Fréttir Hafa áhyggjur af hópamyndun ungra karlmanna Heilt yfir hefur ofbeldisbrotum ungmenna ekki fjölgað hér á landi frá árinu 2007. Hins vegar hefur tilkynningum til lögreglu um alvarleg ofbeldisbrot fjölgað og hafa þau aldrei verið fleiri. Þá hefur lögregla sérstakar áhyggjur af hópamyndun ungmenna og ungra karlmanna í ofbeldismálum. Innlent 24.6.2024 10:28 „Þetta er árás á lýðræðið í landinu” Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir að netárásin sem gerð var á Árvakur í gær jafngildi árás á lýðræðið á Íslandi og frjáls skoðanaskipti í landinu. Þetta skrifar Lilja í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun. Innlent 24.6.2024 10:27 Vandar um við Sigmund Davíð Henry Alexander Henrysson heimspekingur hefur áhyggjur af því að ný Mannréttindastofnun Íslands, verði flokkspólitískum deilum og glósum að bráð. Innlent 24.6.2024 10:08 Gerðu lykiluppgötvun í baráttunni við Alzheimer Fyrsta stökkbreytingin með sterkan víkjandi þátt sem stóreykur líkur á Alzheimur sjúkdómi er fundin. Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar fóru fyrir stórri alþjóðlegri rannsókn á erfðum Alzheimer sjúkdóms. Innlent 24.6.2024 09:54 Skjálftinn við Brennisteinsfjöll líklega ótengdur gosstöðvunum Jarðskjálfti sem reið yfir í Brennisteinsfjöllum í gærkvöldi er ekki talinn tengjast atburðunum í Sundhnúkagígum. Landris heldur áfram við Svartsengi og útlit fyrir að sama ferli sé að hefjast og sést hefur í aðdraganda síðustu eldgosa. Innlent 24.6.2024 08:35 Borgin sendi ömurleg skilaboð út í samfélagið Rithöfundurinn Sverrir Norland segir skammarlegt að starfsemi bókasafna Reykjavíkur verði ekki haldið úti í allt sumar vegna hagræðingarkröfu borgarinnar. Söfnin verða lokuð á víxl í sumar, hvert í þrjár vikur í senn, sparnaðarskyni. Sverrir telur það senda ömurleg skilaboð út í samfélagið, sér í lagi þegar íslenskt efni fyrir börn verður undir í samkeppni við efni á öðrum tungumálum. Innlent 24.6.2024 07:50 Teslum oftar ekið á mannvirki en öðrum bílum Tryggingafélagið Sjóvá hefur sent viðskiptavinum sínum, sem eiga bifreiðar af gerðinni Tesla, tölvupóst þar sem athygli er vakin á því að Teslum er ekið oftar á mannvirki en öðrum bílum. Innlent 24.6.2024 07:07 Peningakassa stolið úr kirkju vestur í bæ Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Peningakassi sem stolið var úr kirkju, börn á húsþökum og innbrot í bíla voru á meðal verkefna lögreglu. Fjórir gistu fangageymslur lögreglu í morgun. Innlent 24.6.2024 06:57 Tala látinna í Dagestan hækkar Minnst 15 lögreglumenn og fjöldi almennra borgara féllu í skotárásum á kirkjur og sýnagógur í Dagestan í Rússlandi í gær. Erlent 24.6.2024 06:44 Segja árásina á Moggann eins alvarlega og mögulegt er Netárás sem Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins varð fyrir í gær, er með alvarlegasta móti. Rússneskir hakkarar eru sagðir standa að baki árásinni og hafa tekið gögn félagsins í gíslingu. Innlent 24.6.2024 06:29 Möguleiki á 20 gráðum í dag Útlit er fyrir að hlýjasta veðrið á landinu í dag verði á Norðausturlandi, þar sem hitinn gæti náð 20 gráðu markinu. Innlent 24.6.2024 06:16 Merkasti stríðsþristurinn á heimleið frá Normandí Ein merkasta vél flugsögunnar, flugvélin sem leiddi innrásina í