Fréttir Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Fjögurra manna fjölskylda komst af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í Salahverfi í nótt. Innlent 1.11.2024 06:30 Greiða bætur vegna tækja sem eyðilögðust eða biluðu í rafmagnsleysinu RARIK mun greiða fólki bætur vegna tækja sem eyðilögðust í víðtæku rafmagnsleysi þann 2. október. Frá þessu er greint í tilkynningu frá RARIK og jafnframt að þau muni, ásamt TM, taka yfir öll samskipti og umsýslu vegna tjónatilkynninga. Innlent 1.11.2024 06:17 Um átta þúsund norðurkóreskir hermenn á landamærunum Um átta þúsund norðurkóreskir hermenn hafa verið sendir til landamæra Rússlands og Úkraínu. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna varar við því að yfirvöld í Moskvu stefni að því að koma þeim á víglínuna á næstu dögum. Erlent 31.10.2024 22:56 Horfði á lík fljóta fram hjá Minnst hundrað og fjörutíu fórust í hamfaraflóðunum sem riðu yfir í Valencia á Spáni. Líklegt er að sú tala haldi áfram að hækka. Tuga er enn saknað og hafa viðbragðsaðilar leitað í allan dag. Erlent 31.10.2024 22:01 Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka mál níu mótmælenda á hendur ríkisins fyrir þann 8. nóvember næstkomandi. Mótmælendur hafa farið fram á skaðabætur vegna framgöngu lögreglu á mótmælum við Skuggasund þann 31. maí síðastliðinn. Nefnd um eftirlit með lögreglu taldi engar vísbendingar um ámælisverða háttsemi lögreglumanna. Innlent 31.10.2024 21:58 Flokkshollusta á undanhaldi Ráðgjafi segir flakk þingmanna á milli flokka meðal annars skýrast af því að lítill sem enginn munur er á milli stefnumála sumra flokka og flokkshollusta að einhverju leyti á undanhaldi. Innlent 31.10.2024 21:02 Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Þrír voru fluttir á slysadeild með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir árekstur þriggja bíla við Húnaver. Útkallið barst laust eftir klukkan fimm síðdegis og kom þyrlan á vettvang um hálfsjö. Innlent 31.10.2024 21:02 Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir Formaður Læknafélags Íslands segir að það virði sem læknar skili út í samfélagið, skili sér ekki til baka í launaumslaginu. Launin geti verið há, en þá liggi mjög mikið vinnuálag að baki. Innlent 31.10.2024 20:37 Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar hefur beðið Dag B. Eggertsson afsökunar á að hafa kallað hann aukaleikara sem ekki væri ráðherraefni flokksins að loknum kosningum. Innlent 31.10.2024 19:52 Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Landsréttur féllst í dag á að Steinþór Einarsson, sem héraðsdómur hafði dæmt í átta ára fangelsi fyrir manndráp, hefði verið heimilt að beita neyðarvörn þegar hann afstýrði stórhættulegri áras af hálfu hins látna. Þótt árás Steinþórs hafi verið „augsýnilega hættulegri“ var talið að Steinþór hafi verið „svo skelfdur eða forviða“ að neyðarvörnin var talin heimil. Innlent 31.10.2024 19:39 Tæpur helmingur grunnskóla hefur bannað síma Grunnskólinn í Þorlákshöfn er sá nýjasti í röð skóla til að banna símanotkun barna alfarið. Skólastjórinn segir að símanotkun á skólatíma sé að ræna börn mikilvægum félagslegum þroska. Innlent 31.10.2024 19:28 Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Félagar í Læknafélagi Ísalands hafa að boða til verkfalls náist ekki samkomulag í kjaradeilu við ríkið. Verkfallsaðgerðir hefjast að óbreyttu 18. nóvember og verða aðra hverja viku fram að áramótum. Í janúar verða verkföll í hverri viku. Formaður Læknafélagsins fer yfir stöðuna í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 31.10.2024 18:19 Máttu ekki selja eldaðan mat Veitingastað í miðborg Reykjavíkur var lokað af lögreglu í vikunni þegar í ljós kom að eigendur