Fréttir Varhugavert að saka fólk um glæp sem hafi unnið í góðri trú Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir óskynsamlegan kost fyrir fjármálaráðherra að rifta samningi Landsbankans um kaup á TM, þó hann sé pólitískt sammála því að það sé óréttlætanlegt að ríkið sé að auka umsvif sín áfjármálamarkaði með kaupunum. Slíkt þyrfti að gera eftir að lagaleg atriði riftunar samningsins yrðu skoðuð gaumgæfilega. Innlent 11.4.2024 12:25 Ætla að fæla barnaníðing úr sundlauginni Skólastjórinn í Dalskóla í Úlfarsárdal hefur varað foreldra og forráðamenn barna í skólanum við dæmdum kynferðisbrotamanni sem leitar í Dalslaug á skólatíma. Hann spjalli reglulega við drengi í skólasundi. Allt kapp verði lagt á að fæla manninn frá sundlauginni. Innlent 11.4.2024 12:19 „Sláturhúsin standa tóm svo mánuðum skiptir“ Nýr forsætisráðherra svaraði því ekki beint hvort hann hygðist bregðast við harðri gagnrýni, meðal annars frá matvælaráðuneytinu, á vinnubrögð í tengslum við breytingar á búvörulögum en bætti við að spyrja mætti hvort eðlilegar framfarir hefðu átt sér stað hjá afurðarstöðvunum með gamla fyrirkomulaginu. Innlent 11.4.2024 12:11 Samþykktu loks frumvarp um herkvaðningu Úkraínska þingið samþykkti í morgun nýtt frumvarp um það hvernig haldið er utan herkvaðningu. Frumvarpið hefur verið til umræðu í þinginu í marga mánuði og tekið umfangsmiklum breytingum. Lögin þykja óvinsæla en fela meðal annars í sér að lækka lágmarksaldur herkvaðningar úr 27 árum í 25 ár og auðvelda yfirvöldum að kveðja menn í herinn. Erlent 11.4.2024 11:52 Búvörulögin áfram þrætuepli á þingi Í hádegisfréttum fjöllum við um búvörulögin umdeildu en þau voru til umræðu á Alþingi í morgun. Innlent 11.4.2024 11:40 Uppljóstrar um hálfrar aldar gamalt framhjáhald fyrrum forsætisráðherra 96 ára gamall maður að nafni Joe Haines, sem starfaði um árabil sem fjölmiðlafulltrúi forsætisráðuneytis Bretlands, hefur nú opinberað framhjáhald Harolds Wilson fyrrum forsætisráðherra Breta. Að sögn Haines hélt ráðherrann við Janet Hewlett-Davies, sem var aðstoðarfjölmiðlafulltrúi í Downingstræti 10, og var 22 árum yngri en Wilson. Þau voru bæði gift. Erlent 11.4.2024 11:07 Sjá peningana úr Hamraborg ekki í umferð Enn hefur enginn verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á þjófnaði á tugum milljóna króna í reiðufé í Hamraborg í Kópavogi í mars síðastliðnum. Innlent 11.4.2024 11:01 Bjarkey í bobba vegna umdeildra laga Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Breki Karlsson framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda rituðu harðorða grein þar sem þeir fordæma fortakslaust lög sem þeir vilja kalla ólög. Innlent 11.4.2024 10:52 Ekki sjálfgefið að framhald yrði á stjórnarsamstarfinu „Ég veit bara það að formaður Sjálfstæðisflokksins var í einum viðræðum, sem var við forystumenn þessara flokka, Framsóknar og Vinstri grænna. Hvað aðrir þingmenn eða aðrir hafa verið að ræða sín á milli um stöðuna bara þekki ég ekki til.“ Innlent 11.4.2024 10:52 Dæmd til dauða í stærsta fjársvikamáli Víetnam Víetnamskur auðjöfur hefur verið dæmdur til dauða fyrir hlut hennar í umfangsmesta fjársvikamáli landsins. Truong My Lan hefur verið fundin sek um fjárdrátt, fjár- og bankasvik og mútugreiðslur. Erlent 11.4.2024 10:16 Mál kvenna vegna líkamsleitar í kjölfar barnsfundar fellt niður Alríkisdómstóll í Ástralíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að fella niður mál fimm kvenna gegn Qatar Airways, vegna líkamsleitar sem þær voru látnar sæta. Erlent 11.4.2024 08:43 Hvöss austanátt syðst á landinu Gert er ráð fyrir hvassri austanátt syðst á landinu í dag , en talsvert hægari vindi annars staðar. Einnig verður úrkoma um mest allt land, snjókoma