Fréttir Efnahagsmálin, Katrín mætir og staðan á Gasa Ákvörðun forsætisráðherra um að gefa kost á sér í komandi forsetakosningum verður rædd á Sprengisandi í dag. Sérfræðingar kryfja pólitískar afleiðingar og Katrín stendur fyrir máli sínu. Innlent 7.4.2024 09:31 Stærðarinnar listaverk komið á sinn stað Stærðarinnar listaverk er risið við aðalinngang Smiðju, nýrrar skrifstofubyggingar Alþingis. Innlent 7.4.2024 08:51 Áfram bálhvasst víða en dregur úr í kvöld Djúp lægð suðaustur af landinu gerir það að verkum að hvasst verður víða í dag. Hvassast suðaustantil, þar sem gul veðurviðvörun gildir líkt og á öllu austanverðu landinu. Veður 7.4.2024 08:07 Forgangsakstur æfður á Suðurlandi Þjálfun í forgangsakstri lögreglubíla er mjög mikilvægur í starfi lögreglunnar segir lögreglumaður á Suðurlandi en þar var verið að halda forgangsaksturs æfingu í þeim tilgangi að sjá hvað gekk vel og hvað þarf að laga og bæta úr. Innlent 7.4.2024 08:06 Færri en fimm dauðsföll á ári vegna mistaka Landlæknir segir að þó að yfir níutíu dauðsföll hafi verið tilkynnt sem alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu síðustu ár hafi greining embættisins leitt í ljós að þau séu miklu færri. Kvörtunum og athugasemdum til embættisins hefur fjölgað mikið síðustu ár og getur tekið allt að fjögur ár að vinna úr þeim. Innlent 7.4.2024 08:00 Etna blæs ótrúlegum reykhringjum Eldfjallið Etna á Sikiley, stærsta virka eldfjall í Evrópu, hefur blásið fallegum reykhringjum síðan á miðvikudag. Eldfjallafræðingur segir ekkert fjall hafa blásið jafnmörgum hringjum og Etna gerir nú. Erlent 7.4.2024 07:55 Fór út með hundinn og var rændur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eftir að tveir menn réðust á mann sem var út að ganga með hundinn sinn og rændu hann verðmætum. Innlent 7.4.2024 07:18 Handtekin í tvígang fyrir að mótmæla í Haag Loftslagsbaráttukonan Greta Thunberg var tvisvar sinnum handtekin af lögreglu á mótmælum sem hún stóð fyrir í Haag í Hollandi í dag. Erlent 6.4.2024 23:56 Skiptar skoðanir á útspili Katrínar Skiptar skoðanir eru á útspili Katrínar Jakobsdóttur fráfarandi forsætisráðherra í tengslum við forsetaframboð hennar. Einhverjir hlakka til að kjósa hana meðan aðrir saka hana um ábyrgðarleysi Innlent 6.4.2024 22:36 Fólk á Austfjörðum sleppi því að vera á ferðinni Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi fundaði fyrir skemmstu með Veðurstofu og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Gert er ráð fyrir talsverðri úrkomu í nótt. Búið er að rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað. Innlent 6.4.2024 21:13 Katrín pakkar saman Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi pakkaði eigum sínum á skrifstofu forsætisráðherra fyrr í dag. Innlent 6.4.2024 20:36 „Þau eru að rífast um forsætisráðherrastólinn“ Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hafa fundað stíft í dag um framtíð stjórnarinnar vegna forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur. Formaður flokks fólksins segir að um slag um forsætisráðherrastólinn sé að ræða. Formaður Miðflokksins furðar sig á hve óundirbúnir stjórnarflokkarnir voru undir ákvörðun Katrínar. Innlent 6.4.2024 19:41 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Leiðtogar stjórnarflokkanna hafa fundað stíft í dag og halda þétt að sér spilunum. Við förum yfir það sem við vitum um stöðuna á viðræðunum í fréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö á eftir, spyrjum fólk á förnum vegi út í stjórnmálaástandið og ræðum við