Fréttir Tekist á um aðgerðir ríkisstjórnar á Alþingi Formenn Samfylkingar og Viðreisnar gagnrýndu á Alþingi í dag að stórfelldar aðgerðir stjórnvalda upp á 80 milljarða í tengslum við kjarasamninga væru ófjármagnaðar. Formaður Miðflokksins gagnrýndi einnig meinta óstjórn stjórnvalda í útlendingamálum. Innlent 11.3.2024 19:20 Lífstíðarfangelsi fyrir nauðgun og morð við Neuschwanstein-kastala Bandarískur karlmaður hefur verið sakfelldur fyrir að hafa nauðgað og myrt ferðakonu og reynt að drepa vinkonu hennar nærri Neuschwanstein-kastalanum í Þýskalandi. Maðurinn var dæmdur í lífstíðarfangelsi. Erlent 11.3.2024 19:03 Gengið vel að fá upplýsingar frá meintum mansalsþolendum Lögreglu gengur afar vel að fá upplýsingar frá þolendum meints mansals Davíðs Viðarsson. Þeim var létt þegar lögreglan handtók sex manns í tengslum við málið. Innlent 11.3.2024 18:26 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögreglu gengur afar vel að fá upplýsingar frá þolendum meints mansals Davíðs Viðarssonar. Þolendum var létt þegar lögreglan réðist í aðgerðir og handtók sex einstaklinga í tengslum við málið. Rætt verður við aðstoðarsaksóknara hjá lögeglunni um málið og farið yfir nýjustu vendingar í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 11.3.2024 18:04 Gæsluvarðhald vegna atburðanna á Nýbýlavegi framlengt aftur Gæsluvarðhald yfir konu um fimmtugt, sem grunuð er um að hafa banað sex ára syni sínum í lok janúarmánaðar, hefur verið framlengt aftur um fjórar vikur. Konan hefur setið í gæsluvarðhaldi frá handtöku 1. febrúar síðastliðinn. Innlent 11.3.2024 17:07 Snerist hugur um TikTok eftir heimsókn auðjöfurs Undir lok forsetatíðar sinnar skrifaði Donald Trump undir forsetatilskipun sem ætlað var að takmarka umfang samfélagsmiðilsins TikTok í Bandaríkjunum. Var það á grunni þess að Kommúnistaflokkur Kína stýrði í raun samfélagsmiðlinum og hefði þannig gífurleg áhrif á fjölmiðlaneyslu Bandaríkjamanna. Erlent 11.3.2024 16:57 Rannsókn enn opin hvort fíkniefnasala komi við sögu Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu, segir tvo fulltrúa frá bandarísku fíkniefnalögreglunni hafa komið að aðgerðum í tengslum við húsleit og handtökur tengdar Davíð Viðarssyni og veitingastöðum og gistihúsum í hans eigum. Sá angi málsins er enn til rannsóknar. Innlent 11.3.2024 16:38 Vargöld í Haítí Miklar óeirðir og átök voru í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí um helgina. Þungvopnuð gengi réðust á þjóðhöllina og kveiktu í húsnæði innanríkisráðuneytisins. Þetta kemur í kjölfar árásar á alþjóðaflugvöllinn, en lokað er fyrir alla flugumferð. Forsætisráðherra landsins, Ariel Henry, kemst ekki inn í landið. Erlent 11.3.2024 16:34 Bjarndís tekur við af Álfi Bjarndís Helga Tómasdóttir er nýr formaður Samtakanna '78. Hún tekur við formennsku af Álfi Birki Bjarnasyni sem hefur verið formaður í tvö ár. Innlent 11.3.2024 16:18 Brotnaði illa í sleðaferð „Ég er búin að vera að hjúkra í þrjátíu ár og hef aldrei lent hinum megin við borðið. Það er ánægjulegt að upplifa það,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, en hún lenti í slysi um helgina. Innlent 11.3.2024 15:49 Íslendingar funda með UNRWA Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins sækir í dag fund norrænna þróunarmálaráðherra með framkvæmdastjóra UNRWA, í fjarveru utanríkisráðherra, til að fá upplýsingar um stöðu mála hjá stofnuninni. Kanada og Svíþjóð hafa ákveðið að halda áfram greiðslum til UNRWA. Innlent 11.3.2024 15:28 Stakk konu sína og þrjú börn Lík hjóna og þriggja barna fundust um helgina á heimili þeirra í í Honolulu á Havaíeyjum. Forsvarsmenn lögreglunnar segja útlit fyrir að