Fréttir Ferðaþjónustan þurfi að hætta þessu væli Framkvæmdastjóri Úrvals útsýnar segir ekki sjálfsagt að almenningur greiði undir markaðsherferðir fyrir Ísland sem ferðamannastað. Nú sé ekki rétti tíminn til að hrinda af stað markaðsherferð fyrir Ísland heldur komast að því hver ástæða samdráttarins sé. Innlent 27.6.2024 15:05 Fimm ár fyrir tilraun til manndráps á aðfangadag Ásgeir Þór Önnuson hlaut í dag fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps með skotárás á heimili í Hafnarfirði síðastliðið aðfangadagskvöld. Hann braust grímuklæddur inn á heimili í Hafnarfirði, og skaut sex skotum úr skammbyssu í átt að níu ára stúlku og föður hennar. Innlent 27.6.2024 14:52 Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Bráðum verður hægt að nota þýðingarvél Google til að þýða á og úr málum nágrannaþjóða okkar. Færeysku og grænlensku verður bætt við þýðingarvélina á næstunni ásamt 108 öðrum málum um allan heim, allt frá fámennum málsvæðum eins og Færeyjum og til fjölmennari mála eins og kantónsku. Erlent 27.6.2024 14:09 Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Joe Biden og Donald Trump mætast í fyrri kappræðum sínum fyrir forsetakosningarnar í nótt. Prófessor í stjórnmálafræði segir á brattann að sækja fyrir Biden, sem þurfi að sanna sig fyrir kjósendum í kappræðum kvöldsins. Erlent 27.6.2024 13:57 Íbúar Grafarvogs óánægðir með þéttingaráform Mikillar óánægju gætir meðal hóps íbúa í Grafarvogi um áform borgarinnar um uppbyggingu í hverfinu. Hópurinn óttast að græn svæði hverfi fyrir þéttri byggð og hefur stofnað undirskriftalista til að mótmæla byggingu á fjölbýlishúsi á lóð við Smárarima/Sóleyjarima. Innlent 27.6.2024 13:49 Heildarkostnaður við varnargarða nærri sjö milljarðar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur gefið ríkislögreglustjóra heimild til að hefja vinnu við hækkun og styrkingu varnargarða í nágrenni Grindavíkur. Heildarkostnaður við garðana er metinn á nærri sjö milljarða króna. Innlent 27.6.2024 13:37 Segja aðgerðir lögreglu úr hófi og vilja miskabætur Níu mótmælendur krefjast miskabóta frá ríkinu vegna þess sem þeir segja harkalegar og tilhæfulausar aðgerðir lögreglu 31. maí síðastliðinn. Innlent 27.6.2024 13:34 Gul viðvörun allan morgundaginn Veðurstofan hefur gefið út gula viðbörun fyrir Suðausturland og Austfirði. Viðvörunin tekur gildi á miðnætti og stendur til klukkan ellefu á föstudagskvöld. Veður 27.6.2024 13:31 Fastagestur á níræðisaldri káfaði á konu í sundi Karlmaður fæddur árið 1940 hefur verið sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni með því að káfa á konu í sundlaug á Vestfjörðum. Ákvörðun refsingar mannsins, sem er fastagestur í lauginni, var frestað og hún fellur niður haldi hann skilorð í tvö ár. Innlent 27.6.2024 13:30 Muni styrkja bæinn og starfsemi skólans gríðarlega Í dag var undirritað samkomulag um byggingu nýs Tækniskóla í Hafnarfirði. Með samkomulaginu er fjármagn til byggingar nýs skóla tryggt og hægt að fara í útboð á framkvæmdum og hönnun skólans. Innlent 27.6.2024 13:20 Sanna stefnir á þing Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, hyggst bjóða sig fram til þings fyrir hönd flokksins hljóti hún stuðning félaga sinna. Innlent 27.6.2024 12:28 Eldsupptök enn ekki skýr Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vinnur að rannsókn brunans sem kom upp á jarðhæð Turnsins á Höfðatorgi í gær. Innlent 27.6.2024 12:07 Vilhjálmur kallar eftir