Erlent Bandaríkin og Suður-Kórea undirrita kjarnorkuvopnasamning Bandaríkin og Suður-Kóreumenn hafa undirritað samning sem ætlað er að mæta kjarnorkuógninni frá Norður-Kóreu. Erlent 27.4.2023 07:41 Carlson stígur fram og tjáir sig... en samt ekki Sjónvarpsþáttastjórnandinn Tucker Carlson, sem var látinn fara frá Fox News á mánudag, birti í nótt myndskeið á Twitter þar sem hann boðar mögulega endurkomu sína. Erlent 27.4.2023 07:19 „Ég er hér vegna þess að Donald Trump nauðgaði mér“ Rithöfundurinn E. Jean Carroll sagði fyrir dómi í dag að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti hafi nauðgað henni á tíunda áratugnum. Í kjölfarið hafi hún ekki getað átt í ástarsamböndum og mannorð hennar hafi verið í rúst eftir að hann sakaði hana um lygar. Erlent 26.4.2023 23:02 Elsti nasistinn til að hljóta dóm er látinn Elsti maðurinn til að vera sakfelldur fyrir glæpi í helförinni er látinn, 102 ára að aldri. Josef Schütz var síðastliðinn júní sakfelldur fyrir að hafa aðstoðað við að myrða þúsundir fanga í Sachsenhausen-búðunum nærri Berlín á árunum 1942 til 1945. Erlent 26.4.2023 22:04 Nakinn leigusali ekki lögmæt forsenda leigulækkunar Að mati dómstóls í Þýskalandi er það ekki lögmæt forsenda til leigulækkunar að leigusalinn eigi það til að fara allsber í sólbað í garðinum. Fyrirtæki sem leigði hæð í húsi mannsins neitaði að borga leigu vegna athæfisins. Erlent 26.4.2023 17:05 Talinn hafa strokið úr fangelsi og myrt mann Lögreglan í Mississippi leitar nú fjögurra manna sem struku úr fangelsi í ríkinu í vikunni. Talið er að einn þeirra hafi myrt mann og rænt bílnum hans. Erlent 26.4.2023 16:38 Dómari greindi ekki frá fasteignasölu til forstjóra lögmannsstofu Bandarískur hæstaréttardómari skráði ekki sölu á fasteign til forstjóra lögmannsstofu með mál fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna í hagsmunaskráningu sína. Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem upplýst er um mögulega hagsmunaárekstra sem dómarar við réttinn héldu leyndum. Erlent 26.4.2023 15:45 Skrefi nær leyndardómi risasvartholsstróka Skuggi risasvarthols í nágrannavetrarbraut okkar og kröftugur strókur efns sem stafar frá því sjást í fyrsta skipti saman á einni mynd sem alþjóðlegum hópi stjörnufræðinga tókst að ná. Myndin hjálpar vísindamönnum að skilja hvernig svarthol þeyta burtu efni í slíkum strókum. Erlent 26.4.2023 15:13 Selenskí og Xi áttu „langt og innihaldsríkt“ samtal í morgun Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti og Xi Jinping, forseti Kína, ræddu saman í síma í morgun. Um er að ræða fyrsta samtalið sem leiðtogarnir eiga frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 26.4.2023 12:03 Rússar svara Norðmönnum í sömu mynt Rússar hafa tilkynnt norska sendiráðinu í landinu að tíu manns úr starfsliði þeirra verði gert að yfirgefa landið á næstu dögum. Utanríkisráðuneyti Noregs segir ákvörðunina vera hefndaraðgerð eftir að Norðmenn létu fimmtán starfsmenn ráðuneytis Rússa í Noregi yfirgefa landið. Erlent 26.4.2023 11:48 Japanir í baráttu gegn veiðiþjófnaði á sæbjúgum Lögregluyfirvöld í Japan hafa handtekið fimm einstaklinga í tengslum við þjófnað á um það bil 600 kílóum