Fréttir Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hrákapoka um höfuð hans Fimm lögreglumenn tóku karlmann höndum við hátíðarhöld í miðbæ Reykjavíkur í gær og notuðu svokallaðan hrákapoka við aðgerðirnar. Íslenskum karlmanni blöskrar aðgerðir lögreglu og birtir myndbönd máli sínu til stuðnings. Innlent 18.6.2024 11:08 Án rafmagns í tuttugu mínútur Rafmagnslaust varð á Egilsstöðum, Seyðisfirði, Borgarfirði eystri og nærsveitum korter yfir tíu í morgun vegna útleysingar frá tengivirki við Eyvindará. Innlent 18.6.2024 10:57 „Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu“ „Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu,“ segir Sylvía Briem Friðjónsdóttir sem vakið hefur athygli á bágri stöðu nýbakaðra foreldra. Hún kveðst hafa fengið ábendingar um gjaldþrot foreldra sem hafi tekið sér fæðingarorlof og spyr hvort það sé orðinn lúxus að fjölga sér. Innlent 18.6.2024 10:54 Rífa íþróttahúsið Bæjarstjórn Grindavíkur hefur falið sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja undirbúningsvinnu við niðurrif á Hópinu, fjölnotaíþróttahúsi Grindvíkinga. Innlent 18.6.2024 09:06 Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður Samfylkingarinnar segir flokkinn búa sig undir að taka við landsstjórninni. Í því felist að taka afstöðu til allra mála á þeim forsendum að „iðka það sem við segjum og ekki bara vera með upphrópanir og andstöðu verandi í minnihluta“. Innlent 18.6.2024 08:31 Lægð nálgast landið Eftir hægviðri gærdagsins nálgast lægð landið úr vestri og henni fylgir suðlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu. Upp úr hádegi byrjar að rigna suðvestanlands en þegar líður á daginn færist úrkoman norðaustur yfir landið. Veður 18.6.2024 07:59 Pútín heimsækir Kim Vladimír Pútín Rússlandsforseti er væntanlegur í opinbera heimsókn til Norður-Kóreu í dag. Erlent 18.6.2024 07:48 Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Hernaðaraðgerðir Ísraelshers á fyrstu þremur mánuðum stríðsins þurrkuðu nánast út heilu stórfjölskyldurnar á Gasa. Minnst 173 fjölskyldumeðlimir Salem-fjölskyldunnar létust í tveimur loftárásum. Fjölskyldumeðlimir sem lifðu af segja engin augljós hernaðarleg skotmörk hafa verið nálægt heimili fjölskyldunnar. Erlent 18.6.2024 07:26 Brutust inn en gripu í tómt Tilkynnt var um innbrot í verslunarhúsnæði á þriðja tímanum í nótt. Þá höfðu innbrotsþjófar brotist inn í húsnæði þar sem engin starfsemi fer fram og gripu því í tómt. Innlent 18.6.2024 06:30 Hyggjast einkavæða ríkismiðil Frakka Öfgahægriflokkur Marine Le Pen, Þjóðfylkingin, stefnir að því að einkavæða ríkisfjölmiðilinn í Frakklandi, nái flokkurinn hreinum meirihluta í komandi þingkosningum. Erlent 17.6.2024 23:57 Ian McKellen féll af sviði og var fluttur á sjúkrahús Breski leikarinn Ian McKellen var fluttur á sjúrkahús í Lundúnum í kvöld eftir að hafa fallið af leiksviði í West End á sýningunni Players Kings, þar sem McKellen fer með aðalhlutverk. Erlent 17.6.2024 22:54 Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Vegfaranda í Ölfusi blöskraði aðkoman á veginum milli Hveragerðis og Þorlákshöfn í gær þar sem bikblæðingar eru áberandi. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir ljóst að ná verði betri tökum á vandamálinu. Innlent 17.6.2024 20:19 Kringlan lokuð til fimmtudags Hreinsunarstarf í Kringlunni gengur vel, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reitum og verslunarmiðstöðinni. Stefnt er að því að opna að nýju á fimmtudag. Innlent 17.6.2024 18:07 Uppsagnir hjá Icelandair og borgarstjóri í Parísarhjóli Fimmtíu og sjö flugmönnum var sagt upp störfum hjá flugfélaginu Icelandair á föstudag. Áttatíu og tveimur starfsmönnum var sagt upp á skrifstofum félagsins í lok maí. