Erlent Xi lentur í Moskvu Xi Jinping, forseti Kína, er lentur í Moskvu. Hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta í dag og í kvöld munu þeir snæða saman kvöldverð. Erlent 20.3.2023 11:14 Í viðbragðsstöðu með bóluefni gegn fuglaflensu Lyfjafyrirtæki telja sig geta framleitt hundruð milljóna skammta af bóluefni gegn fuglaflensu fyrir menn á nokkrum mánuðum ef nýtt afbrigði kemur fram sem getur borist á milli manna. Heilbrigðisyfirvöld telja líkurnar á því enn litlar. Erlent 20.3.2023 10:05 Salman sagður hafa boðið Raisi í opinbera heimsókn Mohammad Jamshidi, háttsettur embættismaður í Íran, segir Salman bin Abdul Aziz al-Sád, konung Sádi Arabíu, hafa boðið Ebrahim Raisi, forseta Íran, í opinbera heimsókn. Erlent 20.3.2023 09:21 Ætlaði að opna fyrir bankandi gesti en var bitinn af krókódíl Karlmaður í Flórída-fylki í Bandaríkjunum var bitinn af krókódíl í lærið er hann opnaði útidyrahurð sína eftir að hafa heyrt þar bank. Hann hlaut ekki lífshættulega áverka. Erlent 20.3.2023 09:09 Æfðu kjarnorkuárás á Suður-Kóreu Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafði umsjón með æfingum hersins fyrir kjarnorkugagnárás á Suður-Kóreu um helgina. Yfirlýst markmið æfinganna var að slá ótta í brjóst fjandríkja landsins. Erlent 20.3.2023 09:04 Líkamsleifar pilts grafnar upp vegna Murdaugh-málsins Til stendur að grafa upp líkamsleifar Stephen Smith, sem var 19 ára þegar hann fannst látinn á sveitavegi nærri Moselle, heimili lögmannsins Alex Murdaugh. Fyrir tveimur vikum var Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt son sinn og eiginkonu. Erlent 20.3.2023 07:47 Munu eiga óformlegan fund í dag og snæða saman í kvöld Xi Jinping, forseti Kína, er væntanlegur til Moskvu eftir hádegi í dag þar sem hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta og snæða með honum kvöldverð. Erlent 20.3.2023 06:52 Grófu undan endurkjöri Carters og spiluðu með líf fimmtíu og tveggja gísla Fyrir rúmum fjórum áratugum tóku Demókratar á vegum Repúblikanans Ronalds Reagans þátt í því að koma í veg fyrir endurkjör Jimmy Carter, þáverandi forseta, með því að spila með líf 52 bandarískra gísla í Íran. Maður sem heitir Ben Barnes viðurkenndi nýverið að hann hefði tekið þátt í þessu verkefni. Erlent 19.3.2023 16:52 Ekkert lát á mótmælum í Frakklandi Ekkert lát er á mótmælum í Frakklandi vegna ákvörðunar forsetans Emmanuel Macron um að þröngva hækkun á eftirlaunaaldri þar í landi í gegnum þingið. Íbúar héldu út á götu í gærkvöldi, þriðja kvöldið í röð, og til átaka hefur komið milli mótmælenda og lögreglu. Erlent 19.3.2023 15:05 Grísk lögregla rænir og misþyrmir hælisleitendum kerfisbundið Gríska lögreglan misþyrmir og rænir flóttafólk með skipulögðum hætti. Hún hefur á síðustu árum stolið meira en tveimur milljónum evra af fólkinu. Grísk stjórnvöld hafa ennfremur flutt meira en 20.000 flóttamenn yfir til Tyrklands með ólögmætum hætti. Erlent 19.3.2023 14:31 Enn einni eldflauginni skotið frá Norður-Kóreu Enn einni eldflauginni var skotið frá Norður-Kóreu í morgun. Að þessu sinni var um að ræða skammdræga eldflaug og var henni skotið til austurs, á haf út frá Kóreuskaganum. Erlent 19.3.2023 10:07 Pútín fór óvænt til Maríupól í nótt Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór í óvænta heimsókn til Maríupól í Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Pútín heimsækir nýlega hernumin svæði í Úkraínu, en hann ferðaðist til Krímskaga í gær. Erlent 19.3.2023 08:05 Tala látinna í Ekvador fer hækkandi: Hlupu skelfingu lostin út á götu Tala látinna vegna jarðskjálftans sem