af sæbjúgum. Sæbjúgun eru heldur ófrýnileg en þykja hið mesta lostæti og hafa vakið athygli skipulagðra glæpahópa í landinu. Erlent 26.4.2023 11:38 Maðurinn sem rændi þrettán ára stúlku ákærður fyrir morð á annarri stúlku Maðurinn sem grunaður er um að hafa rænt þrettán ára stúlku nálægt bænum Kirkerup í Danmörku í síðasta mánuði er grunaður um að hafa myrt aðra stúlku árið 2016. Hann hefur verið ákærður af lögreglu fyrir það morð. Erlent 26.4.2023 10:13 Þrír dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morð á tólf ára stúlku Klíkuleiðtogi að nafni Maykil Yokhanna og tveir aðrir félagar hans hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi í Svíþjóð fyrir morð á tólf ára stúlku. Stúlkan var skotin í Norsborg, suður af Stokkhólmi, árið 2020. Erlent 26.4.2023 10:08 Þáði tugi milljóna frá Sádum eftir morðið á Khashoggi Fyrrverandi forstjóri Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna gerði samning um ráðgjafarstörf upp á hátt í hundrað milljónir króna við stjórnvöld í Sádi-Arabíu eftir morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi árið 2018. Hann hefur þegið hunduð milljóna króna frá erlendum ríkjum frá því að hann lét af embætti. Erlent 26.4.2023 09:53 Segjast hafa fellt manninn að baki árásinni á alþjóðavellinum í Kabúl Talíbanar í Afganistan segjast hafa drepið einn af leiðtogum ISIS samtakanna þar í landi. Nafn mannsins hefur ekki verið gert opinbert en hann er sagður hafa staðið á bak við árás á flugvöllinn í Kabúl árið 2021, þar sem 170 óbreyttir borgarar og þrettán bandarískir hermenn létu lífið. Erlent 26.4.2023 08:19 Tekinn af lífi fyrir samsæri um innflutning á kílói af kannabis Tangaraju Suppiah, 46 ára, hefur verið tekinn af lífi í Singapúr fyrir samsæri um smygl á kílói af kannabis. Tangaraju var hengdur í morgun, þrátt fyrir mótmæli Sameinuðu þjóðanna og aðgerðasinna. Erlent 26.4.2023 07:46 Mögulega aðeins „toppurinn á ísjakanum“ Að minnsta kosti 90 hafa fundist látnir á búgarði í Kenía, þar sem leiðtogi sértrúasöfnuðar er grunaður um að hafa fyrirskipað fylgjendum sínum að svelta sig til dauða til að „hitta Jesú“. Erlent 26.4.2023 07:01 Sanders ætlar ekki í framboð Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders ætlar sér ekki að reyna að verða forsetaefni Demókrataflokksins í þriðja skipti. Hann segist frekar ætla að styðja framboð Joe Biden og gera hvað sem í hans valdi stendur til að sjá til þess að hann verði endurkjörinn sem forseti Bandaríkjann Erlent 25.4.2023 23:41 Sagðir hafa ráðið sama lögmanninn Fjölmiðlamennirnir Tucker Carlson og Don Lemon eiga það sameiginlegt að hafa báðir misst vinnuna í gær. Carlson hætti hjá Fox News og Lemon var rekinn frá CNN. Það er þó ekki það eina sem þeir eiga sameiginlegt því þeir eru sagðir hafa báðir ráðið sama stjörnulögmanninn til að hjálpa sér vegna starfslokanna. Erlent 25.4.2023 18:27 Súdanski herinn sagður hafa rofið vopnahlé Vígasveitir RSF segja súdanska stjórnarherinn hafa rofið vopnahlé sem samþykkt var seint í gærkvöldi. Skothvellir hafa heyrst í höfuðborginni Khartoum og í Omdurman í dag. Bresk stjórnvöld hafa biðlað til ríkisborgara sinna að halda þegar í stað á flugvöll