Fréttir Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Eldur sem kviknaði í bílstjórahúsi flutningabíls um klukkan sjö í kvöld dreifði sér í kassa bílsins, en í honum voru fjörutíu tonn af þurru fiskafóðri. Að sögn slökkviliðsmanns stórskemmdist bíllinn sem og vagninn. Innlent 30.7.2024 22:30 Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Þingmenn og fyrrverandi hæstaréttardómari eru á meðal þeirra sem hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara, um að leggja til við ráðherra að hann taki mál hans til skoðunar, og vísi honum tímabundið frá störfum. Innlent 30.7.2024 22:09 Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Hópur öfgahægrimanna safnaðist saman fyrir utan mosku í bænum Southport í Norður-Englandi í kvöld, þar sem þrjár stúlkur voru stungnar til bana á dansnámskeiði í gær. Mótmælendur köstuðu flöskum og grjóti í lögreglumenn og kveiktu í lögreglubíl. Erlent 30.7.2024 21:30 Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Slökkviliðinu í Árnessýslu barst útkall á áttunda tímanum í kvöld eftir að eldur hafði kviknað í mannskapshúsi flutningabíls á Þrengslavegi. Innlent 30.7.2024 20:01 Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Vegagerðin segir auglýsingaskilti vera til þess gerð að draga athygli ökumanna frá akstrinum. Bjartir skjáir sem skipta á milli auglýsinga ótt og títt við gatnamót þar sem mikið er um að vera eru sérstaklega varhugaverð. Innlent 30.7.2024 19:53 „Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Prófessor í eldfjallafræði segir mestar líkur á að næsta eldgos á Reykjanesskaga verði á sama stað og síðustu gos á svæðinu. Ólíklega muni gjósa inni í Grindavík og því sé skammur viðbragðstími ekki endilega áhyggjuefni. Innlent 30.7.2024 19:32 Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Ísraelar gerðu loftárásir á úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanons, þar sem ísraelski herinn telur háttsetta meðlimi Hezbollah halda til. Loftárásirnar eru hefndaraðgerðir fyrir árásir Hezbollah á byggð Ísraela á Golan-hæðum þar sem 12 börn létu lífið. Erlent 30.7.2024 19:14 Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins Ein elsta og minnsta rakarastofa landsins er á Akranesi en sjálft húsið verður hundrað ára á þessu ári. Þar starfa samrýmdir feðgar með samtals níutíu ára starfsreynslu. Þeir eru hvergi nærri hættir að klippa og raka en sá yngri ætlar að minnsta kosti að starfa áfram í húsinu í þrjátíu ár í við viðbót. Innlent 30.7.2024 19:00 Hjólhýsið fuðraði upp Hjólhýsi í Löngumýri í Skagafirði brann til kaldra kola í dag. Slökkviliðsstjóri segir milid að ekki hafi farið verr enda enginn í hýsinu þegar eldur kviknaði og engin önnur tjöld eða hjólhýsi í hættu. Innlent 30.7.2024 18:37 „Ekki við hæfi“ að dómsmálaráðherra tjái sig um mál Helga Dómsmálaráðherra telur ekki við hæfi að hún tjái sig um erindi ríkissaksóknara varðandi tímabundna lausn Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara meðan á málsmeðferð stendur. Innlent 30.7.2024 18:27 Umdeild ummæli, líkur á gosi og truflandi skilti Vararíkissaksóknari telur sig ekki hafa farið yfir strikið þegar hann ræddi um dóm yfir brotamanni sem hafði átt í hótunum við hann. Ríkissaksóknari hefur vísað máli hans til ráðherra. Hann gefur lítið fyrir áminningu sem hann fékk fyrir önnur ummæli. Innlent 30.7.2024 18:11 „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Eigandi verslunarinnar King Kong segir svo virðast sem innbrot séu fastur liður í því að reka söluturn á Íslandi í dag. Brotist var inn í King Kong við Auðbrekku í Kópavogi í nótt, rúmum sjö mánuðum eftir að brotist var inn í samnefnda verslun við Höfðabakka. Innlent 30.7.2024 18:00 Vonar að ráðherra verði ekki við ósk Sigríðar Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari telur ekki að Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari sé til þess bær að veita honum áminningu í starfi. Það vald liggi hjá dómsmálaráðherra. Hann segist vona að dómsmálaráðherra taki ekki til greina ósk Sigríðar um að taka mál hans til skoðunar, og vísa honum tímabundið frá störfum. Innlent 30.7.2024 17:53 Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Þyrla brotlenti á húsi nálægt írska bænum Killucan síðdegis í dag með þeim afleiðingum að nokkrir létu lífið. Þetta staðfesta írskir viðbragðsaðilar án þess að gefa upp nánari upplýsingar um fjölda látinna. Erlent 30.7.2024 17:38 Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Starfsmaður hjúkrunarheimilis segir síðbúinn kvöldfréttatíma og endalausa íþróttadagskrá RÚV í sumar hafa valdið nokkrum usla á heimilinu. Deilt sé um það hvort horfa eigi á íþróttirnar eða eitthvað annað, og margir séu ósáttir við fréttaleysið. Dóttir eldri konu með eigið sjónvarp segir hana ekki treysta sér í slaginn við fjarstýringuna og hún sé því tilneydd til að glápa á íþróttir. Innlent 30.7.2024 17:08 Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Vikivaki verður sunginn í Dómkirkjunni, Vetrarsól í Alþingishúsinu og almenningur getur fylgst með af risaskjá á Austurvelli. Dagskráin fyrir innsetningarathöfn Höllu Tómasdóttur liggur fyrir. Innlent 30.7.2024 16:54 Skammast sín vegna skotárásarinnar Ronald Rowe, settur forstjóri bandarísku öryggisþjónustunnar Secret service, segist skammast sín vegna skotárasar sem beindist að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og forsetaframbjóðanda. Erlent 30.7.2024 16:49 Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Stelpurnar þrjár sem létust í hnífaárás í Southport á Englandi í gær hétu Bebe King, Elsie Dot Stancombe og Alice Dasilva Aguiar. Þær voru sex, sjö og níu ára gamlar. Erlent 30.7.2024 15:52 Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Svo virðist sem starfsmenn Vöku séu of duglegir í vinnunni og fari fram úr sér. Sú er í það minnsta skoðun Steinars Agnarssonar sem er smiður en hann hefur staðið í stappi við Vöku vegna húsbíls síns og svo annarra bíla sem hann segir hafa verið dregnir í burtu áður en tilskilinn frestur rann út. Reynir Guðmundsson framkvæmdastjóri Vöku vísar þessu á bug. Innlent 30.7.2024 15:42 Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, baðst undan að bera vitni í réttarrannsókn á meintri spillingu eiginkonu hans í dag. Hann sakar dómarann sem rannsakar málið um embættisafglöp. Erlent 30.7.2024 14:53 Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Bíll sem var staðsettur á bílastæði við Krossneslaug við Norðurfjörð á Ströndum rann af bílastæðinu og fram af kletti um hádegisleytið síðastliðinn laugardag. Talsvert sér á bílnum en engin slys urðu á fólki. Innlent 30.7.2024 14:31 Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Landhelgisgæslunni barst boð frá skútu með tólf manns um borð sem var stödd um fimm kílómetrum norður af Straumnesi á Hornströndum. Gír hafði brotnað og björgunarbáturinn Kobbi Láka frá Bolungarvík tók skútuna í tog. Innlent 30.7.2024 14:10 Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Til uppþota kom á herstöð þar sem Ísraelsher heldur palestínskum föngum eftir að níu ísraelskir hermenn voru handteknir og sakaðir um að misþyrma föngum kynferðislega. Stuðningsmenn þeirra brutust inn í herstöðina og kröfðust þess að þeim yrði sleppt. Erlent 30.7.2024 13:47 Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir áminningu sem Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hlaut árið 2022 hafa snúið að nokkrum tilvikum um tjáningu hans, sem nái aftur til ársins 2017. Sigríður telur sér ekki heimilt að upplýsa nánar um þessi tilvik. Hún segir kæru á hendur Helga frá