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í beinni útsendingu. Innlent 17.6.2024 18:00 Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Borgarstjóri fór jómfrúarferð Parísarhjólsins ásamt fréttamanni Stöðvar 2 í dag klukkan þrjú. Parísarhjólið. Einar segir að um tilraunaverkefni sé að ræða í sumar. Innlent 17.6.2024 17:03 Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi 16 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní 2024. Þetta er jafnframt síðasta fálkaorðuafhending Guðna, sem lætur af störfum sem forseti 1. ágúst næstkomandi. Innlent 17.6.2024 16:12 Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Tveir starfsmenn við lagadeild Háskóla Íslands, Brynhildur G. Flóvenz dósent emerita, og Ragnheiður Bragadóttir prófessor, telja dóm Hæstaréttar í máli Brynjars Joensen Creed, rangan. Þær vona að fordæminu verði snúið við, en þær birtu grein um dóminn í Úlfjóti í síðastliðnum mánuði. Innlent 17.6.2024 15:48 Hvergi betra að búa en á Íslandi Bjarni Benediktsson forsætisráðherra flutti þjóðhátíðarávarp á Austurvelli í dag á áttatíu ára afmæli lýðveldisins. Hann sagði að það hefði þurft kjark og óbilandi trú á framtíðarmöguleika íslensku þjóðarinnar til að berjast fyrir fullveldinu. Lýðveldissan hafi einkennst af stórtækum framförum á öllum sviðum. Nú sé hvergi betra að búa en hér. Innlent 17.6.2024 14:21 Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Í gær birti Hanna Símonardóttir mynd á X, áður Twitter, þar sem sjá má nokkra Palestínufána blakta ásamt fána með merki Mosfellsbæjar og íslenska fánanum. Yfirskrift Hönnu var „dagurinn sem Mosfellsbær varð öðrum til fyrirmyndar“, en færslan hefur vakið misgóð viðbrögð. Innlent 17.6.2024 13:43 Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Lögmaður landeiganda í Ísafjarðardjúpi, sem barist hefur gegn sjókvíaeldi á svæðinu, skorar á ríkisstjórn að grípa til aðgerða vegna leyfisveitingar Matvælastofnunar til Arnarlax. Það sé til marks um slæma stjórnsýslu að stofnunin veiti fyrirtækinu rekstrarleyfi til fiskeldis í Djúpinu þrátt fyrir mótmæli Samgöngustofu, Vegagerðarinnar og Landhelgisgæslunnar Innlent 17.6.2024 13:41 Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Yfir fimm hundruð manns hafa skrifað undir lista þar sem skorað er á Sjúkratryggirnar Íslands að semja um læknisþjónustu á Akureyri við heimilislæknana Guðrúnu Dóru Clarke og Val Helga Kristinsson eftir að starfsemi þeirra í bænum var stöðvuð tímabundið. Skjólstæðingur annars þeirra til margra ára segir út í hött að nýta ekki þá starfskrafta sem séu íbúum til boða. Innlent 17.6.2024 13:00 Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Bæjarfulltrúi í Garðabæ segist hafa sagt sig úr Samfylkingunni vegna áherslna flokksins í útlendingamálum. Hann treystir flokknum ekki lengur í mannréttindamálum. Innlent 17.6.2024 11:52 Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona er fjallkonan í ár. Hún flutti ávarp á hátíðarathöfn á Austurvelli í dag. Innlent 17.6.2024 11:42 Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Lögmaður landeiganda í Ísafjarðardjúpi, sem barist hefur gegn sjókvíaeldi á svæðinu, skorar á ríkisstjórn að grípa til aðgerða vegna leyfisveitingar Matvælastofnunar til Arnarlax. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 17.6.2024 11:34 Netanjahú leysir stríðsráðið upp Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hefur ákveðið að leysa upp sex manna stríðsráð ríkisins. Ákvörðunin kemur skömmu eftir uppsögn Benny Gantz, pólitísks andstæðings Netanjahú, úr þjóðstjórninni. Erlent 17.6.2024 09:43 Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Rafmagnslaust var í stórum hluta Mosfellsbæjar í morgun vegna háspennubilunar. Innlent 17.6.2024 09:19 Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Bandarískur ferðamaður sem leitað var að síðan á fimmtudaginn fannst látinn á grískri eyju nærri eyjunni Corfu í gær. Tikynnt hefur verið um hvörf þriggja ferðamanna á grískum ferðamannaeyjum síðastliðna viku. Erlent 17.6.2024 08:33 Víðast hvar þungbúið á þjóðhátíðardaginn Það er útlit fyrir hægan vind á landinu í dag. Heilt yfir verður nokkuð þungbúið á Suður- og Vesturlandi og dálítil væta gæti látið á sér kræla öðru hvoru. Á Norður- og Austurlandi ætti að verða þurrt með einhverjum sólarköflum. Veður 17.6.2024 07:34 Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og í nótt, meðal annars var tilkynnt um eldsvoða í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Áberandi var fjöldi hávaðakvartana en svo virðist sem mikið af samkvæmum hafi verið í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 17.6.2024 07:19 Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Jordan Bardella er 28 ára gamall, óháskólagengin, hefur ekki reynslu af því að vera í ríkisstjórn, hefur hvergi unnið nema hjá stjórnmálaflokknum Þjóðfylkingunni og hjá fyrirtæki föður síns. Þrátt fyrir það eru talsverðar líkur á að Bardella verði næsti forsætisráðherra Frakklands. Erlent 16.6.2024 23:00 « ‹ 191 192 193 194 195 196 197 198 199 … 334 ›
Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hrákapoka um höfuð hans Fimm lögreglumenn tóku karlmann höndum við hátíðarhöld í miðbæ Reykjavíkur í gær og notuðu svokallaðan hrákapoka við aðgerðirnar. Íslenskum karlmanni blöskrar aðgerðir lögreglu og birtir myndbönd máli sínu til stuðnings. Innlent 18.6.2024 11:08
Án rafmagns í tuttugu mínútur Rafmagnslaust varð á Egilsstöðum, Seyðisfirði, Borgarfirði eystri og nærsveitum korter yfir tíu í morgun vegna útleysingar frá tengivirki við Eyvindará. Innlent 18.6.2024 10:57
„Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu“ „Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu,“ segir Sylvía Briem Friðjónsdóttir sem vakið hefur athygli á bágri stöðu nýbakaðra foreldra. Hún kveðst hafa fengið ábendingar um gjaldþrot foreldra sem hafi tekið sér fæðingarorlof og spyr hvort það sé orðinn lúxus að fjölga sér. Innlent 18.6.2024 10:54
Rífa íþróttahúsið Bæjarstjórn Grindavíkur hefur falið sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja undirbúningsvinnu við niðurrif á Hópinu, fjölnotaíþróttahúsi Grindvíkinga. Innlent 18.6.2024 09:06
Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður Samfylkingarinnar segir flokkinn búa sig undir að taka við landsstjórninni. Í því felist að taka afstöðu til allra mála á þeim forsendum að „iðka það sem við segjum og ekki bara vera með upphrópanir og andstöðu verandi í minnihluta“. Innlent 18.6.2024 08:31
Lægð nálgast landið Eftir hægviðri gærdagsins nálgast lægð landið úr vestri og henni fylgir suðlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu. Upp úr hádegi byrjar að rigna suðvestanlands en þegar líður á daginn færist úrkoman norðaustur yfir landið. Veður 18.6.2024 07:59