Ingu Sæland og Sigmund Davíð Gunnlaugsson í beinni útsendingu. Innlent 6.4.2024 18:26 Rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað vegna snjóflóðahættu Veðurstofa Íslands hefur eflt til rýminga á tveimur svæðum á Seyðisfirði og einu á Neskaupstað frá klukkan tíu í kvöld vegna snjóflóðahættu. Innlent 6.4.2024 18:24 Lifði af sjóslys og tekur nú forsetaslaginn Eiríkur Ingi Jóhannsson sjómaður hefur gefið kost á sér til embættis forseta Íslands. Eiríkur öðlaðist landsfrægð árið 2012 þegar hann lifði af sjóslys undan ströndum Noregs og var valinn maður ársins á Bylgjunni og Rás 2. Hann segist tilbúinn að taka slaginn. Innlent 6.4.2024 17:59 Ákvörðun stjórnarflokkanna „alls ekki flókin“ Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði segir aðstæður sem upp eru komnar varðandi forsætisráðuneytið vera mjög óvanalegar. Þó séu fordæmi fyrir því að forsætisráðherra biðji lausnar fyrir sig án þess að biðja lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Hann býst við að niðurstaða muni liggja fyrir áður en Katrín fer á Bessastaði. Innlent 6.4.2024 17:18 Hóteli lokað vegna starfsleyfisleysis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði hóteli í austurborg Reykjavíkur í dag vegna þess að hótelið hafði ekki starfsleyfi. Innlent 6.4.2024 17:15 Tugir þúsunda mótmæla Orbán í Búdapest Tugir þúsunda mótmæla ríkisstjórn Viktors Orbán í miðbæ Búdapest, höfuðborgar Ungverjalands. Mótmælendur marséruðu að þinghúsinu og kölluðu „Við erum ekki hrædd“ og „Segðu af þér, Orbán!“ Erlent 6.4.2024 16:01 Halla Hrund boðar til fundar á Kirkjubæjarklaustri Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri mun tilkynna ákvörðun sína um mögulegt forsetaframboð á fundi á Kirkjubæjarklaustri klukkan 14 á morgun. Innlent 6.4.2024 15:15 Ríkisstjórnin hafi ekki nema sólarhring til að ráða ráðum sínum Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, er hugsi yfir því að fulltrúar stjórnarflokkanna virðist telja að þeir hafi góðan tíma til að ráða ráðum sínum um áframhald stjórnarsamstarfsins. Stjórnskipaninni samkvæmt hafi þeir ekki nema sólarhringinn til að leysa úr sínum málum. Innlent 6.4.2024 14:40 Fjórði sólríkasti vetur í Reykjavík frá upphafi mælinga Veturinn 2023 til 2024 var fjórði sólríkasti veturinn í Reykjavík frá upphafi mælinga. Sólríkara var veturna 1947, 2023 og 1966. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Veður 6.4.2024 14:23 „Aldrei teflt í tvísýnu með öryggi gesta eða starfsfólks“ Fyrstu gestirnir í þrjár vikur dýfðu tánum í Bláa lónið klukkan tólf á hádegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu fagnar opnuninni og segir fyllsta öryggis gætt. Innlent 6.4.2024 13:23 Kenndi félagið við keppinautinn korter í gjaldþrot og borgaði ekki skatta Gunnar Örn Gunnarsson, eigandi og framkvæmdarstjóri Hópferða Ellerts ehf. hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og 46 milljóna króna fjársektar fyrir meiri háttar skattalagabrot. Eigandi helsta keppinautarins, Hópferða, heitir Ellert. Innlent 6.4.2024 13:20 Hefur litla trú á að ríkisstjórnin haldi út kjörtímabilið Leiðtogar stjórnarflokkanna hafa síðan í morgun fundað um framtíð ríkisstjórnarinnar. Formaður Flokks fólksins hefur litla trú á að ríkisstjórnin haldi út kjörtímabilið. Hún og fleiri í minnihlutanum geti hugsað sér að styðja ríkisstjórnina til að klára ákveðin mál í gegnum þingið í vor en hún vænti þess að þingkosningar verði í haust. Innlent 6.4.2024 11:58 Hádegisfréttir Bylgjunnar Framtíð ríkisstjórnarinnar er