staðarins höfðu ekki tilskilin leyfi til þess að selja eldaðan mat. Innlent 31.10.2024 18:18 Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurður Ragnar Kristinsson, sem hefur verið sakfelldur fyrir stórfelld fíkniefna- og skattalagabrot, er á meðal handtekinna í umfangsmesta kristal-amfetamínmáli sem lögregla hefur haft afskipti af. Innlent 31.10.2024 18:01 Sigurjón leiðir í Norðausturkjördæmi Sigurjón Þórðarson líffræðingur mun leiða lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Hann starfar sem framkvæmdastjóri hjá heilbrigðiseftirlitinu og sat á Alþingi árin 2003-2007. Sigurjón hefur setið í sveitarstjórn og unnið fjölbreytt störf, þar á meðal á sjó. Innlent 31.10.2024 17:16 „Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið Hættulegir fangar sem losna úr fangelsi á næstunni eru eins og tifandi tímasprengjur vegna ágreinings um hver eigi að veita þeim stuðning, að sögn geðhjúkrunarfræðings. Maður sem varað var við að væri líklegur til að brjóta af sér aftur er sagður grunaður um líkamsárás og nauðgun skömmu eftir að hann lauk afplánun. Innlent 31.10.2024 17:01 Læknar á leið í verkfall Félagsmenn í Læknafélagi Íslands hafa samþykkt að boða til verkfalls náist ekki samkomulag í kjaradeilu við ríkið. Atkvæðagreiðslu lauk klukkan fjögur og samþykktu 93 prósent verkfallsaðgerðir. Innlent 31.10.2024 16:42 Tala látinna á Spáni hækkar Hundrað og fjörutíu hið minnsta eru látnir vegna hamfaraflóðanna í austurhluta Spánar. Spænska dagblaðið El País hefur eftir yfirvöldum að flestir hinna látnu hafi fundist í Valencia, eða fleiri en hundrað, en dauðsföll hafa líka orðið í Kastilíu La mancha og Andalúsíu. Óttast er að tala látinna haldi áfram að hækka en fjölmargra er enn saknað. Erlent 31.10.2024 15:55 Guðmundur Ingi leiðir og skrifstofustjórinn í öðru Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokksformaður Flokks fólksins, mun leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Jónína Björk Óskarsdóttir, skrifstofustjóri Flokks fólksins, skipar 2. sæti listans. Áður starfaði hún sem forstöðumaður félagsstarfs aldraðra í Hafnarfirði. Jónína situr í stjórn Byggðastofnunar. Innlent 31.10.2024 15:52 Rússar og Íranar auka samstarf í varnarmálum Ráðamenn í Rússlandi og Íran ætla að skrifa undir „umfangsmikinn“ sáttmála sem mun meðal annars snúast um aukið samstarf á sviði varnarmála. Skrifa á undir sáttmálann í náinni framtíð. Erlent 31.10.2024 15:47 Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Landsréttur hefur staðfest sjö ára fangelsisdóm Theódórs Páls Theódórssonar, þrítugs matreiðslumanns, fyrir kynferðisbrot gegn unglingsstelpum, vændiskaup og vörslu barnaníðsefnis. Innlent 31.10.2024 15:26 Viðsnúningur í manndrápsmáli í Landsrétti Landsréttur hefur sýknað Steinþór Einarssonar, karlmann á fertugsaldri, af ákæru fyrir að verða Tómasi Waagfjörð, sem var 47 ára, að bana í Ólafsfirði í október árið 2022. Innlent 31.10.2024 15:17 Formaður Lýðræðisflokksins sagður misbeita samsæriskenningu Stjórnmálafræðiprófessor segir það ranga notkun á hugtökum að blanda mögulegri spillingu við veitingu embætta saman við samsæriskenningu um „djúpríki“ sem stýri landinu á bak við tjöldin. Formaður Lýðræðisflokksins sagði djúpríkið staðreynd á Íslandi. Innlent 31.10.2024 15:01 „Pabbi minn hefði örugglega orðið reiður“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segist vera búin að biðja Dag B. Eggertsson afsökunar á einkaskilaboðum til íbúa í Grafarvogi sem komust í dreifingu. Dagur var kallaður aukaleikari í skilaboðunum og ekki ráðherraefni. Innlent 31.10.2024 14:50 Fékk slá í höfuðið og málið fer fyrir Hæstarétt Karlmaður sem hlaut líkamstjón þegar hliðslá á lóð Heklu hf. féll á höfuðið á honum fær áheyrn Hæstaréttar eftir að Landsréttur taldi hann ekki eiga rétt á skaðabótum. Innlent 31.10.2024 14:35 Borgarfulltrúi skipar annað sætið í kjördæmi formannsins Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mun leiða lista flokksins í Reykjavík suður í komandi alþingiskosningum. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir sálfræðingur skipar 2. sæti listans, en hún hefur setið sem borgarfulltrúi flokksins frá árinu 2018 og var áður meðal annars formaður Barnaheilla. Innlent 31.10.2024 14:30 Stórsigur beggja innan skekkjumarka Óáreiðanlegar kannanir og nafnlausir aðilar á veðmálamörkuðum eru sagðir hafa byggt upp væntingar Repúblikana um sigur í forsetakosningunum. Fari svo að Kamala Harris vinni, gæti Donald Trump, notað þessar væntingar kjósenda sinna til að grafa undan trúverðugleika niðurstaðanna. Erlent 31.10.2024 14:15 Risastór ákvörðun íbúa í Þorlákshöfn handan við hornið Íbúar í Ölfusi geta greitt atkvæði með eða á móti skipulagsbreytingum við höfnina í Þorlákshöfn vegna fyrirhugaðrar mölunarverksmiðju og hafnar. Íbúakosning hefst mánudaginn 25. nóvember. Innlent 31.10.2024 13:39 Hvetja Ísland til að draga enn frekar úr losun Eftirlitsstofun EFTA, ESA, hefur hvatt Ísland til að huga að frekari aðgerðum varðandi það að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með tilliti til þess hversu naumt er að landið haldi sig innan núverandi markmiða. Innlent 31.10.2024 13:32 Stórt skref stigið í átt að fullgildri aðild Færeyja, Álandseyja og Grænlands Á lokadegi Norðurlandaráðsþingsins samþykkti það þingsályktunartillögu um breytingu á Helsingfors-sáttmálanum. Þingið vill að ríkisstjórnir á Norðurlöndunum finni út úr því hvernig þær geti boðið Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum fulla aðild að Norðurlandaráði. Innlent 31.10.2024 13:20 « ‹ 15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 334 ›
Fjölskyldu sakaði ekki þegar íbúð hennar brann Fjögurra manna fjölskylda komst af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í Salahverfi í nótt. Innlent 1.11.2024 06:30
Greiða bætur vegna tækja sem eyðilögðust eða biluðu í rafmagnsleysinu RARIK mun greiða fólki bætur vegna tækja sem eyðilögðust í víðtæku rafmagnsleysi þann 2. október. Frá þessu er greint í tilkynningu frá RARIK og jafnframt að þau muni, ásamt TM, taka yfir öll samskipti og umsýslu vegna tjónatilkynninga. Innlent 1.11.2024 06:17
Um átta þúsund norðurkóreskir hermenn á landamærunum Um átta þúsund norðurkóreskir hermenn hafa verið sendir til landamæra Rússlands og Úkraínu. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna varar við því að yfirvöld í Moskvu stefni að því að koma þeim á víglínuna á næstu dögum. Erlent 31.10.2024 22:56
Horfði á lík fljóta fram hjá Minnst hundrað og fjörutíu fórust í hamfaraflóðunum sem riðu yfir í Valencia á Spáni. Líklegt er að sú tala haldi áfram að hækka. Tuga er enn saknað og hafa viðbragðsaðilar leitað í allan dag. Erlent 31.10.2024 22:01
Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka mál níu mótmælenda á hendur ríkisins fyrir þann 8. nóvember næstkomandi. Mótmælendur hafa farið fram á skaðabætur vegna framgöngu lögreglu á mótmælum við Skuggasund þann 31. maí síðastliðinn. Nefnd um eftirlit með lögreglu taldi engar vísbendingar um ámælisverða háttsemi lögreglumanna. Innlent 31.10.2024 21:58
Flokkshollusta á undanhaldi Ráðgjafi segir flakk þingmanna á milli flokka meðal annars skýrast af því að lítill sem enginn munur er á milli stefnumála sumra flokka og flokkshollusta að einhverju leyti á undanhaldi. Innlent 31.10.2024 21:02
Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur við Húnaver Þrír voru fluttir á slysadeild með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir árekstur þriggja bíla við Húnaver. Útkallið barst laust eftir klukkan fimm síðdegis og kom þyrlan á vettvang um hálfsjö. Innlent 31.10.2024 21:02
Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir Formaður Læknafélags Íslands segir að það virði sem læknar skili út í samfélagið, skili sér ekki til baka í launaumslaginu. Launin geti verið há, en þá liggi mjög mikið vinnuálag að baki. Innlent 31.10.2024 20:37
Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar hefur beðið Dag B. Eggertsson afsökunar á að hafa kallað hann aukaleikara sem ekki væri ráðherraefni flokksins að loknum kosningum. Innlent 31.10.2024 19:52
Steinþór „svo skelfdur eða forviða“ að hann gat ekki gætt sín Landsréttur féllst í dag á að Steinþór Einarsson, sem héraðsdómur hafði dæmt í átta ára fangelsi fyrir manndráp, hefði verið heimilt að beita neyðarvörn þegar hann afstýrði stórhættulegri áras af hálfu hins látna. Þótt árás Steinþórs hafi verið „augsýnilega hættulegri“ var talið að Steinþór hafi verið „svo skelfdur eða forviða“ að neyðarvörnin var talin heimil. Innlent 31.10.2024 19:39
Tæpur helmingur grunnskóla hefur bannað síma Grunnskólinn í Þorlákshöfn er sá nýjasti í röð skóla til að banna símanotkun barna alfarið. Skólastjórinn segir að símanotkun á skólatíma sé að ræna börn mikilvægum félagslegum þroska. Innlent 31.10.2024 19:28
Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Félagar í Læknafélagi Ísalands hafa að boða til verkfalls náist ekki samkomulag í kjaradeilu við ríkið. Verkfallsaðgerðir hefjast að óbreyttu 18. nóvember og verða aðra hverja viku fram að áramótum. Í janúar verða verkföll í hverri viku. Formaður Læknafélagsins fer yfir stöðuna í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 31.10.2024 18:19
Máttu ekki selja eldaðan mat Veitingastað í miðborg Reykjavíkur var lokað af lögreglu í vikunni þegar í ljós kom að eigendur staðarins höfðu ekki tilskilin leyfi til þess að selja eldaðan mat. Innlent 31.10.2024 18:18
Sigurður handtekinn í stærsta kristal-amfetamínmáli sögunnar Sigurður Ragnar Kristinsson, sem hefur verið sakfelldur fyrir stórfelld fíkniefna- og skattalagabrot, er á meðal handtekinna í umfangsmesta kristal-amfetamínmáli sem lögregla hefur haft afskipti af. Innlent 31.10.2024 18:01
Sigurjón leiðir í Norðausturkjördæmi Sigurjón Þórðarson líffræðingur mun leiða lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Hann starfar sem framkvæmdastjóri hjá heilbrigðiseftirlitinu og sat á Alþingi árin 2003-2007. Sigurjón hefur setið í sveitarstjórn og unnið fjölbreytt störf, þar á meðal á sjó. Innlent 31.10.2024 17:16
„Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið Hættulegir fangar sem losna úr fangelsi á næstunni eru eins og tifandi tímasprengjur vegna ágreinings um hver eigi að veita þeim stuðning, að sögn geðhjúkrunarfræðings. Maður sem varað var við að væri líklegur til að brjóta af sér aftur er sagður grunaður um líkamsárás og nauðgun skömmu eftir að hann lauk afplánun. Innlent 31.10.2024 17:01
Læknar á leið í verkfall Félagsmenn í Læknafélagi Íslands hafa samþykkt að boða til verkfalls náist ekki samkomulag í kjaradeilu við ríkið. Atkvæðagreiðslu lauk klukkan fjögur og samþykktu 93 prósent verkfallsaðgerðir. Innlent 31.10.2024 16:42
Tala látinna á Spáni hækkar Hundrað og fjörutíu hið minnsta eru látnir vegna hamfaraflóðanna í austurhluta Spánar. Spænska dagblaðið El País hefur eftir yfirvöldum að flestir hinna látnu hafi fundist í Valencia, eða fleiri en hundrað, en dauðsföll hafa líka orðið í Kastilíu La mancha og Andalúsíu. Óttast er að tala látinna haldi áfram að hækka en fjölmargra er enn saknað. Erlent 31.10.2024 15:55