Pútín heimsækir Kim Vladimír Pútín Rússlandsforseti er væntanlegur í opinbera heimsókn til Norður-Kóreu í dag. Erlent 18.6.2024 07:48
Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Hernaðaraðgerðir Ísraelshers á fyrstu þremur mánuðum stríðsins þurrkuðu nánast út heilu stórfjölskyldurnar á Gasa. Minnst 173 fjölskyldumeðlimir Salem-fjölskyldunnar létust í tveimur loftárásum. Fjölskyldumeðlimir sem lifðu af segja engin augljós hernaðarleg skotmörk hafa verið nálægt heimili fjölskyldunnar. Erlent 18.6.2024 07:26
Brutust inn en gripu í tómt Tilkynnt var um innbrot í verslunarhúsnæði á þriðja tímanum í nótt. Þá höfðu innbrotsþjófar brotist inn í húsnæði þar sem engin starfsemi fer fram og gripu því í tómt. Innlent 18.6.2024 06:30
Hyggjast einkavæða ríkismiðil Frakka Öfgahægriflokkur Marine Le Pen, Þjóðfylkingin, stefnir að því að einkavæða ríkisfjölmiðilinn í Frakklandi, nái flokkurinn hreinum meirihluta í komandi þingkosningum. Erlent 17.6.2024 23:57
Ian McKellen féll af sviði og var fluttur á sjúkrahús Breski leikarinn Ian McKellen var fluttur á sjúrkahús í Lundúnum í kvöld eftir að hafa fallið af leiksviði í West End á sýningunni Players Kings, þar sem McKellen fer með aðalhlutverk. Erlent 17.6.2024 22:54
Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Vegfaranda í Ölfusi blöskraði aðkoman á veginum milli Hveragerðis og Þorlákshöfn í gær þar sem bikblæðingar eru áberandi. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir ljóst að ná verði betri tökum á vandamálinu. Innlent 17.6.2024 20:19
Kringlan lokuð til fimmtudags Hreinsunarstarf í Kringlunni gengur vel, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reitum og verslunarmiðstöðinni. Stefnt er að því að opna að nýju á fimmtudag. Innlent 17.6.2024 18:07
Uppsagnir hjá Icelandair og borgarstjóri í Parísarhjóli Fimmtíu og sjö flugmönnum var sagt upp störfum hjá flugfélaginu Icelandair á föstudag. Áttatíu og tveimur starfsmönnum var sagt upp á skrifstofum félagsins í lok maí. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í beinni útsendingu. Innlent 17.6.2024 18:00
Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Borgarstjóri fór jómfrúarferð Parísarhjólsins ásamt fréttamanni Stöðvar 2 í dag klukkan þrjú. Parísarhjólið. Einar segir að um tilraunaverkefni sé að ræða í sumar. Innlent 17.6.2024 17:03
Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi 16 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní 2024. Þetta er jafnframt síðasta fálkaorðuafhending Guðna, sem lætur af störfum sem forseti 1. ágúst næstkomandi. Innlent 17.6.2024 16:12
Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Tveir starfsmenn við lagadeild Háskóla Íslands, Brynhildur G. Flóvenz dósent emerita, og Ragnheiður Bragadóttir prófessor, telja dóm Hæstaréttar í máli Brynjars Joensen Creed, rangan. Þær vona að fordæminu verði snúið við, en þær birtu grein um dóminn í Úlfjóti í síðastliðnum mánuði. Innlent 17.6.2024 15:48
Hvergi betra að búa en á Íslandi Bjarni Benediktsson forsætisráðherra flutti þjóðhátíðarávarp á Austurvelli í dag á áttatíu ára afmæli lýðveldisins. Hann sagði að það hefði þurft kjark og óbilandi trú á framtíðarmöguleika íslensku þjóðarinnar til að berjast fyrir fullveldinu. Lýðveldissan hafi einkennst af stórtækum framförum á öllum sviðum. Nú sé hvergi betra að búa en hér. Innlent 17.6.2024 14:21
Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Í gær birti Hanna Símonardóttir mynd á X, áður Twitter, þar sem sjá má nokkra Palestínufána blakta ásamt fána með merki Mosfellsbæjar og íslenska fánanum. Yfirskrift Hönnu var „dagurinn sem Mosfellsbær varð öðrum til fyrirmyndar“, en færslan hefur vakið misgóð viðbrögð. Innlent 17.6.2024 13:43
Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Lögmaður landeiganda í Ísafjarðardjúpi, sem barist hefur gegn sjókvíaeldi á svæðinu, skorar á ríkisstjórn að grípa til aðgerða vegna leyfisveitingar Matvælastofnunar til Arnarlax. Það sé til marks um slæma stjórnsýslu að stofnunin veiti fyrirtækinu rekstrarleyfi til fiskeldis í Djúpinu þrátt fyrir mótmæli Samgöngustofu, Vegagerðarinnar og Landhelgisgæslunnar Innlent 17.6.2024 13:41
Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Yfir fimm hundruð manns hafa skrifað undir lista þar sem skorað er á Sjúkratryggirnar Íslands að semja um læknisþjónustu á Akureyri við heimilislæknana Guðrúnu Dóru Clarke og Val Helga Kristinsson eftir að starfsemi þeirra í bænum var stöðvuð tímabundið. Skjólstæðingur annars þeirra til margra ára segir út í hött að nýta ekki þá starfskrafta sem séu íbúum til boða. Innlent 17.6.2024 13:00
Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Bæjarfulltrúi í Garðabæ segist hafa sagt sig úr Samfylkingunni vegna áherslna flokksins í útlendingamálum. Hann treystir flokknum ekki lengur í mannréttindamálum. Innlent 17.6.2024 11:52
Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona er fjallkonan í ár. Hún flutti ávarp á hátíðarathöfn á Austurvelli í dag. Innlent 17.6.2024 11:42
Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Lögmaður landeiganda í Ísafjarðardjúpi, sem barist hefur gegn sjókvíaeldi á svæðinu, skorar á ríkisstjórn að grípa til aðgerða vegna leyfisveitingar Matvælastofnunar til Arnarlax. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 17.6.2024 11:34
Netanjahú leysir stríðsráðið upp Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hefur ákveðið að leysa upp sex manna stríðsráð ríkisins. Ákvörðunin kemur skömmu eftir uppsögn Benny Gantz, pólitísks andstæðings Netanjahú, úr þjóðstjórninni. Erlent 17.6.2024 09:43
Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Rafmagnslaust var í stórum hluta Mosfellsbæjar í morgun vegna háspennubilunar. Innlent 17.6.2024 09:19
Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Bandarískur ferðamaður sem leitað var að síðan á fimmtudaginn fannst látinn á grískri eyju nærri eyjunni Corfu í gær. Tikynnt hefur verið um hvörf þriggja ferðamanna á grískum ferðamannaeyjum síðastliðna viku. Erlent 17.6.2024 08:33
Víðast hvar þungbúið á þjóðhátíðardaginn Það er útlit fyrir hægan vind á landinu í dag. Heilt yfir verður nokkuð þungbúið á Suður- og Vesturlandi og dálítil væta gæti látið á sér kræla öðru hvoru. Á Norður- og Austurlandi ætti að verða þurrt með einhverjum sólarköflum. Veður 17.6.2024 07:34
Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og í nótt, meðal annars var tilkynnt um eldsvoða í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Áberandi var fjöldi hávaðakvartana en svo virðist sem mikið af samkvæmum hafi verið í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 17.6.2024 07:19
Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Jordan Bardella er 28 ára gamall, óháskólagengin, hefur ekki reynslu af því að vera í ríkisstjórn, hefur hvergi unnið nema hjá stjórnmálaflokknum Þjóðfylkingunni og hjá fyrirtæki föður síns. Þrátt fyrir það eru talsverðar líkur á að Bardella verði næsti forsætisráðherra Frakklands. Erlent 16.6.2024 23:00