Normandí, er núna stödd á Reykjavíkurflugvelli. Þetta er Douglas Dakota-flugvélin „That's All, Brother", sem á D-deginum þann 6. júní árið 1944 fór fyrir flugi yfir áttahundruð slíkra véla með samtals um þrettán þúsund fallhlífahermenn um borð. Innlent 23.6.2024 23:21 Fjöldi látinn eftir árásir á sýnagógu og kirkjur Að minnsta kosti sex lögregluþjónar og einn prestur létust í skotárásum í tveimur borgum í Dagestan á sunnanverðu Rússlandi í dag. Árásarmenn hófu skothríð í sýnagógu, tveimur kirkjum og lögreglustöð. Erlent 23.6.2024 23:02 Ekki alltaf hægt að endurheimta öll gögn Vefur Morgunblaðsins, mbl.is, lá niðri í dag í um þrjá klukkutíma í kjölfar stórfelldrar netárásar á tækniinnviði Árvakurs. Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, stjórnandi viðskiptaþróunar og meðstofnandi Defend Iceland, fyrirtækis sem sérhæfir sig í forvirku netöryggi, segir blasa við að árásin hafi verið háalvarleg og að það sé ekki alltaf hægt að endurheimta töpuð gögn. Innlent 23.6.2024 21:39 Vefurinn kominn í loftið en óvíst með blað morgundagsins Vefur Morgunblaðsins, mbl.is, er kominn aftur upp eftir að hafa legið niðri frá um fimmleytið í dag eftir stórfellda netárás sem gerð var á tölvukerfi Árvakurs. Útsendingar hafa einnig legið niðri á K100. Karl Blöndal aðstoðarritstjóri segir ekki til um hvort Morgunblaðið komi út á morgun. Innlent 23.6.2024 20:21 Safna fjórum til fimm milljónum á ári fyrir Strandarkirkju Á milli fjórar og fimm milljónir króna safnast á hverju ári í áheit vegna Strandarkirkju í Selvogi í Ölfusi og heldur það rekstri kirkjunnar gangandi. Íbúi í Selvogi segir stöðuga umferð ferðamanna allt árið um kring til að heimsækja kirkjuna og lýsir því ástandi við mauraþúfu. Innlent 23.6.2024 20:04 Dauðir fiskar hrannast upp og kerfið gerir ekkert Grenlækur í Landbroti hefur staðið á þurru á ellefu kílómetra kafla síðan í vor og meirihluti hrygningarfiska er dauður. Sonur landeigenda segir stöðuna grafalvarlega. Innlent 23.6.2024 20:00 Eldri borgarar mótmæla gjaldtöku Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni mótmælir harðlega hugmyndum um að innheimta gjald af eldri borgurum í sundlaugum Reykjavíkurborgar. Ingibjörg Sverrisdóttir, stjórnarformaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, segir þetta bæði vera lýðheilsu- og prinsippmál. Innlent 23.6.2024 19:58 Ein þekktasta sjóbirtingsá landsins þurr og meirihluti fiska dauður Ein þekktasta sjóbirtingsá landsins hefur staðið á þurru á ellefu kílómetra kafla síðan í vor og meirihluti hrygningarfiska er dauður. Sonur landeigenda segir stöðuna grafalvarlega. Innlent 23.6.2024 18:18 Mótmæla brottvísun Yazans á Austurvelli Fjöldi fólks kom saman á Austurvelli í dag til að mótmæla brottvísun Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með vöðvarýrnunarsjúkdóm. Innlent 23.6.2024 18:13 Mbl.is liggur niðri eftir tölvuárás Árvakur varð í dag fyrir alvarlegri tölvuárás en af þeim sökum liggur vefur fyrirtækisins, mbl.is og útvarpsstöðin K100 niðri. Innlent 23.6.2024 17:01 Úlfar réðust á skokkara í dýralífsgarði 36 ára kona liggur nú á gjörgæslu í Frakklandi eftir að úlfar réðust á hana. Konan skokkaði frá húsinu sem hún dvaldi í í Thoiry-garðinum rétt fyrir utan París í dag og endaði fyrir