Erlent Freista þess að takmarka réttinn til þungunarrofs við sex vikur Þingmenn Repúblikanaflokksins í báðum deildum ríkisþings Flórída hafa lagt fram frumvörp sem miða að því að takmarka rétt kvenna til þungunarrofs við sex vikur í stað fimmtán. Erlent 8.3.2023 08:18 Mynduðu aftöku óvopnaðs stríðsfanga Yfirvöld í Úkraínu rannsaka nú myndband sem birt var á samfélagsmiðlum í gær sem sýnir rússneska hermenn skjóta úkraínskan stríðsfanga til bana. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heitir því að hermennirnir muni finnast. Erlent 7.3.2023 23:02 Báru kennsl á Granby-stelpuna 45 árum eftir að hún var myrt Lögreglunni í Massachusetts hefur tekist að bera kennsl á lík konu sem í 45 ár hefur einungis verið þekkt sem „Granby-stelpan“. Notast var við DNA-sýni úr syni hennar sem var fimm ára gamall þegar hún hvarf. Erlent 7.3.2023 22:01 Mótmælendur ruddust inn í þinghús Georgíu Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Tiblisi, höfuðborg Georgíu, í kvöld. Mótmælendur hafa grýtt lögregluþjóna, kastað bensínsprengjum að þeim og reynt að ryðja sér leið inn í þinghúsið. Öryggissveitir hafa meðal annar beitt stórum vatnsbyssum og táragasi gegn mótmælendum. Erlent 7.3.2023 21:32 Gruna hóp tengdan Úkraínu um Nord Stream árásina Yfirvöld í Bandaríkjunum og Þýskalandi telja hóp manna sem tengjast Úkraínu bera ábyrgð á skemmdarverkum sem unnin voru á Nord Stream gasleiðslunum í Eystrasaltshafi. Leiðslurnar sem lágu frá Rússlandi til Þýskalandi eyðilögðust í sprengingu í fyrra. Erlent 7.3.2023 20:01 Enn efnt til mótmæla vegna hækkunar eftirlaunaaldursins Yfirvöld í Frakklandi undirbúa sig nú undir fjöldamótmæli og umfangsmiklar samgönguraskanir en starfsmenn í lestar- og flugsamgöngum hefja verkföll í dag. Boðað var til aðgerðanna vegna fyrirætlana stjórnvalda um að hækka eftirlaunaldurinn úr 62 í 64 ár. Erlent 7.3.2023 12:14 Stjórnarandstaðan sameinast um mótframbjóðanda gegn Erdogan Sex stjórnarandstöðuflokkar í Tyrklandi, sem jafnan hafa verið sundraðir í sínum störfum, hafa náð saman um forsetaframbjóðanda sem þeir vonast til að muni ná að koma Recep Tayyip Erdogan af forsetastóli í kosningunum sem fram fara í landinu í maí. Erlent 7.3.2023 11:57 Tveir létust í troðningi á tónleikum í New York Tveir tróðust undir og létust eftir að mikil ringulreið skapaðist á rapptónleikum í Rochester í New York-ríki á sunnudagskvöld. Einn er alvarlega slasaður. Erlent 7.3.2023 09:22 Gagnrýndi Vesturveldin en sagði samskiptin við Rússa til fyrirmyndar Nýskipaður utanríkisráðherra Kína, Qin Gang, var harðorður í garð Bandaríkjamanna á sínum fyrsta blaðamannafundi í nótt en fór hinsvegar fögrum orðum um samband Kína og Rússlands. Erlent 7.3.2023 08:46 Tveir táningar látnir eftir stunguárás í Danmörku Tveir táningar eru látnir og sá þriðji særðist í stunguárás sem varð í Taastrup, vestur af dönsku höfuðborginni Kaupmannahöfn, í gærkvöldi. Erlent 7.3.2023 07:48 Veitingarekstur í Japan í uppnámi vegna „sushi-terrorista“ Veitingakeðjur í Japan sem hafa boðið upp á sushi á færibandi íhuga nú að skipta yfir í hefðbundna þjónustu þar sem maturinn er borinn á borð af þjónum. Ástæðan er faraldur óprúttinna aðila sem leikur sér að því að eiga við matinn. Erlent 7.3.2023 07:41 Reyndi að opna neyðarútgang og stakk flugþjón Bandarískur karlmaður hefur verið kærður fyrir að hafa reynt að opna neyðarútgang farþegaþotu United á leið frá Los Angeles til Boston og að hafa stungið flugþjón í þrígang í hálsinn með brotinni skeið í gær. Erlent 6.3.2023 23:50 Bakhjarlar Úkraínu leggja til undanhald frá Bakhmut Úkraínumenn segjast ætla að halda Bakhmut í Dónetskhéraði, þrátt fyrir erfitt ástand þar og að Rússum hafi vaxið ásmegin. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fundaði með herforingjaráði Úkraínu þar sem talað var um að senda meiri liðsauka á svæðið. Erlent 6.3.2023 23:35 Lenti undir tré og lést Ganga skátadrengja í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum tók hræðilegan endi í gærmorgun. Móðir eins skátans lést í göngunni eftir að hafa orðið undir tréi sem féll. Erlent 6.3.2023 17:11 Tsikhanouskaja dæmd í fimmtán ára fangelsi Dómstóll í Hvíta-Rússlandi hefur dæmt Svetlönu Tsikhanouskaju, einn leiðtoga hvítrússnesku stjórnarandstöðunnar, í fimmtán ára fangelsi fyrir landráð. Hún var sakfelld fyrir að hafa ætlað sér að ræna völdum í landinu. Erlent 6.3.2023 13:20 Prigozhin segir menn sína óttast að verða gerðir að blórabögglum Stofnandi Wagner málaliðahópsins segir bardagamenn hópsins í Úkraínu ekki hafa fengið umsamin skotfæri frá Rússlandi og segir annað hvort um að ræða afleiðngar skrifræðis eða hrein og klár svik. Erlent 6.3.2023 12:50 Gripnir glóðvolgir við að stela úr tösku á Tenerife Tveir hlaðmenn á Reina Sofía flugvellinum á Tenerife hafa verið handteknir fyrir að stela úr tösku eins farþega. Íslendingar eru þó á því að fleiri hafi orðið fyrir barði þjófa á flugvellinum. Erlent 6.3.2023 10:20 Grunur um að kveikt hafi verið í stærstu flóttamannabúðum heims Yfirvöld í Bangladess rannsaka nú eldsupptök í flóttamannabúðum Rohingja en eldurinn breyddist stjórnlaust um byggðina og nú eru um 12 þúsund flóttamenn án húsaskjóls. Erlent 6.3.2023 08:26 Kínverjar setja aukið púður í herinn Kínverjar ætla að auka útgjöld sín til hermála á þessu ári um sjö prósent. Erlent 6.3.2023 08:19 Segja Rússa dusta rykið af 60 ára gömlum skriðdrekum Breska varnarmálaráðuneytið segir hermálayfirvöld í Rússlandi hafa dregið fram um það bil 800 T-62 skriðdreka úr geymslum sínum, sem eiga að koma í stað þeirra sem tapast hafa í Úkraínu. Erlent 6.3.2023 08:04 Flokkur Kaju Kallas vann kosningasigur í Eistlandi Umbótaflokkur Kaju Kallas, forsætisráðherra Eistlands, vann sigur í eistnesku þingkosningunum sem fram fóru í gær. Flokkurinn hlaut rúmlega 31 prósent atkvæða og verður stæsti flokkurinn á þingi. Erlent 6.3.2023 07:44 Johnson vill riddaratign fyrir pabba Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur skilað inn heiðurslista sínum þar sem hann óskar þess meðal annars að faðir hans, Stanley Johnson, fái riddaratign. Erlent 6.3.2023 07:10 Biðst fyrirgefningar vegna lestarslyssins Forsætisráðherra Grikklands hefur beðist fyrirgefningar vegna versta lestarslyss í sögu landsins. Minnst 57 létu lífið þegar tvær lestir, sem ekið var í gagnstæða átt á sama spori, skullu saman. Erlent 5.3.2023 18:38 Rússnesk stjórnvöld nema úkraínsk börn á brott og flytja þau til Rússlands Rússnesk stjórnvöld hafa numið hundruð úkraínskra barna á brott frá heimilum sínum á hernumdum svæðum í Úkraínu. Þeim er veittur rússneskur ríkisborgararéttur og rússneskar fjölskyldur ættleiða börnin, sem er ranglega sagt að foreldrar þeirra séu látnir. Erlent 5.3.2023 14:31 