tafarlausri vaxtalækkun Formaður Starfsgreinasambandsins segir efnahagslífið á leið í miklar ógöngur verði vextir ekki lækkaðir mjög hratt. Í miklum húsnæðisskorti væru nýbyggingar hægt og bítandi að stöðvast vegna þess hvað vextir væru háir miðað við verðbólgu. Viðskiptabankarnir gætu gengið á undan með góðu fordæmi og lækkað sína vexti strax. Innlent 27.6.2024 11:43 Krafa um hraða vaxtalækkun og Tækniskólinn rís í Hafnarfirði Í hádegisfréttum fjöllum við um efnahagsástandið í landinu en verðbólgan er komin undir sex prósent í fyrsta skipti í langan tíma. Erlent 27.6.2024 11:38 Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum Fyrstu kappræður forsetaefnanna tveggja, Joe Biden, Bandaríkjaforseta fyrir Demókrataflokkinn, og Donald Trump fyrrverandi forseta fyrir Repúblikanaflokkinn, í fjögur ár fara fram í kvöld á sjónvarpsstöðinni CNN. Kappræðurnar gætu skipt sköpum fyrir baráttu frambjóðendanna tveggja og ljóst er að mikið er í húfi. Erlent 27.6.2024 11:11 Semja um 27 milljarða króna Tækniskóla í Hafnarfirði Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029. Heildarkostnaður er áætlaður 27 milljarðar króna. Innlent 27.6.2024 10:58 Segir íslenskuna dauðadæmda Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson segir íslenska tungu dauðadæmda. Útlensk áhrif sótt í pólitíska rétthugsun séu að valda því að þjóðin öll verði sýkt af hvorugkynssýki. Innlent 27.6.2024 10:44 Guðrún boðar lokuð búsetuúrræði strax í haust Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra gefur ekki þumlung eftir í útlendingamálunum en hún boðaðar breytingar: Fingrafaraskannar á landamærum, lokuð búsetuúrræði og að umsóknum um hæli á Íslandi verði komið niður í tvö til þrjú hundruð. Innlent 27.6.2024 10:25 Eldur kviknaði í ráðuneyti Eldur kviknaði í húsakynnum skattamálaráðuneytis Danmerkur í miðborg Kaupmannahafnar í morgun. Stórir reykjarstólpar stigu upp úr byggingunni við síkið í Kristjánshöfn. Erlent 27.6.2024 10:04 Lægð á leið til landsins en sól á Suðurlandi í dag Vestur af Skotlandi er lægð á leið norður og skilin frá henni eru að nálgast Austfirði með norðlægri átt og rigningu. Er líður á daginn verður norðanátt á öllu landinu, yfirleitt kaldi eða stinningskaldi. Veður 27.6.2024 08:43 Íslenskir jöklar minnka um fjörutíu ferkílómetra á ári Heildarflatarmál íslenskra jökla minnkar um það bil um 40 ferkílómetra á ári, eða sem nemur einu Mývatni á ári. Frá aldamótum hefur flatarmál íslensku jöklanna minnkað um um það bil 850 ferkílómetra eða sem samsvarar næstum tíu Þingvallavötnum. Hop íslensku jöklanna er sagt skýrt merki um hlýnandi loftslag. Jöklafræðingar segja áríðandi að fylgjast vel með og minna á alvarlega stöðu. Innlent 27.6.2024 08:14 Rafmagnsbruni truflar útsendingar Stöðvar 2 Rafmagnsbruni kom upp í tækjarými Sýnar í nótt. Útsending liggur því niðri á Stöð 2 Sport 3, 4, og 5. Bilunin truflar ekki dagskrá eins og er og unnið er að viðgerð. Innlent 27.6.2024 08:01 Vill varúðarmerkingar á gjörunna matvöru Gjörunnin matvara ætti að lúta sömu reglum og tóbaksvörur og setja ætti greinileg varnaðarorð á umbúðir slíkra vara. Erlent 27.6.2024 07:24 Herforingi handtekinn eftir valdaránstilraun Lögreglan í Bólivíu handtók Juan José Zúñiga fyrrverandi yfirmann bólivíska hersins í gær eftir misheppnaða tilraun hans til valdaráns í landinu. Zúñiga var handtekinn aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hersveitir brutust inn í forsetahöllina