Skýlaus krafa að hafna hækkunum kjararáðs Benedikt Bóas skrifar 2. nóvember 2016 07:00 Samninganefnd ASÍ áréttar að kjararáð sé á ábyrgð Alþingis og ríkisstjórnar. Sigurður Bessason, formaður Eflingar stéttarfélags, segir fólki misboðið. vísir/anton brink ASÍ kom saman til skyndifundar vegna ákvörðunar kjararáðs um að hækka laun æðstu embættismanna. Ákvörðunin um launahækkunina til æðstu embættismanna fór vægast sagt illa í aðila vinnumarkaðsins og almenning í landinu. Flest öll hagsmunasamtök sendu frá sér yfirlýsingu og ályktun, eins og kennarar, lögreglumenn, BSRB, Samtök atvinnulífsins og viðskiptaráð og svona mætti lengi telja.Í minnisblaði fundar ASÍ kemur fram að hækkanirnar komi til viðbótar við 7,2 prósenta launahækkun sem kjararáð úrskurðaði þann 1. júní sl. sem þýðir að þingfararkaup hefur síðastliðið ár hækkað um 55 prósent, laun ráðherra um 46 prósent og forseta Íslands um 29 prósent. ASÍ skoðaði einnig launaþróun þessa hóps frá því í mars 2013, til samræmis við SALEK-samkomulagið sem byggði á sameiginlegri launastefnu um 32 prósenta hækkun launa á tímabilinu frá nóvember 2013 til ársloka 2018. Þar má sjá að þingfararkaup hefur frá árinu 2013 hækkað um 471.000 krónur eða um 75 prósent, laun forsætisráðherra hafa hækkað um 790.733 krónur, eða 64 prósent og laun annarra ráðherra um 713.667 krónur sem einnig er 64 prósenta hækkun. Mánaðarlaun forseta Íslands hafa á sama tímabili hækkað um 936.771 krónu eða 46 prósent. Til samanburðar hefur launavísitalan, sem gefur mynd af almennri launaþróun, hækkað um 29 prósent frá því í mars 2013 og lægstu laun um 27 prósent. „Undanfarið ár hefur verið unnið að því að skapa sátt á vinnumarkaði og leggja þannig grunn að efnahagslegum og félagslegum stöðugleika. Flestir stjórnmálaleiðtogar á Alþingi Íslendinga hafa tekið undir þá ábyrgu sýn sem felst í breyttum vinnubrögðum við gerð kjarasamninga og ítrekuðu hana m.a. í stjórnmálaumræðum á nýafstöðnu þingi ASÍ,“ segir meðal annars í ályktun fundarins.„Úrskurður kjararáðs gengur þvert á þessa orðræðu og brýtur alvarlega gegn öllum skynsemisrökum. Það er ekkert réttlæti í því að laun þingmanna, ráðherra og æðstu embættismanna hækki um allt að 75 prósent á þremur árum á sama tíma og almenn laun í landinu hafa hækkað um 29 prósent. Ef nýkjörið Alþingi vill halda áfram samtali um stöðugleika og sátt á vinnumarkaði verður þingið að koma saman nú þegar og draga þessar hækkanir til baka. Að öðrum kosti verður óstöðugleiki og upplausn á vinnumarkaði í boði Alþingis,“ segir enn fremur. Fleiri hörmuðu ákvörðun kjararáðsins. Öryrkjabandalag Íslands skorar í harðorðri yfirlýsingu á nýja ríkisstjórn og nýkjörna þingmenn að hafna hækkuninni. „Ótrúleg hækkun skýtur skökku við á meðan hópur fólks í landinu býr við fátækt, börn líða skort og fatlað fólk er fast heima hjá sér og hefur ekki tækifæri til samfélagsþátttöku til jafns við aðra. Ákvörðunin hefur vakið sterk viðbrögð og reiði á meðal fjölda örorkulífeyrisþega.“ Þá krafðist stjórn VR að ákvörðun kjararáðs verði tafarlaust dregin til baka, Samtök atvinnulífsins og viðskiptaráð sögðu að ákvörðunin stuðli að upplausn á vinnumarkaði og Landssamband lögreglumanna lýsti einnig furðu sinni og vanþóknun á úrskurði og vinnubrögðum kjararáðsins.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu. Birtist í Fréttablaðinu Kjararáð Tengdar fréttir Hækkun á launum alþingismanna tuttuguföld á við hækkun örorkubóta Öryrkjabandalag Íslands harmar ákvörðun kjararáðs. 1. nóvember 2016 17:45 Þorsteinn Víglundsson: Fyrirkomulag kjararáðs meingallað Nýkjörinn þingmaður Viðreisnar og fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur eðlilegt að endurskoða fyrirkomulag kjararáðs. 