fyrir norðan en rigning eða slydda sunnan heiða. Veður 11.4.2024 07:33 Heitavatnslaust í Grafarvogi Ekkert heitt vatn er í boði fyrir suma íbúa Grafarvogs eins og stendur og virðist sem stór lögn hafi farið í sundur. Innlent 11.4.2024 07:27 Biden segist vera að íhuga að falla frá málinu gegn Assange Joe Biden Bandaríkjaforseti staðfesti í gær að yfirvöld vestanhafs væru að íhuga að verða við beiðni stjórnvalda í Ástralíu um að fella niður ákærur á hendur Julian Assange. Erlent 11.4.2024 07:24 Tveir greindust með kíghósta í síðustu viku Tveir einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu greindust með kíghósta í síðustu viku en um er að ræða fyrstu tilfellin frá árinu 2019. Útbreiðsla sjúkdómsins í heiminum hefur farið vaxandi síðustu 20 ár. Innlent 11.4.2024 06:50 Þrjátíu þúsund skrifað undir gegn Bjarna og bætist í hópinn Alls höfðu 27.329 einstaklingar sett nafn sitt í morgunsárið á undirskriftalista á island.is sem ber yfirskriftina „Bjarni Benediktsson hefur ekki minn stuðning sem forsætisráðherra“. Stöðugt fjölgar í söfnuninni sem rauf þrjátíu þúsund manna múrinn um ellefuleytið í morgun. Innlent 11.4.2024 06:37 Kosning til biskups Íslands hefst á hádegi í dag Kosning til biskups Íslands hefst klukkan 12 í dag og stendur til klukkan 12 þann 16. apríl. Innlent 11.4.2024 06:19 Fjárhagurinn eigi að ganga fyrir ferðum til Tenerife Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, segir mjög algengt að pör séu ekki á sömu blaðsíðu þegar kemur að fjármálum og að rannsóknir sýni að fleiri sambönd fari á hliðina út af fjármálum en framhjáhaldi. Einnig séu ofnotkun snjalltækja og tengslaleysi milli fjölskyldumeðlima vaxandi vandamál. Innlent 11.4.2024 00:23 Í steininn fyrir að stela dagbók dóttur Bandaríkjaforseta Dómari í New York-ríki Bandaríkjanna hefur dæmt konu, Aimee Harris, í mánaðar fangelsi fyrir að stela dagbók og öðrum persónulegum munum í eigu Ashley Biden, dóttur Joe Biden Bandaríkjaforseta. Erlent 10.4.2024 22:32 Júlíus Viggó endurkjörinn formaður Heimdallar Júlíus Viggó Ólafsson var í kvöld endurkjörinn formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík á aðalfundi félagsins í Valhöll. Hvorki bárust mótframboð í embætti formanns eða stjórnar og töldust því allir frambjóðendur sjálfkjörnir. Innlent 10.4.2024 22:27 Handtekin í gær og les Bjarna pistilinn í dag Listakonan Margrét Rut Eddudóttir var ein þeirra sem var handtekin á mótmælum við Bessastaði í gær. Hún vill meina að það sé ofbeldi að Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, fái að valsa um valdastöður í íslensku samfélagi. Innlent 10.4.2024 22:10 Rottan dreifi sér og sæki í gullnámuna Eitt óvinsælasta dýr landsins, rottan, hefur dreift sér töluvert á höfuðborgarsvæðinu og sést á fleiri stöðum en áður. Þetta segir meindýraeyðir sem telur lífrænu sorptunnurnar meðal sökudólga. Innlent 10.4.2024 20:40 Segir ríkisstjórn Bjarna „nýtt hræðslubandalag“ Stjórnarandstæðingar eru ekki hrifnir af endurnýjuðu stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist sjá litlar breytingar með endursmíðaðri stjórn sem hann kallar „hræðslubandalag“. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi Vinstri grænn, segir þá sem kusu VG hafa keypt köttinn í sekknum. Innlent 10.4.2024 20:01 Afmælishátíð í skugga hamfara Alltof margar fjölskyldur í Grindavík eru enn á hrakhólum. Þetta var meðal þess sem kom fram á afmælishátíð bæjarins sem var haldin í skugga hamfara. Forseti Íslands hvetur fólk til að gefast ekki upp og sýna áfram kjark. Innlent 10.4.2024 19:01 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók til starfa í dag og ráðherrar komu sér fyrir í nýjum ráðuneytum. Á Alþingi sköpuðust heitar umræður um