Formúla 1 Massa ók til sigurs í Barein Felipe Massa, ökumaður Ferrari, vann öruggan sigur í Barein kappakstrinum í dag. Massa tók snemma forystuna af Robert Kubica sem var á ráspól. Formúla 1 6.4.2008 13:24 Pólverji á ráspól í Barein Pólski ökuþórinn Robert Kubica, sem ekur fyrir Sauber, verður á ráspól í Formúlu 1 kappakstrinum í Barein á morgun. Hann var fljótastur allra í tímatökunni í morgun. Felipe Massa hjá Ferrari var næstfljótastur. Formúla 1 5.4.2008 13:01 Max Mosley: Ég gerði ekkert rangt Max Mosley, forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins, ætlar í mál við breska vikublaðið News of the World sem birti frétt síðastliðinn sunnudag um hópkynlíf Mosleys með vændiskonum í nasistabúningum. Hann segist ekkert rangt hafa gert. Formúla 1 5.4.2008 11:38 Rosberg ók hraðast á lokaæfingunni Finnski ökuþórinn Niko Rosberg, sem ekur fyrir Williams-liðið, var fljótastur allra á lokaæfingu fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Barein sem lauk í morgun. Þar með náði Rosberg að skjóta Ferrari-ökumanninum Felipe Massa ref fyrir rass en hann bar höfuð og herðar yfir ökumenn á æfingum í gær. Formúla 1 5.4.2008 11:14 Hamilton lenti í óhappi Lewis Hamilton átti ekki góðan dag í Barein í dag þegar lenti í árekstri og þurfti að hætta keppni. Hann slapp þó ómeiddur og verður með í keppninni um helgina. Formúla 1 4.4.2008 13:16 Aukinn þrýstingur á Mosley um að hætta Aukins þrýstings gætir nú á Max Mosley, yfirmann Alþjóða Akstursíþróttasambandsins, um að segja af sér í embætti. Hann hefur verið borinn þungum sökum vegna hegðunar sinnar í einkalífinu. Formúla 1 4.4.2008 13:10 Ferrari með yfirburði Ferrari bílarnir voru í nokkrum sérflokki á fyrstu æfingunum fyrir Barein kappaksturinn í Formúlu 1. Brasilíumaðurinn Felipe Massa var á meðal fyrstu manna út á brautina og náði bestum tíma allra og félagi hans Kimi Raikkönen kom næstur. Lewis Hamilton á McLaren náði þriðja besta tímanum. Formúla 1 4.4.2008 09:28 Krísufundur vegna Mosley Max Mosley hefur farið fram á sérstakan krísufund hjá Alþjóða Akstursíþróttasambandinu í kjölfar alvarlegra ásakana sem hann hefur verið borinn í fjölmiðlum að undanförnu. Formúla 1 3.4.2008 17:28 F1-lið fordæma Mosley Fjórir bílaframleiðendur sem eiga keppnislið í Formúlu 1-mótaröðinni hafa fordæmt hegðun Max Mosley, forseta Alþjóða akstursíþróttasambandsins. Formúla 1 3.4.2008 10:58 Mosley ætlar ekki að segja af sér Max Mosley, formaður Alþjóða akstursíþróttasambandsins, hefur beðist afsökunar á framferði sínu en ætlar ekki að segja af sér sem formaður sambandsins. Formúla 1 2.4.2008 10:05 Mosley tók þátt í nasistaorgíu með fimm vændiskonum Helgarblaðið News of the World hefur undir höndum myndband sem sagt er að sýni Max Mosley, forseta Alþjóða akstursíþróttasambandsins, í kynlífsleikjum með fimm vændiskonum í Lundúnum. Formúla 1 30.3.2008 14:28 Sérefni um Kimi Raikkönen hjá Stöð 2 Sport Sérstakur umræðuþáttur um Kimi Raikkönen og næsta Formúlu 1 mót er í undirbúningi um helgina hjá Stöð 2 Sport, en stöðinni áskotnaðist efni um kappan frá hans yngri árum. Efnið hefur aldrei verið sýnt hérlendis og á fimmtudaginn verða sérstakir aðdáendur Raikkönen