Fréttir Átta hundrað milljóna afgangur í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær skilaði 808 milljóna króna rekstrarafgangi á síðasta ári. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs í dag þegar ársreikningur sveitarfélagsins var lagður þar fram. Ári áður var rekstrarafgangurinn 890 milljónir. Innlent 22.4.2024 17:28 Halla telur langt í að fólk sé búið að ákveða sig Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var á ferð um Suðurnes þegar Vísir náði í hana. Hún var að ganga inn á kosningafund á Hótel Keflavík. Hún sagði viðtökurnar á Suðurnesjum slíkar að ef væri miðað við þær væri hún með miklu meira fylgi en menn almennt ætla. Innlent 22.4.2024 17:18 Sjö sóttu um embætti skólameistara Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust sjö umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans í Kópavogi. Innlent 22.4.2024 17:17 Íbúar sváfu vært meðan á öllu gekk á jarðhæðinni Íbúar í fjölbýlishúsi í Naustahverfinu á Akureyri þar sem kona fannst látin á fimmta tímanum í nótt virðast flestir hafa sofið á sínu græna eyra í nótt og ekki tekið eftir neinu. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir karlmanni sem handtekinn var á vettvangi vegna málsins. Innlent 22.4.2024 15:57 Ásdís Rán búin að safna undirskriftum Ásdís Rán Gunnarsdóttir, einnig þekkt sem Ísdrottningin, hefur safnað tilskildum fjölda undirskrifta til þess að geta formlega boðið sig fram til forseta. Innlent 22.4.2024 15:47 Kristrún segir ríkisstjórnina vilja gefa auðlindir þjóðarinnar Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, hjólaði í Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, nýjan matvælaráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnartíma nú rétt í þessu. Hún hélt því fram að frumvarp sem Bjarkey mælir fyrir á morgun gangi út á að gefa sjókvíaeldisfyrirtækjum firðina um aldur og ævi. Innlent 22.4.2024 15:39 Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Saksóknari í New York fullyrti að Donald Trump hefði lagt á ráðin um glæpsamlega tilrauna til þess að spilla forsetakosningunum árið 2016 með ólöglegri greiðslu til klámstjörnu þegar málflutningur á sakamáli á hendur fyrrverandi forsetanum hófst í dag. Erlent 22.4.2024 15:27 Þjófnaðurinn áfall fyrir reynslumikla öryggisverði Sjö mínútur liðu frá því þjófarnir í Hamraborg brunuðu í burtu með sjö peningatöskur og þar til upp komst um þjófnaðinn. Þjófavarnakerfi í bíl Öryggismiðstöðvarinnar fór ekki í gang og engin melding barst fyrirtækinu um þjófnaðinn. Það var ekki fyrr en öryggisverðirnir komu að bílnum að upp komst um glæpinn. Þeir eru reynslumiklir og í áfalli að sögn framkvæmdastjóra. Innlent 22.4.2024 14:26 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Rússneskur herdómstóll dæmdi samskiptastjóra samfélagsmiðlarisans Meta í sex ára fangelsi að honum fjarstöddum í dag. Hann var sakaður um að birta ummæli á netinu til stuðnings Úkraínumönnum í innrás Rússa í nágrannaland sitt. Erlent 22.4.2024 14:08 Voru að byggja annan bústað Mennirnir sem eru í haldi lögreglu í tengslum við andlát manns í sumarhúsi í Kiðjabergi voru að smíða annan bústað í sumarhúsabyggðinni. Innlent 22.4.2024 14:05 Skerjafjarðarskáldið segir Höllu Hrund eina með öllu Kristján Hreinsson skáld er einn eindregnasti stuðningsmaður Höllu Hrundar Logadóttur í baráttunni um Bessastaði og hann virkjar skáldagáfu sína henni til dýrðar. Innlent 22.4.2024 13:31 Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi skýtur föstum skotum á Katrínu Jakobsdóttur meðframbjóðanda sinn í nýjum pistil. Innlent 22.4.2024 13:16 Stefnir í spennandi forsetakosningar Halla Hrund Logadóttir bætir við sig miklu fylgi samkvæmt