norður af höfuðborginni þaðan sem þeim verður flogið beinustu leið til Kýpur og svo Bretlands. Erlent 25.4.2023 14:43 Líkja sambandi við njósnara við nauðgun Sex katalónskar konur hafa stefnt lögreglumanni, spænska ríkislögreglustjóranum og innanríkisráðherra fyrir kynferðisofbeldi. Lögreglumaðurinn starfaði sem njósnari innan anarkistasenunnar í Barcelona og átti í samböndum við átta konur. Erlent 25.4.2023 13:21 Svíar reka fimm rússneska diplómata úr landi Svíar hafa ákveðið að reka fimm rússneska diplómata úr landi. Að sögn utanríkisráðherra landsins munu þeir hafa gerst uppvísir að hegðun sem samræmist ekki störfum þeirra í landinu. Erlent 25.4.2023 12:40 Bætist í hóp ríkja sem styðja inngöngu Úkraínu í NATO Eistar bætast í hóp þeirra ríkja Atlantshafsbandalagsins sem styðja inngöngu Úkraínu. Viljayfirlýsing var undirrituð í gær í Zítómír héraði í norðurhluta Úkraínu Erlent 25.4.2023 11:30 Biden sækist formlega eftir endurkjöri Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í morgun að hann sækist formlega eftir endurkjöri í kosningum á næsta ári. Hann biður kjósendur um að gefa honum meiri tíma til að ljúka verkefninu sem hann hóf þegar hann tók við embætti fyrir rúmum tveimur árum. Erlent 25.4.2023 10:29 Stjórnarandstöðuleiðtogi flýr Venesúela í skugga hótana Juan Guaidó, einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, er væntanlegur til Bandaríkjanna eftir að hann honum var vísað frá Kólumbíu. Hann segist hafa yfirgefið heimalandið vegna hótana ríkisstjórnar Nicolás Maduro forseta. Erlent 25.4.2023 09:48 Tólf barðir og brenndir til dauða fyrir allra augum Minnst tólf meintir glæpamenn voru barðir og brenndir til dauða fyrir allra augum og um miðjan dag í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí. Hálfgerð óöld og stjórnleysi ríkir í landinu og segja alþjóðastofnanir stutt í að mannúðarkrísa skapist. Erlent 25.4.2023 08:57 Velja kviðdómendur í nauðgunarmáli Trump Byrjað verður að velja kviðdómendur í máli E. Jean Carroll, fyrrverandi pistlahöfundar, gegn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í New York í dag. Carroll sakar Trump um að hafa nauðgað sér í stórverslun í borginni á 10. áratugnum. Erlent 25.4.2023 08:56 Kona handtekin með gullbyssu í fórum sínum Bandarísk kona var á sunnudag handtekin í Sydney í Ástralíu eftir að gullbyssa fannst í ferðatösku hennar. Konan er laus gegn tryggingu en hún gæti átt allt að tíu ára fangelsi yfir höfði sér. Erlent 25.4.2023 07:56 110 grunaðir PKK-liðar handteknir í Tyrklandi Lögregla í Tyrklandi hefur handtekið á annað hundrað manns vegna gruns um að tengjast kúrdíska verkamannaflokknum PKK sem stjórnvöld í Tyrklandi skilgreina sem hryðjuverkasamtök. Um þrjár vikur eru nú til kosninga í landinu. Erlent 25.4.2023 07:46 Ákærð fyrir að myrða mann sem kúgaði móður hennar með kynlífsmyndbandi TikTok-áhrifavaldur ætlaði að leggja gildru fyrir mann sem var að fjárkúga móður hennar með kynlífsmyndbandi. Menn á hennar vegum þvinguðu bíl mannsins af veginum með þeim afleiðingum að hann og vinur hans létust. Konan og móðir hennar hafa verið ákærðar fyrir morð ásamt sex öðrum. Erlent 25.4.2023 00:23 « ‹ 155 156 157 158 159 160 161 162 163 … 334 ›
