Fréttir Kominn með nóg af „tuðandi“ Sjálfstæðismönnum Borgarstjóri er kominn með nóg af tuðandi Sjálfstæðismönnum sem mótmælt hafa nýundirrituðum samgöngusáttmála og segist halda að ekki séu til kjörnir fulltrúar í þessu landi sem barist hafa jafnhart gegn hagsmunum kjósenda sinna. Innlent 22.8.2024 10:28 Enn bætast gular viðvaranir og þær nú orðnar fimm Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Norðurland, Breiðafjörð, Vestfirði og Suðausturland. Viðvörun vegna úrhellisrigningar á Norðurlandi eystra gildir frá klukkan 11 til 20 í dag og viðvörun vegna hvassviðris er í gildi fyrir Suðausturland fram til 18. Veður 22.8.2024 10:26 Ekki spurst til Þóris síðan í júlí Alþjóðalögreglan Interpol hefur auglýst á vef sínum eftir Þóri Kolka Ásgeirssyni, 24 ára Íslendingi. Að sögn lögreglu hefur ekki spurst til Þóris frá 27. júlí síðastliðnum. Innlent 22.8.2024 10:19 Kvartar enn til umboðsmanns Hvalur hf. hefur enn á ný kvartað undan stjórnsýslu ráðherra, í tengslum við útgáfu hvalveiðileyfis, til umboðsmanns. Innlent 22.8.2024 09:09 „Walz þjálfari“ hvatti Demókrata til dáða Tim Walz tók í nótt formlega við útnefningu Demókrataflokksins sem varaforsetaefni þeirra í komandi kosningum. Kamala Harris og Tim Walz hafa verið á miklu flugi en sumir stjórnmálaskýrendur telja þau mögulega vera að toppa of snemma. Erlent 22.8.2024 08:30 Varasamt ferðaveður á Suðausturlandi Gul viðvörun er í gildi á Suðausturlandi vegna mikils hvassviðris. Búast má við svörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið að 35 m/sek, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar. Veður 22.8.2024 07:06 Rústaði heimahúsi og beit lögreglumann Karlmaður var handtekinn eftir að lögregla kom að honum að „rústa heimahúsi“ eins og það er orðað í tilkynningu lögreglunnar. Innlent 22.8.2024 06:54 Færri skjálftar en síðustu daga Um fimmtíu skjálftar mældust á Reykjanesskaga síðastliðinn sólarhring, sem er ívið minna en mælst hefur síðustu daga. Innlent 22.8.2024 06:44 Ítrekaði mikilvægi samkomulags um vopnahlé við Netanjahú Forseti Bandaríkjanna Joe Biden ítrekaði mikilvægi þess að komast að samkomulagi um vopnahlé á Gasa í símtali við forsætisráðherra Ísrael, Benjamín Netanjahú, í dag. Hann sagði viðræðurnar sem eiga að fara fram í Kaíró í Egyptalandi á næstu dögum ákaflega mikilvægar fyrir möguleika á vopnahlé. Sáttasemjarar sem hafa reynt eftir fremsta megni síðustu mánuði að fá Hamas og Ísrael til að komast að samkomulagi munu hittast þar. Erlent 21.8.2024 23:45 Hvetja fólk til að láta vita af lekum Veitur biðla til fólks sem vör hafa orðið fyrir leka í kjölfar heitavatnsleysisins á höfuðborgarsvæðinu að hringja í neyðarsíma þeirra og láta vita af þeim. Innlent 21.8.2024 23:44 Áfram stöðugur vöxtur í Skaftá Skaftárhlaup er áfram í hægum vexti og hefur enn engin áhrif á vegi á svæðinu. Ekki liggur fyrir hvort hlaupið komi úr eystri eða vestri Skaftárkatli og búist er við því að það komi ekki í ljós fyrr en á morgun. Innlent 21.8.2024 23:24 Hafa fundið fimm af sex sem er saknað úr sokknu snekkjunni Kafarar sem hafa leitað að líkamsleifum þeirra sex sem fórust þegar snekkjan Bayesian sökk utan við Sikiley á mánudag hafa nú fundið fimm lík inni í snekkjunni. Á vef breska ríkisútvarpsins segir að búið sé að flytja fjögur þeirra á land. Ítalska landhelgisgæslan hafa ekki borið formlega kennsl á líkin samkvæmt frétt BBC en kafararnir hafa síðustu daga verið við leit en talið var líklegast að líkin væru föst inni í snekkjunni. Erlent 21.8.2024 23:07 Hafa þurft að skrúfa fyrir vatnið víða vegna leka Veitur hafa þurft að skrúfa fyrir heitt vatn á litlum og afmörkuðum svæðum á höfuðborgarsvæðinu vegna leka eftir að heitu vatni var hleypt aftur á kerfið í morgun í kjölfar þess að vinnu lauk við Suðuræðina. Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna segir lekana á dreifðu svæði og að unnið sé að því að laga þá. Innlent 21.8.2024 22:31 Stálu íslensku grjóti en sáu að sér Þjóðgarðinum á Þingvöllum barst óvenjulegur pakki alla leið frá Singapúr. Pakkinn var fullur af grjótvölum af ýmsum stærðum og gerðum. Innlent 21.8.2024 20:56 Ólympíufara fagnað á Selfossi Ólympíufari Selfyssinga, Hákon Þór Svavarsson, sem keppti í skotfimi á Ólympíuleikunum í París fékk góðar móttökur hjá heimamönnum þegar hann kom heim af leikunum. Hann stefnir ótrauður á að keppa líka á næstu Ólympíuleikum eftir fjögur ár, sem verða í Los Angeles í Bandaríkjunum. Innlent 21.8.2024 20:06 Kallar eftir þjóðarátaki gegn nikótínvánni Hvert nikótínveldið á fætur öðru ryður sér rúms í höfuðborginni á sama tíma og sífellt fleiri nota slíkar vörur. Foreldrar lýsa yfir miklum áhyggjum af þróuninni og kalla eftir þjóðarátaki. Innlent 21.8.2024 20:02 Kyrrðar- og minningarstund vegna slyssins við Hálslón Minningarstund verður haldin í Norðfjarðarkirkju á morgun klukkan sex og kyrrðarstund í Heydalakirkju í Breiðdal í kvöld klukkan átta. Banaslys varð við Hálslón norðan Vatnajökuls þar sem karlmaður á fertugsaldri lést af völdum voðaskots. Innlent 21.8.2024 19:56 Óvenjuleg björgunaraðgerð um borð í Herjólfi Líf og fjör var um borð í Herjólfi í fyrradag, þegar fjölskyldur úr Vestmannaeyjum drógu lundapysjur upp úr kössum og slepptu þeim á haf út. Innlent 21.8.2024 19:47 Mikil þensla kemur í veg fyrir lækkun vaxta Seðlabankastjóri segir ekki hægt að lækka vexti í þeirri þenslu sem nú ríki í efnahagsmálum. Vextirnir komi mjög misjafnlega við fólk en virðist hafa lítil áhrif á stóran hluta þjóðarinnar því neysla væri enn mjög mikil. Innlent 21.8.2024 19:31 Forsætisráðherra segir sátt ríkja um samgöngusáttmála Heildarkostnaður ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu við uppfærða samgönguáætlun er áætlaður 311 milljarðar króna en ávinningur af framkvæmdunum er talinn verða rúmir ellefu hundruð milljarðar. Ríkið mun koma að rekstri almenningssamgangna. Innlent 21.8.2024 19:20 Sköpunarverk föður hans lifnar við í Vesturbænum Nýr hornsteinn var lagður að hinni fornfrægu Sögu við Hagatorg í dag. Arkitekt, sem kom að teikningu hússins ásamt föður sínum á sínum tíma, segir framkvæmdirnar sem nú standa yfir, og lýkur senn, lofa góðu. Innlent 21.8.2024 19:13 Leiguverð hefur hækkað um rúm 15 prósent milli ára Vísitala leiguverðs hefur hækkað um rúm fimmtán prósent milli ára og tvö prósent milli mánaða. Hún var 118,4 stig í júlí. Innlent 21.8.2024 18:18 Krefjast þess að ráðherra dragi fyrirmæli sín til lögreglu til baka Eigendur netverslunarinnar Sante.is hafa sent fjármálaráðherra bréf þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við „óeðlileg afskipti ráðherra af lögreglurannsókn.“ Í bréfinu er þess krafist að fyrirmæli ráðherrans til lögreglunnar verði dregin til baka og að ráðuneytið fjarlægi bréfið sem hann sendi lögreglunni af opinberum vefsvæðum. Innlent 21.8.2024 18:00 Samgöngusáttmáli, stýrivextir og nikótínrisar Heildarkostnaður ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu við uppfærða samgönguáætlun er áætlaður 311 milljarðar króna en ávinningur af framkvæmdunum er talinn verða rúmir ellefu hundruð milljarðar. Ríkið mun koma að rekstri almenningssamgangna. Innlent 21.8.2024 18:00 Borgarlína í grunninn bara betri strætó Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir að verið sé