slysni í dýralífsgarði sem á aðeins að vera opinn fyrir bifreiðar. Erlent 23.6.2024 16:05 Andrúmsloftið í ríkisstjórninni hafi lagast eftir að Katrín hætti Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins segir Bjarna Benediktsson eiga mjög mikið undir við að halda ríkisstjórnarsamstarfinu gangandi fram yfir næsta vor. Það sé augljós djúpstæður ágreiningur innan þess en þau fái núna, við þinglok, nokkrar vikur til að jafna sig á því. Hann muni þó taka sig aftur upp þegar þing kemur aftur saman í ágúst. Innlent 23.6.2024 16:00 Neyddust til að aflýsa flugferðum vegna rafmagnsleysis Öllum flugferðum til og frá tveimur stærstu flugstöðvunum á flugvellinum í Manchester-borg í Englandi var aflýst í dag vegna rafmagnsleysis í byggingu flugvallarins. Icelandair neyddist til að aflýsa flugferðum sínum til og frá Manchester í dag. Innlent 23.6.2024 15:10 Fara enn huldu höfði þrátt fyrir fjölda vísbendinga Mennirnir tveir sem brutust inn í veitingasal Brunnhóls á Mýrum í Hornafirði í gær og höfðu þaðan með sér öryggiskassa fara enn huldu höfði. Lögreglunni á Suðurlandi hefur borist þó nokkrar vísbendingar síðan að eigandi Brunnhóls birti myndskeið af mönnunum að fara ránshendi um gistihúsið. Innlent 23.6.2024 14:34 Segir öldrun þjóðarinnar eitt helsta áhyggjuefnið „Það er nánast ekki tekið tillit til þessa. Þegar ég hef verið að lesa gögnin þá kemur verulega á óvart hvað þetta fær litla umfjöllun og lítið vægi og á nokkrum stöðum hef ég fundið umfjöllun um það að þetta breyti ekki miklu til skamms tíma en þetta er bara að gerast núna.“ Innlent 23.6.2024 14:30 „Konur eru ekkert að leika sér að því að láta taka af sér brjóstin“ Formaður Brakkasamtakanna, Jóhanna Lilja Eiríksdóttir, telur ótækt að Sjúkratryggingar Íslands semji ekki við fyrirtækið Intuens ehf. um segulómtækismyndatöku. Fyrirtækið sé það eina á landinu sem eigi brjóstaspólur fyrir myndatöku, utan Landspítalans. Konur sem séu með BRCA genið fái aðeins þjónustu á Landspítalanum og að hún sé of óáreiðanleg. Innlent 23.6.2024 13:16 Rektor HR segir mikilvægt að verja valfrelsi nemenda Alls útskrifuðust 692 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík í gær með alls 701 prófgráðu. Í ræðu sinni ræddi Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, meðal annars þá ákvörðun HR fyrr á árinu að afnema ekki skólagjöld, í kjölfar tilboðs frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu um fulla fjármögnun ríkisins gegn afnámi skólagjalda. Innlent 23.6.2024 13:11 12 tonn af sveppum í hverri viku frá Flúðasveppum Eitt öflugasta fyrirtæki í Uppsveitum Árnessýslu, Flúðasveppir á Flúðum framleiðir nú 12 tonn af sveppum á viku og hefur varla undan að framleiða sveppi ofan í landsmenn. Fyrirtækið fagnar 40 ára afmæli í ár en á fyrstu árunum voru aðeins framleidd 500 kíló af sveppum á viku, sem þótti mjög gott þá. Innlent 23.6.2024 13:05 Landris gæti aukist en of snemmt að segja til um goslok Veðurstofa Íslands tilkynnti í gær að eldgosinu við Sundhnúkagígaröð, sem hófst þann 29. maí, væri sennilega lokið. Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, segir of snemmt til að fullyrða um það og bendir á að goslok gætu haft áhrif á landris í Svartsengi. Innlent 23.6.2024 12:18 « ‹ 182 183 184 185 186 187 188 189 190 … 334 ›