Bandaríkin og Suður-Kórea undirrita kjarnorkuvopnasamning Bandaríkin og Suður-Kóreumenn hafa undirritað samning sem ætlað er að mæta kjarnorkuógninni frá Norður-Kóreu. Erlent 27.4.2023 07:41
Carlson stígur fram og tjáir sig... en samt ekki Sjónvarpsþáttastjórnandinn Tucker Carlson, sem var látinn fara frá Fox News á mánudag, birti í nótt myndskeið á Twitter þar sem hann boðar mögulega endurkomu sína. Erlent 27.4.2023 07:19
„Ég er hér vegna þess að Donald Trump nauðgaði mér“ Rithöfundurinn E. Jean Carroll sagði fyrir dómi í dag að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti hafi nauðgað henni á tíunda áratugnum. Í kjölfarið hafi hún ekki getað átt í ástarsamböndum og mannorð hennar hafi verið í rúst eftir að hann sakaði hana um lygar. Erlent 26.4.2023 23:02
Elsti nasistinn til að hljóta dóm er látinn Elsti maðurinn til að vera sakfelldur fyrir glæpi í helförinni er látinn, 102 ára að aldri. Josef Schütz var síðastliðinn júní sakfelldur fyrir að hafa aðstoðað við að myrða þúsundir fanga í Sachsenhausen-búðunum nærri Berlín á árunum 1942 til 1945. Erlent 26.4.2023 22:04
Nakinn leigusali ekki lögmæt forsenda leigulækkunar Að mati dómstóls í Þýskalandi er það ekki lögmæt forsenda til leigulækkunar að leigusalinn eigi það til að fara allsber í sólbað í garðinum. Fyrirtæki sem leigði hæð í húsi mannsins neitaði að borga leigu vegna athæfisins. Erlent 26.4.2023 17:05
Talinn hafa strokið úr fangelsi og myrt mann Lögreglan í Mississippi leitar nú fjögurra manna sem struku úr fangelsi í ríkinu í vikunni. Talið er að einn þeirra hafi myrt mann og rænt bílnum hans. Erlent 26.4.2023 16:38
Dómari greindi ekki frá fasteignasölu til forstjóra lögmannsstofu Bandarískur hæstaréttardómari skráði ekki sölu á fasteign til forstjóra lögmannsstofu með mál fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna í hagsmunaskráningu sína. Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem upplýst er um mögulega hagsmunaárekstra sem dómarar við réttinn héldu leyndum. Erlent 26.4.2023 15:45
Skrefi nær leyndardómi risasvartholsstróka Skuggi risasvarthols í nágrannavetrarbraut okkar og kröftugur strókur efns sem stafar frá því sjást í fyrsta skipti saman á einni mynd sem alþjóðlegum hópi stjörnufræðinga tókst að ná. Myndin hjálpar vísindamönnum að skilja hvernig svarthol þeyta burtu efni í slíkum strókum. Erlent 26.4.2023 15:13
Selenskí og Xi áttu „langt og innihaldsríkt“ samtal í morgun Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti og Xi Jinping, forseti Kína, ræddu saman í síma í morgun. Um er að ræða fyrsta samtalið sem leiðtogarnir eiga frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 26.4.2023 12:03
Rússar svara Norðmönnum í sömu mynt Rússar hafa tilkynnt norska sendiráðinu í landinu að tíu manns úr starfsliði þeirra verði gert að yfirgefa landið á næstu dögum. Utanríkisráðuneyti Noregs segir ákvörðunina vera hefndaraðgerð eftir að Norðmenn létu fimmtán starfsmenn ráðuneytis Rússa í Noregi yfirgefa landið. Erlent 26.4.2023 11:48
