Erlent Lyfjaskortur í Bandaríkjunum eykst um 30 prósent Lyfjaskortur í Bandaríkjunum jókst um 30 prósent á síðasta ári samanborið við árið 2021. Meðalbiðtími eftir því að lyf yrðu aftur fáanleg voru átján mánuðir en lyf hafa verið ófáanleg í allt að fimmtán ár. Erlent 23.3.2023 11:54 Segir málaferli gegn Paltrow vera „kjaftæði“ Lögmaður Gwyneth Paltrow, lýsti í vikunni dómsmáli sem höfðað hefur verið gegn leik- og athafnakonunni sem „kjaftæði“. Réttarhöldin í máli manns sem sakað hefur Paltrow um að hafa rutt sig niður á skíðum í Utah í Bandaríkjunum árið 2016 hófust á þriðjudaginn. Erlent 23.3.2023 11:06 Lögmaður Trumps þarf að afhenda skjöl og bera vitni Lögmaður Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, þarf að afhenda öll skjöl sín sem tengjast rannsókn á meðhöndlun forsetans á opinberum og leynilegum skjölum til rannsakenda, M. Evan Corcoran, umræddur lögmaður, þarf einnig að bera vitni fyrir ákærudómstól vegna rannsóknarinnar. Erlent 23.3.2023 10:14 Ákærður fyrir að halda úti vefsíðu og framkvæma og sýna geldingar Marius nokkur Gustavson, 45 ára, mætti fyrir dómstól í Lundúnum í gær en hann er grunaður um að hafa sýnt frá geldingum og öðrum aflimunum á vefsíðu sinni og innheimt gjald af áhorfendum. Erlent 23.3.2023 08:49 Fimm særðir eftir skotárás manns á Grænlandi Fimm eru særðir eftir að maður hóf skotárás við þyrluflugvöllinn í Narsaq á suðvesturströnd Grænlands í gær. Erlent 23.3.2023 07:51 „Myndi 100 prósent láta svæðin aftur í hendur Úkraínu“ Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og mögulegur forsetaframbjóðandi, segir orð sín um stríðið í Úkraínu hafa verið misskilin og að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé sannarlega stríðsglæpamaður. Erlent 23.3.2023 07:13 Boris segir samkomurnar hafa verið nauðsynlegar Boris Johnson svaraði fyrir „Partygate“ málið svokallaða fyrir þingnefnd í dag. Þar sagði hann að allar samkomur sem haldnar voru á Downingstræti 10, á meðan samkomutakmarkanir voru í gildi, hafi verið nauðsynlegar. Erlent 23.3.2023 00:15 Myndir af eldflaugaárás Rússa á fjölbýlishús Rússar skutu eldflaug á fjölbýlishús í Zaporizhzhia í Úkraínu í dag. Sprengingin náðist á eftirlitsmyndavél og var mjög kröftug eins og þar sést. Erlent 22.3.2023 20:01 Deila vegna hundaleikfangs, viskís og hundaskíts ratar til Hæstaréttar Hæstiréttur Bandaríkjanna tekur í dag fyrir mál Jack Daniels gegn framleiðendum hundaleikfangs sem lítur út eins og viskíflöskur. Lögmenn brugghússins segja hundaleikfangið tengja viskíið við hundaskít. Erlent 22.3.2023 16:59 Ákærður fyrir morðið á Miu 37 ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir morðið á hinni 22 ára gömlu Miu Skadhauge Stevn í Álaborg í Danmörku fyrir rúmu ári síðan. Maðurinn kveðst vera saklaus. Erlent 22.3.2023 14:25 Stöðva sýningu hryllingsmyndar um Bangsímon í Hong Kong Búið er að stöðva sýningar hryllingsmyndarinnar Winnie The Pooh: Blood and Honey, eða Bangsímon: Blóð og hunang, í Hong Kong. Bangsímon hefur lengi verið óvinsæll í Kína vegna gríns um að hann og Xi Jinping, forseti, séu líkir. Erlent 22.3.2023 12:11 Héldu handjárnuðum manni niðri í ellefu mínútur þar til hann dó Héraðssaksóknari í Virginíu í Bandaríkjunum hefur ákært sjö lögregluþjóna og þrjá starfsmenn sjúkrahúss fyrir morð. Myndbönd úr öryggisvélum sýna hvernig hópur manna hélt handjárnuðum Irvo Otieno niðri í um ellefu mínútur, þar til hann dó. Erlent 22.3.2023 10:48 Öfgafull fjölkærni sæfíla gæti orsakað ótímabær dauðsföll Rannsókn vísindamanna við Háskólann í Tasmaníu hefur leitt í ljós að pressan á bak við „öfgafulla