að mæta væntingum íbúa um greiðari samgöngur fyrir alla með nýjum samgöngusáttmála. Hann segir að höfuðborgarsvæðið sé í bullandi samkeppni við borgir um heim allan um fólk, og tryggja þurfi samkeppnishæfni svæðisins. Einnig sé Borgarlína í grunninn bara strætó. Innlent 21.8.2024 17:09 Myrti tveggja ára dóttur sína fyrir að sinna ekki heimilisverkum Ellen Rachel Craig, fyrrum meðlimur sértrúarsöfnuðar í Ástralíu, var í dag dæmd í níu ára fangelsi fyrir dómi í Sydney í Ástralíu fyrir að berja tveggja ára dóttur sína til bana eftir að hún hafði ekki klárað tilsett heimilisverk sín. Erlent 21.8.2024 16:08 Miklabraut í jarðgöng, Sæbraut í stokk og óbreytt Borgarlínuáform Heildarkostnaður til ársins 2040 við nýjan samgöngusáttmála sem kynntur var á blaðamannafundi í dag er áætlaður 311 milljarðar króna. Stærstu breytingarnar frá fyrri sáttmála eru þær að Miklabraut verði lögð í jarðgöng ekki stokk, og Sæbraut verði lögð í stokk. Allar lykilframkvæmdir eru þær sömu og áður. Innlent 21.8.2024 15:14 Félagsheimilið lagt í rúst um hábjartan dag Döpur sjón blasti við Reynismönnum á sunnudagskvöldið þegar þeir komu að félagsheimilinu sínu við fótboltavöllinn en það hafði verið lagt í rúst. Einhver hafði þá brotist þar inn á milli klukkan 14 og 17 á sunnudaginn og gengið berserksgang. Innlent 21.8.2024 15:01 Sögð hafa fundið tvö lík í sokknu snekkjunni Kafarar, sem leitað hafa að líkamsleifum sex sem fórust þegar snekkja sökk utan við Sikiley á mánudag, hafa fundið tvö lík inni í snekkjunni. Erlent 21.8.2024 14:19 Stefna á skóflustungu að nýrri bálstofu í haust Forsvarskona og stofnandi Trés lífsins segir að stefnt sé að fyrstu skóflustungu að nýrri bálstofu í haust. Hún vonar að hægt verði að taka bálstofuna í notkun innan tveggja ára. Innlent 21.8.2024 14:03 « ‹ 113 114 115 116 117 118 119 120 121 … 334 ›
Kominn með nóg af „tuðandi“ Sjálfstæðismönnum Borgarstjóri er kominn með nóg af tuðandi Sjálfstæðismönnum sem mótmælt hafa nýundirrituðum samgöngusáttmála og segist halda að ekki séu til kjörnir fulltrúar í þessu landi sem barist hafa jafnhart gegn hagsmunum kjósenda sinna. Innlent 22.8.2024 10:28
Enn bætast gular viðvaranir og þær nú orðnar fimm Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Norðurland, Breiðafjörð, Vestfirði og Suðausturland. Viðvörun vegna úrhellisrigningar á Norðurlandi eystra gildir frá klukkan 11 til 20 í dag og viðvörun vegna hvassviðris er í gildi fyrir Suðausturland fram til 18. Veður 22.8.2024 10:26
Ekki spurst til Þóris síðan í júlí Alþjóðalögreglan Interpol hefur auglýst á vef sínum eftir Þóri Kolka Ásgeirssyni, 24 ára Íslendingi. Að sögn lögreglu hefur ekki spurst til Þóris frá 27. júlí síðastliðnum. Innlent 22.8.2024 10:19
Kvartar enn til umboðsmanns Hvalur hf. hefur enn á ný kvartað undan stjórnsýslu ráðherra, í tengslum við útgáfu hvalveiðileyfis, til umboðsmanns. Innlent 22.8.2024 09:09
„Walz þjálfari“ hvatti Demókrata til dáða Tim Walz tók í nótt formlega við útnefningu Demókrataflokksins sem varaforsetaefni þeirra í komandi kosningum. Kamala Harris og Tim Walz hafa verið á miklu flugi en sumir stjórnmálaskýrendur telja þau mögulega vera að toppa of snemma. Erlent 22.8.2024 08:30
Varasamt ferðaveður á Suðausturlandi Gul viðvörun er í gildi á Suðausturlandi vegna mikils hvassviðris. Búast má við svörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið að 35 m/sek, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar. Veður 22.8.2024 07:06
Rústaði heimahúsi og beit lögreglumann Karlmaður var handtekinn eftir að lögregla kom að honum að „rústa heimahúsi“ eins og það er orðað í tilkynningu lögreglunnar. Innlent 22.8.2024 06:54
