Fréttir Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Hópur ungmenna réðust á starfsmann veitingastaðar í Mosfellsbæ í gærkvöldi eða nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar segir að málið hafi verið afgreitt með aðkomu foreldra og að barnavernd hafi verið upplýst um málið. Innlent 2.6.2024 06:19 Batt á sig klút til heiðurs Höllu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hélt ekki kosningavöku líkt og venjan er hjá þeim sem eru í forsetaframbjóðendum. Þess í stað fór hún heim til vinar síns og hafði það rólegt. Slökkt var á sjónvarpinu og rauluðu gestir Kumbaya, My Lord. Innlent 2.6.2024 01:55 Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi og starfsmaður í kosningateymi Katrínar Jakobsdóttir segist telja alveg ljóst að ákveðinn hópur hafi kosið taktískt í forsetakosningunum í ár. Þá telur hann mögulegt að stór hópur kjósenda hafi ekki hugnast átökin í kringum Katrínu sem hafi þó alltaf keyrt sína baráttu á jákvæðni. Innlent 2.6.2024 01:49 Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta „Mín viðbrögð eru mjög góð. Mér finnst skilaboðin skýr. Kjósendur vilja augljóslega fá konu sem næsta forseta og ég sætti mig auðmjúkur við það.“ Innlent 2.6.2024 01:33 Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Katrín Jakobsdóttir segist ekki tilbúin að lýsa yfir ósigri í forsetakosningunum, hins vegar bendi allt til þess að Halla Tómasdóttir verði næsti forseti lýðveldisins. Hún segir að mikið þyrfti að gerast svo þau úrslit breytist. Innlent 2.6.2024 01:08 Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Halla Tómasdóttir leiðir í Suðvesturkjördæmi eftir að fyrstu atkvæðin hafa verið talin með 27,66 prósent atkvæðum. Katrín Jakobsdóttir er þar rétt á eftir með 25,93 prósent atkvæða og er um að ræða minnsta muninn þeirra á milli á landsvísu. Innlent 2.6.2024 01:08 Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Katrín Jakobsdóttir þakkaði stuðningsmönnum sínum fyrir kosningabaráttuna og sagðist ekki sjá eftir neinu. Hún væri maður að meiri eftir fjölda fundi með fólki út um allt land. Innlent 2.6.2024 01:01 Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda „Ég er nú bara komin í mína allra fyrstu kosningabaráttu og kom kannski inn svolítið ný á sviðið. Þannig að ég er ótrúlega þakklát fyrir þessar góðu viðtökur.“ Innlent 2.6.2024 00:51 Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í fyrstu tölum atkvæða sem talin hafa verið í Norðvesturkjördæmi. Hún mælist með 33,07 prósent fylgi en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 26,13 prósent fylgi. Halla Hrund Logadóttir er þriðja með 19,62 prósent fylgi. Innlent 2.6.2024 00:50 Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í Reykjavík norður með 31,9 prósent en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 27,9 prósent. Þetta var tilkynnt rétt í þessu. Innlent 2.6.2024 00:44 Katrín sér ekki eftir framboði sínu Katrín Jakobsdóttir segir niðurstöður í fyrstu tölum ekki svo fjarri því sem bent hafi til í síðustu skoðanakönnunum, þó fylgi Höllu Tómasdóttur komi á óvart. Innlent 2.6.2024 00:25 Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði eftir fyrstu tölur úr Reykjavík Suður. Hún er með 32,5 prósent fylgi en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 28,9 prósent. Halla Hrund Logadóttir er með 12,95 prósenta fylgi. Innlent 2.6.2024 00:22 Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Forsetaframbjóðandinn Eiríkur Ingi Jóhannsson segir ljóst að kjósendur hafi margir ákveðið að kjósa taktískt í forsetakosningunum í dag og að það hafi mögulega unnið gegn sér. Þegar fyrstu tölur voru lesnar í Suður- og Norðausturkjördæmi var uppskera Eiríks Inga heldur rýr. Innlent 2.6.2024 00:01 Segir klútabyltinguna vera hafna „Ég er ótrúlega þakklát ekki síst í ljósi þess að þetta var brekka hjá okkur,“ segir Halla Tómasdóttir og vísar þar til upphafs kosningabaráttunnar þegar fylgi hennar mæltist í lágmarki. Innlent 2.6.2024 00:01 Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði samkvæmt fyrstu tölum úr Suðurkjördæmi. Hún er með 37 prósenta fylgi. Á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með rúm 19 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 16 prósent. Innlent 1.6.2024 23:05 Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í