nýrri könnun Prósents fyrir Morgunblaðið þar sem Baldur Þórhallsson nýtur mest fylgis. Stjórnmálafræðingur segir hægt að lesa það eitt út úr könnunum undanfarnar vikur að forsetakosningarnar verði mjög spennandi. Innlent 22.4.2024 12:25 Grunur um manndráp á Akureyri Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar andlát konu sem fannst látin í íbúðarhúsi á Akureyri í nótt. Einn hefur verið verið handtekinn vegna málsins. Innlent 22.4.2024 12:20 Þarf að borga fyrir tunnur sem hann hvorki vildi né fékk Íbúi í Vogum á Vatnsleysuströnd þarf að greiða 51 þúsund krónur vegna sorphirðu við hús hans. Hann hafði um árabil afþakkað sorptunnur og þannig ekki þurft að greiða sorphirðugjald. Þegar nýtt endurvinnslukerfi var innleytt var gjald lagt á hann en þó án þess að hann fengi tunnurnar sem hann vildi ekki. Innlent 22.4.2024 12:05 Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Andstæðingar Narendra Modi forsætisráðherra Indlands saka hann um að fara niðrandi orðum um múslima með ummælum sem hann lét falla um helgina. Þingkosningar hófust á Indlandi á föstudag en þær eru umfangsmestu lýðræðislegu kosningar á jörðinni. Erlent 22.4.2024 11:55 Viðamiklar breytingar gerðar á örorkulífeyriskerfinu Í hádegisfréttum verður rætt við félags- og vinnumarkaðsráðherra sem kynnir í dag viðamiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem eiga að fela í sér bætta þjónustu, hvata til atvinnuþátttöku og betri kjör. Innlent 22.4.2024 11:42 Enginn í 9. bekk skildi setninguna „hjartað dælir blóði“ Eðvarð Hilmarsson, grunnskólakennari og stjórnmálafræðingur, segir meira fjármagn vanta í grunnskólakerfið. Kennarar þurfi auk þess betri viðmið svo að betri yfirsýn fáist á getu nemenda. Allt að 90 prósent nemenda í hverfaskólanum hans eru ekki með íslensku sem móðurmál. Eðvarð vill breyta ýmsu með framboði sínu til formanns Kennarafélags Reykjavíkur. Innlent 22.4.2024 11:19 Dregur úr vinnu og verkefnum Haraldur V. Noregskonungur sneri aftur til vinnu í morgun eftir að hafa verið fjarverandi síðastliðnar átta vikur vegna heilsubrests. Norska konungshöllin greinir frá því að konungurinn muni draga nokkuð úr verkefnum sínum enda orðinn gamall. Erlent 22.4.2024 10:43 Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Hlýnun í Evrópu er um tvöfalt meiri en heimsmeðaltalið og heilsu íbúa álfunnar stafar vaxandi ógn af hitaálagi. Dauðsföllum af völdum hita hefur fjölgað um tæpan þriðjung á undanförnum tveimur áratugum. Erlent 22.4.2024 10:32 Grátbiðja borgarstjórana um að bjarga „einstæðu listaverki Guðjóns“ Fastagestir og velunnarar Sundhallarinnar í Reykjavík biðla til borgarstjóra um að falla frá fyrirhuguðum breytingum á einni merkustu byggingu borgarinnar. Listaverki Guðjóns Samúelssonar eins og þeir komast að orði. Innlent 22.4.2024 10:24 Braust inn í tölvu með lítilli fyrirhöfn og óvæntum afleiðingum Hver sem er getur orðið hakkari með hjálp gervigreindar, að sögn heimsfrægs hakkara sem nýlega var staddur hér á landi. Við mæltum okkur mót við hann og fylgdumst með tölvuinnbroti í rauntíma. Innlent 22.4.2024 10:23 Lögregla heldur spilunum þétt að sér Lögreglan á Suðurlandi gefur ekkert upp að svo stöddu um manndráp í Kiðjabergi í Grímsnes- og Grafningshreppi um helgina. Rannsókn málsins er í fullum gangi. Innlent 22.4.2024 10:05 Bein útsending: Fara yfir breytingar á örorkulífeyriskerfinu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, kynnir umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfi íslands í dag. Breytingin ber yfirskriftina „Öll með“ og er markmið þeirra að einfalda kerfið, draga úr tekjutengingum og gera það réttlátara. Innlent 22.4.2024 10:01 Látin líta út eins