Framkvæmdastjóri HB Granda neitar að áhöfn togara hafi verið sagt upp Sveinn Arnarsson skrifar 2. nóvember 2018 08:00 Koma þriggja nýrra skipa setur framtíð Helgu Maríu í mikla óvissu, segir Ægir Páll, nýr framkvæmdastjóri HB Granda. vísir/eyþór Skipverjum á Helgu Maríu, AK-16, togara í eigu HB Granda, hefur verið tjáð að þeim verði sagt upp á næstu vikum samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Framkvæmdastjóri HB Granda, segir engan hafa fengið uppsagnarbréf enn þá en framtíðaráform um rekstur skipsins eru óráðin. Áhöfnin hélt út á þriðjudag til veiða en áður en skipið hélt til veiða var haldinn starfsmannafundur um borð. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var starfsmönnum þar gert ljóst að skipið yrði aflagt á næstu vikum. Þegar Fréttablaðið náði tali af Ægi Páli Friðbertssyni, framkvæmdastjóra HB Granda, vildi hann ekki kannast við að mönnum hefði verið sagt upp á skipinu og að enginn hafi fengið uppsagnarbréf. „Af hverju ertu að spyrja? Það hefur engum mér vitanlega verið sagt upp enn þá á Helgu Maríu,“ segir Ægir Páll. Hann staðfesti hins vegar að starfsmannafundurinn hefði átt sér stað þar sem farið hefði verið yfir stöðuna með skipverjum. „Fundurinn á þriðjudaginn snerist um það að Grandi er búinn að taka í notkun á síðasta ári þrjú ný og afkastamikil ísfisksskip og í framhaldi af því munum við skoða rekstur þessa skips sem er elsta skipið í flotanum okkar.“ Ægir segir það munu svo koma í ljós hvort sjómönnum verði sagt upp eða ekki. Hann segir það ljóst að ekki sé búið að segja upp nokkrum manni. „Það er ekki búið að taka ákvörðun um að setja skipið á sölu og ekki búið að taka ákvörðun um hvenær skipið verður stöðvað en framtíðarrekstur þess er til skoðunar. Hvort mönnum verður sagt upp eða ekki mun svo koma á daginn,“ segir Ægir. HB Grandi sagði einnig upp starfsfólki í vinnslu bæði á Akranesi og á Vopnafirði fyrir örfáum dögum. AFL starfsgreinafélag á Austurlandi sendi vegna þessa frá sér yfirlýsingu og harmaði uppsagnirnar eystra. Þar hafi flestir sem misst hafa vinnuna verið íbúar Bakkafjarðar af erlendu bergi brotnir. Akranes Birtist í Fréttablaðinu Brim Kjaramál Sjávarútvegur Tengdar fréttir 12,3 milljarða salan á Ögurvík blásin af Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR), sem áður hét Brim, hefur tekið ákvörðun um að hætta við söluna á Ögurvík til HB Granda. 9. október 2018 10:32 Hópuppsagnir hjá HB Granda Ellefu starfsmönnum frystihúss HB Granda á Vopnafirði var sagt upp störfum í dag. 30. október 2018 15:23 HB Grandi segir upp fleiri starfsmönnum Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að með uppsögnunum nú sé nánast ekkert eftir af útgerðinni Haraldi Böðvarssyni hf., öðrum forvera HB Granda. 31. október 2018 18:21 Mest lesið „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ Atvinnulíf „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent Eini sjö sæta rafbíllinn í sínum verðflokki Samstarf „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Atvinnulíf Hélt tryggingunni vegna geymslu á innbúi í Grindavík Neytendur Falskir afslættir og þrýstingur við sölu á Temu Neytendur Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Viðskipti erlent Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ KS við það að kaupa B. Jensen Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Spá því að verðbólgan fari í 4,5 prósent Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar Bein útsending: Leiðir til að lækka vexti Hagnaður Sýnar dróst verulega saman milli ára Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Spá hressilegri vaxtalækkun Lentu vélum easyJet örugglega á Akureyri þrátt fyrir hvassviðri Kaupmáttur á opinberum markaði minni vegna lausra samninga Þrjú ráðin til Tryggja Arna innkallar kaffiskyr með vanillubragði Bein útsending: Kosningafundur Viðskiptaráðs - Horfum til hagsældar Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Ísold ráðin markaðsstjóri Frá Bændasamtökunum til Samorku Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Sjá meira
