherra Úkraínu fullyrðir að Rússar séu að undirbúa nýja stórsókn sem gæti hafist í lok þessa mánaðar eða í kringum 24. febrúar. Erlent 2.2.2023 07:09
Haley sögð munu tilkynna um forsetaframboð 15. febrúar Nikki Haley, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, er sögð munu tilkynna um framboð sitt til forseta 15. febrúar næstkomandi. Erlent 2.2.2023 06:58
Grunuð um að hafa myrt tvífara sinn Lögreglunni í þýsku borginni Ingolstadt var þann 16. ágúst í fyrra tilkynnt um hvarf 23 ára gamallar þýsk-írakskrar konu sem starfar sem áhrifavaldur. Stuttu síðar fannst bíll hennar í Ingolstadt. Í bílnum var lík konu með afmyndað andlit sem hafði verið stungin ítrekað. Foreldrar þýsk-íröksku konunnar töldu að um lík dóttur sinnar væri að ræða. Erlent 1.2.2023 17:07
Áfrýjun Tate-bræðra hafnað en þeir segjast saklausir Áfrýjun Andrew Tate og bróður hans, Tristan, var hafnað af áfrýjunardómstól Búkarest í dag. Þeir munu þurfa að dvelja í fangelsi þar til undir lok febrúar. Andrew öskraði á aðdáendur sína og fjölmiðla að hann væri saklaus þegar hann var leiddur inn í dómhús í dag. Erlent 1.2.2023 16:32
Alríkislögreglan leitar á heimili Bidens Alríkislögregla Bandaríkjanna leitar nú á heimili Joe Biden Bandaríkjaforseta í Delaware í tengslum við rannsókn embættisins á hvarfi leynilegra skjala. Þetta staðfestir lögmaður Bidens í yfirlýsingu. Erlent 1.2.2023 15:24
Hundruð þúsunda hafa lagt niður störf í dag Um hundrað þúsund opinberir starfsmenn á Bretlandi hafa lagt niður störf í dag, þar á meðal starfsmenn háskóla, kennarar og lestarstjórar. Þetta er fyrsta verkfallið sem farið er í á Bretlandi síðan 2016. Launafólk fer fram á launahækkanir til að bregðast við hækkandi verðlagi. Erlent 1.2.2023 15:01
Kynlífssvall og svefnleysi banar pokaköttum Niðurstöður nýrrar ástralskrar rannsóknar benda til að karlkyns pokakettir fórni svefni til að tryggja sér kynlíf og að þessi forgangsröðun spili stóran þátt í ótímabærum dauða þeirra. Rannsóknin bendir til að karldýrin ferðist langar vegalengdir í von um að finna kvendýr og sleppi því að sofa á meðan. Erlent 1.2.2023 13:37
Allt í volli í dýragarðinum í Dallas: Dýr að sleppa og grunsamlegur dauðdagi hrægamms Dularfull hvörf og grunsamlegur dauðdag hrægamms í dýragarðinum í Dallas eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni í borginni. Í gær komst í ljós að tveimur keisaratamarin öpum hafði verið stolið úr garðinum en skömmu fyrir það fannst hrægammur sem lést dularfullum dauðdaga. Erlent 1.2.2023 10:24
Þingmaðurinn ljúgandi hættir við nefndasetu Bandaríski þingmaðurinn George Santos mun ekki taka sæti í tveimur þingnefndum sem hann hafði verið skipaður í. Hann segist vilja bíða þar til búið væri að hreinsa hann af ásökunum um lygar í ferilskrá sinni og hefur beðið samflokksmenn sína afsökunar á „fjölmiðlafárinu“ sem myndast hefur í kringum hann. Erlent 1.2.2023 09:17
Vilja flytja út norskt gjafasæði til Íslands Livio í Noregi hefur sóst eftir því að hefja útflutning á norsku gjafasæði og horfir sérstaklega til Íslands og Svíþjóðar. Erlent 1.2.2023 09:01
Leit að geislavirkri nál í heystakki bar árangur í Ástralíu Yfirvöld í Ástralíu segjast nú hafa fundið agnarsmátt geislavirkt hylki sem týndist á dögunum. Erlent 1.2.2023 07:54
Neitaði oftar en 400 sinnum að svara spurningum saksóknara Donald Trump neitaði oftar en 400 sinnum að svara spurningum sem lagðar voru fyrir hann við yfirheyrslur vegna rannsóknar yfirvalda í New York. Þetta sést á myndskeiði af yfirheyrslunni sem CBS News hefur undir höndum. Erlent 1.2.2023 07:44
Tékklandsforseti vill Úkraínu í Nató um leið og stríðinu lýkur Nýkjörinn forseti Tékklands segist þeirrar skoðunar að Úkraína eigi að fá inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 1.2.2023 07:38
Leggja til að fangar fái að gefa líffæri gegn styttri afplánunartíma Tveir þingmenn í Massachusetts í Bandaríkjunum hafa lagt fram frumvarp sem kveður á um að fangar fái dóma sína mildaða gegn því að gefa beinmerg eða líffæri. Afplánunartíminn gæti þannig styst um 60 til 365 daga. Erlent 1.2.2023 07:03
Reyna að vekja dódó-fuglinn til lífsins Vísindamenn við Háskólann í Kaliforníu vilja vekja hinn útdauða dódó-fugl aftur til lífs en tegundin dó út á 17. öld. Með nýjum aðferðum við raðgreiningu erfðaefnis og nýjungum í genabreytingartækni telja vísindamennirnir að hægt sé að koma aftur upp stofni af dódó-fuglum. Erlent 31.1.2023 23:50
