Fréttir Verslunarmenn boða atkvæðagreiðslu um verkfall á Keflavíkurflugvelli Samninganefnd VR hefur ákveðið að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall félagsmanna í farþega- og hleðsluþjónustu hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Með aðgerðunum á að þrýsta á breytingar á vaktafyrirkomulagi starfsfólksins á flugvellinum. Innlent 6.3.2024 10:05 Þjóðskrá Íslands hefur útgáfu nýrra nafnskírteina Þjóðskrá Íslands hefur hafið útgáfu á nýjum nafnskírteinum. Hægt er að sækja um nafnskírteini sem ferðaskilríki, sem nota má í stað vegabréfs innan Evrópska efnahagssvæðisins. Innlent 6.3.2024 09:18 Adda Rúna nýr skrifstofustjóri menningarborgar Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, Adda Rúna, hefur verið ráðin í starf skrifstofustjóra menningarborgar á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar. Starfið var auglýst í október síðastliðnum og sóttu þrjátíu manns um starfið. Innlent 6.3.2024 09:00 Aðgerðum lauk í kringum miðnætti Umfangsmiklum lögregluaðgerðum vegna gruns um mansal, peningaþvætti, og skipulagða glæpastarsemi lauk um miðnætti. Úrræði sem grípa fórnarlömb meints mansals hafa verið virkjuð. Innlent 6.3.2024 08:28 Framsókn hvetur sveitarfélög til að styðja gjaldfrjálsar skólamáltíðir Sveitarstjórnarráð Framsóknarflokksins hvetur sveitarstjórnarfólk um land allt til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á vinnumarkaði, sem hafi það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu. Í ályktun ráðsins sem samþykkt var á fundi í gærkvöldi segir að lækkun vaxta auki kaupmátt allra heimila. Innlent 6.3.2024 08:11 Rannsökuðu mann sem lét bólusetja sig 217 sinnum gegn Covid-19 Vísindamenn segja 62 ára mann frá Þýskalandi sem lét bólusetja sig 217 sinnum á 29 mánuðum gegn Covid-19 aldrei hafa smitast af SARS-CoV-2 né hafa upplifaðn neinar aukaverkanir af bóluefninu. Erlent 6.3.2024 08:08 Fimm sprengingar í Svíþjóð síðasta sólarhringinn Tvær sprengingar urðu í Gautaborg í Svíþjóð í nótt og bætast þær við þær þrjár sem urðu í höfuðborginni Stokkhólmi í fyrrinótt og í gærkvöldi. Erlent 6.3.2024 07:47 Fengu ekki að koma hjálpargögnum inn á norðurhluta Gasa Alþjóðamatvælastofnunin segir að Ísraelsher hafi komið í veg fyrir að hægt yrði að senda hjálpargögn inn á norðurhluta Gasa svæðisins. Innlent 6.3.2024 07:40 Mild suðaustanátt en hvasst suðvestantil Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði áfram mild suðaustlæg átt í dag og nokkuð hvasst suðvestantil, en hægari vindur í öðrum landshlutum. Veður 6.3.2024 07:14 Aldrei fleiri lagðir inn á Englandi vegna matartengdra baktería Aldrei hafa fleiri greinst með matvælatengdar sýkingar á Englandi heldur en í fyrra. Alls voru 1.468 lagðir inn vegna salmonellu frá apríl 2022 til mars 2023 og þá lögðust yfir 4.340 inn vegna kampýlóbakter-sýkingar. Erlent 6.3.2024 07:10 Biden og Trump sópuðu að sér kjörmönnum en Haley tók Vermont Joe Biden og Donald Trump komu, sáu og sigruðu í forvali Demókrataflokksins og Repúblikanaflokksins á svokölluðum „Ofur-þriðjudegi“ í gær. Erlent 6.3.2024 06:47 Vaxandi áhyggjur af astmalyfi og áhrifum þess á börn og ungmenni Frá árinu 2012 hafa Lyfjastofunin borist ellefu tilkynningar um aukaverkanir af völdum lyfsins montelukast. Meðal aukaverkanana má nefna skapsveiflur, martraðir, kvíða, þunglyndi og svefnörðugleika. Innlent 6.3.2024 06:21 Ryðja allan Landsrétt í máli fyrrverandi dómsmálaráðherra Allir dómarar Landsréttar þurfa að víkja þegar dómstóllinn