maður hafi stungið eiginkonu sína og þrjú börn þeirra til bana, áður en hann svipti sig einnig lífi. Erlent 11.3.2024 15:01 Fjórtán ára piltur féll úr stólalyftu í Bláfjöllum Fjórtán ára piltur féll tíu metra úr stólalyftu í Bláfjöllum. Að sögn lögreglu vankaðist pilturinn við fallið en rankaði síðan við sér. Innlent 11.3.2024 14:47 Segir Trump ætla að stöðva alla aðstoð handa Úkraínumönnum Viktor Orban, umdeildur forsætisráðherra Ungverjalands, segir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðanda, hafa sagt sér að verði hann forseti á nýjan leik muni hann binda endi á alla hernaðaraðstoð til Úkraínu. Það er samkvæmt Orban liður í „nákvæmum áætlunum“ Trumps um að binda enda á stríðið í Úkraínu. Erlent 11.3.2024 14:26 Úkraínskir þingmenn afhentu áritaðan fána Sendinefnd þingmanna frá þjóðþingi Úkraínu, Verkhovna Rada, sem skipa vinahóp Íslands á þinginu heimsækir Ísland 11.–14. mars í boði forseta Alþingis, Birgis Ármannssonar. Þetta kemur fram á vef Alþingis. Innlent 11.3.2024 14:22 Tók hundrað sígarettukarton og sleppti því að borga Karlmaður hlaut í dag níutíu daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að stela tæplega hundrað kartonum af sígarettum í fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Innlent 11.3.2024 13:43 Hætta leit að bíl í Þingvallavatni Viðbragðsaðilar hafa ákveðið að hætta leit við vestanvert Þingvallavatn, en lögreglu barst tilkynning um klukkan ellefu í dag um að bíll hefði farið ofan í og niður um ís. Innlent 11.3.2024 13:06 Bjartsýn á að þeim takist að koma öllum dvalarleyfishöfum í skjól Tvær íslenskar konur, sem eru úti í Kaíró í sjálfboðaliðastarfi, eru bjartsýnar á að þeim takist á næstu dögum að bjarga þeim sem hafa dvalarleyfi á Íslandi, og enn eru fastir á Gasa, út af svæðinu. Þær hafi í dag komið öllum 49 dvalarleyfishöfunum á svokallaðan landamæralista. Innlent 11.3.2024 13:00 Páll Bergþórsson er látinn Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, er látinn hundrað ára að aldri. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði eftir stutt veikindi. Innlent 11.3.2024 12:44 Fritzl verður áfram á réttargeðdeild Josef Fritzl verður ekki fluttur í almennt fangelsi í Austurríki í bili og verður þess í stað áfram á réttargeðdeild í öryggisfangelsi. Fyrri ákvörðun hefur verið snúið af áfrýjunardómstól en upprunalegi úrskurðurinn byggði á því að ekki væri talið að ógn stafaði af Fritzl. Erlent 11.3.2024 12:25 „Þetta er alveg skelfileg meðferð á starfsfólki“ Formaður MATVÍS segir meðferðina á starfsfólki hjá fyrirtækjum Davíðs Viðarssonar hafa verið skelfilega. Ábendingum um slæma meðferð á starfsfólki á öðrum stöðum hefur fjölgað eftir að upp komst um málið. Innlent 11.3.2024 12:16 Leit stendur yfir eftir að tilkynnt var um bíl í Þingvallavatni Björgunarsveitir, lögreglumenn af Suðurlandi, slökkviliðsmenn frá Brunavörnu Árnessýslu og þyrla Landhelgisgæslunnar eru nú að störfum við Þingvallavatn eftir að tilkynnt var um að bíll hafi farið í vatnið, sem er ísilagt að hluta. Innlent 11.3.2024 12:08 Atkvæðagreiðsla VR um röð verkfalla á Keflavíkurflugvelli hafin Atkvæðagreiðsla um röð verkfalla starfsmanna VR hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli hófst í morgun. Ef að verföllum verður hefjast fyrstu aðgerðir á miðnætti á föstudag í næstu viku. Samningarnefndir VR og Samtaka atvinnulífsins komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu. Innlent 11.3.2024 11:58 Átján boða forsetaframboð Meðal nýrra frambjóðenda er Kristján Jökull Aðalsteinsson einkaþjálfari sem hefur vakið athygli fyrir ógnandi skilaboð til Hildar Lilliendahl. Innlent 11.3.2024 11:57 Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegsfréttum fjöllum við áfram um kjaramálin en fulltrúar SA og VR hittust í morgun hjá ríkissáttasemjara í karphúsinu. Innlent 11.3.2024 11:42 Gabbaði slökkviliðið í útkall og má búast við refsingu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað í útkall vegna elds í nótt sem enginn fótur reyndist fyrir. Slökkviliðsmenn voru narraðir og hafa vísað málinu til lögreglu. Innlent 11.3.2024 11:13 Kæru Maríu Lilju á hendur Mbl vísað frá Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur vísað frá kæru Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttur Kemp á hendur Mbl.is og Árvakri fyrir brot á siðareglum í frétt miðilsins. Ástæðan var sú að María Lilja var hvorki til umfjöllunar í fréttinni né hafði bein tengsl við umfjöllunarefnið. Innlent 11.3.2024 10:58 Vita lítið um ástandið í Fukushima þrettán árum síðar Nærri því 29 þúsund manns hafa ekki getað snúið aftur til síns heima, þó þrettán ár séu liðin frá því að flóðbylgja, sem myndaðist vegna stærðarinnar jarðskjálfta, skall á ströndum Japans. Flóðbylgjan dró rúmlega 22 þúsund manns til dauða og olli einhverju versta kjarnorkuslysi heimsins frá Tsjernobyl-slysinu sem varð árið 1986. Erlent 11.3.2024 10:54 Katrín játar að hafa átt við myndina og biðst afsökunar Katrín prinsessa af Wales hefur beðist afsökunar á því að hafa deilt breyttri mynd af sér og börnum sínum. Myndin var afturkölluð af myndaveitum eftir að í ljós kom að átt hafði verið við hana. Erlent 11.3.2024 10:52 Baldur kannaði hug Akurnesinga varðandi forsetann Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði sem íhugar alvarlega framboð til forseta Íslands segist þurfa að taka stóra ákvörðun fljótlega. Hann kannaði hug Akurnesinga til framboðs á Skipaskaga í gærkvöldi. Innlent 11.3.2024 10:16 « ‹ 313 314 315 316 317 318 319 320 321 … 334 ›
Tekist á um aðgerðir ríkisstjórnar á Alþingi Formenn Samfylkingar og Viðreisnar gagnrýndu á Alþingi í dag að stórfelldar aðgerðir stjórnvalda upp á 80 milljarða í tengslum við kjarasamninga væru ófjármagnaðar. Formaður Miðflokksins gagnrýndi einnig meinta óstjórn stjórnvalda í útlendingamálum. Innlent 11.3.2024 19:20
Lífstíðarfangelsi fyrir nauðgun og morð við Neuschwanstein-kastala Bandarískur karlmaður hefur verið sakfelldur fyrir að hafa nauðgað og myrt ferðakonu og reynt að drepa vinkonu hennar nærri Neuschwanstein-kastalanum í Þýskalandi. Maðurinn var dæmdur í lífstíðarfangelsi. Erlent 11.3.2024 19:03
Gengið vel að fá upplýsingar frá meintum mansalsþolendum Lögreglu gengur afar vel að fá upplýsingar frá þolendum meints mansals Davíðs Viðarsson. Þeim var létt þegar lögreglan handtók sex manns í tengslum við málið. Innlent 11.3.2024 18:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögreglu gengur afar vel að fá upplýsingar frá þolendum meints mansals Davíðs Viðarssonar. Þolendum var létt þegar lögreglan réðist í aðgerðir og handtók sex einstaklinga í tengslum við málið. Rætt verður við aðstoðarsaksóknara hjá lögeglunni um málið og farið yfir nýjustu vendingar í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 11.3.2024 18:04
Gæsluvarðhald vegna atburðanna á Nýbýlavegi framlengt aftur Gæsluvarðhald yfir konu um fimmtugt, sem grunuð er um að hafa banað sex ára syni sínum í lok janúarmánaðar, hefur verið framlengt aftur um fjórar vikur. Konan hefur setið í gæsluvarðhaldi frá handtöku 1. febrúar síðastliðinn. Innlent 11.3.2024 17:07
Snerist hugur um TikTok eftir heimsókn auðjöfurs Undir lok forsetatíðar sinnar skrifaði Donald Trump undir forsetatilskipun sem ætlað var að takmarka umfang samfélagsmiðilsins TikTok í Bandaríkjunum. Var það á grunni þess að Kommúnistaflokkur Kína stýrði í raun samfélagsmiðlinum og hefði þannig gífurleg áhrif á fjölmiðlaneyslu Bandaríkjamanna. Erlent 11.3.2024 16:57