Andrew Tate blæs á krabbameinsorðróm Samfélagsmiðlastjarnan Andrew Tate segist ekki vera með krabbamein líkt og sögur sem ganga um á samfélagsmiðlum hafa kveðið um. Hann segist í raun vera með heilsu á við íþróttamann á Ólympíuleikunum. Erlent 5.3.2023 08:19 Sögulegu samkomulagi náð Eftir að hafa verið í viðræðum í tæplega tuttugu ár hafa aðildarríki Sameinuðu þjóðanna loksins komist að samkomulagi um að vernda vistkerfi í úthöfum jarðarinnar. Samningar náðust í New York í nótt. Erlent 5.3.2023 07:42 Farþegi einkaþotu lést í ókyrrð Einkaþota á flugi yfir Nýja Englandi í Bandaríkjunum með fimm innaborðs lenti í mikilli ókyrrð í gærkvöldi með þeim afleiðingum að einn farþeganna lét lífið. Erlent 4.3.2023 18:42 Fuglaflensa á 2.500 eggjabúum í 37 Evrópulöndum Meira og minna öll matvara hækkaði verulega á síðasta ári og jók verðbólgu víðast hvar í hinum vestræna heimi. Egg voru ein af þeim fæðutegundum sem hækkuðu hvað mest, en það má að miklu leyti rekja til skæðrar fuglaflensu sem greindist í 37 Evrópulöndum í fyrra. Erlent 4.3.2023 16:00 Fannst á lífi þrjátíu árum síðar í öðru landi Kona sem hvarf frá heimili sínu í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum fyrir þrjátíu árum síðar hefur fundist á lífi í Púertó Ríkó. Ekkert hafði heyrst frá henni allan þennan tíma, fyrir utan eitt bréf sem hún sendi nokkrum árum eftir hvarfið. Erlent 4.3.2023 13:55 Trump gefur út lag ásamt kór innrásarmanna Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur gefið út smáskífu ásamt kór manna sem hafa verið fangelsaðir fyrir að taka þátt í innrásinni í bandaríska þingið þann 6. janúar árið 2021. Erlent 4.3.2023 08:00 « ‹ 170 171 172 173 174 175 176 177 178 … 334 ›
Freista þess að takmarka réttinn til þungunarrofs við sex vikur Þingmenn Repúblikanaflokksins í báðum deildum ríkisþings Flórída hafa lagt fram frumvörp sem miða að því að takmarka rétt kvenna til þungunarrofs við sex vikur í stað fimmtán. Erlent 8.3.2023 08:18
Mynduðu aftöku óvopnaðs stríðsfanga Yfirvöld í Úkraínu rannsaka nú myndband sem birt var á samfélagsmiðlum í gær sem sýnir rússneska hermenn skjóta úkraínskan stríðsfanga til bana. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heitir því að hermennirnir muni finnast. Erlent 7.3.2023 23:02
Báru kennsl á Granby-stelpuna 45 árum eftir að hún var myrt Lögreglunni í Massachusetts hefur tekist að bera kennsl á lík konu sem í 45 ár hefur einungis verið þekkt sem „Granby-stelpan“. Notast var við DNA-sýni úr syni hennar sem var fimm ára gamall þegar hún hvarf. Erlent 7.3.2023 22:01
Mótmælendur ruddust inn í þinghús Georgíu Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Tiblisi, höfuðborg Georgíu, í kvöld. Mótmælendur hafa grýtt lögregluþjóna, kastað bensínsprengjum að þeim og reynt að ryðja sér leið inn í þinghúsið. Öryggissveitir hafa meðal annar beitt stórum vatnsbyssum og táragasi gegn mótmælendum. Erlent 7.3.2023 21:32
Gruna hóp tengdan Úkraínu um Nord Stream árásina Yfirvöld í Bandaríkjunum og Þýskalandi telja hóp manna sem tengjast Úkraínu bera ábyrgð á skemmdarverkum sem unnin voru á Nord Stream gasleiðslunum í Eystrasaltshafi. Leiðslurnar sem lágu frá Rússlandi til Þýskalandi eyðilögðust í sprengingu í fyrra. Erlent 7.3.2023 20:01