og brynvörðum bílum var komið fyrir á Murillo torgi þar sem lykilstofnanir ríkisstjórnarinnar eru staðsettar. Erlent 27.6.2024 06:45 Fimm í fangageymslu í nótt Ekið var á gangandi vegfaranda í miðbænum í nótt og ekið í burtu. Ökumaðurinn var handtekinn síðar af lögreglu og vistaður í fangageymslu. Fjórir aðrir voru vistaðir í fangageymslu í nótt. Frá þessu er greint í dagbók lögreglunnar. Innlent 27.6.2024 06:13 Valdaránstilraunin virðist hafa mistekist Útlit er fyrir að herinn í Bólivíu hafi dregið til baka hersveitir sínar sem viðast hafa ætlað að fremja valdarán fyrr í kvöld. Erlent 26.6.2024 23:29 Ekki hægt að sitja bara á Bessastöðum og bíða Fráfarandi forseti lýðveldisins segir heimsóknir á leikskóla og hjúkrunarheimili mikilvægan hluta af verkefnum forseta, ekki síður en fundi með mikilsmetnum þjóðhöfðingjum. Innlent 26.6.2024 23:13 Öll stór verkútboð liggja í salti hjá Vegagerðinni Útboð stórra verka hafa verið stopp hjá Vegagerðinni frá því síðastliðið haust og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á þessu ári. Helsta skýringin er sögð sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því þurfi að fjármagna hana úr öðrum verkefnum. Innlent 26.6.2024 23:00 Ræðustóll og húsgögn á bak og burt Framkvæmdir standa nú yfir í þingsalnum á Alþingi. Borð, stólar og ponta eru á bak og burt og tómlegt er um að litast í salnum. Innlent 26.6.2024 22:50 Mygla og spilliefni hafi flækt framkvæmdirnar Fokdýrum framkvæmdum við niðurrif gamla frystihússins á Kirkjusandi fer senn að ljúka og stefnt á að hefja uppbyggingu yfir tvöhundruð íbúða á svæðinu í haust. Árum saman hefur húsið staðið tómt síðan rakaskemmdir komu í ljós. Innlent 26.6.2024 22:30 « ‹ 177 178 179 180 181 182 183 184 185 … 334 ›
Ferðaþjónustan þurfi að hætta þessu væli Framkvæmdastjóri Úrvals útsýnar segir ekki sjálfsagt að almenningur greiði undir markaðsherferðir fyrir Ísland sem ferðamannastað. Nú sé ekki rétti tíminn til að hrinda af stað markaðsherferð fyrir Ísland heldur komast að því hver ástæða samdráttarins sé. Innlent 27.6.2024 15:05
Fimm ár fyrir tilraun til manndráps á aðfangadag Ásgeir Þór Önnuson hlaut í dag fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps með skotárás á heimili í Hafnarfirði síðastliðið aðfangadagskvöld. Hann braust grímuklæddur inn á heimili í Hafnarfirði, og skaut sex skotum úr skammbyssu í átt að níu ára stúlku og föður hennar. Innlent 27.6.2024 14:52
Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Bráðum verður hægt að nota þýðingarvél Google til að þýða á og úr málum nágrannaþjóða okkar. Færeysku og grænlensku verður bætt við þýðingarvélina á næstunni ásamt 108 öðrum málum um allan heim, allt frá fámennum málsvæðum eins og Færeyjum og til fjölmennari mála eins og kantónsku. Erlent 27.6.2024 14:09
Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Joe Biden og Donald Trump mætast í fyrri kappræðum sínum fyrir forsetakosningarnar í nótt. Prófessor í stjórnmálafræði segir á brattann að sækja fyrir Biden, sem þurfi að sanna sig fyrir kjósendum í kappræðum kvöldsins. Erlent 27.6.2024 13:57
Íbúar Grafarvogs óánægðir með þéttingaráform Mikillar óánægju gætir meðal hóps íbúa í Grafarvogi um áform borgarinnar um uppbyggingu í hverfinu. Hópurinn óttast að græn svæði hverfi fyrir þéttri byggð og hefur stofnað undirskriftalista til að mótmæla byggingu á fjölbýlishúsi á lóð við Smárarima/Sóleyjarima. Innlent 27.6.2024 13:49