Skipverjum á Helgu Maríu, AK-16, togara í eigu HB Granda, hefur verið tjáð að þeim verði sagt upp á næstu vikum samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Framkvæmdastjóri HB Granda, segir engan hafa fengið uppsagnarbréf enn þá en framtíðaráform um rekstur skipsins eru óráðin. Áhöfnin hélt út á þriðjudag til veiða en áður en skipið hélt til veiða var haldinn starfsmannafundur um borð. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var starfsmönnum þar gert ljóst að skipið yrði aflagt á næstu vikum. Þegar Fréttablaðið náði tali af Ægi Páli Friðbertssyni, framkvæmdastjóra HB Granda, vildi hann ekki kannast við að mönnum hefði verið sagt upp á skipinu og að enginn hafi fengið uppsagnarbréf. „Af hverju ertu að spyrja? Það hefur engum mér vitanlega verið sagt upp enn þá á Helgu Maríu,“ segir Ægir Páll. Hann staðfesti hins vegar að starfsmannafundurinn hefði átt sér stað þar sem farið hefði verið yfir stöðuna með skipverjum. „Fundurinn á þriðjudaginn snerist um það að Grandi er búinn að taka í notkun á síðasta ári þrjú ný og afkastamikil ísfisksskip og í framhaldi af því munum við skoða rekstur þessa skips sem er elsta skipið í flotanum okkar.“ Ægir segir það munu svo koma í ljós hvort sjómönnum verði sagt upp eða ekki. Hann segir það ljóst að ekki sé búið að segja upp nokkrum manni. „Það er ekki búið að taka ákvörðun um að setja skipið á sölu og ekki búið að taka ákvörðun um hvenær skipið verður stöðvað en framtíðarrekstur þess er til skoðunar. Hvort mönnum verður sagt upp eða ekki mun svo koma á daginn,“ segir Ægir. HB Grandi sagði einnig upp starfsfólki í vinnslu bæði á Akranesi og á Vopnafirði fyrir örfáum dögum. AFL starfsgreinafélag á Austurlandi sendi vegna þessa frá sér yfirlýsingu og harmaði uppsagnirnar eystra. Þar hafi flestir sem misst hafa vinnuna verið íbúar Bakkafjarðar af erlendu bergi brotnir.
Akranes Birtist í Fréttablaðinu Brim Kjaramál Sjávarútvegur Tengdar fréttir 12,3 milljarða salan á Ögurvík blásin af Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR), sem áður hét Brim, hefur tekið ákvörðun um að hætta við söluna á Ögurvík til HB Granda. 9. október 2018 10:32 Hópuppsagnir hjá HB Granda Ellefu starfsmönnum frystihúss HB Granda á Vopnafirði var sagt upp störfum í dag. 30. október 2018 15:23 HB Grandi segir upp fleiri starfsmönnum Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að með uppsögnunum nú sé nánast ekkert eftir af útgerðinni Haraldi Böðvarssyni hf., öðrum forvera HB Granda. 31. október 2018 18:21 Mest lesið „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ Atvinnulíf „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent Eini sjö sæta rafbíllinn í sínum verðflokki Samstarf „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Atvinnulíf Hélt tryggingunni vegna geymslu á innbúi í Grindavík Neytendur Falskir afslættir og þrýstingur við sölu á Temu Neytendur Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Viðskipti erlent Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ KS við það að kaupa B. Jensen Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Spá því að verðbólgan fari í 4,5 prósent Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar Bein útsending: Leiðir til að lækka vexti Hagnaður Sýnar dróst verulega saman milli ára Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Spá hressilegri vaxtalækkun Lentu vélum easyJet örugglega á Akureyri þrátt fyrir hvassviðri Kaupmáttur á opinberum markaði minni vegna lausra samninga Þrjú ráðin til Tryggja Arna innkallar kaffiskyr með vanillubragði Bein útsending: Kosningafundur Viðskiptaráðs - Horfum til hagsældar Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Ísold ráðin markaðsstjóri Frá Bændasamtökunum til Samorku Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Sjá meira
12,3 milljarða salan á Ögurvík blásin af Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR), sem áður hét Brim, hefur tekið ákvörðun um að hætta við söluna á Ögurvík til HB Granda. 9. október 2018 10:32
Hópuppsagnir hjá HB Granda Ellefu starfsmönnum frystihúss HB Granda á Vopnafirði var sagt upp störfum í dag. 30. október 2018 15:23
HB Grandi segir upp fleiri starfsmönnum Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að með uppsögnunum nú sé nánast ekkert eftir af útgerðinni Haraldi Böðvarssyni hf., öðrum forvera HB Granda. 31. október 2018 18:21