hérlendis kallaðir til í þættinum Rásmarkið. Formúla 1 30.3.2008 00:20 Schumacher deilir út sektarfé McLaren Michael Schumacher er í nefnd sem ákveður hvað verður gert við þá peninga sem McLaren þurfti að borga í sekt vegna njósnamálsins í fyrra. Formúla 1 27.3.2008 09:36 Toyota nærri toppliðunum í Formúlu 1 Jarno Trulli telur að Toyota sé komið í þá stöðu að vera rétt á eftir toppliðunum í Formúlu 1. Hann varð í fjórða sætií Malasíu um helgina. Næsta mót er í Barein um aðra helgi og þar æfði Toyota í vetur ásamt Ferrari, sem gæti komið liðsmönnum til góða Formúla 1 27.3.2008 09:19 Eddie Jordan lagði stein í götu Force India Írinn Eddie Jordan lét leggja steina í innkeyrsluna hjá Force India liðinu á Silverstone í Bretlandi. Hann segir liðið ekki hafa að fullu greitt skuldir sínar við sig. Hann seldi lið sitt til Midland, sem aftur seldi Force India. En allt hefur ekki verið gert upp. Formúla 1 26.3.2008 23:37 McLaren færði Kovalainen sjálfstraust Ron Dennis, yfirmaður McLaren liðsins, segir að Heikki Kovalainen hafi verið brotinn niður hjá Renault en McLaren hafi byggt hann upp á ný og fært honum sjálfstraust. Formúla 1 26.3.2008 17:14 Hættir Alonso hjá Renault? Fernando Alonso segir að sér sé frjálst að hætta hjá liði Renault eftir yfirstandandi keppnistímabil í Formúlu 1. Formúla 1 25.3.2008 15:46 Kristján keppti í fyrsta Formúlu 3 mótinu Kristján Einar Kristjánsson keppti í sinni fyrstu Formúlu 3 keppni á Bretlandseyjum í dag. Hann keppti í tveimur umferðum og varð í fimmt sæti í þeirri fyrri og sjötta sæti í þeirri seinni í sínum flokki. Formúla 1 24.3.2008 17:33 Raikkönen: Nokkuð auðvelt Kimi Raikkönen segir að kappaksturinn í Malasíu í morgun hafi verið sér nokkuð auðveldur eftir fyrsta viðgerðarhléið. Formúla 1 23.3.2008 12:46 Raikkonen vann í Malasíu Finninn og heimsmeistarinn Kimi Raikkönen fagnaði sigri í Formúlu 1-keppninni í Malasíu í morgun eftir að félagi hans, Felipe Massa, datt úr leik um miðja keppni. Formúla 1 23.3.2008 08:41 Dómarar refsa ökumönnum McLaren Dómarar Formúlu 1 mótsins í Malasíu ákváðu í hádeginu að refsta Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton fyrir að hafa truflað Nick Heidfeld á BMW og Fernando Alonso á Renault í lokahring þeirra í tímatökunni. Formúla 1 22.3.2008 11:55 Ökumenn McLaren kallaðir fyrir dómara Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton voru kallaðir fyrir dómara mótsins á Sepang brautinni í dag, eftir athugasemd frá Nick Heidfeld og Fernando Alonso. Þeir töldu að McLaren hefðu sýnt vítavert gáleysi þegar þeir hægðu á bílnum sínum eftir að hafa lokið sínum hraðasta hring. Formúla 1 22.3.2008 11:21 Massa fremstur á ráslínu í Malasíu Félagarnir Felipe Massa og Kimi Raikkönen verða frremstir á ráslínu í malasíska kappakstrinum á aðfaranótt sunnudags. Massa náði besta tíma í tímatökum í nótt og Raikkönen kom honum næstur. Formúla 1 22.3.2008 07:49 24,1 % áhorf á Formúlu 1 á Stöð 2 Sport Ljóst er að Formúlu 1 útsendingar á Stöð 2 Sport hafa fallið vel í kramið og íþróttin heldur sinni stöðu sem vinsælt sjónvarpsefni, þrátt fyrir að hafa skipt um umhverfi, horfið af RÚV yfir á Stöð 2 Sport. Formúla 1 21.3.2008 14:29 