Heildarkostnaður við varnargarða nærri sjö milljarðar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur gefið ríkislögreglustjóra heimild til að hefja vinnu við hækkun og styrkingu varnargarða í nágrenni Grindavíkur. Heildarkostnaður við garðana er metinn á nærri sjö milljarða króna. Innlent 27.6.2024 13:37
Segja aðgerðir lögreglu úr hófi og vilja miskabætur Níu mótmælendur krefjast miskabóta frá ríkinu vegna þess sem þeir segja harkalegar og tilhæfulausar aðgerðir lögreglu 31. maí síðastliðinn. Innlent 27.6.2024 13:34
Gul viðvörun allan morgundaginn Veðurstofan hefur gefið út gula viðbörun fyrir Suðausturland og Austfirði. Viðvörunin tekur gildi á miðnætti og stendur til klukkan ellefu á föstudagskvöld. Veður 27.6.2024 13:31
Fastagestur á níræðisaldri káfaði á konu í sundi Karlmaður fæddur árið 1940 hefur verið sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni með því að káfa á konu í sundlaug á Vestfjörðum. Ákvörðun refsingar mannsins, sem er fastagestur í lauginni, var frestað og hún fellur niður haldi hann skilorð í tvö ár. Innlent 27.6.2024 13:30
Muni styrkja bæinn og starfsemi skólans gríðarlega Í dag var undirritað samkomulag um byggingu nýs Tækniskóla í Hafnarfirði. Með samkomulaginu er fjármagn til byggingar nýs skóla tryggt og hægt að fara í útboð á framkvæmdum og hönnun skólans. Innlent 27.6.2024 13:20
Sanna stefnir á þing Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, hyggst bjóða sig fram til þings fyrir hönd flokksins hljóti hún stuðning félaga sinna. Innlent 27.6.2024 12:28
Eldsupptök enn ekki skýr Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vinnur að rannsókn brunans sem kom upp á jarðhæð Turnsins á Höfðatorgi í gær. Innlent 27.6.2024 12:07
Vilhjálmur kallar eftir tafarlausri vaxtalækkun Formaður Starfsgreinasambandsins segir efnahagslífið á leið í miklar ógöngur verði vextir ekki lækkaðir mjög hratt. Í miklum húsnæðisskorti væru nýbyggingar hægt og bítandi að stöðvast vegna þess hvað vextir væru háir miðað við verðbólgu. Viðskiptabankarnir gætu gengið á undan með góðu fordæmi og lækkað sína vexti strax. Innlent 27.6.2024 11:43
Krafa um hraða vaxtalækkun og Tækniskólinn rís í Hafnarfirði Í hádegisfréttum fjöllum við um efnahagsástandið í landinu en verðbólgan er komin undir sex prósent í fyrsta skipti í langan tíma. Erlent 27.6.2024 11:38
Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum Fyrstu kappræður forsetaefnanna tveggja, Joe Biden, Bandaríkjaforseta fyrir Demókrataflokkinn, og Donald Trump fyrrverandi forseta fyrir Repúblikanaflokkinn, í fjögur ár fara fram í kvöld á sjónvarpsstöðinni CNN. Kappræðurnar gætu skipt sköpum fyrir baráttu frambjóðendanna tveggja og ljóst er að mikið er í húfi. Erlent 27.6.2024 11:11
Semja um 27 milljarða króna Tækniskóla í Hafnarfirði Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029. Heildarkostnaður er áætlaður 27 milljarðar króna. Innlent 27.6.2024 10:58
Segir íslenskuna dauðadæmda Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson segir íslenska tungu dauðadæmda. Útlensk áhrif sótt í pólitíska rétthugsun séu að valda því að þjóðin öll verði sýkt af hvorugkynssýki. Innlent 27.6.2024 10:44
Guðrún boðar lokuð búsetuúrræði strax í haust Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra gefur ekki þumlung eftir í útlendingamálunum en hún boðaðar breytingar: Fingrafaraskannar á landamærum, lokuð búsetuúrræði og að umsóknum um hæli á Íslandi verði komið niður í tvö til þrjú hundruð. Innlent 27.6.2024 10:25