Enn efnt til mótmæla vegna hækkunar eftirlaunaaldursins Yfirvöld í Frakklandi undirbúa sig nú undir fjöldamótmæli og umfangsmiklar samgönguraskanir en starfsmenn í lestar- og flugsamgöngum hefja verkföll í dag. Boðað var til aðgerðanna vegna fyrirætlana stjórnvalda um að hækka eftirlaunaldurinn úr 62 í 64 ár. Erlent 7.3.2023 12:14
Stjórnarandstaðan sameinast um mótframbjóðanda gegn Erdogan Sex stjórnarandstöðuflokkar í Tyrklandi, sem jafnan hafa verið sundraðir í sínum störfum, hafa náð saman um forsetaframbjóðanda sem þeir vonast til að muni ná að koma Recep Tayyip Erdogan af forsetastóli í kosningunum sem fram fara í landinu í maí. Erlent 7.3.2023 11:57
Tveir létust í troðningi á tónleikum í New York Tveir tróðust undir og létust eftir að mikil ringulreið skapaðist á rapptónleikum í Rochester í New York-ríki á sunnudagskvöld. Einn er alvarlega slasaður. Erlent 7.3.2023 09:22
Gagnrýndi Vesturveldin en sagði samskiptin við Rússa til fyrirmyndar Nýskipaður utanríkisráðherra Kína, Qin Gang, var harðorður í garð Bandaríkjamanna á sínum fyrsta blaðamannafundi í nótt en fór hinsvegar fögrum orðum um samband Kína og Rússlands. Erlent 7.3.2023 08:46
Tveir táningar látnir eftir stunguárás í Danmörku Tveir táningar eru látnir og sá þriðji særðist í stunguárás sem varð í Taastrup, vestur af dönsku höfuðborginni Kaupmannahöfn, í gærkvöldi. Erlent 7.3.2023 07:48
Veitingarekstur í Japan í uppnámi vegna „sushi-terrorista“ Veitingakeðjur í Japan sem hafa boðið upp á sushi á færibandi íhuga nú að skipta yfir í hefðbundna þjónustu þar sem maturinn er borinn á borð af þjónum. Ástæðan er faraldur óprúttinna aðila sem leikur sér að því að eiga við matinn. Erlent 7.3.2023 07:41
Reyndi að opna neyðarútgang og stakk flugþjón Bandarískur karlmaður hefur verið kærður fyrir að hafa reynt að opna neyðarútgang farþegaþotu United á leið frá Los Angeles til Boston og að hafa stungið flugþjón í þrígang í hálsinn með brotinni skeið í gær. Erlent 6.3.2023 23:50
Bakhjarlar Úkraínu leggja til undanhald frá Bakhmut Úkraínumenn segjast ætla að halda Bakhmut í Dónetskhéraði, þrátt fyrir erfitt ástand þar og að Rússum hafi vaxið ásmegin. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, fundaði með herforingjaráði Úkraínu þar sem talað var um að senda meiri liðsauka á svæðið. Erlent 6.3.2023 23:35
Lenti undir tré og lést Ganga skátadrengja í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum tók hræðilegan endi í gærmorgun. Móðir eins skátans lést í göngunni eftir að hafa orðið undir tréi sem féll. Erlent 6.3.2023 17:11
Tsikhanouskaja dæmd í fimmtán ára fangelsi Dómstóll í Hvíta-Rússlandi hefur dæmt Svetlönu Tsikhanouskaju, einn leiðtoga hvítrússnesku stjórnarandstöðunnar, í fimmtán ára fangelsi fyrir landráð. Hún var sakfelld fyrir að hafa ætlað sér að ræna völdum í landinu. Erlent 6.3.2023 13:20
Prigozhin segir menn sína óttast að verða gerðir að blórabögglum Stofnandi Wagner málaliðahópsins segir bardagamenn hópsins í Úkraínu ekki hafa fengið umsamin skotfæri frá Rússlandi og segir annað hvort um að ræða afleiðngar skrifræðis eða hrein og klár svik. Erlent 6.3.2023 12:50
Gripnir glóðvolgir við að stela úr tösku á Tenerife Tveir hlaðmenn á Reina Sofía flugvellinum á Tenerife hafa verið handteknir fyrir að stela úr tösku eins farþega. Íslendingar eru þó á því að fleiri hafi orðið fyrir barði þjófa á flugvellinum. Erlent 6.3.2023 10:20
