Safna hljóðfærum fyrir rokkbúðir í Tógó Stefán Þór Hjartarson skrifar 16. apríl 2016 10:30 Ingibjörg Elsa Turchi frá Stelpur rokka! er ein af þeim sem stendur fyrir söfnunni. Vísir/Ernir. Í tilefni 5 ára afmælishátíðar Stelpur rokka! erum við í samstarfi við samtökin Sól í Tógó að safna hljóðfærum fyrir rokkbúðir sem verða haldnar í Tógó í ágúst. Þessar rokkbúðir eru á vegum tógóískra tónlistakvenna og þær verða með svipuðu sniði og þær búðir sem hafa verið haldnar hér á landi,“ segir Ingibjörg Elsa Turchi, sjálfboðaliði hjá Stelpur rokka!, um þetta söfnunarverkefni sem samtökin eru að ráðst í. „í Tógó er lítið framboð af rafmagnshljóðfærum. Við óskum sérstaklega eftir trommusettum, rafmagnsgíturum og bössum, rafmagnshljómborðum, gítar- og bassamögnurum og míkrófónum. Þau þurfa að auðvitað að vera nothæf. Við erum einnig í samstarfi við Tónastöðina með móttöku á hljóðfærunum, þangað getur fólk komið með hljóðfærin.“ Samtökin Stelpur rokka! eru femínískt sjálfboðaliðastarf sem leitast við að efla ungar stelpur í gegnum tónlistarsköpun. Samtökin halda sumarbúðir þar sem ungum stelpum er kennt á hljóðfæri, þær mynda hljómsveitir, frægar tónlistarkonur mæta og fræða stelpurnar um tónlistarbransann og jafnréttismál eru rædd. Samtökin vilja kollvarpa staðalímyndum á konum sem koma fram í popptónlist og annars staðar þar sem konur birtast ekki sem skapandi gerendur heldur sem kynferðisleg viðföng. Einnig hefur hlutfall kvenna verið heldur lágt á tónlistarhátíðum hér á landi og sem skráðra höfunda í STEFi, svo fátt eitt sé nefnt. Þennan halla vilja Stelpur rokka! rétta við og sömuleiðis stuðla að betra tónlistarlífi með því að virkja ungar stelpur í listsköpun. Samtökin héldu í fyrsta sinn rokksumarbúðir árið 2012 og hafa gert á hverju ári síðan þá. Búðirnar hafa verið haldnar á Akureyri, Reykjavík og Reykjanesbæ og samtökin hafa farið á ráðstefnur víða í Evrópu og Ameríku og átt í samstarfi við önnur svipuð samtök utan úr heimi, til dæmis Girls Rock Camp Alliance og hjálpað við stofnun rokkbúða í Póllandi. Sól í Tógó eru samtök Íslendinga sem hafa verið að leggja mannúðarstarfi systur Victorine, eða Victó, í Aného og Gliji í Tógó lið, þá aðallega með stuðningi við uppbyggingu á munaðarleysingjaheimili sem Victorine heldur úti þar í landi. Árið 2007 voru hjónin Alda Lóa Leifsdóttir og Gunnar Smári Egilsson að ættleiða dóttur sína í Tógó þar sem þau kynntust þessu mannúðarstarfi og lögðu því lítillega lið. Þegar þau svo sneru aftur til Íslands fóru þau að kynna starf Victó fyrir fólki og úr urðu samtökin Sól í Tógó. Allar götur síðan hafa þau stutt við uppbyggingu samfélagsins í Gliji og staðið þar fyrir byggingu á húsum fleiru og stefna á enn frekari umbætur í heilsugæslu, byggingu á skóla og leikskóla og bæta alls konar félagsstarf á svæðinu. Söfnunin fer fram dagana 15. apríl til 7. maí í Tónastöðinni Skipholti 50D. Mest lesið „Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“ Lífið „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ Tónlist Endurgreiða alla miða ef tónleikahald tekst ekki í kvöld Lífið Hundruðum svekktra tónleikagesta vísað frá Hvalasafninu Lífið Frelsaði húsgögn Brynhildar Lífið Greitt úr leyfisvandræðum og tónleikarnir fara fram í kvöld Lífið Skautadiskó