yfirlýsingu forsætisráðherra og mótmælandi var fjarlægður af þingpöllum. Við sjáum myndir frá viðburðaríkum degi í íslenskum stjórnmálum í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við þingmenn í beinni útsendingu. Innlent 10.4.2024 18:01 Óþægur strætófarþegi sparkaði í lögregluþjón Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum útköllum vegna slysa í dag. Á Völlunum í Hafnarfirði lenti vinnumaður undir þakplötu, í Kópavoginum datt vinnumaður úr stiga og í miðborginni féll maður í götuna. Nokkrar tilkynningar um þjófnað úr verslunum bárust lögreglu og sparkaði óþægur strætófarþegi í lögregluþjón. Innlent 10.4.2024 17:55 Betur fór en á horfðist Ástand manns sem lenti undir þakplötu í vinnuslysi á Völlunum í Hafnarfirði í dag er gott eftir atvikum, segir Þorsteinn Gunnarsson, aðstoðarvarstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 10.4.2024 16:57 Ávarpaði þjóðina vegna „breyttrar stöðu“ Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi og bílainnflytjandi, birti ávarp á samfélagsmiðlum í kvöld þar sem hann sagði styrjöld hafna milli Íslands og Rússlands. Hann segist hafa í aðdraganda forsetakosninganna 2016 varað við að slíkt væri yfirvofandi. Innlent 10.4.2024 16:47 Skömmuð af matvælaráðuneytinu degi áður en hún tók við Degi áður en Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir tók við sem matvælaráðherra fékk atvinnuveganefnd Alþingis, nefnd sem hún sat í þar til hún tók við ráðuneytinu, bréf frá matvælaráðuneytinu þar sem breytingar og vinnubrögð nefndarinnar voru gagnrýnd. Innlent 10.4.2024 16:44 Vinnuskólabörnin fá loksins launahækkun Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að hækka laun nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur sumarið 2024. Vinnuskólabörnin fá því sína fyrstu launahækkun í tvö ár. Innlent 10.4.2024 16:16 « ‹ 274 275 276 277 278 279 280 281 282 … 334 ›
Varhugavert að saka fólk um glæp sem hafi unnið í góðri trú Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir óskynsamlegan kost fyrir fjármálaráðherra að rifta samningi Landsbankans um kaup á TM, þó hann sé pólitískt sammála því að það sé óréttlætanlegt að ríkið sé að auka umsvif sín áfjármálamarkaði með kaupunum. Slíkt þyrfti að gera eftir að lagaleg atriði riftunar samningsins yrðu skoðuð gaumgæfilega. Innlent 11.4.2024 12:25
Ætla að fæla barnaníðing úr sundlauginni Skólastjórinn í Dalskóla í Úlfarsárdal hefur varað foreldra og forráðamenn barna í skólanum við dæmdum kynferðisbrotamanni sem leitar í Dalslaug á skólatíma. Hann spjalli reglulega við drengi í skólasundi. Allt kapp verði lagt á að fæla manninn frá sundlauginni. Innlent 11.4.2024 12:19
„Sláturhúsin standa tóm svo mánuðum skiptir“ Nýr forsætisráðherra svaraði því ekki beint hvort hann hygðist bregðast við harðri gagnrýni, meðal annars frá matvælaráðuneytinu, á vinnubrögð í tengslum við breytingar á búvörulögum en bætti við að spyrja mætti hvort eðlilegar framfarir hefðu átt sér stað hjá afurðarstöðvunum með gamla fyrirkomulaginu. Innlent 11.4.2024 12:11
Samþykktu loks frumvarp um herkvaðningu Úkraínska þingið samþykkti í morgun nýtt frumvarp um það hvernig haldið er utan herkvaðningu. Frumvarpið hefur verið til umræðu í þinginu í marga mánuði og tekið umfangsmiklum breytingum. Lögin þykja óvinsæla en fela meðal annars í sér að lækka lágmarksaldur herkvaðningar úr 27 árum í 25 ár og auðvelda yfirvöldum að kveðja menn í herinn. Erlent 11.4.2024 11:52
Búvörulögin áfram þrætuepli á þingi Í hádegisfréttum fjöllum við um búvörulögin umdeildu en þau voru til umræðu á Alþingi í morgun. Innlent 11.4.2024 11:40
