Fréttir Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Ástþór Magnússon segir happdrætti sitt þar sem rafbíll er í aðalvinning fara eftir öllum lögum og sé hann með leyfi frá sýslumanni til að reka það. Áttatíu þúsund miðar eru í boði og búið að útbýta tæplega fjögur hundruð þeirra. Innlent 6.5.2024 16:58 Hamas samþykkir vopnahléstillögu Leiðtogar Hamas-samtakanna hafa samþykkt vopnahléstillögu erindreka frá Egyptalandi og Katar. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að Ismail Haniyeh, leiðtogi Hamas, hafi hringt í forsætisráðherra Katar og upplýsingaráðherra Egyptlands í dag og tilkynnt þeim að tillagan hefði verið samþykkt. Erlent 6.5.2024 16:55 Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati sótti að Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra á þingi nú fyrir stundu og spurði hana hvort hún ætlaði að beita sér fyrir því að rannsókn yrði gerð á örlætisgjörningi Haraldar Johannessen, þáverandi ríkislögreglustjóra. Innlent 6.5.2024 16:08 Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kveðst vera orðinn nokkuð forvitinn um þessa skrímsladeild í Valhöll, sem skjóti upp kollinum öðru hvoru í umræðunni. Innlent 6.5.2024 16:05 Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Halla Thoroddsen, forstjóri Sóltúns, segir að fyrirhugaðar framkvæmdir við hjúkrunarheimilið muni ekki koma til með að hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi. Halldór Benjamín forstjóri Regins fasteignafélags, sem er eigandi fasteignarinnar, segir að sú leið sem hafi verið valin taki mið af bæði núverandi starfsemi og íbúum Sóltúns. Innlent 6.5.2024 16:05 Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders ætlar að bjóða sig fram aftur í kosningunum í nóvember. Sanders, sem er 82 ára gamall, hefur þegar verið annar tveggja öldungadeildarþingmanna Vermont-ríkis í þrjú kjörtímabil, eða átján ár. Erlent 6.5.2024 15:56 Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Aðstandendur flugmannsins Haralds Diego, sem flaug vélinni TF-ABB sem hafnaði í Þingvallavatni í febrúar árið 2022, óska eftir því að friður skapist um málið. Skýrsla Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) byggi á getgátum um hvort mannlegur þáttur hafi valdið slysinu þar sem þrír farþegar, auk Haralds, létu lífið. Innlent 6.5.2024 15:54 Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Íslensku flugfélögin tvö, Icelandair og Play, mun bjóða farþegum sem ferðast frá Íslandi að flýta eða seinka flugferðum sínum á föstudag, en áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast þann dag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli. Innlent 6.5.2024 15:50 Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Héraðsdómur Norðurlands eystra staðfesti í dag kröfu lögreglunnar um áframhaldandi gæsluvarðhald manns á sjötugsaldri sem er grunaður um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana í fjölbýlishúsi við Kjarnagötu á Akureyri í lok aprílmánaðar. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Innlent 6.5.2024 15:30 Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur þá ökumenn sem það á við, að skipta út nagladekkjunum. Innlent 6.5.2024 15:09 Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið sektaður enn einu sinni fyrir að brjóta gegn þagnarskyldu sem hann hefur verið beittu vegna réttarhalda yfir honum í New York. Juan M. Merchan, dómarinn í málinu, hótaði enn einu sinni að fangelsa Trump ef hann léti ekki af ummælum sínum. Erlent 6.5.2024 15:02 Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nautgripabóndi á Vesturlandi þarf að greiða 350 þúsund króna stjórnvaldssekt vegna brota á reglum um útivist nautgripa eftir að matvælaráðuneytið staðfesti ákvörðun Matvælastofnunar. Bóndinn kærði málið til ráðuneytisins þar sem hann setti