Verður Red Bull bíllinn bannaður? Alþjóðabílasambandið kannar hvort banna eigi þátttöku Red Bull Formúlu 1 liðsins í keppni í Malasíu eftir æfingar í nótt Formúla 1 21.3.2008 10:13 Lítill munur á Ferrari og McLaren Ökumenn Ferrari og McLaren kepptust hvað mest um að ná bestum tíma á Sepang brautinni í nótt. Tvær æfingar fóru fram. Felipe Massa á Ferrari var langfljótastur á fyrri æfingunni, en Lewis Hamilton á Ferrari á þeirri síðari. Formúla 1 21.3.2008 07:59 Massa fyrstur í Malasíu Brasilíumaðurinn Felipe Massa á Ferrari náði langbesta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða í Malasíu í nótt. Hann varð sekúndu fljótari en KImi Raikkönen á samskonar bíl. Bíll Raikkönen bilaði á æfingunni og David Coulthard á Red Bull fékk nokkuð harkalegan skell. Formúla 1 21.3.2008 03:37 Keppt í hitasvækju í Malasíu um páskana Formúlu 1 mót verður í Malasíu um helgina og búist er við 40 stiga hita og miklum raka. Þetta mun reyna mikið á þolgæði bíla og ökumanna sem kepptu í Ástralíu um síðustu helgi. Formúla 1 20.3.2008 19:19 Felisa tekur við starfi Todt hjá Ferrari Stjórn Ferrari samþykkti í dag að Jean Todt hyrfi frá starfi sínu sem forstjóri Ferrari. Í hans stað kemur Amadeo Felisa, en Todt hefur gengt starfi forstjóra Ferrari síðan 2006. Formúla 1 18.3.2008 18:30 Rakst á takka sem takmarkaði hraða Heikki Kovalainen lenti í því í kappakstrinum í Melbourne um helgina að hann rakst óvart á takka sem takmarkaði hraða hans á beina kaflanum. Hann hafði nýlega farið framúr Fernando Alonso þegar það gerðist. Formúla 1 17.3.2008 22:58 « ‹ 138 139 140 141 142 143 144 145 146 … 151 ›
Massa ók til sigurs í Barein Felipe Massa, ökumaður Ferrari, vann öruggan sigur í Barein kappakstrinum í dag. Massa tók snemma forystuna af Robert Kubica sem var á ráspól. Formúla 1 6.4.2008 13:24
Pólverji á ráspól í Barein Pólski ökuþórinn Robert Kubica, sem ekur fyrir Sauber, verður á ráspól í Formúlu 1 kappakstrinum í Barein á morgun. Hann var fljótastur allra í tímatökunni í morgun. Felipe Massa hjá Ferrari var næstfljótastur. Formúla 1 5.4.2008 13:01
Max Mosley: Ég gerði ekkert rangt Max Mosley, forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins, ætlar í mál við breska vikublaðið News of the World sem birti frétt síðastliðinn sunnudag um hópkynlíf Mosleys með vændiskonum í nasistabúningum. Hann segist ekkert rangt hafa gert. Formúla 1 5.4.2008 11:38
Rosberg ók hraðast á lokaæfingunni Finnski ökuþórinn Niko Rosberg, sem ekur fyrir Williams-liðið, var fljótastur allra á lokaæfingu fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Barein sem lauk í morgun. Þar með náði Rosberg að skjóta Ferrari-ökumanninum Felipe Massa ref fyrir rass en hann bar höfuð og herðar yfir ökumenn á æfingum í gær. Formúla 1 5.4.2008 11:14
Hamilton lenti í óhappi Lewis Hamilton átti ekki góðan dag í Barein í dag þegar lenti í árekstri og þurfti að hætta keppni. Hann slapp þó ómeiddur og verður með í keppninni um helgina. Formúla 1 4.4.2008 13:16
Aukinn þrýstingur á Mosley um að hætta Aukins þrýstings gætir nú á Max Mosley, yfirmann Alþjóða Akstursíþróttasambandsins, um að segja af sér í embætti. Hann hefur verið borinn þungum sökum vegna hegðunar sinnar í einkalífinu. Formúla 1 4.4.2008 13:10