tekur fyrir mál sem félagið Lyfjablóm höfðar gegn Þórði Má Jóhannessyni og Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur, sem var dóms- og kirkjumálaráðherra í kringum síðustu aldamót og síðar forseti Alþingis. Innlent 5.3.2024 22:28 Aðgerðirnar standa enn yfir Umfangsmiklar aðgerðir lögreglu vegna gruns um mansal, peningaþvætti, og skipulagða glæpastarsemi standa enn yfir. Þetta staðfestir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. Innlent 5.3.2024 20:33 Táraðist þegar hann heyrði fréttirnar frá Kaíró Félagsmálaráðherra táraðist þegar hann frétti af því að utanríkisráðherra og sendinefnd ráðuneytisins hefði tekist að bjarga sjötíu og tveimur dvalarleyfishöfum út af Gasasvæðinu. Hópurinn er væntanlegur til landsins á næstu dögum og það er að mörgu að hyggja. Innlent 5.3.2024 19:30 Sveitarfélögin geta komið í veg fyrir undirritun kjarasamninga Kjarasamningar eru á lokametrunum og gætu jafnvel legið fyrir á morgun. Formaður Starfsgreinasambandsins segir hins vegar að ekki verði skrifað undir samninga nema sveitarfélögin gefi skýr svör varðandi framlag þeirra. Þau muni hagnast mikið á kjarasamningum. Innlent 5.3.2024 19:21 Nokkrir handteknir í tengslum við aðgerðirnar Nokkrir hafa verið handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar í dag. Grunur um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi leiddi til aðgerðanna sem snúa að fyrirtækjum Davíðs Viðarsonar, sem á meðal annars Vy-þrif, Pho Víetnam, og Wok On. Innlent 5.3.2024 18:17 „Vitum ekki hvar við verðum í nótt“ Tveir ferðamenn frá Filippseyjum eru í leit að gistingu eftir að hafa verið gert að yfirgefa Kastala guesthouse síðdegis vegna umfangsmikilla lögregluaðgerða. Lögregla hefur innsiglað gistiheimilið. Innlent 5.3.2024 18:03 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag staðið fyrir umfangsmiklum aðgerðum vegna rökstudds gruns um mansal, peningaþvætti, brotum á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða brotastarfsemi. Málið tengist fyrirtækinu Vy-þrifum en eigandi þess rekur bæði veitingastaði og gistiheimili. Innlent 5.3.2024 18:01 Kanna þær upplýsingar sem Vinnumálastofnun býr yfir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunnar, segir þátt Vinnumálastofnunnar í rannsókn lögreglunnar á fyrirtækinu Vy-þrifum og eiganda þess Davíð Viðarssyni fyrst og fremst varða þær upplýsingar sem Vinnumálastofnun býr yfir. Innlent 5.3.2024 18:00 Komast ekki í eigur sínar vegna lögregluaðgerða Írskur ferðamaður kom að lokuðum dyrum þegar hann sneri á Kastali Guesthouse í Kirkjustræti síðdegis eftir dagsferð út á land að skoða jarðhitasvæði. Innlent 5.3.2024 17:06 Eigandi Vy-þrifa grunaður um mansal og peningaþvætti Miðlæg rannsóknardeild lögreglu lagðist í umfangsmiklar aðgerðir víða um land í dag. Grunur um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi leiddi til aðgerða á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðurnesjum og Norðurlandi og standa þær enn yfir. Innlent 5.3.2024 16:24 Látinn laus og óvíst með framhaldið Karlmaður af erlendum uppruna sem var með óspektir á þingpöllum Alþingis síðdegis í gær verður leystur úr haldi í dag að loknum yfirheyrslum. Innlent 5.3.2024 16:01 Stóra kókaínmálinu hvergi nærri lokið Pétur Jökull Jónsson, sem grunaður er um aðild að stóra kókaínmálinu og var eftirlýstur af Interpol á dögunum, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald næstu fjórar vikurnar. Innlent 5.3.2024 15:42 Geimskot olli ljósasýningu yfir