Guðmundur Ingi leiðir og skrifstofustjórinn í öðru Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokksformaður Flokks fólksins, mun leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Jónína Björk Óskarsdóttir, skrifstofustjóri Flokks fólksins, skipar 2. sæti listans. Áður starfaði hún sem forstöðumaður félagsstarfs aldraðra í Hafnarfirði. Jónína situr í stjórn Byggðastofnunar. Innlent 31.10.2024 15:52
Rússar og Íranar auka samstarf í varnarmálum Ráðamenn í Rússlandi og Íran ætla að skrifa undir „umfangsmikinn“ sáttmála sem mun meðal annars snúast um aukið samstarf á sviði varnarmála. Skrifa á undir sáttmálann í náinni framtíð. Erlent 31.10.2024 15:47
Dómur fyrir að nauðga fermingarstúlkum staðfestur Landsréttur hefur staðfest sjö ára fangelsisdóm Theódórs Páls Theódórssonar, þrítugs matreiðslumanns, fyrir kynferðisbrot gegn unglingsstelpum, vændiskaup og vörslu barnaníðsefnis. Innlent 31.10.2024 15:26
Viðsnúningur í manndrápsmáli í Landsrétti Landsréttur hefur sýknað Steinþór Einarssonar, karlmann á fertugsaldri, af ákæru fyrir að verða Tómasi Waagfjörð, sem var 47 ára, að bana í Ólafsfirði í október árið 2022. Innlent 31.10.2024 15:17
Formaður Lýðræðisflokksins sagður misbeita samsæriskenningu Stjórnmálafræðiprófessor segir það ranga notkun á hugtökum að blanda mögulegri spillingu við veitingu embætta saman við samsæriskenningu um „djúpríki“ sem stýri landinu á bak við tjöldin. Formaður Lýðræðisflokksins sagði djúpríkið staðreynd á Íslandi. Innlent 31.10.2024 15:01
„Pabbi minn hefði örugglega orðið reiður“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segist vera búin að biðja Dag B. Eggertsson afsökunar á einkaskilaboðum til íbúa í Grafarvogi sem komust í dreifingu. Dagur var kallaður aukaleikari í skilaboðunum og ekki ráðherraefni. Innlent 31.10.2024 14:50
Fékk slá í höfuðið og málið fer fyrir Hæstarétt Karlmaður sem hlaut líkamstjón þegar hliðslá á lóð Heklu hf. féll á höfuðið á honum fær áheyrn Hæstaréttar eftir að Landsréttur taldi hann ekki eiga rétt á skaðabótum. Innlent 31.10.2024 14:35
Borgarfulltrúi skipar annað sætið í kjördæmi formannsins Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mun leiða lista flokksins í Reykjavík suður í komandi alþingiskosningum. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir sálfræðingur skipar 2. sæti listans, en hún hefur setið sem borgarfulltrúi flokksins frá árinu 2018 og var áður meðal annars formaður Barnaheilla. Innlent 31.10.2024 14:30
Stórsigur beggja innan skekkjumarka Óáreiðanlegar kannanir og nafnlausir aðilar á veðmálamörkuðum eru sagðir hafa byggt upp væntingar Repúblikana um sigur í forsetakosningunum. Fari svo að Kamala Harris vinni, gæti Donald Trump, notað þessar væntingar kjósenda sinna til að grafa undan trúverðugleika niðurstaðanna. Erlent 31.10.2024 14:15
Risastór ákvörðun íbúa í Þorlákshöfn handan við hornið Íbúar í Ölfusi geta greitt atkvæði með eða á móti skipulagsbreytingum við höfnina í Þorlákshöfn vegna fyrirhugaðrar mölunarverksmiðju og hafnar. Íbúakosning hefst mánudaginn 25. nóvember. Innlent 31.10.2024 13:39
Hvetja Ísland til að draga enn frekar úr losun Eftirlitsstofun EFTA, ESA, hefur hvatt Ísland til að huga að frekari aðgerðum varðandi það að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með tilliti til þess hversu naumt er að landið haldi sig innan núverandi markmiða. Innlent 31.10.2024 13:32
Stórt skref stigið í átt að fullgildri aðild Færeyja, Álandseyja og Grænlands Á lokadegi Norðurlandaráðsþingsins samþykkti það þingsályktunartillögu um breytingu á Helsingfors-sáttmálanum. Þingið vill að ríkisstjórnir á Norðurlöndunum finni út úr því hvernig þær geti boðið Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum fulla aðild að Norðurlandaráði. Innlent 31.10.2024 13:20