til styrktar góðu málefni Lífið samstarf Fréttatían: Mannlíf, ferðamenn og Trump Lífið Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman Lífið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið Fleiri fréttir Greitt úr leyfisvandræðum og tónleikarnir fara fram í kvöld Endurgreiða alla miða ef tónleikahald tekst ekki í kvöld „Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“ Frelsaði húsgögn Brynhildar Fréttatían: Mannlíf, ferðamenn og Trump Hundruðum svekktra tónleikagesta vísað frá Hvalasafninu Skellti sér á djammið Segir fjölskylduna flutta Fáir sáu íslenskar bíómyndir sem fengu 350 milljónir króna í styrk Stílhreinn glæsileiki og svartur marmari á Nesinu „Er ekki að fara fram á það lifa lífinu í bómull“ Conan O'Brien verður kynnir á Óskarnum Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman „Nýja heimsskipanin:“ Leynileg áætlun um heimsyfirráð í undirbúningi? Bannað að hlæja: Stressið allsráðandi í upphafi kvöldsins Katrín og Markus orðin tveggja barna foreldrar Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona „Getur líka fengið Óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki“ Heitir og hýrir flugþjónar í suðrænni stemningu Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Heitasti plötusnúður í heimi í Melabúðinni Emilíana Torrini einhleyp Fólkið sem fer yfir tíu tonn af fatnaði á dag „Vinkonusambönd virka aldrei ef það er afbrýðisemi“ Kári og Erla vilja 330 milljónir fyrir lúxusíbúð við höfnina Eiríkur og Guðrún selja eitt fallegasta hús Vesturbæjarins Edda Falak gaf bróður sínum nafna Krasinski er kynþokkafyllstur í ár Fólk fer of snemma af stað í næsta samband Tók ákvörðun um að hætta að gera ráð fyrir því að fólk hataði sig Sjá meira
Í tilefni 5 ára afmælishátíðar Stelpur rokka! erum við í samstarfi við samtökin Sól í Tógó að safna hljóðfærum fyrir rokkbúðir sem verða haldnar í Tógó í ágúst. Þessar rokkbúðir eru á vegum tógóískra tónlistakvenna og þær verða með svipuðu sniði og þær búðir sem hafa verið haldnar hér á landi,“ segir Ingibjörg Elsa Turchi, sjálfboðaliði hjá Stelpur rokka!, um þetta söfnunarverkefni sem samtökin eru að ráðst í. „í Tógó er lítið framboð af rafmagnshljóðfærum. Við óskum sérstaklega eftir trommusettum, rafmagnsgíturum og bössum, rafmagnshljómborðum, gítar- og bassamögnurum og míkrófónum. Þau þurfa að auðvitað að vera nothæf. Við erum einnig í samstarfi við Tónastöðina með móttöku á hljóðfærunum, þangað getur fólk komið með hljóðfærin.“ Samtökin Stelpur rokka! eru femínískt sjálfboðaliðastarf sem leitast við að efla ungar stelpur í gegnum tónlistarsköpun. Samtökin halda sumarbúðir þar sem ungum stelpum er kennt á hljóðfæri, þær mynda hljómsveitir, frægar tónlistarkonur mæta og fræða stelpurnar um tónlistarbransann og jafnréttismál eru rædd. Samtökin vilja kollvarpa staðalímyndum á konum sem koma fram í popptónlist og annars staðar þar sem konur birtast ekki sem skapandi gerendur heldur sem kynferðisleg viðföng. Einnig hefur hlutfall kvenna verið heldur lágt á tónlistarhátíðum hér á landi og sem skráðra höfunda í STEFi, svo fátt eitt sé nefnt. Þennan halla vilja Stelpur rokka! rétta við og sömuleiðis stuðla að betra tónlistarlífi með því að virkja ungar stelpur í listsköpun. Samtökin héldu í fyrsta sinn