Mývatni Mikilfengleg ljósasýning sást á himnum yfir Mývatni í gærkvöldi. Þar var að öllum líkindum um að ræða fyrirbæri sem til var komið vegna mannaðs geimskots SpaceX frá Bandaríkjunum í gær. Innlent 5.3.2024 14:52 Guðni fékk glæsilegar móttökur í Georgíu Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er mættur til Georgíu þar sem hann fékk höfðinglegar móttökur í Tbilisi frá Salome Zourabichvili forseta Georgíu. Innlent 5.3.2024 14:48 Þingpallarnir opnir eins og aðra daga Skrifstofustjóri Alþingis segir þingpallana opna á Alþingi í dag eins og kveðið sé á um í stjórnarskránni þrátt fyrir óþægilegt atvik síðdegis í gær. Þá þurfti að fjarlægja hælisleitendur af pöllunum sem trufluðu þingstörf. Innlent 5.3.2024 14:38 Foreldrar ungra reykvískra barna geta nú spáð fyrir um stöðuna á biðlistum Reykjavíkurborg hefur hleypt af stokkunum sérstökum Leikskólareikni sem ætlað er að sýna stöðu umsókna í leikskóla borgarinnar og geti foreldrar þannig fengið áætlaða spá um stöðu barna sinna á biðlista. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir gott að fá fram reikninn sem sýni þó jafnframt fram á þá alvarlegu stöðu sem uppi sé í leikskólamálum. Innlent 5.3.2024 14:29 Lýsa eftir rússneskum herforingjum fyrir glæpi gegn mannkyninu Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipun á hendur tveimur háttsettum rússneskum herforingjum fyrir glæpi gegn mannkyninu. Þeir eru sakaðir um umfangsmiklar árásir á borgara og borgaralega innviði í Úkraínu. Erlent 5.3.2024 14:21 Leita að parísarhjólsstjóra Reykjavíkurborg leitar að samstarfsaðila til að reka parísarhjól á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn. Þetta kemur fram á vef borgarinnar. Innlent 5.3.2024 14:06 « ‹ 320 321 322 323 324 325 326 327 328 … 334 ›
Verslunarmenn boða atkvæðagreiðslu um verkfall á Keflavíkurflugvelli Samninganefnd VR hefur ákveðið að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall félagsmanna í farþega- og hleðsluþjónustu hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Með aðgerðunum á að þrýsta á breytingar á vaktafyrirkomulagi starfsfólksins á flugvellinum. Innlent 6.3.2024 10:05
Þjóðskrá Íslands hefur útgáfu nýrra nafnskírteina Þjóðskrá Íslands hefur hafið útgáfu á nýjum nafnskírteinum. Hægt er að sækja um nafnskírteini sem ferðaskilríki, sem nota má í stað vegabréfs innan Evrópska efnahagssvæðisins. Innlent 6.3.2024 09:18
Adda Rúna nýr skrifstofustjóri menningarborgar Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, Adda Rúna, hefur verið ráðin í starf skrifstofustjóra menningarborgar á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar. Starfið var auglýst í október síðastliðnum og sóttu þrjátíu manns um starfið. Innlent 6.3.2024 09:00
Aðgerðum lauk í kringum miðnætti Umfangsmiklum lögregluaðgerðum vegna gruns um mansal, peningaþvætti, og skipulagða glæpastarsemi lauk um miðnætti. Úrræði sem grípa fórnarlömb meints mansals hafa verið virkjuð. Innlent 6.3.2024 08:28
Framsókn hvetur sveitarfélög til að styðja gjaldfrjálsar skólamáltíðir Sveitarstjórnarráð Framsóknarflokksins hvetur sveitarstjórnarfólk um land allt til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á vinnumarkaði, sem hafi það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu. Í ályktun ráðsins sem samþykkt var á fundi í gærkvöldi segir að lækkun vaxta auki kaupmátt allra heimila. Innlent 6.3.2024 08:11
