Alþingi samþykkti lög á kjaradeilu flugumferðarstjóra Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 8. júní 2016 21:27 Flugumferðarstjórar hafa verið í yfirvinnubanni síðan 6. apríl. Vísir Alþingi samþykkti í kvöld að setja lög á verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra. Verkfallsaðgerðir Félags íslenskra flugumferðarstjóra gagnvart Isavia ohf., svo og frekari vinnustöðvanir eða aðrar aðgerðir félagsins sem er ætlað að knýja fram aðra skipan kjaramála en lögin ákveða eru því óheimilar hér eftir. Lögin voru samþykkt með 32 atkvæðum gegn 13.Höskuldur ÞórhallssonMeirihluti umhverfis- og samgöngunefndar lagði til að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt en fyrir nefndaáliti hans talaði formaður nefndarinnar, Höskuldur Þórhallsson. „Að mati meiri hlutans eru þeir heildarhagsmunir sem í húfi eru það miklir að um ríka almannahagsmuni er að ræða og nauðsynlegt að gripið verði til lagasetningar til að forða efnahagslegu tjóni sem hefur einkum áhrif á réttindi þriðju aðila sem verða fyrir áhrifum verkfallsaðgerðanna en hafa ekki aðkomu að kjaradeilunni,“ sagði Höskuldur. Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.Vísir„Þá er í frumvarpinu kveðið á um skipan gerðardóms sem hafi það verkefni að ákveða kaup og kjör náist samningar ekki fyrir 24. júní nk. Þannig er þess gætt að aðilar fái nægjanlegt svigrúm til að semja sjálfir um kaup og kjör innan hæfilegs tíma enda er það tilgangur frumvarpsins að gæta almannahagsmuna og forða efnahagslegu tjóni. Að mati meiri hlutans eru skilyrði stjórnarskrárinnar um nauðsyn lagasetningar, um almannahagsmuni og stjórnskipulegt meðalhóf uppfyllt líkt og einnig er rakið í athugasemdum við frumvarpið.“ Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, talaði fyrir nefndaáliti minnihluta nefndarinnar. Minnihlutinn taldi eðlilegra að vinna með aðilum vinnumarkaðarins heldur en að setja lög á deiluna. „Óumdeilt er að aðgerðir Félags flugumferðarstjóra gegn Isavia hafa töluverð áhrif, þ.m.t á ferðaþjónustu og fyrirtæki tengd henni, auk inn- og útflutnings og ferða almennings til og frá landinu. Markmiðið með aðgerðum af þessu tagi er að hafa áhrif á þriðja aðila og því óhjákvæmilegt að þær hafi áhrif á samfélagið með ýmsu móti. Áhrifin þurfa að vera mjög alvarleg og ógna ótvíræðum almannahagsmunum eða valda efnahagslegri vá til að unnt sé að réttlæta lagasetningu. Það er mat minni hlutans að ekki hafi verið færð rök fyrir því að slíkar aðstæður séu uppi við núverandi kringumstæður,“ sagði Katrín. Þá lýsti minnihlutinn yfir áhyggjum af síendurteknum lagasetningum að ræða „án stefnu af hálfu ríkisstjórnarinnar sem mun veikja verkfallsréttinn til frambúðar og hafa neikvæð áhrif og ófyrirséð áhrif á þróun markaðarins.“ Ekki er ljóst hvernig lögin munu leysa yfirvinnubannið þar sem yfirvinna er ekki skylda, hvorki lögfest né bundin í kjarasamninga. Tengdar fréttir Yfirvinnubannið verður strax óheimilt ef stjórnarfrumvarpið nær í gegn Frumvarp um lagasetningu í kjaradeilu flugumferðarstjóra tekið fyrir á þingfundi klukkan þrjú. 8. júní 2016 14:26 Innanríkisráðherra hefði ekki gripið inn í deiluna nema ríkar ástæður væru til Flugumferðarstjórar funda, umhverfis- og samgöngunefnd fundar og þingfundur verður haldinn í kvöld. 8. júní 2016 18:22 Ríkisstjórnin fundar um yfirvinnubann flugumferðarstjóra Eina málið á dagskrá er kjaradeila flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins. 8. júní 2016 11:15 Mest lesið Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Erlent Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Innlent Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Innlent Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Innlent Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Innlent Segir verkföll ekki mismuna börnum Innlent „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Innlent „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent Fleiri fréttir Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss við Þrastarlund Brynjar verður ekki í stjórn Mannréttindastofnunar Segir verkföll ekki mismuna börnum Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Formaður Kennarasambandsins svarar gagnrýni „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Bein útsending: Frambjóðendur ræða listir og menningu Vinstri græn kynna áherslumál sín fyrir kosningarnar „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar Fimmtán prósent allra hænsna á búinu drápust Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Tryggingagjald, andstæðir pólar og orkuskipti í Sprengisandi Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Sjá meira