og „enemy number one“ af því að hún er ósammála Kristrúnu Sabine Leskopf, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, fór yfir hvað gerðist á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina í Bítinu á Bylgjunni. Hún segist, eins og fleiri innan flokksins, vera ósátt við orð formanns í nýlegu viðtali við útlendingamál þar sem Kristrún sagði að hún vildi ekki að Ísland skæri sig úr í útlendingamálum. Innlent 22.4.2024 09:25 Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Pólland er reiðubúið til að leyfa bandamönnum að koma fyrir kjarnorkuvopnum í landinu ef Atlantshafsbandalagið ákveður að koma vopnunum fyrir víðar til að bregðast við auknum viðbúnaði Rússa í Belarús og Kalíningrad. Erlent 22.4.2024 09:10 Hætta að skerða örorkulífeyri við fyrstu krónu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, kynnir breytingar á örorkulífeyriskerfinu í dag. Hann segir að breytingarnar eigi að einfalda kerfið en hann er sem dæmi að fækka bótaflokkum og setur 100 þúsund króna frítekjumark. Innlent 22.4.2024 08:45 Hvetja til bólusetninga fyrir ferðalög til Evrópu og Bandaríkjanna Fólk sem hyggur á ferðalög ætti að fara yfir bólusetningar sínar og barna sinna hvort sem farið er á framandi slóðir eða stefnt á stutta ferð til nágrannalandanna. Innlent 22.4.2024 08:42 Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Yfirmaður ísraelsku herleyniþjónustunnar sagði af sér í dag. Hann er fyrsti hátt setti embættismaðurinn sem lætur af starfi vegna afglapa leyniþjónustunnar sem gerðu vígamönnum Hamas kleift að ráðast á Ísrael 7. október. Erlent 22.4.2024 08:35 Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Sjö eru látnir og tuttugu og einn slasaður eftir að rallýbíll ók inn í hóp áhorfenda á kappaksturskeppni á Sri Lanka í gær. Erlent 22.4.2024 07:42 « ‹ 261 262 263 264 265 266 267 268 269 … 334 ›
Átta hundrað milljóna afgangur í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær skilaði 808 milljóna króna rekstrarafgangi á síðasta ári. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs í dag þegar ársreikningur sveitarfélagsins var lagður þar fram. Ári áður var rekstrarafgangurinn 890 milljónir. Innlent 22.4.2024 17:28
Halla telur langt í að fólk sé búið að ákveða sig Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var á ferð um Suðurnes þegar Vísir náði í hana. Hún var að ganga inn á kosningafund á Hótel Keflavík. Hún sagði viðtökurnar á Suðurnesjum slíkar að ef væri miðað við þær væri hún með miklu meira fylgi en menn almennt ætla. Innlent 22.4.2024 17:18
Sjö sóttu um embætti skólameistara Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust sjö umsóknir um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans í Kópavogi. Innlent 22.4.2024 17:17
Íbúar sváfu vært meðan á öllu gekk á jarðhæðinni Íbúar í fjölbýlishúsi í Naustahverfinu á Akureyri þar sem kona fannst látin á fimmta tímanum í nótt virðast flestir hafa sofið á sínu græna eyra í nótt og ekki tekið eftir neinu. Lögregla ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir karlmanni sem handtekinn var á vettvangi vegna málsins. Innlent 22.4.2024 15:57
Ásdís Rán búin að safna undirskriftum Ásdís Rán Gunnarsdóttir, einnig þekkt sem Ísdrottningin, hefur safnað tilskildum fjölda undirskrifta til þess að geta formlega boðið sig fram til forseta. Innlent 22.4.2024 15:47
Kristrún segir ríkisstjórnina vilja gefa auðlindir þjóðarinnar Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, hjólaði í Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, nýjan matvælaráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnartíma nú rétt í þessu. Hún hélt því fram að frumvarp sem Bjarkey mælir fyrir á morgun gangi út á að gefa sjókvíaeldisfyrirtækjum firðina um aldur og ævi. Innlent 22.4.2024 15:39
Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Saksóknari í New York fullyrti að Donald Trump hefði lagt á ráðin um glæpsamlega tilrauna til þess að spilla forsetakosningunum árið 2016 með ólöglegri greiðslu til klámstjörnu þegar málflutningur á sakamáli á hendur fyrrverandi forsetanum hófst í dag. Erlent 22.4.2024 15:27
Þjófnaðurinn áfall fyrir reynslumikla öryggisverði Sjö mínútur liðu frá því þjófarnir í Hamraborg brunuðu í burtu með sjö peningatöskur og þar til upp komst um þjófnaðinn. Þjófavarnakerfi í bíl Öryggismiðstöðvarinnar fór ekki í gang og engin melding barst fyrirtækinu um þjófnaðinn. Það var ekki fyrr en öryggisverðirnir komu að bílnum að upp komst um glæpinn. Þeir eru reynslumiklir og í áfalli að sögn framkvæmdastjóra. Innlent 22.4.2024 14:26
Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Rússneskur herdómstóll dæmdi samskiptastjóra samfélagsmiðlarisans Meta í sex ára fangelsi að honum fjarstöddum í dag. Hann var sakaður um að birta ummæli á netinu til stuðnings Úkraínumönnum í innrás Rússa í nágrannaland sitt. Erlent 22.4.2024 14:08
Voru að byggja annan bústað Mennirnir sem eru í haldi lögreglu í tengslum við andlát manns í sumarhúsi í Kiðjabergi voru að smíða annan bústað í sumarhúsabyggðinni. Innlent 22.4.2024 14:05
Skerjafjarðarskáldið segir Höllu Hrund eina með öllu Kristján Hreinsson skáld er einn eindregnasti stuðningsmaður Höllu Hrundar Logadóttur í baráttunni um Bessastaði og hann virkjar skáldagáfu sína henni til dýrðar. Innlent 22.4.2024 13:31
Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi skýtur föstum skotum á Katrínu Jakobsdóttur meðframbjóðanda sinn í nýjum pistil. Innlent 22.4.2024 13:16
Stefnir í spennandi forsetakosningar Halla Hrund Logadóttir bætir við sig miklu fylgi samkvæmt nýrri könnun Prósents fyrir Morgunblaðið þar sem Baldur Þórhallsson nýtur mest fylgis. Stjórnmálafræðingur segir hægt að lesa það eitt út úr könnunum undanfarnar vikur að forsetakosningarnar verði mjög spennandi. Innlent 22.4.2024 12:25
Grunur um manndráp á Akureyri Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar andlát konu sem fannst látin í íbúðarhúsi á Akureyri í nótt. Einn hefur verið verið handtekinn vegna málsins. Innlent 22.4.2024 12:20
Þarf að borga fyrir tunnur sem hann hvorki vildi né fékk Íbúi í Vogum á Vatnsleysuströnd þarf að greiða 51 þúsund krónur vegna sorphirðu við hús hans. Hann hafði um árabil afþakkað sorptunnur og þannig ekki þurft að greiða sorphirðugjald. Þegar nýtt endurvinnslukerfi var innleytt var gjald lagt á hann en þó án þess að hann fengi tunnurnar sem hann vildi ekki. Innlent 22.4.2024 12:05
Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Andstæðingar Narendra Modi forsætisráðherra Indlands saka hann um að fara niðrandi orðum um múslima með ummælum sem hann lét falla um helgina. Þingkosningar hófust á Indlandi á föstudag en þær eru umfangsmestu lýðræðislegu kosningar á jörðinni. Erlent 22.4.2024 11:55
Viðamiklar breytingar gerðar á örorkulífeyriskerfinu Í hádegisfréttum verður rætt við félags- og vinnumarkaðsráðherra sem kynnir í dag viðamiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem eiga að fela í sér bætta þjónustu, hvata til atvinnuþátttöku og betri kjör. Innlent 22.4.2024 11:42
Enginn í 9. bekk skildi setninguna „hjartað dælir blóði“ Eðvarð Hilmarsson, grunnskólakennari og stjórnmálafræðingur, segir meira fjármagn vanta í grunnskólakerfið. Kennarar þurfi auk þess betri viðmið svo að betri yfirsýn fáist á getu nemenda. Allt að 90 prósent nemenda í hverfaskólanum hans eru ekki með íslensku sem móðurmál. Eðvarð vill breyta ýmsu með framboði sínu til formanns Kennarafélags Reykjavíkur. Innlent 22.4.2024 11:19