fjölkærni“ sæfíla í suðvestur Kyrrahafi gæti orsakað því að lífslíkur karldýra hrynji stuttu eftir kynþroska. Erlent 22.3.2023 09:04 Trump sagður spenntur fyrir því að vera handjárnaður Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður vera spenntur fyrir því að birtast handjárnaður í dómsal ef svo fer að hann verður handtekinn fyrir þátt sinn í því að hafa greitt klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels mútur. Erlent 22.3.2023 08:07 Öflugur skjálfti í Afganistan og Pakistan Að minnsta kosti 12 eru látnir og tugir slasaðir eftir að jarðskjálfti sem mældist 6,5 stig reið yfir í Pakistan og Afganistan í gærkvöldi. Erlent 22.3.2023 07:26 Ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu Bandaríkjamenn segja ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu. „Það er ekki á neinn hátt raunhæft að ætla Kínverjum að vera hlutlausir,“ sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, í gær. Erlent 22.3.2023 07:11 Rússar reyna að fá hernaðarstuðning frá Kína Forsetar Kína og Rússlands hafa talað almennt um að efla samskipti þjóðanna á fundi símum í Moskvu í dag en ekkert hefur komið fram um hernaðaraðstoð. Rússar eru mun háðari Kína en áður á ýmsum sviðum vegna refsiaðgerða Vesturlanda. Erlent 21.3.2023 19:41 Fá eldri skriðdreka en fá þá fyrr Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að flýta skriðdrekasendingum til Úkraínu. Í stað þess að senda nýja M1A2 Abrams skriðdreka, sem mun taka allt að tvö ár, stendur til að gera upp og senda eldri týpur. Erlent 21.3.2023 17:09 Thunberg fær að stefna sænska ríkinu fyrir seinagang Héraðsdómstóll í Svíþjóð gaf Gretu Thunberg og hundruð umhverfissinnum grænt ljós á að stefna sænska ríkinu vegna þess sem þau telja ófullnægjandi loftslagsaðgerðir þess. Krafa þeirra er að Svíar dragi saman losun sína um milljónir tonna. Erlent 21.3.2023 14:34 Búa sig undir ákæru á hendur Trump Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, verður mögulega ákærður í dag eða á næstu dögum, fyrir brot á lögum um kosningar. Hann yrði fyrsti fyrrverandi forseti til að verða ákærður en Trump hefur sjálfur kallað eftir umfangsmiklum mótælum og Repúblikanar hafa brugðist reiðir við fregnunum. Erlent 21.3.2023 14:01 Bretar banna dönskum Kóranbrennumanni að koma Rasmus Paludan, stofnandi danska hægriöfgaflokksins Strangrar stefnu, fær ekki að koma til Bretlands. Hann ætlaði sér að brenna Kóraninn í bænum Wakefield í vikunni við upphaf föstumánaðar múslima. Erlent 21.3.2023 10:56 Funduðu í fjóra og hálfan tíma Xi Jinping og Vladimír Pútín, forsetar Kína og Rússlands og tveir valdamestu einvaldar heimsins, ræddu saman í einrúmi í fjóra og hálfan tíma eftir að Xi lenti í Moskvu í gær. Fyrir fundinn í gær lofuðu forsetarnir vinasamband ríkjanna tveggja og hvorn annan. Erlent 21.3.2023 10:26 Bandaríkjamenn opinbera gögn um rannsóknir á uppruna Covid-19 Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að allar upplýsingar sem stjórnvöld vestanhafs búa yfir um uppruna kórónuveirunnar SARS-CoV-2 verði gerðar opinberar. Erlent 21.3.2023 08:27 Sex ára drengur látinn eftir árás sleðahunda á Grænlandi Sex ára drengur er látinn eftir að hafa orðið fyrir árás sleðahunda í grænlenska bænum Aasiaat á vesturströnd landsins í gær. Erlent 21.3.2023 07:41 Svört skýrsla um rasisma og kvenfyrirlitningu hjá Lundúnarlögreglunni Lundúnarlögreglan er ónýt, rúin trausti og þjáist af kerfisbundnum rasisma, kvenfyrirlitningu og fordómum gegn samkynhneigðum. Þetta segir í nýrri 363 blaðsíðna skýrslu um stöðu lögreglunnar, sem unnin var undir forystu barónessunnar