Japanir í baráttu gegn veiðiþjófnaði á sæbjúgum Lögregluyfirvöld í Japan hafa handtekið fimm einstaklinga í tengslum við þjófnað á um það bil 600 kílóum af sæbjúgum. Sæbjúgun eru heldur ófrýnileg en þykja hið mesta lostæti og hafa vakið athygli skipulagðra glæpahópa í landinu. Erlent 26.4.2023 11:38
Maðurinn sem rændi þrettán ára stúlku ákærður fyrir morð á annarri stúlku Maðurinn sem grunaður er um að hafa rænt þrettán ára stúlku nálægt bænum Kirkerup í Danmörku í síðasta mánuði er grunaður um að hafa myrt aðra stúlku árið 2016. Hann hefur verið ákærður af lögreglu fyrir það morð. Erlent 26.4.2023 10:13
Þrír dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morð á tólf ára stúlku Klíkuleiðtogi að nafni Maykil Yokhanna og tveir aðrir félagar hans hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi í Svíþjóð fyrir morð á tólf ára stúlku. Stúlkan var skotin í Norsborg, suður af Stokkhólmi, árið 2020. Erlent 26.4.2023 10:08
Þáði tugi milljóna frá Sádum eftir morðið á Khashoggi Fyrrverandi forstjóri Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna gerði samning um ráðgjafarstörf upp á hátt í hundrað milljónir króna við stjórnvöld í Sádi-Arabíu eftir morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi árið 2018. Hann hefur þegið hunduð milljóna króna frá erlendum ríkjum frá því að hann lét af embætti. Erlent 26.4.2023 09:53
Segjast hafa fellt manninn að baki árásinni á alþjóðavellinum í Kabúl Talíbanar í Afganistan segjast hafa drepið einn af leiðtogum ISIS samtakanna þar í landi. Nafn mannsins hefur ekki verið gert opinbert en hann er sagður hafa staðið á bak við árás á flugvöllinn í Kabúl árið 2021, þar sem 170 óbreyttir borgarar og þrettán bandarískir hermenn létu lífið. Erlent 26.4.2023 08:19
Tekinn af lífi fyrir samsæri um innflutning á kílói af kannabis Tangaraju Suppiah, 46 ára, hefur verið tekinn af lífi í Singapúr fyrir samsæri um smygl á kílói af kannabis. Tangaraju var hengdur í morgun, þrátt fyrir mótmæli Sameinuðu þjóðanna og aðgerðasinna. Erlent 26.4.2023 07:46
Mögulega aðeins „toppurinn á ísjakanum“ Að minnsta kosti 90 hafa fundist látnir á búgarði í Kenía, þar sem leiðtogi sértrúasöfnuðar er grunaður um að hafa fyrirskipað fylgjendum sínum að svelta sig til dauða til að „hitta Jesú“. Erlent 26.4.2023 07:01
Sanders ætlar ekki í framboð Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders ætlar sér ekki að reyna að verða forsetaefni Demókrataflokksins í þriðja skipti. Hann segist frekar ætla að styðja framboð Joe Biden og gera hvað sem í hans valdi stendur til að sjá til þess að hann verði endurkjörinn sem forseti Bandaríkjann Erlent 25.4.2023 23:41
Sagðir hafa ráðið sama lögmanninn Fjölmiðlamennirnir Tucker Carlson og Don Lemon eiga það sameiginlegt að hafa báðir misst vinnuna í gær. Carlson hætti hjá Fox News og Lemon var rekinn frá CNN. Það er þó ekki það eina sem þeir eiga sameiginlegt því þeir eru sagðir hafa báðir ráðið sama stjörnulögmanninn til að hjálpa sér vegna starfslokanna. Erlent 25.4.2023 18:27
Súdanski herinn sagður hafa rofið vopnahlé Vígasveitir RSF segja súdanska stjórnarherinn hafa rofið vopnahlé sem samþykkt var seint í gærkvöldi. Skothvellir hafa heyrst í höfuðborginni Khartoum og í Omdurman í dag. Bresk stjórnvöld hafa biðlað til ríkisborgara sinna að halda þegar í stað á flugvöll norður af höfuðborginni þaðan sem þeim verður flogið beinustu leið til Kýpur og svo Bretlands. Erlent 25.4.2023 14:43