Dregur úr vinnu og verkefnum Haraldur V. Noregskonungur sneri aftur til vinnu í morgun eftir að hafa verið fjarverandi síðastliðnar átta vikur vegna heilsubrests. Norska konungshöllin greinir frá því að konungurinn muni draga nokkuð úr verkefnum sínum enda orðinn gamall. Erlent 22.4.2024 10:43
Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Hlýnun í Evrópu er um tvöfalt meiri en heimsmeðaltalið og heilsu íbúa álfunnar stafar vaxandi ógn af hitaálagi. Dauðsföllum af völdum hita hefur fjölgað um tæpan þriðjung á undanförnum tveimur áratugum. Erlent 22.4.2024 10:32
Grátbiðja borgarstjórana um að bjarga „einstæðu listaverki Guðjóns“ Fastagestir og velunnarar Sundhallarinnar í Reykjavík biðla til borgarstjóra um að falla frá fyrirhuguðum breytingum á einni merkustu byggingu borgarinnar. Listaverki Guðjóns Samúelssonar eins og þeir komast að orði. Innlent 22.4.2024 10:24
Braust inn í tölvu með lítilli fyrirhöfn og óvæntum afleiðingum Hver sem er getur orðið hakkari með hjálp gervigreindar, að sögn heimsfrægs hakkara sem nýlega var staddur hér á landi. Við mæltum okkur mót við hann og fylgdumst með tölvuinnbroti í rauntíma. Innlent 22.4.2024 10:23
Lögregla heldur spilunum þétt að sér Lögreglan á Suðurlandi gefur ekkert upp að svo stöddu um manndráp í Kiðjabergi í Grímsnes- og Grafningshreppi um helgina. Rannsókn málsins er í fullum gangi. Innlent 22.4.2024 10:05
Bein útsending: Fara yfir breytingar á örorkulífeyriskerfinu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, kynnir umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfi íslands í dag. Breytingin ber yfirskriftina „Öll með“ og er markmið þeirra að einfalda kerfið, draga úr tekjutengingum og gera það réttlátara. Innlent 22.4.2024 10:01
Látin líta út eins og „enemy number one“ af því að hún er ósammála Kristrúnu Sabine Leskopf, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, fór yfir hvað gerðist á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina í Bítinu á Bylgjunni. Hún segist, eins og fleiri innan flokksins, vera ósátt við orð formanns í nýlegu viðtali við útlendingamál þar sem Kristrún sagði að hún vildi ekki að Ísland skæri sig úr í útlendingamálum. Innlent 22.4.2024 09:25
Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Pólland er reiðubúið til að leyfa bandamönnum að koma fyrir kjarnorkuvopnum í landinu ef Atlantshafsbandalagið ákveður að koma vopnunum fyrir víðar til að bregðast við auknum viðbúnaði Rússa í Belarús og Kalíningrad. Erlent 22.4.2024 09:10
Hætta að skerða örorkulífeyri við fyrstu krónu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, kynnir breytingar á örorkulífeyriskerfinu í dag. Hann segir að breytingarnar eigi að einfalda kerfið en hann er sem dæmi að fækka bótaflokkum og setur 100 þúsund króna frítekjumark. Innlent 22.4.2024 08:45
Hvetja til bólusetninga fyrir ferðalög til Evrópu og Bandaríkjanna Fólk sem hyggur á ferðalög ætti að fara yfir bólusetningar sínar og barna sinna hvort sem farið er á framandi slóðir eða stefnt á stutta ferð til nágrannalandanna. Innlent 22.4.2024 08:42
Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Yfirmaður ísraelsku herleyniþjónustunnar sagði af sér í dag. Hann er fyrsti hátt setti embættismaðurinn sem lætur af starfi vegna afglapa leyniþjónustunnar sem gerðu vígamönnum Hamas kleift að ráðast á Ísrael 7. október. Erlent 22.4.2024 08:35
Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Sjö eru látnir og tuttugu og einn slasaður eftir að rallýbíll ók inn í hóp áhorfenda á kappaksturskeppni á Sri Lanka í gær. Erlent 22.4.2024 07:42