Eldur kviknaði í ráðuneyti Eldur kviknaði í húsakynnum skattamálaráðuneytis Danmerkur í miðborg Kaupmannahafnar í morgun. Stórir reykjarstólpar stigu upp úr byggingunni við síkið í Kristjánshöfn. Erlent 27.6.2024 10:04
Lægð á leið til landsins en sól á Suðurlandi í dag Vestur af Skotlandi er lægð á leið norður og skilin frá henni eru að nálgast Austfirði með norðlægri átt og rigningu. Er líður á daginn verður norðanátt á öllu landinu, yfirleitt kaldi eða stinningskaldi. Veður 27.6.2024 08:43
Íslenskir jöklar minnka um fjörutíu ferkílómetra á ári Heildarflatarmál íslenskra jökla minnkar um það bil um 40 ferkílómetra á ári, eða sem nemur einu Mývatni á ári. Frá aldamótum hefur flatarmál íslensku jöklanna minnkað um um það bil 850 ferkílómetra eða sem samsvarar næstum tíu Þingvallavötnum. Hop íslensku jöklanna er sagt skýrt merki um hlýnandi loftslag. Jöklafræðingar segja áríðandi að fylgjast vel með og minna á alvarlega stöðu. Innlent 27.6.2024 08:14
Rafmagnsbruni truflar útsendingar Stöðvar 2 Rafmagnsbruni kom upp í tækjarými Sýnar í nótt. Útsending liggur því niðri á Stöð 2 Sport 3, 4, og 5. Bilunin truflar ekki dagskrá eins og er og unnið er að viðgerð. Innlent 27.6.2024 08:01
Vill varúðarmerkingar á gjörunna matvöru Gjörunnin matvara ætti að lúta sömu reglum og tóbaksvörur og setja ætti greinileg varnaðarorð á umbúðir slíkra vara. Erlent 27.6.2024 07:24
Herforingi handtekinn eftir valdaránstilraun Lögreglan í Bólivíu handtók Juan José Zúñiga fyrrverandi yfirmann bólivíska hersins í gær eftir misheppnaða tilraun hans til valdaráns í landinu. Zúñiga var handtekinn aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hersveitir brutust inn í forsetahöllina og brynvörðum bílum var komið fyrir á Murillo torgi þar sem lykilstofnanir ríkisstjórnarinnar eru staðsettar. Erlent 27.6.2024 06:45
Fimm í fangageymslu í nótt Ekið var á gangandi vegfaranda í miðbænum í nótt og ekið í burtu. Ökumaðurinn var handtekinn síðar af lögreglu og vistaður í fangageymslu. Fjórir aðrir voru vistaðir í fangageymslu í nótt. Frá þessu er greint í dagbók lögreglunnar. Innlent 27.6.2024 06:13
Valdaránstilraunin virðist hafa mistekist Útlit er fyrir að herinn í Bólivíu hafi dregið til baka hersveitir sínar sem viðast hafa ætlað að fremja valdarán fyrr í kvöld. Erlent 26.6.2024 23:29
Ekki hægt að sitja bara á Bessastöðum og bíða Fráfarandi forseti lýðveldisins segir heimsóknir á leikskóla og hjúkrunarheimili mikilvægan hluta af verkefnum forseta, ekki síður en fundi með mikilsmetnum þjóðhöfðingjum. Innlent 26.6.2024 23:13
Öll stór verkútboð liggja í salti hjá Vegagerðinni Útboð stórra verka hafa verið stopp hjá Vegagerðinni frá því síðastliðið haust og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á þessu ári. Helsta skýringin er sögð sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því þurfi að fjármagna hana úr öðrum verkefnum. Innlent 26.6.2024 23:00
Ræðustóll og húsgögn á bak og burt Framkvæmdir standa nú yfir í þingsalnum á Alþingi. Borð, stólar og ponta eru á bak og burt og tómlegt er um að litast í salnum. Innlent 26.6.2024 22:50
Mygla og spilliefni hafi flækt framkvæmdirnar Fokdýrum framkvæmdum við niðurrif gamla frystihússins á Kirkjusandi fer senn að ljúka og stefnt á að hefja uppbyggingu yfir tvöhundruð íbúða á svæðinu í haust. Árum saman hefur húsið staðið tómt síðan rakaskemmdir komu í ljós. Innlent 26.6.2024 22:30