Louise Casey. Erlent 21.3.2023 07:33 Játar að hafa sett konuna í frystinn og er með nauðgunardóma á bakinu Norskur karlmaður, sem var handtekinn á fimmtudag eftir að lík sambýliskonu hans fannst í frystikistu á sveitabæ hans í Vermalandi í Svíþjóð, hefur játað að hafa vanvirt lík konunnar en neitar að hafa myrt hana. Hann á langan sakaferil að baki og hefur meðal annars hlotið dóma fyrir tvær nauðganir. Erlent 20.3.2023 23:46 Víggirtu dómshús eftir að Trump hvatti til mótmæla Lögregluyfirvöld í New York í Bandaríkjunum undirbúa sig nú fyrir það að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, verði hugsanlega veitt réttarstaða sakbornings í ríkinu. Lögreglumenn reistu varnargirðingar við dómshús á Manhattan í dag eftir að Trump hvatti fylgjendur sína til mótmæla. Erlent 20.3.2023 20:44 Ríkisstjórn Frakklands heldur velli Vantrauststillaga á hendur ríkisstjórn Frakklands var felld með minnsta mun í dag. Ríkisstjórnin heldur því velli á meðan Frakkar mótmæla á götum úti. Erlent 20.3.2023 19:44 Þarf hraðan samdrátt til að aftengja loftslagstímasprengju Mannkynið þarf að draga úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum um meira en helming fyrir árið 2035 ef það ætlar sér að takmarka hnattræna hlýnun við eina og hálfa gráðu á þessari öld. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna líkir loftslagsvandanum við tifandi tímasprengju. Erlent 20.3.2023 14:24 Spilling og óöryggi plaga Írak 20 árum eftir innrás hinna „viljugu“ Í dag eru 20 ár liðin frá því að 295 þúsund hermenn Bandaríkjanna og „bandalags viljugra“ réðust inn í Írak. Um það bil 200 þúsund almennir borgarar létust, 45 þúsund íraskir her- og lögreglumenn og fleiri en átta þúsund Bandaríkjamenn; hermenn og verktakar. Erlent 20.3.2023 12:31 « ‹ 165 166 167 168 169 170 171 172 173 … 334 ›
Lyfjaskortur í Bandaríkjunum eykst um 30 prósent Lyfjaskortur í Bandaríkjunum jókst um 30 prósent á síðasta ári samanborið við árið 2021. Meðalbiðtími eftir því að lyf yrðu aftur fáanleg voru átján mánuðir en lyf hafa verið ófáanleg í allt að fimmtán ár. Erlent 23.3.2023 11:54
Segir málaferli gegn Paltrow vera „kjaftæði“ Lögmaður Gwyneth Paltrow, lýsti í vikunni dómsmáli sem höfðað hefur verið gegn leik- og athafnakonunni sem „kjaftæði“. Réttarhöldin í máli manns sem sakað hefur Paltrow um að hafa rutt sig niður á skíðum í Utah í Bandaríkjunum árið 2016 hófust á þriðjudaginn. Erlent 23.3.2023 11:06
Lögmaður Trumps þarf að afhenda skjöl og bera vitni Lögmaður Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, þarf að afhenda öll skjöl sín sem tengjast rannsókn á meðhöndlun forsetans á opinberum og leynilegum skjölum til rannsakenda, M. Evan Corcoran, umræddur lögmaður, þarf einnig að bera vitni fyrir ákærudómstól vegna rannsóknarinnar. Erlent 23.3.2023 10:14
Ákærður fyrir að halda úti vefsíðu og framkvæma og sýna geldingar Marius nokkur Gustavson, 45 ára, mætti fyrir dómstól í Lundúnum í gær en hann er grunaður um að hafa sýnt frá geldingum og öðrum aflimunum á vefsíðu sinni og innheimt gjald af áhorfendum. Erlent 23.3.2023 08:49
Fimm særðir eftir skotárás manns á Grænlandi Fimm eru særðir eftir að maður hóf skotárás við þyrluflugvöllinn í Narsaq á suðvesturströnd Grænlands í gær. Erlent 23.3.2023 07:51
„Myndi 100 prósent láta svæðin aftur í hendur Úkraínu“ Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og mögulegur forsetaframbjóðandi, segir orð sín um stríðið í Úkraínu hafa verið misskilin og að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé sannarlega stríðsglæpamaður. Erlent 23.3.2023 07:13