1. nóvember 2016 10:26 Lögreglumenn lýsa vanþóknun Landssamband lögreglumanna furðar sig á vinnubrögðum kjararáðs. 1. nóvember 2016 16:55 Fjöldi fyrrverandi þingmanna fær 44 prósent hærri eftirlaun Formaður Félags fyrrverandi alþingismanna segir "andstyggilegan svip“ á hækkun kjararáðs á launum þingmanna og ráðherra. Margir fyrrverandi þingmenn og ráðherrar fá samsvarandi hækkun á sín eftirlaun. 2. nóvember 2016 07:00 Mest lesið Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Erlent Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Innlent Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Innlent Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Innlent Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Innlent Segir verkföll ekki mismuna börnum Innlent „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Innlent „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent Fleiri fréttir Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss við Þrastarlund Brynjar verður ekki í stjórn Mannréttindastofnunar Segir verkföll ekki mismuna börnum Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Formaður Kennarasambandsins svarar gagnrýni „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Bein útsending: Frambjóðendur ræða listir og menningu Vinstri græn kynna áherslumál sín fyrir kosningarnar „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar Fimmtán prósent allra hænsna á búinu drápust Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Tryggingagjald, andstæðir pólar og orkuskipti í Sprengisandi Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Sjá meira
ASÍ kom saman til skyndifundar vegna ákvörðunar kjararáðs um að hækka laun æðstu embættismanna. Ákvörðunin um launahækkunina til æðstu embættismanna fór vægast sagt illa í aðila vinnumarkaðsins og almenning í landinu. Flest öll hagsmunasamtök sendu frá sér yfirlýsingu og ályktun, eins og kennarar, lögreglumenn, BSRB, Samtök atvinnulífsins og viðskiptaráð og svona mætti lengi telja.Í minnisblaði fundar ASÍ kemur fram að hækkanirnar komi til viðbótar við 7,2 prósenta launahækkun sem kjararáð úrskurðaði þann 1. júní sl. sem þýðir að þingfararkaup hefur síðastliðið ár hækkað um 55 prósent, laun ráðherra um 46 prósent og forseta Íslands um 29 prósent. ASÍ skoðaði einnig launaþróun þessa hóps frá því í mars 2013, til samræmis við SALEK-samkomulagið sem byggði á sameiginlegri launastefnu um 32 prósenta hækkun launa á tímabilinu frá nóvember 2013 til ársloka 2018. Þar má sjá að þingfararkaup hefur frá árinu 2013 hækkað um 471.000 krónur eða um 75 prósent, laun forsætisráðherra hafa hækkað um 790.733 krónur, eða 64 prósent og laun annarra ráðherra um 713.667 krónur sem einnig er 64 prósenta hækkun. Mánaðarlaun forseta Íslands hafa á sama tímabili hækkað um 936.771 krónu eða 46 prósent. Til samanburðar hefur launavísitalan, sem gefur mynd af almennri launaþróun, hækkað um 29 prósent frá því í mars 2013 og lægstu laun um 27 prósent. „Undanfarið ár hefur verið unnið að því að skapa sátt á vinnumarkaði og leggja þannig grunn að efnahagslegum og félagslegum stöðugleika. Flestir stjórnmálaleiðtogar á Alþingi Íslendinga hafa tekið undir þá ábyrgu sýn sem felst í breyttum vinnubrögðum við gerð kjarasamninga og ítrekuðu hana m.a. í stjórnmálaumræðum á nýafstöðnu þingi ASÍ,“ segir meðal annars í ályktun fundarins.