Rannsókn enn opin hvort fíkniefnasala komi við sögu Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu, segir tvo fulltrúa frá bandarísku fíkniefnalögreglunni hafa komið að aðgerðum í tengslum við húsleit og handtökur tengdar Davíð Viðarssyni og veitingastöðum og gistihúsum í hans eigum. Sá angi málsins er enn til rannsóknar. Innlent 11.3.2024 16:38
Vargöld í Haítí Miklar óeirðir og átök voru í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí um helgina. Þungvopnuð gengi réðust á þjóðhöllina og kveiktu í húsnæði innanríkisráðuneytisins. Þetta kemur í kjölfar árásar á alþjóðaflugvöllinn, en lokað er fyrir alla flugumferð. Forsætisráðherra landsins, Ariel Henry, kemst ekki inn í landið. Erlent 11.3.2024 16:34
Bjarndís tekur við af Álfi Bjarndís Helga Tómasdóttir er nýr formaður Samtakanna '78. Hún tekur við formennsku af Álfi Birki Bjarnasyni sem hefur verið formaður í tvö ár. Innlent 11.3.2024 16:18
Brotnaði illa í sleðaferð „Ég er búin að vera að hjúkra í þrjátíu ár og hef aldrei lent hinum megin við borðið. Það er ánægjulegt að upplifa það,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, en hún lenti í slysi um helgina. Innlent 11.3.2024 15:49
Íslendingar funda með UNRWA Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins sækir í dag fund norrænna þróunarmálaráðherra með framkvæmdastjóra UNRWA, í fjarveru utanríkisráðherra, til að fá upplýsingar um stöðu mála hjá stofnuninni. Kanada og Svíþjóð hafa ákveðið að halda áfram greiðslum til UNRWA. Innlent 11.3.2024 15:28
Stakk konu sína og þrjú börn Lík hjóna og þriggja barna fundust um helgina á heimili þeirra í í Honolulu á Havaíeyjum. Forsvarsmenn lögreglunnar segja útlit fyrir að maður hafi stungið eiginkonu sína og þrjú börn þeirra til bana, áður en hann svipti sig einnig lífi. Erlent 11.3.2024 15:01
Fjórtán ára piltur féll úr stólalyftu í Bláfjöllum Fjórtán ára piltur féll tíu metra úr stólalyftu í Bláfjöllum. Að sögn lögreglu vankaðist pilturinn við fallið en rankaði síðan við sér. Innlent 11.3.2024 14:47
Segir Trump ætla að stöðva alla aðstoð handa Úkraínumönnum Viktor Orban, umdeildur forsætisráðherra Ungverjalands, segir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðanda, hafa sagt sér að verði hann forseti á nýjan leik muni hann binda endi á alla hernaðaraðstoð til Úkraínu. Það er samkvæmt Orban liður í „nákvæmum áætlunum“ Trumps um að binda enda á stríðið í Úkraínu. Erlent 11.3.2024 14:26
Úkraínskir þingmenn afhentu áritaðan fána Sendinefnd þingmanna frá þjóðþingi Úkraínu, Verkhovna Rada, sem skipa vinahóp Íslands á þinginu heimsækir Ísland 11.–14. mars í boði forseta Alþingis, Birgis Ármannssonar. Þetta kemur fram á vef Alþingis. Innlent 11.3.2024 14:22
Tók hundrað sígarettukarton og sleppti því að borga Karlmaður hlaut í dag níutíu daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að stela tæplega hundrað kartonum af sígarettum í fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Innlent 11.3.2024 13:43
Hætta leit að bíl í Þingvallavatni Viðbragðsaðilar hafa ákveðið að hætta leit við vestanvert Þingvallavatn, en lögreglu barst tilkynning um klukkan ellefu í dag um að bíll hefði farið ofan í og niður um ís. Innlent 11.3.2024 13:06
Bjartsýn á að þeim takist að koma öllum dvalarleyfishöfum í skjól Tvær íslenskar konur, sem eru úti í Kaíró í sjálfboðaliðastarfi, eru bjartsýnar á að þeim takist á næstu dögum að bjarga þeim sem hafa dvalarleyfi á Íslandi, og enn eru fastir á Gasa, út af svæðinu. Þær hafi í dag komið öllum 49 dvalarleyfishöfunum á svokallaðan landamæralista. Innlent 11.3.2024 13:00