Boris segir samkomurnar hafa verið nauðsynlegar Boris Johnson svaraði fyrir „Partygate“ málið svokallaða fyrir þingnefnd í dag. Þar sagði hann að allar samkomur sem haldnar voru á Downingstræti 10, á meðan samkomutakmarkanir voru í gildi, hafi verið nauðsynlegar. Erlent 23.3.2023 00:15
Myndir af eldflaugaárás Rússa á fjölbýlishús Rússar skutu eldflaug á fjölbýlishús í Zaporizhzhia í Úkraínu í dag. Sprengingin náðist á eftirlitsmyndavél og var mjög kröftug eins og þar sést. Erlent 22.3.2023 20:01
Deila vegna hundaleikfangs, viskís og hundaskíts ratar til Hæstaréttar Hæstiréttur Bandaríkjanna tekur í dag fyrir mál Jack Daniels gegn framleiðendum hundaleikfangs sem lítur út eins og viskíflöskur. Lögmenn brugghússins segja hundaleikfangið tengja viskíið við hundaskít. Erlent 22.3.2023 16:59
Ákærður fyrir morðið á Miu 37 ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir morðið á hinni 22 ára gömlu Miu Skadhauge Stevn í Álaborg í Danmörku fyrir rúmu ári síðan. Maðurinn kveðst vera saklaus. Erlent 22.3.2023 14:25
Stöðva sýningu hryllingsmyndar um Bangsímon í Hong Kong Búið er að stöðva sýningar hryllingsmyndarinnar Winnie The Pooh: Blood and Honey, eða Bangsímon: Blóð og hunang, í Hong Kong. Bangsímon hefur lengi verið óvinsæll í Kína vegna gríns um að hann og Xi Jinping, forseti, séu líkir. Erlent 22.3.2023 12:11
Héldu handjárnuðum manni niðri í ellefu mínútur þar til hann dó Héraðssaksóknari í Virginíu í Bandaríkjunum hefur ákært sjö lögregluþjóna og þrjá starfsmenn sjúkrahúss fyrir morð. Myndbönd úr öryggisvélum sýna hvernig hópur manna hélt handjárnuðum Irvo Otieno niðri í um ellefu mínútur, þar til hann dó. Erlent 22.3.2023 10:48
Öfgafull fjölkærni sæfíla gæti orsakað ótímabær dauðsföll Rannsókn vísindamanna við Háskólann í Tasmaníu hefur leitt í ljós að pressan á bak við „öfgafulla fjölkærni“ sæfíla í suðvestur Kyrrahafi gæti orsakað því að lífslíkur karldýra hrynji stuttu eftir kynþroska. Erlent 22.3.2023 09:04
Trump sagður spenntur fyrir því að vera handjárnaður Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður vera spenntur fyrir því að birtast handjárnaður í dómsal ef svo fer að hann verður handtekinn fyrir þátt sinn í því að hafa greitt klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels mútur. Erlent 22.3.2023 08:07
Öflugur skjálfti í Afganistan og Pakistan Að minnsta kosti 12 eru látnir og tugir slasaðir eftir að jarðskjálfti sem mældist 6,5 stig reið yfir í Pakistan og Afganistan í gærkvöldi. Erlent 22.3.2023 07:26
Ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu Bandaríkjamenn segja ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu. „Það er ekki á neinn hátt raunhæft að ætla Kínverjum að vera hlutlausir,“ sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, í gær. Erlent 22.3.2023 07:11
Rússar reyna að fá hernaðarstuðning frá Kína Forsetar Kína og Rússlands hafa talað almennt um að efla samskipti þjóðanna á fundi símum í Moskvu í dag en ekkert hefur komið fram um hernaðaraðstoð. Rússar eru mun háðari Kína en áður á ýmsum sviðum vegna refsiaðgerða Vesturlanda. Erlent 21.3.2023 19:41
Fá eldri skriðdreka en fá þá fyrr Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að flýta skriðdrekasendingum til Úkraínu. Í stað þess að senda nýja M1A2 Abrams skriðdreka, sem mun taka allt að tvö ár, stendur til að gera upp og senda eldri týpur. Erlent 21.3.2023 17:09
Thunberg fær að stefna sænska ríkinu fyrir seinagang Héraðsdómstóll í Svíþjóð gaf Gretu Thunberg og hundruð umhverfissinnum grænt ljós á að stefna sænska ríkinu vegna þess sem þau telja ófullnægjandi loftslagsaðgerðir þess. Krafa þeirra er að Svíar dragi saman losun sína um milljónir tonna. Erlent 21.3.2023 14:34