Alþingi samþykkti í kvöld að setja lög á verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra. Verkfallsaðgerðir Félags íslenskra flugumferðarstjóra gagnvart Isavia ohf., svo og frekari vinnustöðvanir eða aðrar aðgerðir félagsins sem er ætlað að knýja fram aðra skipan kjaramála en lögin ákveða eru því óheimilar hér eftir. Lögin voru samþykkt með 32 atkvæðum gegn 13.Höskuldur ÞórhallssonMeirihluti umhverfis- og samgöngunefndar lagði til að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt en fyrir nefndaáliti hans talaði formaður nefndarinnar, Höskuldur Þórhallsson. „Að mati meiri hlutans eru þeir heildarhagsmunir sem í húfi eru það miklir að um ríka almannahagsmuni er að ræða og nauðsynlegt að gripið verði til lagasetningar til að forða efnahagslegu tjóni sem hefur einkum áhrif á réttindi þriðju aðila sem verða fyrir áhrifum verkfallsaðgerðanna en hafa ekki aðkomu að kjaradeilunni,“ sagði Höskuldur. Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.Vísir„Þá er í frumvarpinu kveðið á um skipan gerðardóms sem hafi það verkefni að ákveða kaup og kjör náist samningar ekki fyrir 24. júní nk. Þannig er þess gætt að aðilar fái nægjanlegt svigrúm til að semja sjálfir um kaup og kjör innan hæfilegs tíma enda er það tilgangur frumvarpsins að gæta almannahagsmuna og forða efnahagslegu tjóni. Að mati meiri hlutans eru skilyrði stjórnarskrárinnar um nauðsyn lagasetningar, um almannahagsmuni og stjórnskipulegt meðalhóf uppfyllt líkt og einnig er rakið í athugasemdum við frumvarpið.“ Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, talaði fyrir nefndaáliti minnihluta nefndarinnar. Minnihlutinn taldi eðlilegra að vinna með aðilum vinnumarkaðarins heldur en að setja lög á deiluna. „Óumdeilt er að aðgerðir Félags flugumferðarstjóra gegn Isavia hafa töluverð áhrif, þ.m.t á ferðaþjónustu og fyrirtæki tengd henni, auk inn- og útflutnings og ferða almennings til og frá landinu. Markmiðið með aðgerðum af þessu tagi er að hafa áhrif á þriðja aðila og því óhjákvæmilegt að þær hafi áhrif á samfélagið með ýmsu móti. Áhrifin þurfa að vera mjög alvarleg og ógna ótvíræðum almannahagsmunum eða valda efnahagslegri vá til að unnt sé að réttlæta lagasetningu. Það er mat minni hlutans að ekki hafi verið færð rök fyrir því að slíkar aðstæður séu uppi við núverandi kringumstæður,“ sagði Katrín. Þá lýsti minnihlutinn yfir áhyggjum af síendurteknum lagasetningum að ræða „án stefnu af hálfu ríkisstjórnarinnar sem mun veikja verkfallsréttinn til frambúðar og hafa neikvæð áhrif og ófyrirséð áhrif á þróun markaðarins.“ Ekki er ljóst hvernig lögin munu leysa yfirvinnubannið þar sem yfirvinna er ekki skylda, hvorki lögfest né bundin í kjarasamninga.
Tengdar fréttir Yfirvinnubannið verður strax óheimilt ef stjórnarfrumvarpið nær í gegn Frumvarp um lagasetningu í kjaradeilu flugumferðarstjóra tekið fyrir á þingfundi klukkan þrjú. 8. júní 2016 14:26 Innanríkisráðherra hefði ekki gripið inn í deiluna nema ríkar ástæður væru til Flugumferðarstjórar funda, umhverfis- og samgöngunefnd fundar og þingfundur verður haldinn í kvöld. 8. júní 2016 18:22 Ríkisstjórnin fundar um yfirvinnubann flugumferðarstjóra Eina málið á dagskrá er kjaradeila flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins. 8. júní 2016 11:15 Mest lesið Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Erlent Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Innlent Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Innlent Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Innlent Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Innlent Segir verkföll ekki mismuna börnum Innlent „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Innlent „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent Fleiri fréttir Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss við Þrastarlund Brynjar verður ekki í stjórn Mannréttindastofnunar Segir verkföll ekki mismuna börnum Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Formaður Kennarasambandsins svarar gagnrýni „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Bein útsending: Frambjóðendur ræða listir og menningu Vinstri græn kynna áherslumál sín fyrir kosningarnar „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar Fimmtán prósent allra hænsna á búinu drápust Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Tryggingagjald, andstæðir pólar og orkuskipti í Sprengisandi Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Sjá meira
Yfirvinnubannið verður strax óheimilt ef stjórnarfrumvarpið nær í gegn Frumvarp um lagasetningu í kjaradeilu flugumferðarstjóra tekið fyrir á þingfundi klukkan þrjú. 8. júní 2016 14:26
Innanríkisráðherra hefði ekki gripið inn í deiluna nema ríkar ástæður væru til Flugumferðarstjórar funda, umhverfis- og samgöngunefnd fundar og þingfundur verður haldinn í kvöld. 8. júní 2016 18:22
Ríkisstjórnin fundar um yfirvinnubann flugumferðarstjóra Eina málið á dagskrá er kjaradeila flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins. 8. júní 2016 11:15