meðal annars út á eftirlit stofunarinnar og sér í lagi hegðun eftirlitsmanns Matvælastofnunar í Kaupfélagi Borgfirðinga. Innlent 6.5.2024 14:54 Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Allsherjar-og menntamálanefnd hefur farið í marga hringi í meðferð sinni á frumvarpi um sanngirnisbætur að sögn formanns nefndarinnar. Hún segir að nefndin hafi aldrei fengið viðkvæmari og erfiðari frásagnir til sín. Forsætisráðherra sé mjög meðvitaður um málið. Innlent 6.5.2024 13:39 Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Sævar Helgi Lárusson, öryggisstjóri Vegagerðarinnar, segir alltof mikið um hraðakstur í grennd við vegaframkvæmdir. Á morgun verður haldinn morgunfundur á vegum Vegagerðarinnar og Samgöngustofu um átakið „Aktu varlega! - mamma og pabbi vinna hér. Innlent 6.5.2024 13:38 Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast á fimmtudag og föstudag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Ísavía á Keflavíkurflugvelli. Dauflegt er yfir kjaraviðræðum stéttarfélaganna tveggja við Samtök atvinnulífsins. Innlent 6.5.2024 12:14 Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Varnarmálaráðuneyti Rússlands tilkynnti í morgun að halda ætti heræfingar með svokölluð taktísk kjarnorkuvopn ríkisins. Æfingar þessar eiga að vera viðbrögð við ummælum vestrænna leiðtoga um innrás Rússa í Úkraínu og þá sérstaklega orð Emmanuels Macron, forseta Frakklands, um að ekki ætti að útiloka það að senda hermenn til Úkraínu. Erlent 6.5.2024 11:44 Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Í hádegisfréttum verður rætt við formann Allsherjar- og menntamálanefndar sem segir að nefndin hafi farið í marga hringi í meðferð sinni á frumvarpi um sanngirnisbætur. Innlent 6.5.2024 11:35 Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) telur að flugmaður vélar TF-ABB, sem fórst í Þingvallavatni í febrúar 2022, hafi annað hvort reynt að fljúga í lítilli hæð yfir ísilögðu vatninu eða að lenda vélinni þar en ísinn ekki borið þunga hennar. Þannig hafi vélin hafnað í vatninu. Innlent 6.5.2024 11:26 Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Lögreglan á Akureyri mun í dag krefjast þess að gæsluvarðhald manns á sjötugsaldri verði framlengt. Maðurinn er grunaður um að hafa orðið konu sinni, sem var um fimmtugt, að bana í fjölbýlishúsi við Kjarnagötu á Akureyri í lok aprílmánaðar. Innlent 6.5.2024 10:52 Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Lögregla á höfuðborgarsvæðinu vill ekkert tjá sig um gang rannsóknarinnar á þjófnaðarmáli þar sem milli tuttugu til þrjátíu milljónum króna var stolið úr verðmætaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi í mars síðastliðinn. Innlent 6.5.2024 10:52 Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Karlmaður á fimmtugsaldri hefur hlotið tveggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness vegna atviks sem átti sér stað í lok janúar á þessu ári. Innlent 6.5.2024 10:16 Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Frosti Logason hlaðvarpsstjóri segir baráttuna gegn ofbeldi hafa snúist upp í ranghverfu sína. Hópar sem hafa látið sig þessi mál varða, netakvívistar á borð við þá sem ráða á för í hópum á borð við „Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu“ stundi það að veitast að viðmælendum hans. Innlent 6.5.2024 10:14 Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) birti í morgun myndband sem sýna á vel heppnaða drónaárás á hraðbát rússneska hersins undan ströndum Krímskaga í nótt. Sveit sem kallast „Group 13“ notaði Magura V5 dróna til að sökkva bátnum á Úskaflóa. Erlent 6.5.2024 09:54 Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins John Swinney verður að öllum líkindum næsti formaður Skoska þjóðarflokksins eftir að mótframbjóðandi hans hætti við framboð á síðustu