Uppljóstrar um hálfrar aldar gamalt framhjáhald fyrrum forsætisráðherra 96 ára gamall maður að nafni Joe Haines, sem starfaði um árabil sem fjölmiðlafulltrúi forsætisráðuneytis Bretlands, hefur nú opinberað framhjáhald Harolds Wilson fyrrum forsætisráðherra Breta. Að sögn Haines hélt ráðherrann við Janet Hewlett-Davies, sem var aðstoðarfjölmiðlafulltrúi í Downingstræti 10, og var 22 árum yngri en Wilson. Þau voru bæði gift. Erlent 11.4.2024 11:07
Sjá peningana úr Hamraborg ekki í umferð Enn hefur enginn verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á þjófnaði á tugum milljóna króna í reiðufé í Hamraborg í Kópavogi í mars síðastliðnum. Innlent 11.4.2024 11:01
Bjarkey í bobba vegna umdeildra laga Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Breki Karlsson framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda rituðu harðorða grein þar sem þeir fordæma fortakslaust lög sem þeir vilja kalla ólög. Innlent 11.4.2024 10:52
Ekki sjálfgefið að framhald yrði á stjórnarsamstarfinu „Ég veit bara það að formaður Sjálfstæðisflokksins var í einum viðræðum, sem var við forystumenn þessara flokka, Framsóknar og Vinstri grænna. Hvað aðrir þingmenn eða aðrir hafa verið að ræða sín á milli um stöðuna bara þekki ég ekki til.“ Innlent 11.4.2024 10:52
Dæmd til dauða í stærsta fjársvikamáli Víetnam Víetnamskur auðjöfur hefur verið dæmdur til dauða fyrir hlut hennar í umfangsmesta fjársvikamáli landsins. Truong My Lan hefur verið fundin sek um fjárdrátt, fjár- og bankasvik og mútugreiðslur. Erlent 11.4.2024 10:16
Mál kvenna vegna líkamsleitar í kjölfar barnsfundar fellt niður Alríkisdómstóll í Ástralíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að fella niður mál fimm kvenna gegn Qatar Airways, vegna líkamsleitar sem þær voru látnar sæta. Erlent 11.4.2024 08:43
Hvöss austanátt syðst á landinu Gert er ráð fyrir hvassri austanátt syðst á landinu í dag , en talsvert hægari vindi annars staðar. Einnig verður úrkoma um mest allt land, snjókoma fyrir norðan en rigning eða slydda sunnan heiða. Veður 11.4.2024 07:33
Heitavatnslaust í Grafarvogi Ekkert heitt vatn er í boði fyrir suma íbúa Grafarvogs eins og stendur og virðist sem stór lögn hafi farið í sundur. Innlent 11.4.2024 07:27
Biden segist vera að íhuga að falla frá málinu gegn Assange Joe Biden Bandaríkjaforseti staðfesti í gær að yfirvöld vestanhafs væru að íhuga að verða við beiðni stjórnvalda í Ástralíu um að fella niður ákærur á hendur Julian Assange. Erlent 11.4.2024 07:24
Tveir greindust með kíghósta í síðustu viku Tveir einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu greindust með kíghósta í síðustu viku en um er að ræða fyrstu tilfellin frá árinu 2019. Útbreiðsla sjúkdómsins í heiminum hefur farið vaxandi síðustu 20 ár. Innlent 11.4.2024 06:50
Þrjátíu þúsund skrifað undir gegn Bjarna og bætist í hópinn Alls höfðu 27.329 einstaklingar sett nafn sitt í morgunsárið á undirskriftalista á island.is sem ber yfirskriftina „Bjarni Benediktsson hefur ekki minn stuðning sem forsætisráðherra“. Stöðugt fjölgar í söfnuninni sem rauf þrjátíu þúsund manna múrinn um ellefuleytið í morgun. Innlent 11.4.2024 06:37
Kosning til biskups Íslands hefst á hádegi í dag Kosning til biskups Íslands hefst klukkan 12 í dag og stendur til klukkan 12 þann 16. apríl. Innlent 11.4.2024 06:19
Fjárhagurinn eigi að ganga fyrir ferðum til Tenerife Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, segir mjög algengt að pör séu ekki á sömu blaðsíðu þegar kemur að fjármálum og að rannsóknir sýni að fleiri sambönd fari á hliðina út af fjármálum en framhjáhaldi. Einnig séu ofnotkun snjalltækja og tengslaleysi milli fjölskyldumeðlima vaxandi vandamál. Innlent 11.4.2024 00:23