Líkja sambandi við njósnara við nauðgun Sex katalónskar konur hafa stefnt lögreglumanni, spænska ríkislögreglustjóranum og innanríkisráðherra fyrir kynferðisofbeldi. Lögreglumaðurinn starfaði sem njósnari innan anarkistasenunnar í Barcelona og átti í samböndum við átta konur. Erlent 25.4.2023 13:21
Svíar reka fimm rússneska diplómata úr landi Svíar hafa ákveðið að reka fimm rússneska diplómata úr landi. Að sögn utanríkisráðherra landsins munu þeir hafa gerst uppvísir að hegðun sem samræmist ekki störfum þeirra í landinu. Erlent 25.4.2023 12:40
Bætist í hóp ríkja sem styðja inngöngu Úkraínu í NATO Eistar bætast í hóp þeirra ríkja Atlantshafsbandalagsins sem styðja inngöngu Úkraínu. Viljayfirlýsing var undirrituð í gær í Zítómír héraði í norðurhluta Úkraínu Erlent 25.4.2023 11:30
Biden sækist formlega eftir endurkjöri Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í morgun að hann sækist formlega eftir endurkjöri í kosningum á næsta ári. Hann biður kjósendur um að gefa honum meiri tíma til að ljúka verkefninu sem hann hóf þegar hann tók við embætti fyrir rúmum tveimur árum. Erlent 25.4.2023 10:29
Stjórnarandstöðuleiðtogi flýr Venesúela í skugga hótana Juan Guaidó, einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, er væntanlegur til Bandaríkjanna eftir að hann honum var vísað frá Kólumbíu. Hann segist hafa yfirgefið heimalandið vegna hótana ríkisstjórnar Nicolás Maduro forseta. Erlent 25.4.2023 09:48
Tólf barðir og brenndir til dauða fyrir allra augum Minnst tólf meintir glæpamenn voru barðir og brenndir til dauða fyrir allra augum og um miðjan dag í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí. Hálfgerð óöld og stjórnleysi ríkir í landinu og segja alþjóðastofnanir stutt í að mannúðarkrísa skapist. Erlent 25.4.2023 08:57
Velja kviðdómendur í nauðgunarmáli Trump Byrjað verður að velja kviðdómendur í máli E. Jean Carroll, fyrrverandi pistlahöfundar, gegn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í New York í dag. Carroll sakar Trump um að hafa nauðgað sér í stórverslun í borginni á 10. áratugnum. Erlent 25.4.2023 08:56
Kona handtekin með gullbyssu í fórum sínum Bandarísk kona var á sunnudag handtekin í Sydney í Ástralíu eftir að gullbyssa fannst í ferðatösku hennar. Konan er laus gegn tryggingu en hún gæti átt allt að tíu ára fangelsi yfir höfði sér. Erlent 25.4.2023 07:56
110 grunaðir PKK-liðar handteknir í Tyrklandi Lögregla í Tyrklandi hefur handtekið á annað hundrað manns vegna gruns um að tengjast kúrdíska verkamannaflokknum PKK sem stjórnvöld í Tyrklandi skilgreina sem hryðjuverkasamtök. Um þrjár vikur eru nú til kosninga í landinu. Erlent 25.4.2023 07:46
Ákærð fyrir að myrða mann sem kúgaði móður hennar með kynlífsmyndbandi TikTok-áhrifavaldur ætlaði að leggja gildru fyrir mann sem var að fjárkúga móður hennar með kynlífsmyndbandi. Menn á hennar vegum þvinguðu bíl mannsins af veginum með þeim afleiðingum að hann og vinur hans létust. Konan og móðir hennar hafa verið ákærðar fyrir morð ásamt sex öðrum. Erlent 25.4.2023 00:23