enn í óvissu en leiðtogar funda í dag. Formaður Flokks fólksins væntir þess að kosið verði í haust. Farið verður yfir stöðu mála í hádegisfréttum. Innlent 6.4.2024 11:56 Kæran felld niður Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður mál forystukvenna söfnunar fyrir brottflutning Palestínumanna af Gasa. Hæstaréttarlögmaður hafði kært þær fyrir að brjóta lög um opinberar fjársafnanir, mútugreiðslur til erlendra opinerra starfsmanna og fjármögnun hryðjuverka. Innlent 6.4.2024 10:54 Tímaspursmál hvenær hraun fari að renna til norðurs Aðeins gýs í einum gíg við Sundhnúka. Fjarað hefur út í syðri og smærri gígnum. Sá sem enn gýs í hækkar jafnt og þétt og gnæfir um 25 metra yfir hraunbreiðunni. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segir það vera tímaspursmál hvenær hraun fer að renna til norðurs. Innlent 6.4.2024 10:46 Fær einn af sextíu forsetaframbjóðendum upp í bíl til sín James Einar Becker er mættur í fjórða skiptið á skjáinn á Vísi með bílaþættina Tork gaurinn. James segir nýju seríuna verða sérlega skemmtilega þar sem hann prófar ýmsa nýja hluti og bregður sér oft til útlanda að skoða ýmsa ólíka bíla. Bílar 6.4.2024 10:00 Sölubásar Kristjáníu fjarlægðir og Pusher-stræti lokað Hinu alræmda Pusher-stræti í Kristjáníu í Kaupmannahöfn verður lokað og vonast er til þess að kannabissalan sem hefur einkennt hana í áratugi muni heyra sögunni til. Erlent 6.4.2024 09:45 Djúp lægð nálgast og viðvörun gefin út Djúp lægð nálgast landið úr suðri og því verður vaxandi norðaustanátt á landinu í dag, 10 til 18 metrar á sekúndu um hádegi en 15 til 23 seinnipartinn, hvassast suðaustantil. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir allt landið austanvert. Veður 6.4.2024 08:51 « ‹ 281 282 283 284 285 286 287 288 289 … 334 ›
Efnahagsmálin, Katrín mætir og staðan á Gasa Ákvörðun forsætisráðherra um að gefa kost á sér í komandi forsetakosningum verður rædd á Sprengisandi í dag. Sérfræðingar kryfja pólitískar afleiðingar og Katrín stendur fyrir máli sínu. Innlent 7.4.2024 09:31
Stærðarinnar listaverk komið á sinn stað Stærðarinnar listaverk er risið við aðalinngang Smiðju, nýrrar skrifstofubyggingar Alþingis. Innlent 7.4.2024 08:51
Áfram bálhvasst víða en dregur úr í kvöld Djúp lægð suðaustur af landinu gerir það að verkum að hvasst verður víða í dag. Hvassast suðaustantil, þar sem gul veðurviðvörun gildir líkt og á öllu austanverðu landinu. Veður 7.4.2024 08:07
Forgangsakstur æfður á Suðurlandi Þjálfun í forgangsakstri lögreglubíla er mjög mikilvægur í starfi lögreglunnar segir lögreglumaður á Suðurlandi en þar var verið að halda forgangsaksturs æfingu í þeim tilgangi að sjá hvað gekk vel og hvað þarf að laga og bæta úr. Innlent 7.4.2024 08:06
Færri en fimm dauðsföll á ári vegna mistaka Landlæknir segir að þó að yfir níutíu dauðsföll hafi verið tilkynnt sem alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu síðustu ár hafi greining embættisins leitt í ljós að þau séu miklu færri. Kvörtunum og athugasemdum til embættisins hefur fjölgað mikið síðustu ár og getur tekið allt að fjögur ár að vinna úr þeim. Innlent 7.4.2024 08:00
Etna blæs ótrúlegum reykhringjum Eldfjallið Etna á Sikiley, stærsta virka eldfjall í Evrópu, hefur blásið fallegum reykhringjum síðan á miðvikudag. Eldfjallafræðingur segir ekkert fjall hafa blásið jafnmörgum hringjum og Etna gerir nú. Erlent 7.4.2024 07:55
Fór út með hundinn og var rændur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eftir að tveir menn réðust á mann sem var út að ganga með hundinn sinn og rændu hann verðmætum. Innlent 7.4.2024 07:18