Búa sig undir ákæru á hendur Trump Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, verður mögulega ákærður í dag eða á næstu dögum, fyrir brot á lögum um kosningar. Hann yrði fyrsti fyrrverandi forseti til að verða ákærður en Trump hefur sjálfur kallað eftir umfangsmiklum mótælum og Repúblikanar hafa brugðist reiðir við fregnunum. Erlent 21.3.2023 14:01
Bretar banna dönskum Kóranbrennumanni að koma Rasmus Paludan, stofnandi danska hægriöfgaflokksins Strangrar stefnu, fær ekki að koma til Bretlands. Hann ætlaði sér að brenna Kóraninn í bænum Wakefield í vikunni við upphaf föstumánaðar múslima. Erlent 21.3.2023 10:56
Funduðu í fjóra og hálfan tíma Xi Jinping og Vladimír Pútín, forsetar Kína og Rússlands og tveir valdamestu einvaldar heimsins, ræddu saman í einrúmi í fjóra og hálfan tíma eftir að Xi lenti í Moskvu í gær. Fyrir fundinn í gær lofuðu forsetarnir vinasamband ríkjanna tveggja og hvorn annan. Erlent 21.3.2023 10:26
Bandaríkjamenn opinbera gögn um rannsóknir á uppruna Covid-19 Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að allar upplýsingar sem stjórnvöld vestanhafs búa yfir um uppruna kórónuveirunnar SARS-CoV-2 verði gerðar opinberar. Erlent 21.3.2023 08:27
Sex ára drengur látinn eftir árás sleðahunda á Grænlandi Sex ára drengur er látinn eftir að hafa orðið fyrir árás sleðahunda í grænlenska bænum Aasiaat á vesturströnd landsins í gær. Erlent 21.3.2023 07:41
Svört skýrsla um rasisma og kvenfyrirlitningu hjá Lundúnarlögreglunni Lundúnarlögreglan er ónýt, rúin trausti og þjáist af kerfisbundnum rasisma, kvenfyrirlitningu og fordómum gegn samkynhneigðum. Þetta segir í nýrri 363 blaðsíðna skýrslu um stöðu lögreglunnar, sem unnin var undir forystu barónessunnar Louise Casey. Erlent 21.3.2023 07:33
Játar að hafa sett konuna í frystinn og er með nauðgunardóma á bakinu Norskur karlmaður, sem var handtekinn á fimmtudag eftir að lík sambýliskonu hans fannst í frystikistu á sveitabæ hans í Vermalandi í Svíþjóð, hefur játað að hafa vanvirt lík konunnar en neitar að hafa myrt hana. Hann á langan sakaferil að baki og hefur meðal annars hlotið dóma fyrir tvær nauðganir. Erlent 20.3.2023 23:46
Víggirtu dómshús eftir að Trump hvatti til mótmæla Lögregluyfirvöld í New York í Bandaríkjunum undirbúa sig nú fyrir það að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, verði hugsanlega veitt réttarstaða sakbornings í ríkinu. Lögreglumenn reistu varnargirðingar við dómshús á Manhattan í dag eftir að Trump hvatti fylgjendur sína til mótmæla. Erlent 20.3.2023 20:44
Ríkisstjórn Frakklands heldur velli Vantrauststillaga á hendur ríkisstjórn Frakklands var felld með minnsta mun í dag. Ríkisstjórnin heldur því velli á meðan Frakkar mótmæla á götum úti. Erlent 20.3.2023 19:44
Þarf hraðan samdrátt til að aftengja loftslagstímasprengju Mannkynið þarf að draga úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum um meira en helming fyrir árið 2035 ef það ætlar sér að takmarka hnattræna hlýnun við eina og hálfa gráðu á þessari öld. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna líkir loftslagsvandanum við tifandi tímasprengju. Erlent 20.3.2023 14:24
Spilling og óöryggi plaga Írak 20 árum eftir innrás hinna „viljugu“ Í dag eru 20 ár liðin frá því að 295 þúsund hermenn Bandaríkjanna og „bandalags viljugra“ réðust inn í Írak. Um það bil 200 þúsund almennir borgarar létust, 45 þúsund íraskir her- og lögreglumenn og fleiri en átta þúsund Bandaríkjamenn; hermenn og verktakar. Erlent 20.3.2023 12:31