Í steininn fyrir að stela dagbók dóttur Bandaríkjaforseta Dómari í New York-ríki Bandaríkjanna hefur dæmt konu, Aimee Harris, í mánaðar fangelsi fyrir að stela dagbók og öðrum persónulegum munum í eigu Ashley Biden, dóttur Joe Biden Bandaríkjaforseta. Erlent 10.4.2024 22:32
Júlíus Viggó endurkjörinn formaður Heimdallar Júlíus Viggó Ólafsson var í kvöld endurkjörinn formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík á aðalfundi félagsins í Valhöll. Hvorki bárust mótframboð í embætti formanns eða stjórnar og töldust því allir frambjóðendur sjálfkjörnir. Innlent 10.4.2024 22:27
Handtekin í gær og les Bjarna pistilinn í dag Listakonan Margrét Rut Eddudóttir var ein þeirra sem var handtekin á mótmælum við Bessastaði í gær. Hún vill meina að það sé ofbeldi að Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, fái að valsa um valdastöður í íslensku samfélagi. Innlent 10.4.2024 22:10
Rottan dreifi sér og sæki í gullnámuna Eitt óvinsælasta dýr landsins, rottan, hefur dreift sér töluvert á höfuðborgarsvæðinu og sést á fleiri stöðum en áður. Þetta segir meindýraeyðir sem telur lífrænu sorptunnurnar meðal sökudólga. Innlent 10.4.2024 20:40
Segir ríkisstjórn Bjarna „nýtt hræðslubandalag“ Stjórnarandstæðingar eru ekki hrifnir af endurnýjuðu stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist sjá litlar breytingar með endursmíðaðri stjórn sem hann kallar „hræðslubandalag“. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi Vinstri grænn, segir þá sem kusu VG hafa keypt köttinn í sekknum. Innlent 10.4.2024 20:01
Afmælishátíð í skugga hamfara Alltof margar fjölskyldur í Grindavík eru enn á hrakhólum. Þetta var meðal þess sem kom fram á afmælishátíð bæjarins sem var haldin í skugga hamfara. Forseti Íslands hvetur fólk til að gefast ekki upp og sýna áfram kjark. Innlent 10.4.2024 19:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók til starfa í dag og ráðherrar komu sér fyrir í nýjum ráðuneytum. Á Alþingi sköpuðust heitar umræður um yfirlýsingu forsætisráðherra og mótmælandi var fjarlægður af þingpöllum. Við sjáum myndir frá viðburðaríkum degi í íslenskum stjórnmálum í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við þingmenn í beinni útsendingu. Innlent 10.4.2024 18:01
Óþægur strætófarþegi sparkaði í lögregluþjón Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum útköllum vegna slysa í dag. Á Völlunum í Hafnarfirði lenti vinnumaður undir þakplötu, í Kópavoginum datt vinnumaður úr stiga og í miðborginni féll maður í götuna. Nokkrar tilkynningar um þjófnað úr verslunum bárust lögreglu og sparkaði óþægur strætófarþegi í lögregluþjón. Innlent 10.4.2024 17:55
Betur fór en á horfðist Ástand manns sem lenti undir þakplötu í vinnuslysi á Völlunum í Hafnarfirði í dag er gott eftir atvikum, segir Þorsteinn Gunnarsson, aðstoðarvarstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 10.4.2024 16:57
Ávarpaði þjóðina vegna „breyttrar stöðu“ Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi og bílainnflytjandi, birti ávarp á samfélagsmiðlum í kvöld þar sem hann sagði styrjöld hafna milli Íslands og Rússlands. Hann segist hafa í aðdraganda forsetakosninganna 2016 varað við að slíkt væri yfirvofandi. Innlent 10.4.2024 16:47
Skömmuð af matvælaráðuneytinu degi áður en hún tók við Degi áður en Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir tók við sem matvælaráðherra fékk atvinnuveganefnd Alþingis, nefnd sem hún sat í þar til hún tók við ráðuneytinu, bréf frá matvælaráðuneytinu þar sem breytingar og vinnubrögð nefndarinnar voru gagnrýnd. Innlent 10.4.2024 16:44
Vinnuskólabörnin fá loksins launahækkun Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að hækka laun nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur sumarið 2024. Vinnuskólabörnin fá því sína fyrstu launahækkun í tvö ár. Innlent 10.4.2024 16:16