skók Ekvador og norðurhluta Perú í dag fer hækkandi. Þrettán hafa látið lífið og fleiri einstaklingar eru særðir. Fjölmargar byggingar skemmdust í skjálftanum. Erlent 19.3.2023 00:15 Minnst fjögur látin eftir að jarðskjálfti skók Ekvador Að minnsta kosti fjögur létu lífið í kjölfar jarðskjálfta að stærð reið yfir Ekvador í dag. Jarðskjálftinn átti upptök á um 65 kílómetra dýpi í grennd við bæinn Baláo. Erlent 18.3.2023 21:32 Pútin heldur upp á ólöglega innlimun Krímskaga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti óvænt á Krímskaga í dag. Þangað ku hann vera mættur til að halda upp á að níu ár eru frá „endursameiningu“ Krímskaga og Rússlands. Erlent 18.3.2023 14:56 Telur sig loks hafa fundið móður Leonardos Da Vinci Ítalskur sagnfræðingur hefur leyst meira en 500 ára ráðgátu um hver var móðir endurreisnarmálarans Leonardos Da Vinci. Hún var prinsessa og þræll sem rænt var frá heimkynnum sínum í barnæsku. Erlent 18.3.2023 14:30 Fundu líkamsleifar konu í frysti Lögreglan í Vermalandi í Svíþjóð fann hluta af líki konu í frystikistu á sveitabæ í fyrradag. Talið er að líkið hafi verið í frystinum í fjölda ára og karlmaður er sagður hafa játað að hafa myrt konuna. Erlent 18.3.2023 13:32 Trump segir að hann verði handtekinn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að hann verði handtekinn á þriðjudaginn. Það verði gert vegna rannsóknar á greiðslum hans til tveggja kvenna í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 18.3.2023 12:40 Biden segir augljóst að Pútín sé sekur um stríðsglæpi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafi í gær gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Pútín er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjöldi barna hafi verið flutt frá Úkraínu til Rússlands en Biden sagði augljóst að svo væri. Erlent 18.3.2023 09:57 Uppruni Covid: Spjótin beinast að marðarhundum en mikilvæg gögn hurfu Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýndi kínverska embættismenn í gær fyrir að hylma yfir rannsóknir sem gætu varpað ljósi á uppruna Covid-19. Forsvarsmenn WHO spurðu af hverju gögn sem birtust á netinu í janúar og hurfu aftur þegar vísindamenn fóru að spyrjast fyrir um þau, voru ekki birt strax fyrir þremur árum og af hverju þau voru fjarlægð aftur. Erlent 18.3.2023 07:52 Unglingur skaut tvo lögreglumenn til bana Sextán ára drengur skaut tvo lögreglumenn til bana í Edmonton í Kanada í gær. Því næst skaut hann sjálfan sig einnig til bana. Erlent 17.3.2023 22:16 Erdogan segist styðja aðild Finna að NATO Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði í dag að tyrkneska þingið myndi greiða atkvæði um að samþykkja umsókn Finnlands um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Ekki stendur til að samþykkja aðild Svía að svo stöddu og eru auknar líkur á því að Finnar gangi einir í NATO í bili. Erlent 17.3.2023 16:13 Gefa út handtökuskipun á hendur Pútín Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafa gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Handtökuskipunin er gefin út vegna fjölda úkraínska barna sem rænt hefur verið til Rússlands. Erlent 17.3.2023 15:23 Ætla að granda herþotum sem sendar verða til Úkraínu Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að granda herþotum sem bakhjarlar Úkraínu gefa Úkraínumönnum. Pólverjar tilkynntu í gær að þeir ætluðu að senda minnst ellefu gamlar MiG-29 orrustuþotur til Úkraínu og ríkisstjórn Slóvakíu tilkynnti svo í dag að þaðan yrðu sendar þrettán þotur af sömu gerð. Erlent 17.3.2023 14:29 Málaliðar Wagner lýsa hryllilegum