stundu. Þá verður hann einnig líklegast næsti fyrsti ráðherra Skotlands. Erlent 6.5.2024 09:53 Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Aðstandendum íbúa á hjúkrunarheimilinu Sóltúni líst illa á fyrirhugaðar framkvæmdir við húsnæðið. Þau segja að byggingaframkvæmdirnar muni skapa vanlíðan meðal íbúa. Til stendur að bæta rúmlega 60 herbergjum við þau 92 sem fyrir eru, en framkvæmdir hefjast í haust og eiga að taka um tvö ár. Innlent 6.5.2024 09:53 Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Donald Trump, forsetaefni Repúblikanaflokksins, sakaði Joe Biden Bandaríkjaforseta um að stýra „Gestapo-ríkisstjórn“ á lokuðum fundi með bakhjörlum sínum. Hann beindi einnig spjótum sínum að saksóknurum sem sækja sakamál gegn honum. Erlent 6.5.2024 09:07 Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Um það bil 70 prósent 705 þingmanna Evrópuþingmenns sinna öðrum störfum meðfram þingstörfunum og í um 26 prósent tilvika fá þeir greitt fyrir aukastarfið. Erlent 6.5.2024 08:03 Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Fangi á Litla Hrauni fannst látinn í klefa sínum í gærmorgun. Greint er frá andlátinu á Facebook-síðu Afstöðu, félags fanga, í morgun, en Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir andlátið í samtali við fréttastofu. Innlent 6.5.2024 08:02 Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Læknir og hjúkrunarfræðingur sem sáu um vöggustofuna að Hlíðarenda ákváðu að reka hana eins og spítala. Konum sem sáu um ungbörnin var bannað að horfa í augun á þeim og foreldrar fengu aðeins að horfa á þau gegnum gler. Sálgreinir segir slíka meðhöndlun jafnvel geta verið lífshættulega fyrir ungbörn. Innlent 6.5.2024 08:01 Svölu og óstöðugu skúralofti beint til landsins Lægð er nú stödd fyrir vestan land og beinir hún svölu og óstöðugu skúralofti til landsins í dag og á morgun. Veður 6.5.2024 07:11 « ‹ 245 246 247 248 249 250 251 252 253 … 334 ›
Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Ástþór Magnússon segir happdrætti sitt þar sem rafbíll er í aðalvinning fara eftir öllum lögum og sé hann með leyfi frá sýslumanni til að reka það. Áttatíu þúsund miðar eru í boði og búið að útbýta tæplega fjögur hundruð þeirra. Innlent 6.5.2024 16:58
Hamas samþykkir vopnahléstillögu Leiðtogar Hamas-samtakanna hafa samþykkt vopnahléstillögu erindreka frá Egyptalandi og Katar. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að Ismail Haniyeh, leiðtogi Hamas, hafi hringt í forsætisráðherra Katar og upplýsingaráðherra Egyptlands í dag og tilkynnt þeim að tillagan hefði verið samþykkt. Erlent 6.5.2024 16:55
Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati sótti að Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra á þingi nú fyrir stundu og spurði hana hvort hún ætlaði að beita sér fyrir því að rannsókn yrði gerð á örlætisgjörningi Haraldar Johannessen, þáverandi ríkislögreglustjóra. Innlent 6.5.2024 16:08
Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kveðst vera orðinn nokkuð forvitinn um þessa skrímsladeild í Valhöll, sem skjóti upp kollinum öðru hvoru í umræðunni. Innlent 6.5.2024 16:05
Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Halla Thoroddsen, forstjóri Sóltúns, segir að fyrirhugaðar framkvæmdir við hjúkrunarheimilið muni ekki koma til með að hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi. Halldór Benjamín forstjóri Regins fasteignafélags, sem er eigandi fasteignarinnar, segir að sú leið sem hafi verið valin taki mið af bæði núverandi starfsemi og íbúum Sóltúns. Innlent 6.5.2024 16:05
Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders ætlar að bjóða sig fram aftur í kosningunum í nóvember. Sanders, sem er 82 ára gamall, hefur þegar verið annar tveggja öldungadeildarþingmanna Vermont-ríkis í þrjú kjörtímabil, eða átján ár. Erlent 6.5.2024 15:56
Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Aðstandendur flugmannsins Haralds Diego, sem flaug vélinni TF-ABB sem hafnaði í Þingvallavatni í febrúar árið 2022, óska eftir því að friður skapist um málið. Skýrsla Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) byggi á getgátum um hvort mannlegur þáttur hafi valdið slysinu þar sem þrír farþegar, auk Haralds, létu lífið. Innlent 6.5.2024 15:54
Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Íslensku flugfélögin tvö, Icelandair og Play, mun bjóða farþegum sem ferðast frá Íslandi að flýta eða seinka flugferðum sínum á föstudag, en áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast þann dag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli. Innlent 6.5.2024 15:50
Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Héraðsdómur Norðurlands eystra staðfesti í dag kröfu lögreglunnar um áframhaldandi gæsluvarðhald manns á sjötugsaldri sem er grunaður um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana í fjölbýlishúsi við Kjarnagötu á Akureyri í lok aprílmánaðar. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Innlent 6.5.2024 15:30
Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur þá ökumenn sem það á við, að skipta út nagladekkjunum. Innlent 6.5.2024 15:09
Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið sektaður enn einu sinni fyrir að brjóta gegn þagnarskyldu sem hann hefur verið beittu vegna réttarhalda yfir honum í New York. Juan M. Merchan, dómarinn í málinu, hótaði enn einu sinni að fangelsa Trump ef hann léti ekki af ummælum sínum. Erlent 6.5.2024 15:02
Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nautgripabóndi á Vesturlandi þarf að greiða 350 þúsund króna stjórnvaldssekt vegna brota á reglum um útivist nautgripa eftir að matvælaráðuneytið staðfesti ákvörðun Matvælastofnunar. Bóndinn kærði málið til ráðuneytisins þar sem hann setti meðal annars út á eftirlit stofunarinnar og sér í lagi hegðun eftirlitsmanns Matvælastofnunar í Kaupfélagi Borgfirðinga. Innlent 6.5.2024 14:54
Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Allsherjar-og menntamálanefnd hefur farið í marga hringi í meðferð sinni á frumvarpi um sanngirnisbætur að sögn formanns nefndarinnar. Hún segir að nefndin hafi aldrei fengið viðkvæmari og erfiðari frásagnir til sín. Forsætisráðherra sé mjög meðvitaður um málið. Innlent 6.5.2024 13:39
Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Sævar Helgi Lárusson, öryggisstjóri Vegagerðarinnar, segir alltof mikið um hraðakstur í grennd við vegaframkvæmdir. Á morgun verður haldinn morgunfundur á vegum Vegagerðarinnar og Samgöngustofu um átakið „Aktu varlega! - mamma og pabbi vinna hér. Innlent 6.5.2024 13:38
Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast á fimmtudag og föstudag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Ísavía á Keflavíkurflugvelli. Dauflegt er yfir kjaraviðræðum stéttarfélaganna tveggja við Samtök atvinnulífsins. Innlent 6.5.2024 12:14
Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Varnarmálaráðuneyti Rússlands tilkynnti í morgun að halda ætti heræfingar með svokölluð taktísk kjarnorkuvopn ríkisins. Æfingar þessar eiga að vera viðbrögð við ummælum vestrænna leiðtoga um innrás Rússa í Úkraínu og þá sérstaklega orð Emmanuels Macron, forseta Frakklands, um að ekki ætti að útiloka það að senda hermenn til Úkraínu. Erlent 6.5.2024 11:44
Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Í hádegisfréttum verður rætt við formann Allsherjar- og menntamálanefndar sem segir að nefndin hafi farið í marga hringi í meðferð sinni á frumvarpi um sanngirnisbætur. Innlent 6.5.2024 11:35
Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) telur að flugmaður vélar TF-ABB, sem fórst í Þingvallavatni í febrúar 2022, hafi annað hvort reynt að fljúga í lítilli hæð yfir ísilögðu vatninu eða að lenda vélinni þar en ísinn ekki borið þunga hennar. Þannig hafi vélin hafnað í vatninu. Innlent 6.5.2024 11:26
Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Lögreglan á Akureyri mun í dag krefjast þess að gæsluvarðhald manns á sjötugsaldri verði framlengt. Maðurinn er grunaður um að hafa orðið konu sinni, sem var um fimmtugt, að bana í fjölbýlishúsi við Kjarnagötu á Akureyri í lok aprílmánaðar. Innlent 6.5.2024 10:52
Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Lögregla á höfuðborgarsvæðinu vill ekkert tjá sig um gang rannsóknarinnar á þjófnaðarmáli þar sem milli tuttugu til þrjátíu milljónum króna var stolið úr verðmætaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi í mars síðastliðinn. Innlent 6.5.2024 10:52
Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Karlmaður á fimmtugsaldri hefur hlotið tveggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness vegna atviks sem átti sér stað í lok janúar á þessu ári. Innlent 6.5.2024 10:16
Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Frosti Logason hlaðvarpsstjóri segir baráttuna gegn ofbeldi hafa snúist upp í ranghverfu sína. Hópar sem hafa látið sig þessi mál varða, netakvívistar á borð við þá sem ráða á för í hópum á borð við „Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu“ stundi það að veitast að viðmælendum hans. Innlent 6.5.2024 10:14
Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) birti í morgun myndband sem sýna á vel heppnaða drónaárás á hraðbát rússneska hersins undan ströndum Krímskaga í nótt. Sveit sem kallast „Group 13“ notaði Magura V5 dróna til að sökkva bátnum á Úskaflóa. Erlent 6.5.2024 09:54
Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins John Swinney verður að öllum líkindum næsti formaður Skoska þjóðarflokksins eftir að mótframbjóðandi hans hætti við framboð á síðustu stundu. Þá verður hann einnig líklegast næsti fyrsti ráðherra Skotlands. Erlent 6.5.2024 09:53
Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Aðstandendum íbúa á hjúkrunarheimilinu Sóltúni líst illa á fyrirhugaðar framkvæmdir við húsnæðið. Þau segja að byggingaframkvæmdirnar muni skapa vanlíðan meðal íbúa. Til stendur að bæta rúmlega 60 herbergjum við þau 92 sem fyrir eru, en framkvæmdir hefjast í haust og eiga að taka um tvö ár. Innlent 6.5.2024 09:53
Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Donald Trump, forsetaefni Repúblikanaflokksins, sakaði Joe Biden Bandaríkjaforseta um að stýra „Gestapo-ríkisstjórn“ á lokuðum fundi með bakhjörlum sínum. Hann beindi einnig spjótum sínum að saksóknurum sem sækja sakamál gegn honum. Erlent 6.5.2024 09:07
Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Um það bil 70 prósent 705 þingmanna Evrópuþingmenns sinna öðrum störfum meðfram þingstörfunum og í um 26 prósent tilvika fá þeir greitt fyrir aukastarfið. Erlent 6.5.2024 08:03
Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Fangi á Litla Hrauni fannst látinn í klefa sínum í gærmorgun. Greint er frá andlátinu á Facebook-síðu Afstöðu, félags fanga, í morgun, en Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir andlátið í samtali við fréttastofu. Innlent 6.5.2024 08:02
Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Læknir og hjúkrunarfræðingur sem sáu um vöggustofuna að Hlíðarenda ákváðu að reka hana eins og spítala. Konum sem sáu um ungbörnin var bannað að horfa í augun á þeim og foreldrar fengu aðeins að horfa á þau gegnum gler. Sálgreinir segir slíka meðhöndlun jafnvel geta verið lífshættulega fyrir ungbörn. Innlent 6.5.2024 08:01
Svölu og óstöðugu skúralofti beint til landsins Lægð er nú stödd fyrir vestan land og beinir hún svölu og óstöðugu skúralofti til landsins í dag og á morgun. Veður 6.5.2024 07:11