Handtekin í tvígang fyrir að mótmæla í Haag Loftslagsbaráttukonan Greta Thunberg var tvisvar sinnum handtekin af lögreglu á mótmælum sem hún stóð fyrir í Haag í Hollandi í dag. Erlent 6.4.2024 23:56
Skiptar skoðanir á útspili Katrínar Skiptar skoðanir eru á útspili Katrínar Jakobsdóttur fráfarandi forsætisráðherra í tengslum við forsetaframboð hennar. Einhverjir hlakka til að kjósa hana meðan aðrir saka hana um ábyrgðarleysi Innlent 6.4.2024 22:36
Fólk á Austfjörðum sleppi því að vera á ferðinni Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi fundaði fyrir skemmstu með Veðurstofu og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Gert er ráð fyrir talsverðri úrkomu í nótt. Búið er að rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað. Innlent 6.4.2024 21:13
Katrín pakkar saman Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi pakkaði eigum sínum á skrifstofu forsætisráðherra fyrr í dag. Innlent 6.4.2024 20:36
„Þau eru að rífast um forsætisráðherrastólinn“ Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hafa fundað stíft í dag um framtíð stjórnarinnar vegna forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur. Formaður flokks fólksins segir að um slag um forsætisráðherrastólinn sé að ræða. Formaður Miðflokksins furðar sig á hve óundirbúnir stjórnarflokkarnir voru undir ákvörðun Katrínar. Innlent 6.4.2024 19:41
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Leiðtogar stjórnarflokkanna hafa fundað stíft í dag og halda þétt að sér spilunum. Við förum yfir það sem við vitum um stöðuna á viðræðunum í fréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö á eftir, spyrjum fólk á förnum vegi út í stjórnmálaástandið og ræðum við Ingu Sæland og Sigmund Davíð Gunnlaugsson í beinni útsendingu. Innlent 6.4.2024 18:26
Rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað vegna snjóflóðahættu Veðurstofa Íslands hefur eflt til rýminga á tveimur svæðum á Seyðisfirði og einu á Neskaupstað frá klukkan tíu í kvöld vegna snjóflóðahættu. Innlent 6.4.2024 18:24
Lifði af sjóslys og tekur nú forsetaslaginn Eiríkur Ingi Jóhannsson sjómaður hefur gefið kost á sér til embættis forseta Íslands. Eiríkur öðlaðist landsfrægð árið 2012 þegar hann lifði af sjóslys undan ströndum Noregs og var valinn maður ársins á Bylgjunni og Rás 2. Hann segist tilbúinn að taka slaginn. Innlent 6.4.2024 17:59
Ákvörðun stjórnarflokkanna „alls ekki flókin“ Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði segir aðstæður sem upp eru komnar varðandi forsætisráðuneytið vera mjög óvanalegar. Þó séu fordæmi fyrir því að forsætisráðherra biðji lausnar fyrir sig án þess að biðja lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Hann býst við að niðurstaða muni liggja fyrir áður en Katrín fer á Bessastaði. Innlent 6.4.2024 17:18
Hóteli lokað vegna starfsleyfisleysis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði hóteli í austurborg Reykjavíkur í dag vegna þess að hótelið hafði ekki starfsleyfi. Innlent 6.4.2024 17:15
Tugir þúsunda mótmæla Orbán í Búdapest Tugir þúsunda mótmæla ríkisstjórn Viktors Orbán í miðbæ Búdapest, höfuðborgar Ungverjalands. Mótmælendur marséruðu að þinghúsinu og kölluðu „Við erum ekki hrædd“ og „Segðu af þér, Orbán!“ Erlent 6.4.2024 16:01
Halla Hrund boðar til fundar á Kirkjubæjarklaustri Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri mun tilkynna ákvörðun sína um mögulegt forsetaframboð á fundi á Kirkjubæjarklaustri klukkan 14 á morgun. Innlent 6.4.2024 15:15
