Ólafur Ragnar sækist eftir endurkjöri Birgir Olgeirsson og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa 18. apríl 2016 16:15 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Mynd/Anton Ólafur Ragnar Grímsson mun sækjast eftir endurkjöri til embættis forseta Íslands. Þetta kom fram í máli forseta á blaðamannafundi rétt í þessu. Forsetakosningar verða haldnar í júní en kjördagur er þann 25. júní. Ólafur Ragnar hefur gegnt embættinu síðan 1996 og býður hann fram krafta sína í sjötta skiptið.Ólafur Ragnar sagði í tilkynningu, sem hann las að Bessastöðum, undanfarin ár hafa verið tími umróts og erfiðrar glímu. Mótmæli árið 2009 kölluðu á að stjórnvöld færu frá völdum og boðað yrði til kosninga. Fjöldaaðgerðir leiddu svo til þess að þjóðin hafnaði Icesave-samningum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Einnig nefndi hann fjölda mótmælin við Alþingi fyrir tveimur vikum þar sem mótmælendur kröfðust afsagnar forsætisráðherra og nýrra kosninga.Fjöldi fólks beðið hann um að endurskoða Hann sagði ástandið í þjóðfélaginu viðkvæmt og að stjórnvöld og kjörnir fulltrúar verði að vanda sig. Hann sagði fjölda fólks víða að úr þjóðfélaginu hafa höfðað til skyldu sinnar, reynslu og ábyrgðar og beðið hann um að endurskoða ákvörðun sína sem hann tilkynnti í nýársávarpi sínu um að gefa ekki kost á sér áfram. Sagðist hann hafa verið hvattur til að gefa áfram kost á sér og standa vaktina með fólkinu. Sagði hann þá sem hafa komið að máli við sig hafa vísað til þess að nú sé fyrir hönd kosningar þar sem myndun nýrrar ríkisstjórnar gæti reynst erfið og flókin og sambúð þings og þjóðar áfram þrungin spennu. Ólafur Ragnar sagði ýmsa hafa borið upp slíkt erindi við sig fyrir atburðina sem áttu sér stað fyrir tveimur vikum en sú alda hafi orðið þyngri undanfarna daga.Tæki tapi með æðruleysi Forsetinn sagðist gera sér grein fyrir því að það séu ekki allir á þeirri skoðun og tími sé kominn til að annar skipi þetta embætti. Hann sagðist engu að síður hafa komist að þeirri niðurstöðu að verða við óskum þeirra sem hafa hvatt hann áfram og gefa kost á sér til endurkjörs í komandi kosningum. Yrði niðurstaða forsetakosninganna sú að þjóðin kysir annan frambjóðanda en hann þá myndi hann taka því vel, óska honum heilla og ganga glaður til móts við frelsið. Ef þjóðin hins vegar kýs að fela honum að gegna þessar stöðu að nýju muni hann auðmjúkur þjóna áfram hagsmunum Íslands og standa vaktina með fólkinu. Þá sagði hann Dorrit Moussaieff, eiginkonu hans, hafa verið þeirrar skoðunar lengi vel að gott væri komið. Það hefði hins vegar breyst, eins og skoðun hans, í ljósi atburða undanfarinna vikna. Þau myndu þó taka úrslitunum með æðruleysi, hver svo sem þau yrðu.Upptöku af aukafréttatíma og blaðamannafundi Ólafs Ragnars á Bessastöðum má sjá hér fyrir neðan. Forsetakosningar 2016 Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Innlent Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Innlent Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Erlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Fleiri fréttir Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Sjá meira
Ólafur Ragnar Grímsson mun sækjast eftir endurkjöri til embættis forseta Íslands. Þetta kom fram í máli forseta á blaðamannafundi rétt í þessu. Forsetakosningar verða haldnar í júní en kjördagur er þann 25. júní. Ólafur Ragnar hefur gegnt embættinu síðan 1996 og býður hann fram krafta sína í sjötta skiptið.Ólafur Ragnar sagði í tilkynningu, sem hann las að Bessastöðum, undanfarin ár hafa verið tími umróts og erfiðrar glímu. Mótmæli árið 2009 kölluðu á að stjórnvöld færu frá völdum og boðað yrði til kosninga. Fjöldaaðgerðir leiddu svo til þess að þjóðin hafnaði Icesave-samningum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Einnig nefndi hann fjölda mótmælin við Alþingi fyrir tveimur vikum þar sem mótmælendur kröfðust afsagnar forsætisráðherra og nýrra kosninga.Fjöldi fólks beðið hann um að endurskoða Hann sagði ástandið í þjóðfélaginu viðkvæmt og að stjórnvöld og kjörnir fulltrúar verði að vanda sig. Hann sagði fjölda fólks víða að úr þjóðfélaginu hafa höfðað til skyldu sinnar, reynslu og ábyrgðar og beðið hann um að endurskoða ákvörðun sína sem hann tilkynnti í nýársávarpi sínu um að gefa ekki kost á sér áfram. Sagðist hann hafa verið hvattur til að gefa áfram kost á sér og standa vaktina með fólkinu. Sagði hann þá sem hafa komið að máli við sig hafa vísað til þess að nú sé fyrir hönd kosningar þar sem myndun nýrrar ríkisstjórnar gæti reynst erfið og flókin og sambúð þings og þjóðar áfram þrungin spennu. Ólafur Ragnar sagði ýmsa hafa borið upp slíkt erindi við sig fyrir atburðina sem áttu sér stað fyrir tveimur vikum en sú alda hafi orðið þyngri undanfarna daga.Tæki tapi með æðruleysi Forsetinn sagðist gera sér grein fyrir því að það séu ekki allir á þeirri skoðun og tími sé kominn til að annar skipi þetta embætti. Hann sagðist engu að síður hafa komist að þeirri niðurstöðu að verða við óskum þeirra sem hafa hvatt hann áfram og gefa kost á sér til endurkjörs í komandi kosningum. Yrði niðurstaða forsetakosninganna sú að þjóðin kysir annan frambjóðanda en hann þá myndi hann taka því vel, óska honum heilla og ganga glaður til móts við frelsið. Ef þjóðin hins vegar kýs að fela honum að gegna þessar stöðu að nýju muni hann auðmjúkur þjóna áfram hagsmunum Íslands og standa vaktina með fólkinu. Þá sagði hann Dorrit Moussaieff, eiginkonu hans, hafa verið þeirrar skoðunar lengi vel að gott væri komið. Það hefði hins vegar breyst, eins og skoðun hans, í ljósi atburða undanfarinna vikna. Þau myndu þó taka úrslitunum með æðruleysi, hver svo sem þau yrðu.Upptöku af aukafréttatíma og blaðamannafundi Ólafs Ragnars á Bessastöðum má sjá hér fyrir neðan.
Forsetakosningar 2016 Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Innlent Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Innlent Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Erlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Fleiri fréttir Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Sjá meira