Færri skjálftar en síðustu daga Um fimmtíu skjálftar mældust á Reykjanesskaga síðastliðinn sólarhring, sem er ívið minna en mælst hefur síðustu daga. Innlent 22.8.2024 06:44
Ítrekaði mikilvægi samkomulags um vopnahlé við Netanjahú Forseti Bandaríkjanna Joe Biden ítrekaði mikilvægi þess að komast að samkomulagi um vopnahlé á Gasa í símtali við forsætisráðherra Ísrael, Benjamín Netanjahú, í dag. Hann sagði viðræðurnar sem eiga að fara fram í Kaíró í Egyptalandi á næstu dögum ákaflega mikilvægar fyrir möguleika á vopnahlé. Sáttasemjarar sem hafa reynt eftir fremsta megni síðustu mánuði að fá Hamas og Ísrael til að komast að samkomulagi munu hittast þar. Erlent 21.8.2024 23:45
Hvetja fólk til að láta vita af lekum Veitur biðla til fólks sem vör hafa orðið fyrir leka í kjölfar heitavatnsleysisins á höfuðborgarsvæðinu að hringja í neyðarsíma þeirra og láta vita af þeim. Innlent 21.8.2024 23:44
Áfram stöðugur vöxtur í Skaftá Skaftárhlaup er áfram í hægum vexti og hefur enn engin áhrif á vegi á svæðinu. Ekki liggur fyrir hvort hlaupið komi úr eystri eða vestri Skaftárkatli og búist er við því að það komi ekki í ljós fyrr en á morgun. Innlent 21.8.2024 23:24
Hafa fundið fimm af sex sem er saknað úr sokknu snekkjunni Kafarar sem hafa leitað að líkamsleifum þeirra sex sem fórust þegar snekkjan Bayesian sökk utan við Sikiley á mánudag hafa nú fundið fimm lík inni í snekkjunni. Á vef breska ríkisútvarpsins segir að búið sé að flytja fjögur þeirra á land. Ítalska landhelgisgæslan hafa ekki borið formlega kennsl á líkin samkvæmt frétt BBC en kafararnir hafa síðustu daga verið við leit en talið var líklegast að líkin væru föst inni í snekkjunni. Erlent 21.8.2024 23:07
Hafa þurft að skrúfa fyrir vatnið víða vegna leka Veitur hafa þurft að skrúfa fyrir heitt vatn á litlum og afmörkuðum svæðum á höfuðborgarsvæðinu vegna leka eftir að heitu vatni var hleypt aftur á kerfið í morgun í kjölfar þess að vinnu lauk við Suðuræðina. Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna segir lekana á dreifðu svæði og að unnið sé að því að laga þá. Innlent 21.8.2024 22:31
Stálu íslensku grjóti en sáu að sér Þjóðgarðinum á Þingvöllum barst óvenjulegur pakki alla leið frá Singapúr. Pakkinn var fullur af grjótvölum af ýmsum stærðum og gerðum. Innlent 21.8.2024 20:56
Ólympíufara fagnað á Selfossi Ólympíufari Selfyssinga, Hákon Þór Svavarsson, sem keppti í skotfimi á Ólympíuleikunum í París fékk góðar móttökur hjá heimamönnum þegar hann kom heim af leikunum. Hann stefnir ótrauður á að keppa líka á næstu Ólympíuleikum eftir fjögur ár, sem verða í Los Angeles í Bandaríkjunum. Innlent 21.8.2024 20:06
Kallar eftir þjóðarátaki gegn nikótínvánni Hvert nikótínveldið á fætur öðru ryður sér rúms í höfuðborginni á sama tíma og sífellt fleiri nota slíkar vörur. Foreldrar lýsa yfir miklum áhyggjum af þróuninni og kalla eftir þjóðarátaki. Innlent 21.8.2024 20:02
Kyrrðar- og minningarstund vegna slyssins við Hálslón Minningarstund verður haldin í Norðfjarðarkirkju á morgun klukkan sex og kyrrðarstund í Heydalakirkju í Breiðdal í kvöld klukkan átta. Banaslys varð við Hálslón norðan Vatnajökuls þar sem karlmaður á fertugsaldri lést af völdum voðaskots. Innlent 21.8.2024 19:56
Óvenjuleg björgunaraðgerð um borð í Herjólfi Líf og fjör var um borð í Herjólfi í fyrradag, þegar fjölskyldur úr Vestmannaeyjum drógu lundapysjur upp úr kössum og slepptu þeim á haf út. Innlent 21.8.2024 19:47
Mikil þensla kemur í veg fyrir lækkun vaxta Seðlabankastjóri segir ekki hægt að lækka vexti í þeirri þenslu sem nú ríki í efnahagsmálum. Vextirnir komi mjög misjafnlega við fólk en virðist hafa lítil áhrif á stóran hluta þjóðarinnar því neysla væri enn mjög mikil. Innlent 21.8.2024 19:31