átökum við Bakhmut Ráðamenn á Vesturlöndum segja þúsundir rússneskra fanga, sem ráðnir hafa verið úr fangelsum landsins til að berjast fyrir málaliðahópinn Wagner Group, hafa fallið í átökum í Úkraínu. Föngunum var boðið frelsi í skiptum fyrir sex mánaða þjónustu og hefur fjölda fanga verið sleppt. Erlent 17.3.2023 12:08 Stal þyrlu en brotlenti henni strax Misheppnaður þyrluþjófur reyndi að ræsa fjórar þyrlur á flugvelli í Sacramento í Bandaríkjunum á miðvikudagsmorgun. Honum tókst að ræsa eina þeirra en brotlenti henni um leið og hann tók á loft. Erlent 17.3.2023 10:19 Knattspyrnumenn 50 prósent líklegri til að fá heilabilun Knattspyrnumenn eru 50 prósent líklegri til að fá heilabilun en annað fólk ef marka má nýja rannsókn við Karolinska-sjúkrahúsið í Svíþjóð. Niðurstöðurnar benda til þess að mögulega ætti að setja reglur um „skalla“ á knattspyrnuvellinum. Erlent 17.3.2023 09:17 Afstaða annarra óbreytt þrátt fyrir ákvörðun Pólverja Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í samtali við TV2 í gær að samræður ættu sér stað milli stjórnvalda á Vesturlöndum um þann möguleika að sjá Úkraínumönnum fyrir orrustuþotum. Erlent 17.3.2023 07:58 Xi heimsækir Pútín eftir helgi Xi Jinping Kínaforseti mun halda í opinbera heimsókn til Rússlands í næstu viku þar sem hann mun meðal annars eiga fundi með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Erlent 17.3.2023 07:45 Átök í París eftir ákvörðun um að þröngva umdeildu frumvarpi í gegnum þingið Til átaka kom á milli lögreglunnar í París og fleiri borgum Frakklands og mótmælenda í gærkvöldi eftir að ríkisstjórn Emmanuels Macrons forseta ákvað að þröngva breytingum á eftirlaunakerfinu í gegnum franska þingið án þess að greiða um það atkvæði. Erlent 17.3.2023 07:31 « ‹ 166 167 168 169 170 171 172 173 174 … 334 ›
Xi lentur í Moskvu Xi Jinping, forseti Kína, er lentur í Moskvu. Hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta í dag og í kvöld munu þeir snæða saman kvöldverð. Erlent 20.3.2023 11:14
Í viðbragðsstöðu með bóluefni gegn fuglaflensu Lyfjafyrirtæki telja sig geta framleitt hundruð milljóna skammta af bóluefni gegn fuglaflensu fyrir menn á nokkrum mánuðum ef nýtt afbrigði kemur fram sem getur borist á milli manna. Heilbrigðisyfirvöld telja líkurnar á því enn litlar. Erlent 20.3.2023 10:05
Salman sagður hafa boðið Raisi í opinbera heimsókn Mohammad Jamshidi, háttsettur embættismaður í Íran, segir Salman bin Abdul Aziz al-Sád, konung Sádi Arabíu, hafa boðið Ebrahim Raisi, forseta Íran, í opinbera heimsókn. Erlent 20.3.2023 09:21
Ætlaði að opna fyrir bankandi gesti en var bitinn af krókódíl Karlmaður í Flórída-fylki í Bandaríkjunum var bitinn af krókódíl í lærið er hann opnaði útidyrahurð sína eftir að hafa heyrt þar bank. Hann hlaut ekki lífshættulega áverka. Erlent 20.3.2023 09:09
Æfðu kjarnorkuárás á Suður-Kóreu Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafði umsjón með æfingum hersins fyrir kjarnorkugagnárás á Suður-Kóreu um helgina. Yfirlýst markmið æfinganna var að slá ótta í brjóst fjandríkja landsins. Erlent 20.3.2023 09:04
Líkamsleifar pilts grafnar upp vegna Murdaugh-málsins Til stendur að grafa upp líkamsleifar Stephen Smith, sem var 19 ára þegar hann fannst látinn á sveitavegi nærri Moselle, heimili lögmannsins Alex Murdaugh. Fyrir tveimur vikum var Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt son sinn og eiginkonu. Erlent 20.3.2023 07:47
Munu eiga óformlegan fund í dag og snæða saman í kvöld Xi Jinping, forseti Kína, er væntanlegur til Moskvu eftir hádegi í dag þar sem hann mun eiga óformlegan fund með Vladimir Pútín Rússlandsforseta og snæða með honum kvöldverð. Erlent 20.3.2023 06:52