rokksumarbúðir árið 2012 og hafa gert á hverju ári síðan þá. Búðirnar hafa verið haldnar á Akureyri, Reykjavík og Reykjanesbæ og samtökin hafa farið á ráðstefnur víða í Evrópu og Ameríku og átt í samstarfi við önnur svipuð samtök utan úr heimi, til dæmis Girls Rock Camp Alliance og hjálpað við stofnun rokkbúða í Póllandi. Sól í Tógó eru samtök Íslendinga sem hafa verið að leggja mannúðarstarfi systur Victorine, eða Victó, í Aného og Gliji í Tógó lið, þá aðallega með stuðningi við uppbyggingu á munaðarleysingjaheimili sem Victorine heldur úti þar í landi. Árið 2007 voru hjónin Alda Lóa Leifsdóttir og Gunnar Smári Egilsson að ættleiða dóttur sína í Tógó þar sem þau kynntust þessu mannúðarstarfi og lögðu því lítillega lið. Þegar þau svo sneru aftur til Íslands fóru þau að kynna starf Victó fyrir fólki og úr urðu samtökin Sól í Tógó. Allar götur síðan hafa þau stutt við uppbyggingu samfélagsins í Gliji og staðið þar fyrir byggingu á húsum fleiru og stefna á enn frekari umbætur í heilsugæslu, byggingu á skóla og leikskóla og bæta alls konar félagsstarf á svæðinu. Söfnunin fer fram dagana 15. apríl til 7. maí í Tónastöðinni Skipholti 50D.
Mest lesið „Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“ Lífið „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ Tónlist Endurgreiða alla miða ef tónleikahald tekst ekki í kvöld Lífið Hundruðum svekktra tónleikagesta vísað frá Hvalasafninu Lífið Frelsaði húsgögn Brynhildar Lífið Greitt úr leyfisvandræðum og tónleikarnir fara fram í kvöld Lífið Skautadiskó til styrktar góðu málefni Lífið samstarf Fréttatían: Mannlíf, ferðamenn og Trump Lífið Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman Lífið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið Fleiri fréttir Greitt úr leyfisvandræðum og tónleikarnir fara fram í kvöld Endurgreiða alla miða ef tónleikahald tekst ekki í kvöld „Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“ Frelsaði húsgögn Brynhildar Fréttatían: Mannlíf, ferðamenn og Trump Hundruðum svekktra tónleikagesta vísað frá Hvalasafninu Skellti sér á djammið Segir fjölskylduna flutta Fáir sáu íslenskar bíómyndir sem fengu 350 milljónir króna í styrk Stílhreinn glæsileiki og svartur marmari á Nesinu „Er ekki að fara fram á það lifa lífinu í bómull“ Conan O'Brien verður kynnir á Óskarnum Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman „Nýja heimsskipanin:“ Leynileg áætlun um heimsyfirráð í undirbúningi? Bannað að hlæja: Stressið allsráðandi í upphafi kvöldsins Katrín og Markus orðin tveggja barna foreldrar Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona „Getur líka fengið Óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki“ Heitir og hýrir flugþjónar í suðrænni stemningu Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Heitasti plötusnúður í heimi í Melabúðinni Emilíana Torrini einhleyp Fólkið sem fer yfir tíu tonn af fatnaði á dag „Vinkonusambönd virka aldrei ef það er afbrýðisemi“ Kári og Erla vilja 330 milljónir fyrir lúxusíbúð við höfnina Eiríkur og Guðrún selja eitt fallegasta hús Vesturbæjarins Edda Falak gaf bróður sínum nafna Krasinski er kynþokkafyllstur í ár Fólk fer of snemma af stað í næsta samband Tók ákvörðun um að hætta að gera ráð fyrir því að fólk hataði sig Sjá meira