Ferrari með yfirburði Ferrari bílarnir voru í nokkrum sérflokki á fyrstu æfingunum fyrir Barein kappaksturinn í Formúlu 1. Brasilíumaðurinn Felipe Massa var á meðal fyrstu manna út á brautina og náði bestum tíma allra og félagi hans Kimi Raikkönen kom næstur. Lewis Hamilton á McLaren náði þriðja besta tímanum. Formúla 1 4.4.2008 09:28
Krísufundur vegna Mosley Max Mosley hefur farið fram á sérstakan krísufund hjá Alþjóða Akstursíþróttasambandinu í kjölfar alvarlegra ásakana sem hann hefur verið borinn í fjölmiðlum að undanförnu. Formúla 1 3.4.2008 17:28
F1-lið fordæma Mosley Fjórir bílaframleiðendur sem eiga keppnislið í Formúlu 1-mótaröðinni hafa fordæmt hegðun Max Mosley, forseta Alþjóða akstursíþróttasambandsins. Formúla 1 3.4.2008 10:58
Mosley ætlar ekki að segja af sér Max Mosley, formaður Alþjóða akstursíþróttasambandsins, hefur beðist afsökunar á framferði sínu en ætlar ekki að segja af sér sem formaður sambandsins. Formúla 1 2.4.2008 10:05
Mosley tók þátt í nasistaorgíu með fimm vændiskonum Helgarblaðið News of the World hefur undir höndum myndband sem sagt er að sýni Max Mosley, forseta Alþjóða akstursíþróttasambandsins, í kynlífsleikjum með fimm vændiskonum í Lundúnum. Formúla 1 30.3.2008 14:28
Sérefni um Kimi Raikkönen hjá Stöð 2 Sport Sérstakur umræðuþáttur um Kimi Raikkönen og næsta Formúlu 1 mót er í undirbúningi um helgina hjá Stöð 2 Sport, en stöðinni áskotnaðist efni um kappan frá hans yngri árum. Efnið hefur aldrei verið sýnt hérlendis og á fimmtudaginn verða sérstakir aðdáendur Raikkönen hérlendis kallaðir til í þættinum Rásmarkið. Formúla 1 30.3.2008 00:20
Schumacher deilir út sektarfé McLaren Michael Schumacher er í nefnd sem ákveður hvað verður gert við þá peninga sem McLaren þurfti að borga í sekt vegna njósnamálsins í fyrra. Formúla 1 27.3.2008 09:36
Toyota nærri toppliðunum í Formúlu 1 Jarno Trulli telur að Toyota sé komið í þá stöðu að vera rétt á eftir toppliðunum í Formúlu 1. Hann varð í fjórða sætií Malasíu um helgina. Næsta mót er í Barein um aðra helgi og þar æfði Toyota í vetur ásamt Ferrari, sem gæti komið liðsmönnum til góða Formúla 1 27.3.2008 09:19
Eddie Jordan lagði stein í götu Force India Írinn Eddie Jordan lét leggja steina í innkeyrsluna hjá Force India liðinu á Silverstone í Bretlandi. Hann segir liðið ekki hafa að fullu greitt skuldir sínar við sig. Hann seldi lið sitt til Midland, sem aftur seldi Force India. En allt hefur ekki verið gert upp. Formúla 1 26.3.2008 23:37
McLaren færði Kovalainen sjálfstraust Ron Dennis, yfirmaður McLaren liðsins, segir að Heikki Kovalainen hafi verið brotinn niður hjá Renault en McLaren hafi byggt hann upp á ný og fært honum sjálfstraust. Formúla 1 26.3.2008 17:14
Hættir Alonso hjá Renault? Fernando Alonso segir að sér sé frjálst að hætta hjá liði Renault eftir yfirstandandi keppnistímabil í Formúlu 1. Formúla 1 25.3.2008 15:46
Kristján keppti í fyrsta Formúlu 3 mótinu Kristján Einar Kristjánsson keppti í sinni fyrstu Formúlu 3 keppni á Bretlandseyjum í dag. Hann keppti í tveimur umferðum og varð í fimmt sæti í þeirri fyrri og sjötta sæti í þeirri seinni í sínum flokki. Formúla 1 24.3.2008 17:33