Rannsökuðu mann sem lét bólusetja sig 217 sinnum gegn Covid-19 Vísindamenn segja 62 ára mann frá Þýskalandi sem lét bólusetja sig 217 sinnum á 29 mánuðum gegn Covid-19 aldrei hafa smitast af SARS-CoV-2 né hafa upplifaðn neinar aukaverkanir af bóluefninu. Erlent 6.3.2024 08:08
Fimm sprengingar í Svíþjóð síðasta sólarhringinn Tvær sprengingar urðu í Gautaborg í Svíþjóð í nótt og bætast þær við þær þrjár sem urðu í höfuðborginni Stokkhólmi í fyrrinótt og í gærkvöldi. Erlent 6.3.2024 07:47
Fengu ekki að koma hjálpargögnum inn á norðurhluta Gasa Alþjóðamatvælastofnunin segir að Ísraelsher hafi komið í veg fyrir að hægt yrði að senda hjálpargögn inn á norðurhluta Gasa svæðisins. Innlent 6.3.2024 07:40
Mild suðaustanátt en hvasst suðvestantil Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði áfram mild suðaustlæg átt í dag og nokkuð hvasst suðvestantil, en hægari vindur í öðrum landshlutum. Veður 6.3.2024 07:14
Aldrei fleiri lagðir inn á Englandi vegna matartengdra baktería Aldrei hafa fleiri greinst með matvælatengdar sýkingar á Englandi heldur en í fyrra. Alls voru 1.468 lagðir inn vegna salmonellu frá apríl 2022 til mars 2023 og þá lögðust yfir 4.340 inn vegna kampýlóbakter-sýkingar. Erlent 6.3.2024 07:10
Biden og Trump sópuðu að sér kjörmönnum en Haley tók Vermont Joe Biden og Donald Trump komu, sáu og sigruðu í forvali Demókrataflokksins og Repúblikanaflokksins á svokölluðum „Ofur-þriðjudegi“ í gær. Erlent 6.3.2024 06:47
Vaxandi áhyggjur af astmalyfi og áhrifum þess á börn og ungmenni Frá árinu 2012 hafa Lyfjastofunin borist ellefu tilkynningar um aukaverkanir af völdum lyfsins montelukast. Meðal aukaverkanana má nefna skapsveiflur, martraðir, kvíða, þunglyndi og svefnörðugleika. Innlent 6.3.2024 06:21
Ryðja allan Landsrétt í máli fyrrverandi dómsmálaráðherra Allir dómarar Landsréttar þurfa að víkja þegar dómstóllinn tekur fyrir mál sem félagið Lyfjablóm höfðar gegn Þórði Má Jóhannessyni og Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur, sem var dóms- og kirkjumálaráðherra í kringum síðustu aldamót og síðar forseti Alþingis. Innlent 5.3.2024 22:28
Aðgerðirnar standa enn yfir Umfangsmiklar aðgerðir lögreglu vegna gruns um mansal, peningaþvætti, og skipulagða glæpastarsemi standa enn yfir. Þetta staðfestir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. Innlent 5.3.2024 20:33
Táraðist þegar hann heyrði fréttirnar frá Kaíró Félagsmálaráðherra táraðist þegar hann frétti af því að utanríkisráðherra og sendinefnd ráðuneytisins hefði tekist að bjarga sjötíu og tveimur dvalarleyfishöfum út af Gasasvæðinu. Hópurinn er væntanlegur til landsins á næstu dögum og það er að mörgu að hyggja. Innlent 5.3.2024 19:30
Sveitarfélögin geta komið í veg fyrir undirritun kjarasamninga Kjarasamningar eru á lokametrunum og gætu jafnvel legið fyrir á morgun. Formaður Starfsgreinasambandsins segir hins vegar að ekki verði skrifað undir samninga nema sveitarfélögin gefi skýr svör varðandi framlag þeirra. Þau muni hagnast mikið á kjarasamningum. Innlent 5.3.2024 19:21
Nokkrir handteknir í tengslum við aðgerðirnar Nokkrir hafa verið handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar í dag. Grunur um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi leiddi til aðgerðanna sem snúa að fyrirtækjum Davíðs Viðarsonar, sem á meðal annars Vy-þrif, Pho Víetnam, og Wok On. Innlent 5.3.2024 18:17
„Vitum ekki hvar við verðum í nótt“ Tveir ferðamenn frá Filippseyjum eru í leit að gistingu eftir að hafa verið gert að yfirgefa Kastala guesthouse síðdegis vegna umfangsmikilla lögregluaðgerða. Lögregla hefur innsiglað gistiheimilið. Innlent 5.3.2024 18:03