Hafa áhyggjur af hópamyndun ungra karlmanna Heilt yfir hefur ofbeldisbrotum ungmenna ekki fjölgað hér á landi frá árinu 2007. Hins vegar hefur tilkynningum til lögreglu um alvarleg ofbeldisbrot fjölgað og hafa þau aldrei verið fleiri. Þá hefur lögregla sérstakar áhyggjur af hópamyndun ungmenna og ungra karlmanna í ofbeldismálum. Innlent 24.6.2024 10:28
„Þetta er árás á lýðræðið í landinu” Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir að netárásin sem gerð var á Árvakur í gær jafngildi árás á lýðræðið á Íslandi og frjáls skoðanaskipti í landinu. Þetta skrifar Lilja í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun. Innlent 24.6.2024 10:27
Vandar um við Sigmund Davíð Henry Alexander Henrysson heimspekingur hefur áhyggjur af því að ný Mannréttindastofnun Íslands, verði flokkspólitískum deilum og glósum að bráð. Innlent 24.6.2024 10:08
Gerðu lykiluppgötvun í baráttunni við Alzheimer Fyrsta stökkbreytingin með sterkan víkjandi þátt sem stóreykur líkur á Alzheimur sjúkdómi er fundin. Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar fóru fyrir stórri alþjóðlegri rannsókn á erfðum Alzheimer sjúkdóms. Innlent 24.6.2024 09:54
Skjálftinn við Brennisteinsfjöll líklega ótengdur gosstöðvunum Jarðskjálfti sem reið yfir í Brennisteinsfjöllum í gærkvöldi er ekki talinn tengjast atburðunum í Sundhnúkagígum. Landris heldur áfram við Svartsengi og útlit fyrir að sama ferli sé að hefjast og sést hefur í aðdraganda síðustu eldgosa. Innlent 24.6.2024 08:35
Borgin sendi ömurleg skilaboð út í samfélagið Rithöfundurinn Sverrir Norland segir skammarlegt að starfsemi bókasafna Reykjavíkur verði ekki haldið úti í allt sumar vegna hagræðingarkröfu borgarinnar. Söfnin verða lokuð á víxl í sumar, hvert í þrjár vikur í senn, sparnaðarskyni. Sverrir telur það senda ömurleg skilaboð út í samfélagið, sér í lagi þegar íslenskt efni fyrir börn verður undir í samkeppni við efni á öðrum tungumálum. Innlent 24.6.2024 07:50
Teslum oftar ekið á mannvirki en öðrum bílum Tryggingafélagið Sjóvá hefur sent viðskiptavinum sínum, sem eiga bifreiðar af gerðinni Tesla, tölvupóst þar sem athygli er vakin á því að Teslum er ekið oftar á mannvirki en öðrum bílum. Innlent 24.6.2024 07:07
Peningakassa stolið úr kirkju vestur í bæ Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Peningakassi sem stolið var úr kirkju, börn á húsþökum og innbrot í bíla voru á meðal verkefna lögreglu. Fjórir gistu fangageymslur lögreglu í morgun. Innlent 24.6.2024 06:57
Tala látinna í Dagestan hækkar Minnst 15 lögreglumenn og fjöldi almennra borgara féllu í skotárásum á kirkjur og sýnagógur í Dagestan í Rússlandi í gær. Erlent 24.6.2024 06:44
Segja árásina á Moggann eins alvarlega og mögulegt er Netárás sem Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins varð fyrir í gær, er með alvarlegasta móti. Rússneskir hakkarar eru sagðir standa að baki árásinni og hafa tekið gögn félagsins í gíslingu. Innlent 24.6.2024 06:29
Möguleiki á 20 gráðum í dag Útlit er fyrir að hlýjasta veðrið á landinu í dag verði á Norðausturlandi, þar sem hitinn gæti náð 20 gráðu markinu. Innlent 24.6.2024 06:16