Raikkönen: Nokkuð auðvelt Kimi Raikkönen segir að kappaksturinn í Malasíu í morgun hafi verið sér nokkuð auðveldur eftir fyrsta viðgerðarhléið. Formúla 1 23.3.2008 12:46
Raikkonen vann í Malasíu Finninn og heimsmeistarinn Kimi Raikkönen fagnaði sigri í Formúlu 1-keppninni í Malasíu í morgun eftir að félagi hans, Felipe Massa, datt úr leik um miðja keppni. Formúla 1 23.3.2008 08:41
Dómarar refsa ökumönnum McLaren Dómarar Formúlu 1 mótsins í Malasíu ákváðu í hádeginu að refsta Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton fyrir að hafa truflað Nick Heidfeld á BMW og Fernando Alonso á Renault í lokahring þeirra í tímatökunni. Formúla 1 22.3.2008 11:55
Ökumenn McLaren kallaðir fyrir dómara Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton voru kallaðir fyrir dómara mótsins á Sepang brautinni í dag, eftir athugasemd frá Nick Heidfeld og Fernando Alonso. Þeir töldu að McLaren hefðu sýnt vítavert gáleysi þegar þeir hægðu á bílnum sínum eftir að hafa lokið sínum hraðasta hring. Formúla 1 22.3.2008 11:21
Massa fremstur á ráslínu í Malasíu Félagarnir Felipe Massa og Kimi Raikkönen verða frremstir á ráslínu í malasíska kappakstrinum á aðfaranótt sunnudags. Massa náði besta tíma í tímatökum í nótt og Raikkönen kom honum næstur. Formúla 1 22.3.2008 07:49
24,1 % áhorf á Formúlu 1 á Stöð 2 Sport Ljóst er að Formúlu 1 útsendingar á Stöð 2 Sport hafa fallið vel í kramið og íþróttin heldur sinni stöðu sem vinsælt sjónvarpsefni, þrátt fyrir að hafa skipt um umhverfi, horfið af RÚV yfir á Stöð 2 Sport. Formúla 1 21.3.2008 14:29
Verður Red Bull bíllinn bannaður? Alþjóðabílasambandið kannar hvort banna eigi þátttöku Red Bull Formúlu 1 liðsins í keppni í Malasíu eftir æfingar í nótt Formúla 1 21.3.2008 10:13
Lítill munur á Ferrari og McLaren Ökumenn Ferrari og McLaren kepptust hvað mest um að ná bestum tíma á Sepang brautinni í nótt. Tvær æfingar fóru fram. Felipe Massa á Ferrari var langfljótastur á fyrri æfingunni, en Lewis Hamilton á Ferrari á þeirri síðari. Formúla 1 21.3.2008 07:59
Massa fyrstur í Malasíu Brasilíumaðurinn Felipe Massa á Ferrari náði langbesta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða í Malasíu í nótt. Hann varð sekúndu fljótari en KImi Raikkönen á samskonar bíl. Bíll Raikkönen bilaði á æfingunni og David Coulthard á Red Bull fékk nokkuð harkalegan skell. Formúla 1 21.3.2008 03:37
Keppt í hitasvækju í Malasíu um páskana Formúlu 1 mót verður í Malasíu um helgina og búist er við 40 stiga hita og miklum raka. Þetta mun reyna mikið á þolgæði bíla og ökumanna sem kepptu í Ástralíu um síðustu helgi. Formúla 1 20.3.2008 19:19
Felisa tekur við starfi Todt hjá Ferrari Stjórn Ferrari samþykkti í dag að Jean Todt hyrfi frá starfi sínu sem forstjóri Ferrari. Í hans stað kemur Amadeo Felisa, en Todt hefur gengt starfi forstjóra Ferrari síðan 2006. Formúla 1 18.3.2008 18:30
Rakst á takka sem takmarkaði hraða Heikki Kovalainen lenti í því í kappakstrinum í Melbourne um helgina að hann rakst óvart á takka sem takmarkaði hraða hans á beina kaflanum. Hann hafði nýlega farið framúr Fernando Alonso þegar það gerðist. Formúla 1 17.3.2008 22:58