fyrstu tölum úr Norðausturkjördæmi. Halla mælist með 35,42 prósent fylgi. Næst á eftir kemur Katrín Jakobsdóttir með 27 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 17 prósent. Talin hafa verið 3000 atkvæði. Auðir seðlar 12. Ógildir 4. Innlent 1.6.2024 22:58 Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Halla Hrund Logadóttir ávarpaði stuðningsmenn sína í kosningapartýi sínu í Björtuloftum í Hörpu í kvöld og þakkaði þeim fyrir 55 daga ferðalag sem hún sagði að myndi binda þau saman út ævina. Halla hvatti stuðningsmennina til að fara bjartsýnir inn í kvöldið í aðdraganda fyrstu talna. Innlent 1.6.2024 22:07 Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Kosningasjónvarp Stöðvar 2 í opinni dagskrá og beinni útsendingu er staðurinn til að fylgjast með nýjustu tölum, heimsækja skemmtilegustu partýin og veita áhorfendum allar nauðsynlegar upplýsingar á spennandi kosningakvöldi. Innlent 1.6.2024 21:04 Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, segir forsetakosningarnar nú vera þær mest spennandi síðan í forsetakosningunum 1980 þegar Vigdís Finnbogadóttir var kjörin. Hún segir að vísbendingar um góða kjörsókn geta boðað gott fyrir framboð Höllu Tómasdóttur og að myndun „tveggja turna“ geta leyst alls konar dýnamík úr læðingi þegar kemur að hegðun kjósenda. Innlent 1.6.2024 20:31 Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa Kjósandi í Hafnarfirði ætlaði að skjótast í Lækjarskóla til að greiða forsetaframbjóðanda atkvæði sitt um sexleytið. Úr varð klukkustundarlöng bið eftir að komast í kjörklefann. Innlent 1.6.2024 20:26 „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Ingvar Örn Arngeirsson segir að betur megi huga að fólki sem glími við áskoranir þegar komi að kosningum. Einhverfur vinur hans treysti sér ekki til að fara inn í kjörklefa og gat af þeim sökum ekki kosið í dag. Innlent 1.6.2024 19:57 Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Þorgerður Björnsdóttir, Selfyssingur á áttræðisaldri, varð fyrir miklum vonbrigðum þegar í ljós kom að hún var búin að kjósa í forsetakosningunum. Hún hafði þó ekki greitt atkvæði sjálf. Innlent 1.6.2024 19:29 Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Stjórn Brunavarna Suðurnesja hefur ráðið Eyþór Rúnar Þórarinsson í starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Suðurnesja og mun hann hefja störf sem slíkur á næstu dögum. Hann hefur starfaði í liðinu frá árinu 1999. Innlent 1.6.2024 18:48 Skipuð í embætti fiskistofustjóra Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað Elínu Björgu Ragnarsdóttur sem fiskistofustjóra frá 1. júní næstkomandi. Innlent 1.6.2024 18:25 Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Kjörsókn utankjörfundar var minni í forsetakosningunum nú samanborið við forsetaksoningarnar 2020, 2016 og 2012. Innlent 1.6.2024 18:03 Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Það var mikið svekkelsi þegar Helgi Þorleifur Þórhallsson, nemi í fatahönnun við Háskóla Íslands, mætti á kjörstað í Mývatnssveit. Ástæðan var sú að hann fékk ekki að greiða atkvæði. Innlent 1.6.2024 18:03 Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Landsmenn kjósa sjöunda forseta lýðveldisins í dag og kjörsókn hefur verið góð. Forsetakosningarnar verða fyrirferðamiklar í þessum fyrsta sjónvarpsfréttatíma júnímánaðar. Innlent 1.6.2024 17:43 Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Guðni Th. Jóhannesson forseti segir það hafa verið ágæta tilfinningu að mæta á kjörstað til að greiða atkvæði í forsetakosningunum, þeim fyrstu í nokkurn tíma þar sem hann er ekki sjálfur á kjörseðlinum. Innlent 1.6.2024 17:37 Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Kjörsókn hefur hingað til verið mun meiri en í síðustu forsetakosningunum árið 2020. Víða um land er kjörsókn orðin um 10 prósent meiri en fyrir fjórum árum. Prófessor í stjórnmálafræði segir tvær augljósar ástæður fyrir þessu. Innlent 1.6.2024 16:38 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir næstu viku, en undir kvöld á mánudag má búast við norðan og norðvestan hvassviðri eða stormi víða um land. Í tilkynningu frá almannavörnum á Norðurlandi vestra eru bændur hvattir til að huga að bústofni sínum og koma honum í skjól. Innlent 1.6.2024 16:25 « ‹ 214 215 216 217 218 219 220 221 222 … 334 ›
Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Hópur ungmenna réðust á starfsmann veitingastaðar í Mosfellsbæ í gærkvöldi eða nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar segir að málið hafi verið afgreitt með aðkomu foreldra og að barnavernd hafi verið upplýst um málið. Innlent 2.6.2024 06:19
Batt á sig klút til heiðurs Höllu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hélt ekki kosningavöku líkt og venjan er hjá þeim sem eru í forsetaframbjóðendum. Þess í stað fór hún heim til vinar síns og hafði það rólegt. Slökkt var á sjónvarpinu og rauluðu gestir Kumbaya, My Lord. Innlent 2.6.2024 01:55
Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi og starfsmaður í kosningateymi Katrínar Jakobsdóttir segist telja alveg ljóst að ákveðinn hópur hafi kosið taktískt í forsetakosningunum í ár. Þá telur hann mögulegt að stór hópur kjósenda hafi ekki hugnast átökin í kringum Katrínu sem hafi þó alltaf keyrt sína baráttu á jákvæðni. Innlent 2.6.2024 01:49
Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta „Mín viðbrögð eru mjög góð. Mér finnst skilaboðin skýr. Kjósendur vilja augljóslega fá konu sem næsta forseta og ég sætti mig auðmjúkur við það.“ Innlent 2.6.2024 01:33
Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Katrín Jakobsdóttir segist ekki tilbúin að lýsa yfir ósigri í forsetakosningunum, hins vegar bendi allt til þess að Halla Tómasdóttir verði næsti forseti lýðveldisins. Hún segir að mikið þyrfti að gerast svo þau úrslit breytist. Innlent 2.6.2024 01:08
Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Halla Tómasdóttir leiðir í Suðvesturkjördæmi eftir að fyrstu atkvæðin hafa verið talin með 27,66 prósent atkvæðum. Katrín Jakobsdóttir er þar rétt á eftir með 25,93 prósent atkvæða og er um að ræða minnsta muninn þeirra á milli á landsvísu. Innlent 2.6.2024 01:08
Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Katrín Jakobsdóttir þakkaði stuðningsmönnum sínum fyrir kosningabaráttuna og sagðist ekki sjá eftir neinu. Hún væri maður að meiri eftir fjölda fundi með fólki út um allt land. Innlent 2.6.2024 01:01
Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda „Ég er nú bara komin í mína allra fyrstu kosningabaráttu og kom kannski inn svolítið ný á sviðið. Þannig að ég er ótrúlega þakklát fyrir þessar góðu viðtökur.“ Innlent 2.6.2024 00:51
Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í fyrstu tölum atkvæða sem talin hafa verið í Norðvesturkjördæmi. Hún mælist með 33,07 prósent fylgi en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 26,13 prósent fylgi. Halla Hrund Logadóttir er þriðja með 19,62 prósent fylgi. Innlent 2.6.2024 00:50
Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í Reykjavík norður með 31,9 prósent en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 27,9 prósent. Þetta var tilkynnt rétt í þessu. Innlent 2.6.2024 00:44
Katrín sér ekki eftir framboði sínu Katrín Jakobsdóttir segir niðurstöður í fyrstu tölum ekki svo fjarri því sem bent hafi til í síðustu skoðanakönnunum, þó fylgi Höllu Tómasdóttur komi á óvart. Innlent 2.6.2024 00:25
Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði eftir fyrstu tölur úr Reykjavík Suður. Hún er með 32,5 prósent fylgi en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 28,9 prósent. Halla Hrund Logadóttir er með 12,95 prósenta fylgi. Innlent 2.6.2024 00:22
Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Forsetaframbjóðandinn Eiríkur Ingi Jóhannsson segir ljóst að kjósendur hafi margir ákveðið að kjósa taktískt í forsetakosningunum í dag og að það hafi mögulega unnið gegn sér. Þegar fyrstu tölur voru lesnar í Suður- og Norðausturkjördæmi var uppskera Eiríks Inga heldur rýr. Innlent 2.6.2024 00:01
Segir klútabyltinguna vera hafna „Ég er ótrúlega þakklát ekki síst í ljósi þess að þetta var brekka hjá okkur,“ segir Halla Tómasdóttir og vísar þar til upphafs kosningabaráttunnar þegar fylgi hennar mæltist í lágmarki. Innlent 2.6.2024 00:01
Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði samkvæmt fyrstu tölum úr Suðurkjördæmi. Hún er með 37 prósenta fylgi. Á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með rúm 19 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 16 prósent. Innlent 1.6.2024 23:05
Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í fyrstu tölum úr Norðausturkjördæmi. Halla mælist með 35,42 prósent fylgi. Næst á eftir kemur Katrín Jakobsdóttir með 27 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 17 prósent. Talin hafa verið 3000 atkvæði. Auðir seðlar 12. Ógildir 4. Innlent 1.6.2024 22:58
Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Halla Hrund Logadóttir ávarpaði stuðningsmenn sína í kosningapartýi sínu í Björtuloftum í Hörpu í kvöld og þakkaði þeim fyrir 55 daga ferðalag sem hún sagði að myndi binda þau saman út ævina. Halla hvatti stuðningsmennina til að fara bjartsýnir inn í kvöldið í aðdraganda fyrstu talna. Innlent 1.6.2024 22:07
Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Kosningasjónvarp Stöðvar 2 í opinni dagskrá og beinni útsendingu er staðurinn til að fylgjast með nýjustu tölum, heimsækja skemmtilegustu partýin og veita áhorfendum allar nauðsynlegar upplýsingar á spennandi kosningakvöldi. Innlent 1.6.2024 21:04
Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, segir forsetakosningarnar nú vera þær mest spennandi síðan í forsetakosningunum 1980 þegar Vigdís Finnbogadóttir var kjörin. Hún segir að vísbendingar um góða kjörsókn geta boðað gott fyrir framboð Höllu Tómasdóttur og að myndun „tveggja turna“ geta leyst alls konar dýnamík úr læðingi þegar kemur að hegðun kjósenda. Innlent 1.6.2024 20:31
Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa Kjósandi í Hafnarfirði ætlaði að skjótast í Lækjarskóla til að greiða forsetaframbjóðanda atkvæði sitt um sexleytið. Úr varð klukkustundarlöng bið eftir að komast í kjörklefann. Innlent 1.6.2024 20:26
„Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Ingvar Örn Arngeirsson segir að betur megi huga að fólki sem glími við áskoranir þegar komi að kosningum. Einhverfur vinur hans treysti sér ekki til að fara inn í kjörklefa og gat af þeim sökum ekki kosið í dag. Innlent 1.6.2024 19:57
Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Þorgerður Björnsdóttir, Selfyssingur á áttræðisaldri, varð fyrir miklum vonbrigðum þegar í ljós kom að hún var búin að kjósa í forsetakosningunum. Hún hafði þó ekki greitt atkvæði sjálf. Innlent 1.6.2024 19:29
Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Stjórn Brunavarna Suðurnesja hefur ráðið Eyþór Rúnar Þórarinsson í starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Suðurnesja og mun hann hefja störf sem slíkur á næstu dögum. Hann hefur starfaði í liðinu frá árinu 1999. Innlent 1.6.2024 18:48
Skipuð í embætti fiskistofustjóra Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað Elínu Björgu Ragnarsdóttur sem fiskistofustjóra frá 1. júní næstkomandi. Innlent 1.6.2024 18:25
Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Kjörsókn utankjörfundar var minni í forsetakosningunum nú samanborið við forsetaksoningarnar 2020, 2016 og 2012. Innlent 1.6.2024 18:03
Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Það var mikið svekkelsi þegar Helgi Þorleifur Þórhallsson, nemi í fatahönnun við Háskóla Íslands, mætti á kjörstað í Mývatnssveit. Ástæðan var sú að hann fékk ekki að greiða atkvæði. Innlent 1.6.2024 18:03
Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Landsmenn kjósa sjöunda forseta lýðveldisins í dag og kjörsókn hefur verið góð. Forsetakosningarnar verða fyrirferðamiklar í þessum fyrsta sjónvarpsfréttatíma júnímánaðar. Innlent 1.6.2024 17:43
Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Guðni Th. Jóhannesson forseti segir það hafa verið ágæta tilfinningu að mæta á kjörstað til að greiða atkvæði í forsetakosningunum, þeim fyrstu í nokkurn tíma þar sem hann er ekki sjálfur á kjörseðlinum. Innlent 1.6.2024 17:37
Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Kjörsókn hefur hingað til verið mun meiri en í síðustu forsetakosningunum árið 2020. Víða um land er kjörsókn orðin um 10 prósent meiri en fyrir fjórum árum. Prófessor í stjórnmálafræði segir tvær augljósar ástæður fyrir þessu. Innlent 1.6.2024 16:38
Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir næstu viku, en undir kvöld á mánudag má búast við norðan og norðvestan hvassviðri eða stormi víða um land. Í tilkynningu frá almannavörnum á Norðurlandi vestra eru bændur hvattir til að huga að bústofni sínum og koma honum í skjól. Innlent 1.6.2024 16:25