Páll Bergþórsson er látinn Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, er látinn hundrað ára að aldri. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði eftir stutt veikindi. Innlent 11.3.2024 12:44
Fritzl verður áfram á réttargeðdeild Josef Fritzl verður ekki fluttur í almennt fangelsi í Austurríki í bili og verður þess í stað áfram á réttargeðdeild í öryggisfangelsi. Fyrri ákvörðun hefur verið snúið af áfrýjunardómstól en upprunalegi úrskurðurinn byggði á því að ekki væri talið að ógn stafaði af Fritzl. Erlent 11.3.2024 12:25
„Þetta er alveg skelfileg meðferð á starfsfólki“ Formaður MATVÍS segir meðferðina á starfsfólki hjá fyrirtækjum Davíðs Viðarssonar hafa verið skelfilega. Ábendingum um slæma meðferð á starfsfólki á öðrum stöðum hefur fjölgað eftir að upp komst um málið. Innlent 11.3.2024 12:16
Leit stendur yfir eftir að tilkynnt var um bíl í Þingvallavatni Björgunarsveitir, lögreglumenn af Suðurlandi, slökkviliðsmenn frá Brunavörnu Árnessýslu og þyrla Landhelgisgæslunnar eru nú að störfum við Þingvallavatn eftir að tilkynnt var um að bíll hafi farið í vatnið, sem er ísilagt að hluta. Innlent 11.3.2024 12:08
Atkvæðagreiðsla VR um röð verkfalla á Keflavíkurflugvelli hafin Atkvæðagreiðsla um röð verkfalla starfsmanna VR hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli hófst í morgun. Ef að verföllum verður hefjast fyrstu aðgerðir á miðnætti á föstudag í næstu viku. Samningarnefndir VR og Samtaka atvinnulífsins komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu. Innlent 11.3.2024 11:58
Átján boða forsetaframboð Meðal nýrra frambjóðenda er Kristján Jökull Aðalsteinsson einkaþjálfari sem hefur vakið athygli fyrir ógnandi skilaboð til Hildar Lilliendahl. Innlent 11.3.2024 11:57
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegsfréttum fjöllum við áfram um kjaramálin en fulltrúar SA og VR hittust í morgun hjá ríkissáttasemjara í karphúsinu. Innlent 11.3.2024 11:42
Gabbaði slökkviliðið í útkall og má búast við refsingu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað í útkall vegna elds í nótt sem enginn fótur reyndist fyrir. Slökkviliðsmenn voru narraðir og hafa vísað málinu til lögreglu. Innlent 11.3.2024 11:13
Kæru Maríu Lilju á hendur Mbl vísað frá Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur vísað frá kæru Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttur Kemp á hendur Mbl.is og Árvakri fyrir brot á siðareglum í frétt miðilsins. Ástæðan var sú að María Lilja var hvorki til umfjöllunar í fréttinni né hafði bein tengsl við umfjöllunarefnið. Innlent 11.3.2024 10:58
Vita lítið um ástandið í Fukushima þrettán árum síðar Nærri því 29 þúsund manns hafa ekki getað snúið aftur til síns heima, þó þrettán ár séu liðin frá því að flóðbylgja, sem myndaðist vegna stærðarinnar jarðskjálfta, skall á ströndum Japans. Flóðbylgjan dró rúmlega 22 þúsund manns til dauða og olli einhverju versta kjarnorkuslysi heimsins frá Tsjernobyl-slysinu sem varð árið 1986. Erlent 11.3.2024 10:54
Katrín játar að hafa átt við myndina og biðst afsökunar Katrín prinsessa af Wales hefur beðist afsökunar á því að hafa deilt breyttri mynd af sér og börnum sínum. Myndin var afturkölluð af myndaveitum eftir að í ljós kom að átt hafði verið við hana. Erlent 11.3.2024 10:52
Baldur kannaði hug Akurnesinga varðandi forsetann Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði sem íhugar alvarlega framboð til forseta Íslands segist þurfa að taka stóra ákvörðun fljótlega. Hann kannaði hug Akurnesinga til framboðs á Skipaskaga í gærkvöldi. Innlent 11.3.2024 10:16