Grófu undan endurkjöri Carters og spiluðu með líf fimmtíu og tveggja gísla Fyrir rúmum fjórum áratugum tóku Demókratar á vegum Repúblikanans Ronalds Reagans þátt í því að koma í veg fyrir endurkjör Jimmy Carter, þáverandi forseta, með því að spila með líf 52 bandarískra gísla í Íran. Maður sem heitir Ben Barnes viðurkenndi nýverið að hann hefði tekið þátt í þessu verkefni. Erlent 19.3.2023 16:52
Ekkert lát á mótmælum í Frakklandi Ekkert lát er á mótmælum í Frakklandi vegna ákvörðunar forsetans Emmanuel Macron um að þröngva hækkun á eftirlaunaaldri þar í landi í gegnum þingið. Íbúar héldu út á götu í gærkvöldi, þriðja kvöldið í röð, og til átaka hefur komið milli mótmælenda og lögreglu. Erlent 19.3.2023 15:05
Grísk lögregla rænir og misþyrmir hælisleitendum kerfisbundið Gríska lögreglan misþyrmir og rænir flóttafólk með skipulögðum hætti. Hún hefur á síðustu árum stolið meira en tveimur milljónum evra af fólkinu. Grísk stjórnvöld hafa ennfremur flutt meira en 20.000 flóttamenn yfir til Tyrklands með ólögmætum hætti. Erlent 19.3.2023 14:31
Enn einni eldflauginni skotið frá Norður-Kóreu Enn einni eldflauginni var skotið frá Norður-Kóreu í morgun. Að þessu sinni var um að ræða skammdræga eldflaug og var henni skotið til austurs, á haf út frá Kóreuskaganum. Erlent 19.3.2023 10:07
Pútín fór óvænt til Maríupól í nótt Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fór í óvænta heimsókn til Maríupól í Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Pútín heimsækir nýlega hernumin svæði í Úkraínu, en hann ferðaðist til Krímskaga í gær. Erlent 19.3.2023 08:05
Tala látinna í Ekvador fer hækkandi: Hlupu skelfingu lostin út á götu Tala látinna vegna jarðskjálftans sem skók Ekvador og norðurhluta Perú í dag fer hækkandi. Þrettán hafa látið lífið og fleiri einstaklingar eru særðir. Fjölmargar byggingar skemmdust í skjálftanum. Erlent 19.3.2023 00:15
Minnst fjögur látin eftir að jarðskjálfti skók Ekvador Að minnsta kosti fjögur létu lífið í kjölfar jarðskjálfta að stærð reið yfir Ekvador í dag. Jarðskjálftinn átti upptök á um 65 kílómetra dýpi í grennd við bæinn Baláo. Erlent 18.3.2023 21:32
Pútin heldur upp á ólöglega innlimun Krímskaga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti óvænt á Krímskaga í dag. Þangað ku hann vera mættur til að halda upp á að níu ár eru frá „endursameiningu“ Krímskaga og Rússlands. Erlent 18.3.2023 14:56
Telur sig loks hafa fundið móður Leonardos Da Vinci Ítalskur sagnfræðingur hefur leyst meira en 500 ára ráðgátu um hver var móðir endurreisnarmálarans Leonardos Da Vinci. Hún var prinsessa og þræll sem rænt var frá heimkynnum sínum í barnæsku. Erlent 18.3.2023 14:30
Fundu líkamsleifar konu í frysti Lögreglan í Vermalandi í Svíþjóð fann hluta af líki konu í frystikistu á sveitabæ í fyrradag. Talið er að líkið hafi verið í frystinum í fjölda ára og karlmaður er sagður hafa játað að hafa myrt konuna. Erlent 18.3.2023 13:32
Trump segir að hann verði handtekinn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að hann verði handtekinn á þriðjudaginn. Það verði gert vegna rannsóknar á greiðslum hans til tveggja kvenna í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 18.3.2023 12:40
Biden segir augljóst að Pútín sé sekur um stríðsglæpi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafi í gær gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Pútín er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjöldi barna hafi verið flutt frá Úkraínu til Rússlands en Biden sagði augljóst að svo væri. Erlent 18.3.2023 09:57