Merkasti stríðsþristurinn á heimleið frá Normandí Ein merkasta vél flugsögunnar, flugvélin sem leiddi innrásina í Normandí, er núna stödd á Reykjavíkurflugvelli. Þetta er Douglas Dakota-flugvélin „That's All, Brother", sem á D-deginum þann 6. júní árið 1944 fór fyrir flugi yfir áttahundruð slíkra véla með samtals um þrettán þúsund fallhlífahermenn um borð. Innlent 23.6.2024 23:21
Fjöldi látinn eftir árásir á sýnagógu og kirkjur Að minnsta kosti sex lögregluþjónar og einn prestur létust í skotárásum í tveimur borgum í Dagestan á sunnanverðu Rússlandi í dag. Árásarmenn hófu skothríð í sýnagógu, tveimur kirkjum og lögreglustöð. Erlent 23.6.2024 23:02
Ekki alltaf hægt að endurheimta öll gögn Vefur Morgunblaðsins, mbl.is, lá niðri í dag í um þrjá klukkutíma í kjölfar stórfelldrar netárásar á tækniinnviði Árvakurs. Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, stjórnandi viðskiptaþróunar og meðstofnandi Defend Iceland, fyrirtækis sem sérhæfir sig í forvirku netöryggi, segir blasa við að árásin hafi verið háalvarleg og að það sé ekki alltaf hægt að endurheimta töpuð gögn. Innlent 23.6.2024 21:39
Vefurinn kominn í loftið en óvíst með blað morgundagsins Vefur Morgunblaðsins, mbl.is, er kominn aftur upp eftir að hafa legið niðri frá um fimmleytið í dag eftir stórfellda netárás sem gerð var á tölvukerfi Árvakurs. Útsendingar hafa einnig legið niðri á K100. Karl Blöndal aðstoðarritstjóri segir ekki til um hvort Morgunblaðið komi út á morgun. Innlent 23.6.2024 20:21
Safna fjórum til fimm milljónum á ári fyrir Strandarkirkju Á milli fjórar og fimm milljónir króna safnast á hverju ári í áheit vegna Strandarkirkju í Selvogi í Ölfusi og heldur það rekstri kirkjunnar gangandi. Íbúi í Selvogi segir stöðuga umferð ferðamanna allt árið um kring til að heimsækja kirkjuna og lýsir því ástandi við mauraþúfu. Innlent 23.6.2024 20:04
Dauðir fiskar hrannast upp og kerfið gerir ekkert Grenlækur í Landbroti hefur staðið á þurru á ellefu kílómetra kafla síðan í vor og meirihluti hrygningarfiska er dauður. Sonur landeigenda segir stöðuna grafalvarlega. Innlent 23.6.2024 20:00
Eldri borgarar mótmæla gjaldtöku Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni mótmælir harðlega hugmyndum um að innheimta gjald af eldri borgurum í sundlaugum Reykjavíkurborgar. Ingibjörg Sverrisdóttir, stjórnarformaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, segir þetta bæði vera lýðheilsu- og prinsippmál. Innlent 23.6.2024 19:58
Ein þekktasta sjóbirtingsá landsins þurr og meirihluti fiska dauður Ein þekktasta sjóbirtingsá landsins hefur staðið á þurru á ellefu kílómetra kafla síðan í vor og meirihluti hrygningarfiska er dauður. Sonur landeigenda segir stöðuna grafalvarlega. Innlent 23.6.2024 18:18
Mótmæla brottvísun Yazans á Austurvelli Fjöldi fólks kom saman á Austurvelli í dag til að mótmæla brottvísun Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með vöðvarýrnunarsjúkdóm. Innlent 23.6.2024 18:13
Mbl.is liggur niðri eftir tölvuárás Árvakur varð í dag fyrir alvarlegri tölvuárás en af þeim sökum liggur vefur fyrirtækisins, mbl.is og útvarpsstöðin K100 niðri. Innlent 23.6.2024 17:01
Úlfar réðust á skokkara í dýralífsgarði 36 ára kona liggur nú á gjörgæslu í Frakklandi eftir að úlfar réðust á hana. Konan skokkaði frá húsinu sem hún dvaldi í í Thoiry-garðinum rétt fyrir utan París í dag og endaði fyrir slysni í dýralífsgarði sem á aðeins að vera opinn fyrir bifreiðar. Erlent 23.6.2024 16:05