49 börn drukknuðu í skólaferð 51 manns létu lífið er bát hvolfdi á Tanda Dam-vatninu nærri borginni Kohat í Pakistan, þar af 49 börn. Börnin voru ásamt kennurum og skipstjóra í skólaferð á vatninu. Erlent 31.1.2023 23:08
Eldsvoði í Nuuk rannsakaður sem manndráp Lögreglan í Nuuk á Grænlandi hefur til rannsóknar andlát konu sem lét lífið í eldsvoða snemma í morgun. Grunur leikur á að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti. Erlent 31.1.2023 22:34
Alec Baldwin ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Í ákærunni er Baldwin gefið að sök að hafa brotið fjölda laga er hann miðaði byssu í átt að kvikmyndatökustjóranum Halyna Hutchins við tökur á kvikmyndinni Rust. Skot úr byssunni hæfði Hutchins sem lét lífið. Erlent 31.1.2023 21:46
Árásarmaður Pelosi: „Ég hefði átt að vera betur undirbúinn“ Maðurinn sem kærður hefur verið fyrir að hafa ráðist á Paul Pelosi í október síðastliðnum hringdi í fjölmiðla eftir birtingu myndbanda af árásinni. Í símtalinu virðist hann biðjast afsökunar á að hafa ekki staðið sig betur við verknaðinn. Erlent 31.1.2023 20:48
Íslendingurinn sem var stunginn í Noregi kominn til meðvitundar Íslensk kona sem var stungin af fyrrverandi eiginmanni sínum í Noregi fyrr í mánuðinum er komin til meðvitundar. Maðurinn, sem einnig er Íslendingur, er grunaður um tilraun til manndráps og hefur játað á sig árásina. Erlent 31.1.2023 19:07
Fimm til viðbótar reknir vegna dauða Nichols Tveimur lögreglumönnum, til viðbótar við þá fimm sem hafa þegar verið reknir, hefur verið sagt upp vegna dauða Tyre Nichols í Memphis í Bandaríkjunum. Þá hafa þrír sjúkraflutningamenn verið reknir fyrir að hafa ekki brugðist rétt við. Erlent 31.1.2023 14:36
Staðfest að 87 hafi látist í sprengingunni í Pakistan Yfirvöld í Pakistan hafa nú staðfest að 87 hafi látist í árás sjálfsvígssprengjumanns í mosku í pakistanska héraðinu Peshawar í gær. Erlent 31.1.2023 07:52
Fleiri en 600 handteknir í aðgerðum gegn heimilisofbeldi Fleiri en 600 einstaklingar hafa verið handteknir og ákærðir eftir fjögurra daga lögregluaðgerð í Ástralíu sem beindist gegn heimilisofbeldi. Meðal handteknu voru 164 einstaklingar sem lögregla segir hafa verið „mest eftirlýstu“ ofbeldismenn landsins. Erlent 31.1.2023 07:22
Biden segir „nei“ við þotum til handa Úkraínumönnum „Nei,“ svaraði Joe Biden Bandaríkjaforseti einfaldlega þegar hann var spurður að því í Hvíta húsinu í gær hvort Bandaríkjamenn myndu senda F-16 herþotur til Úkraínu. Úkraínumenn kalla nú eftir herþotum eftir að hafa verið lofað skriðdrekum. Erlent 31.1.2023 06:38
Fyrrverandi heimsmeistari annar þeirra látnu Kyle Smaine, fyrrverandi heimsmeistari í skíðum í hálfpípu (e. half-pipe), er annar þeirra sem létust í snjóflóði í Nagano-héraði í Japan í gær. Smaine var 31 árs gamall og hafði ekki keppt í skíðaíþróttum í fimm ár. Erlent 30.1.2023 16:36
Fjöldi lögregluþjóna dó í sprengjuárás í mosku Minnst 44 dóu og 150 særðust þegar maður sprengdi sig í loft upp í mosku í Peshawar í Pakistan í morgun. Flestir hinna látnu eru lögregluþjónar, þar sem moskan er við lögreglustöð. Erlent 30.1.2023 16:23
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við verðum að gera tímann að vopni okkar“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði í gærkvöldi eftir því að bakhjarlar ríkisins flýti vopnasendingum til landsins. Harðir bardagar geisa víða í austurhluta Úkraínu, þar sem Rússar virðast hafa gefið í á undanförnum dögum. Erlent 30.1.2023 15:00
Þrír letibirnir frusu í hel á belgískum flugvelli Þrír letibirnir frusu í hel eftir að þeir voru skildir eftir í flugvél á flugvellinum í Liège í Belgíu um helgina 21. og 22. janúar síðastliðinn. Erlent 30.1.2023 14:53
Tveir létu lífið í snjóflóði í Japan Tveir karlmenn létu lífið í snjóflóði í Nagano-héraði í Japan í gær. Mennirnir voru hluti af fimm manna hóp sem var að skíða í Hakuba Norikura-fjallinu en hinir þrír komust undan flóðinu. Erlent 30.1.2023 14:48
Talsmaður Pútíns segir Boris ljúga um meinta eldflaugarhótun Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, segir ekki rétt að Pútín hafi ógnað Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Boris sagði í nýrri heimildarþáttarröð BBC um átökin í Úkraínu og aðdraganda innrásar Rússa í landið að skömmu fyrir innrásina hefði Pútín ógnað sér og Bretlandi. Erlent 30.1.2023 11:52