Ríkisstjórnin hafi ekki nema sólarhring til að ráða ráðum sínum Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, er hugsi yfir því að fulltrúar stjórnarflokkanna virðist telja að þeir hafi góðan tíma til að ráða ráðum sínum um áframhald stjórnarsamstarfsins. Stjórnskipaninni samkvæmt hafi þeir ekki nema sólarhringinn til að leysa úr sínum málum. Innlent 6.4.2024 14:40
Fjórði sólríkasti vetur í Reykjavík frá upphafi mælinga Veturinn 2023 til 2024 var fjórði sólríkasti veturinn í Reykjavík frá upphafi mælinga. Sólríkara var veturna 1947, 2023 og 1966. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Veður 6.4.2024 14:23
„Aldrei teflt í tvísýnu með öryggi gesta eða starfsfólks“ Fyrstu gestirnir í þrjár vikur dýfðu tánum í Bláa lónið klukkan tólf á hádegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu fagnar opnuninni og segir fyllsta öryggis gætt. Innlent 6.4.2024 13:23
Kenndi félagið við keppinautinn korter í gjaldþrot og borgaði ekki skatta Gunnar Örn Gunnarsson, eigandi og framkvæmdarstjóri Hópferða Ellerts ehf. hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og 46 milljóna króna fjársektar fyrir meiri háttar skattalagabrot. Eigandi helsta keppinautarins, Hópferða, heitir Ellert. Innlent 6.4.2024 13:20
Hefur litla trú á að ríkisstjórnin haldi út kjörtímabilið Leiðtogar stjórnarflokkanna hafa síðan í morgun fundað um framtíð ríkisstjórnarinnar. Formaður Flokks fólksins hefur litla trú á að ríkisstjórnin haldi út kjörtímabilið. Hún og fleiri í minnihlutanum geti hugsað sér að styðja ríkisstjórnina til að klára ákveðin mál í gegnum þingið í vor en hún vænti þess að þingkosningar verði í haust. Innlent 6.4.2024 11:58
Hádegisfréttir Bylgjunnar Framtíð ríkisstjórnarinnar er enn í óvissu en leiðtogar funda í dag. Formaður Flokks fólksins væntir þess að kosið verði í haust. Farið verður yfir stöðu mála í hádegisfréttum. Innlent 6.4.2024 11:56
Kæran felld niður Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður mál forystukvenna söfnunar fyrir brottflutning Palestínumanna af Gasa. Hæstaréttarlögmaður hafði kært þær fyrir að brjóta lög um opinberar fjársafnanir, mútugreiðslur til erlendra opinerra starfsmanna og fjármögnun hryðjuverka. Innlent 6.4.2024 10:54
Tímaspursmál hvenær hraun fari að renna til norðurs Aðeins gýs í einum gíg við Sundhnúka. Fjarað hefur út í syðri og smærri gígnum. Sá sem enn gýs í hækkar jafnt og þétt og gnæfir um 25 metra yfir hraunbreiðunni. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segir það vera tímaspursmál hvenær hraun fer að renna til norðurs. Innlent 6.4.2024 10:46
Fær einn af sextíu forsetaframbjóðendum upp í bíl til sín James Einar Becker er mættur í fjórða skiptið á skjáinn á Vísi með bílaþættina Tork gaurinn. James segir nýju seríuna verða sérlega skemmtilega þar sem hann prófar ýmsa nýja hluti og bregður sér oft til útlanda að skoða ýmsa ólíka bíla. Bílar 6.4.2024 10:00
Sölubásar Kristjáníu fjarlægðir og Pusher-stræti lokað Hinu alræmda Pusher-stræti í Kristjáníu í Kaupmannahöfn verður lokað og vonast er til þess að kannabissalan sem hefur einkennt hana í áratugi muni heyra sögunni til. Erlent 6.4.2024 09:45
Djúp lægð nálgast og viðvörun gefin út Djúp lægð nálgast landið úr suðri og því verður vaxandi norðaustanátt á landinu í dag, 10 til 18 metrar á sekúndu um hádegi en 15 til 23 seinnipartinn, hvassast suðaustantil. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir allt landið austanvert. Veður 6.4.2024 08:51