hjálparsamtökum hælisleitenda ekki tilefni þess að hún vísar máli Helga nú til ráðherra. Innlent 30.7.2024 13:45 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Ummæli Auðar Bjargar Jónsdóttur lögmanns, sem gætti hagsmuna föður drengs í forsjármáli, í garð móður drengsins þóttu aðfinnsluverð að mati úrskurðarnefndar lögmanna. Nefndin segir að hún hafi gengið of langt með gífuryrðum um andlega heilsu móðurinnar. Innlent 30.7.2024 13:19 Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Landspítalinn braut jafnréttislög þegar ung nýútskrifuð kona var ráðin í starf lyfjafræðings í stað karlmanns um fertugt með áratugsreynslu í faginu. Konan hafði verið með starfsleyfi í sjö mánuði þegar hún var ráðin. Spítalinn mismunaði karlmanninum bæði á grundvelli kyns og aldurs. Innlent 30.7.2024 13:08 Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gefur lítið fyrir yfirlýsingar formanns VR að atvinnulífið hafi brugðist í baráttunni við verðbólgudrauginn. Innlent 30.7.2024 13:06 Þriðja stelpan látin í Southport Þrjár stelpur á aldrinum sex til níu ára eru látnar og fimm börn til viðbótar eru þungt haldin eftir hnífaárás á dansnámskeiði í Southport í Englandi í gær. Erlent 30.7.2024 12:15 Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Vararíkissaksóknari furðar sig á ósk yfirmanns síns um að dómsmálaráðherra taki mál hans til skoðunar, vegna ummæla sem hann lét falla í fjölmiðlum. Hann viðurkennir að hann hefði getað orðað hlutina öðruvísi, en telur ummælin ekki hafa verið yfir strikið. Innlent 30.7.2024 12:07 Gæti gosið á næstu dögum Spenna heldur áfram að aukast á Reykjanesi en nú hafa rúmlega 16 milljón rúmmetrar af kviku safnast undir Svartsengi. Veðurstofa Íslands varar við því að kvikuhlaup án eldgoss nægi til að skapa hættu og valda tjóni í Grindavík en því fylgi jarðskjálftar og sprungur. Innlent 30.7.2024 11:58 « ‹ 138 139 140 141 142 143 144 145 146 … 334 ›
Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Eldur sem kviknaði í bílstjórahúsi flutningabíls um klukkan sjö í kvöld dreifði sér í kassa bílsins, en í honum voru fjörutíu tonn af þurru fiskafóðri. Að sögn slökkviliðsmanns stórskemmdist bíllinn sem og vagninn. Innlent 30.7.2024 22:30
Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Þingmenn og fyrrverandi hæstaréttardómari eru á meðal þeirra sem hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara, um að leggja til við ráðherra að hann taki mál hans til skoðunar, og vísi honum tímabundið frá störfum. Innlent 30.7.2024 22:09
Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Hópur öfgahægrimanna safnaðist saman fyrir utan mosku í bænum Southport í Norður-Englandi í kvöld, þar sem þrjár stúlkur voru stungnar til bana á dansnámskeiði í gær. Mótmælendur köstuðu flöskum og grjóti í lögreglumenn og kveiktu í lögreglubíl. Erlent 30.7.2024 21:30
Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Slökkviliðinu í Árnessýslu barst útkall á áttunda tímanum í kvöld eftir að eldur hafði kviknað í mannskapshúsi flutningabíls á Þrengslavegi. Innlent 30.7.2024 20:01
Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Vegagerðin segir auglýsingaskilti vera til þess gerð að draga athygli ökumanna frá akstrinum. Bjartir skjáir sem skipta á milli auglýsinga ótt og títt við gatnamót þar sem mikið er um að vera eru sérstaklega varhugaverð. Innlent 30.7.2024 19:53
„Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Prófessor í eldfjallafræði segir mestar líkur á að næsta eldgos á Reykjanesskaga verði á sama stað og síðustu gos á svæðinu. Ólíklega muni gjósa inni í Grindavík og því sé skammur viðbragðstími ekki endilega áhyggjuefni. Innlent 30.7.2024 19:32
Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Ísraelar gerðu loftárásir á úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanons, þar sem ísraelski herinn telur háttsetta meðlimi Hezbollah halda til. Loftárásirnar eru hefndaraðgerðir fyrir árásir Hezbollah á byggð Ísraela á Golan-hæðum þar sem 12 börn létu lífið. Erlent 30.7.2024 19:14
Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins Ein elsta og minnsta rakarastofa landsins er á Akranesi en sjálft húsið verður hundrað ára á þessu ári. Þar starfa samrýmdir feðgar með samtals níutíu ára starfsreynslu. Þeir eru hvergi nærri hættir að klippa og raka en sá yngri ætlar að minnsta kosti að starfa áfram í húsinu í þrjátíu ár í við viðbót. Innlent 30.7.2024 19:00
Hjólhýsið fuðraði upp Hjólhýsi í Löngumýri í Skagafirði brann til kaldra kola í dag. Slökkviliðsstjóri segir milid að ekki hafi farið verr enda enginn í hýsinu þegar eldur kviknaði og engin önnur tjöld eða hjólhýsi í hættu. Innlent 30.7.2024 18:37
„Ekki við hæfi“ að dómsmálaráðherra tjái sig um mál Helga Dómsmálaráðherra telur ekki við hæfi að hún tjái sig um erindi ríkissaksóknara varðandi tímabundna lausn Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara meðan á málsmeðferð stendur. Innlent 30.7.2024 18:27
Umdeild ummæli, líkur á gosi og truflandi skilti Vararíkissaksóknari telur sig ekki hafa farið yfir strikið þegar hann ræddi um dóm yfir brotamanni sem hafði átt í hótunum við hann. Ríkissaksóknari hefur vísað máli hans til ráðherra. Hann gefur lítið fyrir áminningu sem hann fékk fyrir önnur ummæli. Innlent 30.7.2024 18:11
„Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Eigandi verslunarinnar King Kong segir svo virðast sem innbrot séu fastur liður í því að reka söluturn á Íslandi í dag. Brotist var inn í King Kong við Auðbrekku í Kópavogi í nótt, rúmum sjö mánuðum eftir að brotist var inn í samnefnda verslun við Höfðabakka. Innlent 30.7.2024 18:00
Vonar að ráðherra verði ekki við ósk Sigríðar Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari telur ekki að Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari sé til þess bær að veita honum áminningu í starfi. Það vald liggi hjá dómsmálaráðherra. Hann segist vona að dómsmálaráðherra taki ekki til greina ósk Sigríðar um að taka mál hans til skoðunar, og vísa honum tímabundið frá störfum. Innlent 30.7.2024 17:53
Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Þyrla brotlenti á húsi nálægt írska bænum Killucan síðdegis í dag með þeim afleiðingum að nokkrir létu lífið. Þetta staðfesta írskir viðbragðsaðilar án þess að gefa upp nánari upplýsingar um fjölda látinna. Erlent 30.7.2024 17:38
Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Starfsmaður hjúkrunarheimilis segir síðbúinn kvöldfréttatíma og endalausa íþróttadagskrá RÚV í sumar hafa valdið nokkrum usla á heimilinu. Deilt sé um það hvort horfa eigi á íþróttirnar eða eitthvað annað, og margir séu ósáttir við fréttaleysið. Dóttir eldri konu með eigið sjónvarp segir hana ekki treysta sér í slaginn við fjarstýringuna og hún sé því tilneydd til að glápa á íþróttir. Innlent 30.7.2024 17:08
Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Vikivaki verður sunginn í Dómkirkjunni, Vetrarsól í Alþingishúsinu og almenningur getur fylgst með af risaskjá á Austurvelli. Dagskráin fyrir innsetningarathöfn Höllu Tómasdóttur liggur fyrir. Innlent 30.7.2024 16:54
Skammast sín vegna skotárásarinnar Ronald Rowe, settur forstjóri bandarísku öryggisþjónustunnar Secret service, segist skammast sín vegna skotárasar sem beindist að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og forsetaframbjóðanda. Erlent 30.7.2024 16:49
Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Stelpurnar þrjár sem létust í hnífaárás í Southport á Englandi í gær hétu Bebe King, Elsie Dot Stancombe og Alice Dasilva Aguiar. Þær voru sex, sjö og níu ára gamlar. Erlent 30.7.2024 15:52
Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Svo virðist sem starfsmenn Vöku séu of duglegir í vinnunni og fari fram úr sér. Sú er í það minnsta skoðun Steinars Agnarssonar sem er smiður en hann hefur staðið í stappi við Vöku vegna húsbíls síns og svo annarra bíla sem hann segir hafa verið dregnir í burtu áður en tilskilinn frestur rann út. Reynir Guðmundsson framkvæmdastjóri Vöku vísar þessu á bug. Innlent 30.7.2024 15:42
Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, baðst undan að bera vitni í réttarrannsókn á meintri spillingu eiginkonu hans í dag. Hann sakar dómarann sem rannsakar málið um embættisafglöp. Erlent 30.7.2024 14:53
Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Bíll sem var staðsettur á bílastæði við Krossneslaug við Norðurfjörð á Ströndum rann af bílastæðinu og fram af kletti um hádegisleytið síðastliðinn laugardag. Talsvert sér á bílnum en engin slys urðu á fólki. Innlent 30.7.2024 14:31
Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Landhelgisgæslunni barst boð frá skútu með tólf manns um borð sem var stödd um fimm kílómetrum norður af Straumnesi á Hornströndum. Gír hafði brotnað og björgunarbáturinn Kobbi Láka frá Bolungarvík tók skútuna í tog. Innlent 30.7.2024 14:10
Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Til uppþota kom á herstöð þar sem Ísraelsher heldur palestínskum föngum eftir að níu ísraelskir hermenn voru handteknir og sakaðir um að misþyrma föngum kynferðislega. Stuðningsmenn þeirra brutust inn í herstöðina og kröfðust þess að þeim yrði sleppt. Erlent 30.7.2024 13:47
Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir áminningu sem Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hlaut árið 2022 hafa snúið að nokkrum tilvikum um tjáningu hans, sem nái aftur til ársins 2017. Sigríður telur sér ekki heimilt að upplýsa nánar um þessi tilvik. Hún segir kæru á hendur Helga frá hjálparsamtökum hælisleitenda ekki tilefni þess að hún vísar máli Helga nú til ráðherra. Innlent 30.7.2024 13:45
Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Ummæli Auðar Bjargar Jónsdóttur lögmanns, sem gætti hagsmuna föður drengs í forsjármáli, í garð móður drengsins þóttu aðfinnsluverð að mati úrskurðarnefndar lögmanna. Nefndin segir að hún hafi gengið of langt með gífuryrðum um andlega heilsu móðurinnar. Innlent 30.7.2024 13:19
Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Landspítalinn braut jafnréttislög þegar ung nýútskrifuð kona var ráðin í starf lyfjafræðings í stað karlmanns um fertugt með áratugsreynslu í faginu. Konan hafði verið með starfsleyfi í sjö mánuði þegar hún var ráðin. Spítalinn mismunaði karlmanninum bæði á grundvelli kyns og aldurs. Innlent 30.7.2024 13:08
Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gefur lítið fyrir yfirlýsingar formanns VR að atvinnulífið hafi brugðist í baráttunni við verðbólgudrauginn. Innlent 30.7.2024 13:06
Þriðja stelpan látin í Southport Þrjár stelpur á aldrinum sex til níu ára eru látnar og fimm börn til viðbótar eru þungt haldin eftir hnífaárás á dansnámskeiði í Southport í Englandi í gær. Erlent 30.7.2024 12:15
Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Vararíkissaksóknari furðar sig á ósk yfirmanns síns um að dómsmálaráðherra taki mál hans til skoðunar, vegna ummæla sem hann lét falla í fjölmiðlum. Hann viðurkennir að hann hefði getað orðað hlutina öðruvísi, en telur ummælin ekki hafa verið yfir strikið. Innlent 30.7.2024 12:07
Gæti gosið á næstu dögum Spenna heldur áfram að aukast á Reykjanesi en nú hafa rúmlega 16 milljón rúmmetrar af kviku safnast undir Svartsengi. Veðurstofa Íslands varar við því að kvikuhlaup án eldgoss nægi til að skapa hættu og valda tjóni í Grindavík en því fylgi jarðskjálftar og sprungur. Innlent 30.7.2024 11:58