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag staðið fyrir umfangsmiklum aðgerðum vegna rökstudds gruns um mansal, peningaþvætti, brotum á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða brotastarfsemi. Málið tengist fyrirtækinu Vy-þrifum en eigandi þess rekur bæði veitingastaði og gistiheimili. Innlent 5.3.2024 18:01
Kanna þær upplýsingar sem Vinnumálastofnun býr yfir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunnar, segir þátt Vinnumálastofnunnar í rannsókn lögreglunnar á fyrirtækinu Vy-þrifum og eiganda þess Davíð Viðarssyni fyrst og fremst varða þær upplýsingar sem Vinnumálastofnun býr yfir. Innlent 5.3.2024 18:00
Komast ekki í eigur sínar vegna lögregluaðgerða Írskur ferðamaður kom að lokuðum dyrum þegar hann sneri á Kastali Guesthouse í Kirkjustræti síðdegis eftir dagsferð út á land að skoða jarðhitasvæði. Innlent 5.3.2024 17:06
Eigandi Vy-þrifa grunaður um mansal og peningaþvætti Miðlæg rannsóknardeild lögreglu lagðist í umfangsmiklar aðgerðir víða um land í dag. Grunur um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi leiddi til aðgerða á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðurnesjum og Norðurlandi og standa þær enn yfir. Innlent 5.3.2024 16:24
Látinn laus og óvíst með framhaldið Karlmaður af erlendum uppruna sem var með óspektir á þingpöllum Alþingis síðdegis í gær verður leystur úr haldi í dag að loknum yfirheyrslum. Innlent 5.3.2024 16:01
Stóra kókaínmálinu hvergi nærri lokið Pétur Jökull Jónsson, sem grunaður er um aðild að stóra kókaínmálinu og var eftirlýstur af Interpol á dögunum, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald næstu fjórar vikurnar. Innlent 5.3.2024 15:42
Geimskot olli ljósasýningu yfir Mývatni Mikilfengleg ljósasýning sást á himnum yfir Mývatni í gærkvöldi. Þar var að öllum líkindum um að ræða fyrirbæri sem til var komið vegna mannaðs geimskots SpaceX frá Bandaríkjunum í gær. Innlent 5.3.2024 14:52
Guðni fékk glæsilegar móttökur í Georgíu Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er mættur til Georgíu þar sem hann fékk höfðinglegar móttökur í Tbilisi frá Salome Zourabichvili forseta Georgíu. Innlent 5.3.2024 14:48
Þingpallarnir opnir eins og aðra daga Skrifstofustjóri Alþingis segir þingpallana opna á Alþingi í dag eins og kveðið sé á um í stjórnarskránni þrátt fyrir óþægilegt atvik síðdegis í gær. Þá þurfti að fjarlægja hælisleitendur af pöllunum sem trufluðu þingstörf. Innlent 5.3.2024 14:38
Foreldrar ungra reykvískra barna geta nú spáð fyrir um stöðuna á biðlistum Reykjavíkurborg hefur hleypt af stokkunum sérstökum Leikskólareikni sem ætlað er að sýna stöðu umsókna í leikskóla borgarinnar og geti foreldrar þannig fengið áætlaða spá um stöðu barna sinna á biðlista. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir gott að fá fram reikninn sem sýni þó jafnframt fram á þá alvarlegu stöðu sem uppi sé í leikskólamálum. Innlent 5.3.2024 14:29
Lýsa eftir rússneskum herforingjum fyrir glæpi gegn mannkyninu Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipun á hendur tveimur háttsettum rússneskum herforingjum fyrir glæpi gegn mannkyninu. Þeir eru sakaðir um umfangsmiklar árásir á borgara og borgaralega innviði í Úkraínu. Erlent 5.3.2024 14:21
Leita að parísarhjólsstjóra Reykjavíkurborg leitar að samstarfsaðila til að reka parísarhjól á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn. Þetta kemur fram á vef borgarinnar. Innlent 5.3.2024 14:06