„Úrskurður kjararáðs gengur þvert á þessa orðræðu og brýtur alvarlega gegn öllum skynsemisrökum. Það er ekkert réttlæti í því að laun þingmanna, ráðherra og æðstu embættismanna hækki um allt að 75 prósent á þremur árum á sama tíma og almenn laun í landinu hafa hækkað um 29 prósent. Ef nýkjörið Alþingi vill halda áfram samtali um stöðugleika og sátt á vinnumarkaði verður þingið að koma saman nú þegar og draga þessar hækkanir til baka. Að öðrum kosti verður óstöðugleiki og upplausn á vinnumarkaði í boði Alþingis,“ segir enn fremur. Fleiri hörmuðu ákvörðun kjararáðsins. Öryrkjabandalag Íslands skorar í harðorðri yfirlýsingu á nýja ríkisstjórn og nýkjörna þingmenn að hafna hækkuninni. „Ótrúleg hækkun skýtur skökku við á meðan hópur fólks í landinu býr við fátækt, börn líða skort og fatlað fólk er fast heima hjá sér og hefur ekki tækifæri til samfélagsþátttöku til jafns við aðra. Ákvörðunin hefur vakið sterk viðbrögð og reiði á meðal fjölda örorkulífeyrisþega.“ Þá krafðist stjórn VR að ákvörðun kjararáðs verði tafarlaust dregin til baka, Samtök atvinnulífsins og viðskiptaráð sögðu að ákvörðunin stuðli að upplausn á vinnumarkaði og Landssamband lögreglumanna lýsti einnig furðu sinni og vanþóknun á úrskurði og vinnubrögðum kjararáðsins.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Kjararáð Tengdar fréttir Hækkun á launum alþingismanna tuttuguföld á við hækkun örorkubóta Öryrkjabandalag Íslands harmar ákvörðun kjararáðs. 1. nóvember 2016 17:45 Þorsteinn Víglundsson: Fyrirkomulag kjararáðs meingallað Nýkjörinn þingmaður Viðreisnar og fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur eðlilegt að endurskoða fyrirkomulag kjararáðs. 1. nóvember 2016 10:26 Lögreglumenn lýsa vanþóknun Landssamband lögreglumanna furðar sig á vinnubrögðum kjararáðs. 1. nóvember 2016 16:55 Fjöldi fyrrverandi þingmanna fær 44 prósent hærri eftirlaun Formaður Félags fyrrverandi alþingismanna segir "andstyggilegan svip“ á hækkun kjararáðs á launum þingmanna og ráðherra. Margir fyrrverandi þingmenn og ráðherrar fá samsvarandi hækkun á sín eftirlaun. 2. nóvember 2016 07:00 Mest lesið Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Erlent Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Innlent Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Innlent Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Innlent Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Innlent Segir verkföll ekki mismuna börnum Innlent „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Innlent „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent Fleiri fréttir Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss við Þrastarlund Brynjar verður ekki í stjórn Mannréttindastofnunar Segir verkföll ekki mismuna börnum Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Formaður Kennarasambandsins svarar gagnrýni „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Bein útsending: Frambjóðendur ræða listir og menningu Vinstri græn kynna áherslumál sín fyrir kosningarnar „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar Fimmtán prósent allra hænsna á búinu drápust Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Tryggingagjald, andstæðir pólar og orkuskipti í Sprengisandi Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Sjá meira
Hækkun á launum alþingismanna tuttuguföld á við hækkun örorkubóta Öryrkjabandalag Íslands harmar ákvörðun kjararáðs. 1. nóvember 2016 17:45
Þorsteinn Víglundsson: Fyrirkomulag kjararáðs meingallað Nýkjörinn þingmaður Viðreisnar og fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur eðlilegt að endurskoða fyrirkomulag kjararáðs. 1. nóvember 2016 10:26
Lögreglumenn lýsa vanþóknun Landssamband lögreglumanna furðar sig á vinnubrögðum kjararáðs. 1. nóvember 2016 16:55
Fjöldi fyrrverandi þingmanna fær 44 prósent hærri eftirlaun Formaður Félags fyrrverandi alþingismanna segir "andstyggilegan svip“ á hækkun kjararáðs á launum þingmanna og ráðherra. Margir fyrrverandi þingmenn og ráðherrar fá samsvarandi hækkun á sín eftirlaun. 2. nóvember 2016 07:00