Uppruni Covid: Spjótin beinast að marðarhundum en mikilvæg gögn hurfu Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýndi kínverska embættismenn í gær fyrir að hylma yfir rannsóknir sem gætu varpað ljósi á uppruna Covid-19. Forsvarsmenn WHO spurðu af hverju gögn sem birtust á netinu í janúar og hurfu aftur þegar vísindamenn fóru að spyrjast fyrir um þau, voru ekki birt strax fyrir þremur árum og af hverju þau voru fjarlægð aftur. Erlent 18.3.2023 07:52
Unglingur skaut tvo lögreglumenn til bana Sextán ára drengur skaut tvo lögreglumenn til bana í Edmonton í Kanada í gær. Því næst skaut hann sjálfan sig einnig til bana. Erlent 17.3.2023 22:16
Erdogan segist styðja aðild Finna að NATO Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði í dag að tyrkneska þingið myndi greiða atkvæði um að samþykkja umsókn Finnlands um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Ekki stendur til að samþykkja aðild Svía að svo stöddu og eru auknar líkur á því að Finnar gangi einir í NATO í bili. Erlent 17.3.2023 16:13
Gefa út handtökuskipun á hendur Pútín Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafa gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Handtökuskipunin er gefin út vegna fjölda úkraínska barna sem rænt hefur verið til Rússlands. Erlent 17.3.2023 15:23
Ætla að granda herþotum sem sendar verða til Úkraínu Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að granda herþotum sem bakhjarlar Úkraínu gefa Úkraínumönnum. Pólverjar tilkynntu í gær að þeir ætluðu að senda minnst ellefu gamlar MiG-29 orrustuþotur til Úkraínu og ríkisstjórn Slóvakíu tilkynnti svo í dag að þaðan yrðu sendar þrettán þotur af sömu gerð. Erlent 17.3.2023 14:29
Málaliðar Wagner lýsa hryllilegum átökum við Bakhmut Ráðamenn á Vesturlöndum segja þúsundir rússneskra fanga, sem ráðnir hafa verið úr fangelsum landsins til að berjast fyrir málaliðahópinn Wagner Group, hafa fallið í átökum í Úkraínu. Föngunum var boðið frelsi í skiptum fyrir sex mánaða þjónustu og hefur fjölda fanga verið sleppt. Erlent 17.3.2023 12:08
Stal þyrlu en brotlenti henni strax Misheppnaður þyrluþjófur reyndi að ræsa fjórar þyrlur á flugvelli í Sacramento í Bandaríkjunum á miðvikudagsmorgun. Honum tókst að ræsa eina þeirra en brotlenti henni um leið og hann tók á loft. Erlent 17.3.2023 10:19
Knattspyrnumenn 50 prósent líklegri til að fá heilabilun Knattspyrnumenn eru 50 prósent líklegri til að fá heilabilun en annað fólk ef marka má nýja rannsókn við Karolinska-sjúkrahúsið í Svíþjóð. Niðurstöðurnar benda til þess að mögulega ætti að setja reglur um „skalla“ á knattspyrnuvellinum. Erlent 17.3.2023 09:17
Afstaða annarra óbreytt þrátt fyrir ákvörðun Pólverja Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í samtali við TV2 í gær að samræður ættu sér stað milli stjórnvalda á Vesturlöndum um þann möguleika að sjá Úkraínumönnum fyrir orrustuþotum. Erlent 17.3.2023 07:58
Xi heimsækir Pútín eftir helgi Xi Jinping Kínaforseti mun halda í opinbera heimsókn til Rússlands í næstu viku þar sem hann mun meðal annars eiga fundi með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Erlent 17.3.2023 07:45
Átök í París eftir ákvörðun um að þröngva umdeildu frumvarpi í gegnum þingið Til átaka kom á milli lögreglunnar í París og fleiri borgum Frakklands og mótmælenda í gærkvöldi eftir að ríkisstjórn Emmanuels Macrons forseta ákvað að þröngva breytingum á eftirlaunakerfinu í gegnum franska þingið án þess að greiða um það atkvæði. Erlent 17.3.2023 07:31