Forsætisráðherra segir sátt ríkja um samgöngusáttmála Heildarkostnaður ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu við uppfærða samgönguáætlun er áætlaður 311 milljarðar króna en ávinningur af framkvæmdunum er talinn verða rúmir ellefu hundruð milljarðar. Ríkið mun koma að rekstri almenningssamgangna. Innlent 21.8.2024 19:20
Sköpunarverk föður hans lifnar við í Vesturbænum Nýr hornsteinn var lagður að hinni fornfrægu Sögu við Hagatorg í dag. Arkitekt, sem kom að teikningu hússins ásamt föður sínum á sínum tíma, segir framkvæmdirnar sem nú standa yfir, og lýkur senn, lofa góðu. Innlent 21.8.2024 19:13
Leiguverð hefur hækkað um rúm 15 prósent milli ára Vísitala leiguverðs hefur hækkað um rúm fimmtán prósent milli ára og tvö prósent milli mánaða. Hún var 118,4 stig í júlí. Innlent 21.8.2024 18:18
Krefjast þess að ráðherra dragi fyrirmæli sín til lögreglu til baka Eigendur netverslunarinnar Sante.is hafa sent fjármálaráðherra bréf þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við „óeðlileg afskipti ráðherra af lögreglurannsókn.“ Í bréfinu er þess krafist að fyrirmæli ráðherrans til lögreglunnar verði dregin til baka og að ráðuneytið fjarlægi bréfið sem hann sendi lögreglunni af opinberum vefsvæðum. Innlent 21.8.2024 18:00
Samgöngusáttmáli, stýrivextir og nikótínrisar Heildarkostnaður ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu við uppfærða samgönguáætlun er áætlaður 311 milljarðar króna en ávinningur af framkvæmdunum er talinn verða rúmir ellefu hundruð milljarðar. Ríkið mun koma að rekstri almenningssamgangna. Innlent 21.8.2024 18:00
Borgarlína í grunninn bara betri strætó Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir að verið sé að mæta væntingum íbúa um greiðari samgöngur fyrir alla með nýjum samgöngusáttmála. Hann segir að höfuðborgarsvæðið sé í bullandi samkeppni við borgir um heim allan um fólk, og tryggja þurfi samkeppnishæfni svæðisins. Einnig sé Borgarlína í grunninn bara strætó. Innlent 21.8.2024 17:09
Myrti tveggja ára dóttur sína fyrir að sinna ekki heimilisverkum Ellen Rachel Craig, fyrrum meðlimur sértrúarsöfnuðar í Ástralíu, var í dag dæmd í níu ára fangelsi fyrir dómi í Sydney í Ástralíu fyrir að berja tveggja ára dóttur sína til bana eftir að hún hafði ekki klárað tilsett heimilisverk sín. Erlent 21.8.2024 16:08
Miklabraut í jarðgöng, Sæbraut í stokk og óbreytt Borgarlínuáform Heildarkostnaður til ársins 2040 við nýjan samgöngusáttmála sem kynntur var á blaðamannafundi í dag er áætlaður 311 milljarðar króna. Stærstu breytingarnar frá fyrri sáttmála eru þær að Miklabraut verði lögð í jarðgöng ekki stokk, og Sæbraut verði lögð í stokk. Allar lykilframkvæmdir eru þær sömu og áður. Innlent 21.8.2024 15:14
Félagsheimilið lagt í rúst um hábjartan dag Döpur sjón blasti við Reynismönnum á sunnudagskvöldið þegar þeir komu að félagsheimilinu sínu við fótboltavöllinn en það hafði verið lagt í rúst. Einhver hafði þá brotist þar inn á milli klukkan 14 og 17 á sunnudaginn og gengið berserksgang. Innlent 21.8.2024 15:01
Sögð hafa fundið tvö lík í sokknu snekkjunni Kafarar, sem leitað hafa að líkamsleifum sex sem fórust þegar snekkja sökk utan við Sikiley á mánudag, hafa fundið tvö lík inni í snekkjunni. Erlent 21.8.2024 14:19
Stefna á skóflustungu að nýrri bálstofu í haust Forsvarskona og stofnandi Trés lífsins segir að stefnt sé að fyrstu skóflustungu að nýrri bálstofu í haust. Hún vonar að hægt verði að taka bálstofuna í notkun innan tveggja ára. Innlent 21.8.2024 14:03