Grunur um að kveikt hafi verið í stærstu flóttamannabúðum heims Yfirvöld í Bangladess rannsaka nú eldsupptök í flóttamannabúðum Rohingja en eldurinn breyddist stjórnlaust um byggðina og nú eru um 12 þúsund flóttamenn án húsaskjóls. Erlent 6.3.2023 08:26
Kínverjar setja aukið púður í herinn Kínverjar ætla að auka útgjöld sín til hermála á þessu ári um sjö prósent. Erlent 6.3.2023 08:19
Segja Rússa dusta rykið af 60 ára gömlum skriðdrekum Breska varnarmálaráðuneytið segir hermálayfirvöld í Rússlandi hafa dregið fram um það bil 800 T-62 skriðdreka úr geymslum sínum, sem eiga að koma í stað þeirra sem tapast hafa í Úkraínu. Erlent 6.3.2023 08:04
Flokkur Kaju Kallas vann kosningasigur í Eistlandi Umbótaflokkur Kaju Kallas, forsætisráðherra Eistlands, vann sigur í eistnesku þingkosningunum sem fram fóru í gær. Flokkurinn hlaut rúmlega 31 prósent atkvæða og verður stæsti flokkurinn á þingi. Erlent 6.3.2023 07:44
Johnson vill riddaratign fyrir pabba Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur skilað inn heiðurslista sínum þar sem hann óskar þess meðal annars að faðir hans, Stanley Johnson, fái riddaratign. Erlent 6.3.2023 07:10
Biðst fyrirgefningar vegna lestarslyssins Forsætisráðherra Grikklands hefur beðist fyrirgefningar vegna versta lestarslyss í sögu landsins. Minnst 57 létu lífið þegar tvær lestir, sem ekið var í gagnstæða átt á sama spori, skullu saman. Erlent 5.3.2023 18:38
Rússnesk stjórnvöld nema úkraínsk börn á brott og flytja þau til Rússlands Rússnesk stjórnvöld hafa numið hundruð úkraínskra barna á brott frá heimilum sínum á hernumdum svæðum í Úkraínu. Þeim er veittur rússneskur ríkisborgararéttur og rússneskar fjölskyldur ættleiða börnin, sem er ranglega sagt að foreldrar þeirra séu látnir. Erlent 5.3.2023 14:31
Andrew Tate blæs á krabbameinsorðróm Samfélagsmiðlastjarnan Andrew Tate segist ekki vera með krabbamein líkt og sögur sem ganga um á samfélagsmiðlum hafa kveðið um. Hann segist í raun vera með heilsu á við íþróttamann á Ólympíuleikunum. Erlent 5.3.2023 08:19
Sögulegu samkomulagi náð Eftir að hafa verið í viðræðum í tæplega tuttugu ár hafa aðildarríki Sameinuðu þjóðanna loksins komist að samkomulagi um að vernda vistkerfi í úthöfum jarðarinnar. Samningar náðust í New York í nótt. Erlent 5.3.2023 07:42
Farþegi einkaþotu lést í ókyrrð Einkaþota á flugi yfir Nýja Englandi í Bandaríkjunum með fimm innaborðs lenti í mikilli ókyrrð í gærkvöldi með þeim afleiðingum að einn farþeganna lét lífið. Erlent 4.3.2023 18:42
Fuglaflensa á 2.500 eggjabúum í 37 Evrópulöndum Meira og minna öll matvara hækkaði verulega á síðasta ári og jók verðbólgu víðast hvar í hinum vestræna heimi. Egg voru ein af þeim fæðutegundum sem hækkuðu hvað mest, en það má að miklu leyti rekja til skæðrar fuglaflensu sem greindist í 37 Evrópulöndum í fyrra. Erlent 4.3.2023 16:00
Fannst á lífi þrjátíu árum síðar í öðru landi Kona sem hvarf frá heimili sínu í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum fyrir þrjátíu árum síðar hefur fundist á lífi í Púertó Ríkó. Ekkert hafði heyrst frá henni allan þennan tíma, fyrir utan eitt bréf sem hún sendi nokkrum árum eftir hvarfið. Erlent 4.3.2023 13:55
Trump gefur út lag ásamt kór innrásarmanna Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur gefið út smáskífu ásamt kór manna sem hafa verið fangelsaðir fyrir að taka þátt í innrásinni í bandaríska þingið þann 6. janúar árið 2021. Erlent 4.3.2023 08:00