Andrúmsloftið í ríkisstjórninni hafi lagast eftir að Katrín hætti Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins segir Bjarna Benediktsson eiga mjög mikið undir við að halda ríkisstjórnarsamstarfinu gangandi fram yfir næsta vor. Það sé augljós djúpstæður ágreiningur innan þess en þau fái núna, við þinglok, nokkrar vikur til að jafna sig á því. Hann muni þó taka sig aftur upp þegar þing kemur aftur saman í ágúst. Innlent 23.6.2024 16:00
Neyddust til að aflýsa flugferðum vegna rafmagnsleysis Öllum flugferðum til og frá tveimur stærstu flugstöðvunum á flugvellinum í Manchester-borg í Englandi var aflýst í dag vegna rafmagnsleysis í byggingu flugvallarins. Icelandair neyddist til að aflýsa flugferðum sínum til og frá Manchester í dag. Innlent 23.6.2024 15:10
Fara enn huldu höfði þrátt fyrir fjölda vísbendinga Mennirnir tveir sem brutust inn í veitingasal Brunnhóls á Mýrum í Hornafirði í gær og höfðu þaðan með sér öryggiskassa fara enn huldu höfði. Lögreglunni á Suðurlandi hefur borist þó nokkrar vísbendingar síðan að eigandi Brunnhóls birti myndskeið af mönnunum að fara ránshendi um gistihúsið. Innlent 23.6.2024 14:34
Segir öldrun þjóðarinnar eitt helsta áhyggjuefnið „Það er nánast ekki tekið tillit til þessa. Þegar ég hef verið að lesa gögnin þá kemur verulega á óvart hvað þetta fær litla umfjöllun og lítið vægi og á nokkrum stöðum hef ég fundið umfjöllun um það að þetta breyti ekki miklu til skamms tíma en þetta er bara að gerast núna.“ Innlent 23.6.2024 14:30
„Konur eru ekkert að leika sér að því að láta taka af sér brjóstin“ Formaður Brakkasamtakanna, Jóhanna Lilja Eiríksdóttir, telur ótækt að Sjúkratryggingar Íslands semji ekki við fyrirtækið Intuens ehf. um segulómtækismyndatöku. Fyrirtækið sé það eina á landinu sem eigi brjóstaspólur fyrir myndatöku, utan Landspítalans. Konur sem séu með BRCA genið fái aðeins þjónustu á Landspítalanum og að hún sé of óáreiðanleg. Innlent 23.6.2024 13:16
Rektor HR segir mikilvægt að verja valfrelsi nemenda Alls útskrifuðust 692 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík í gær með alls 701 prófgráðu. Í ræðu sinni ræddi Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, meðal annars þá ákvörðun HR fyrr á árinu að afnema ekki skólagjöld, í kjölfar tilboðs frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu um fulla fjármögnun ríkisins gegn afnámi skólagjalda. Innlent 23.6.2024 13:11
12 tonn af sveppum í hverri viku frá Flúðasveppum Eitt öflugasta fyrirtæki í Uppsveitum Árnessýslu, Flúðasveppir á Flúðum framleiðir nú 12 tonn af sveppum á viku og hefur varla undan að framleiða sveppi ofan í landsmenn. Fyrirtækið fagnar 40 ára afmæli í ár en á fyrstu árunum voru aðeins framleidd 500 kíló af sveppum á viku, sem þótti mjög gott þá. Innlent 23.6.2024 13:05
Landris gæti aukist en of snemmt að segja til um goslok Veðurstofa Íslands tilkynnti í gær að eldgosinu við Sundhnúkagígaröð, sem hófst þann 29. maí, væri sennilega lokið. Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, segir of snemmt til að fullyrða um það og bendir á að goslok gætu haft áhrif á landris í Svartsengi. Innlent 23.6.2024 12:18