Sjaldan snjóað jafn mikið á höfuðborgarsvæðinu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. nóvember 2015 11:35 Aðeins fimmtán sinnum frá árinu 1949 hefur mælst meiri snjókoma á einum sólahring. Vísir/Pjetur Það snjóaði gríðarlega á höfuðborgarsvæðinu í nótt en aðeins fimmtán sinnum frá árinu 1949 hefur mælst meiri snjókoma á einum sólahring. Snjódýpt í Reykjavík mældist í morgun 32 sentimetrar. Er það mesta snjódýpt í Reykjavík í nóvember síðan 1979 og sú fjórða mesta í Reykjavík frá stofnun Veðurstofu Íslands samkvæmt Sigurði Þór Guðjónssyni veðursagnfræðingi. Upp úr ellefu í gærkvöldi tók að snjóa í borginni en samkvæmt upplýsingum frá Birtu Líf Kristinsdóttir, vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands, snjóaði nær linnulaust til klukkan sex í morgun. Ekki gert var ráð fyrir svo mikilli ofankomu en síðdegis í gær var þó ljóst að nokkuð myndi snjóa um nóttina. Ástæðan fyrir að það snjóaði svo mikið og svo lengi var sú að éljabakkinn færðist mjög hægt yfir höfuðborgarsvæðið. Að sögn Birtu snjóaði mest á höfuðborgarsvæðinu sé litið til alls landsins en næst mesta snjódýptin mældist á Hólmavík, 24 sentimetrar. Snjómokstursmenn hafa staðið í ströngu við að moka götur en klukkan fjögur í nótt voru allar snjómoksturvélar ræstar út. Höfuðborgarbúum sem er illa við snjóinn geta þó huggað sig við það að ekki er útlit fyrir viðlíka snjókomu næstu dagana. „Það eru einhverjar líkur á éljum en ekkert í líkingu við það sem var í gærkvöldi og í nótt,“ segir Birta. „En það þarf líklega ekkert að segja Íslendingum það að spár geta breyst.“ Veður Tengdar fréttir Þungfært í íbúðargötum: Lögreglan varar fólk við að vera á ferðinni "Fólk er víða í basli,“ segir varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 28. nóvember 2015 10:57 Mest lesið „Þetta er ofboðslega vond tilfinning - mjög vond“ Innlent Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Innlent „Ekki stoltur af því að hafa verið partur af eitraðri menningu“ Innlent Breyting á búvörulögum hefur ekkert gildi Innlent Leita einstaklinga sem hafa lifað óvenjulengi eftir greiningu Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Innlent Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar Innlent Kemur til greina að fara dómstólaleiðina Innlent Fleiri fréttir Ævarandi skömm og tilviljun sem bjargaði fjölskyldu Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins auk matvælaráðherra voru fjarverandi Þörf á efnisreglum eftir fordæmalausan dóm Ekkert verður af verkfalli í Hafnarfirði „Ekki stoltur af því að hafa verið partur af eitraðri menningu“ Bein útsending: Samfélag á krossgötum „Áfellisdómur yfir vinnubrögðum Alþingis“ Lofsamlegar umsagnir um Svanhildi: „Leiðtogi, liðsmaður og drífandi dugnaðarforkur” Deila um Stálskipaauðinn fyrir Hæstarétt Braut bílrúðu með hnefanum og réðst á ökumanninn Fyrsta skóflustunga að Ölfusárbrú á miðvikudag Á sjöunda þúsund hafa kosið utankjörfundar Fuglaflensa greindist í mávi við Reykjavíkurtjörn Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar „Þetta er ofboðslega vond tilfinning - mjög vond“ Breyting á búvörulögum hefur ekkert gildi Kvikmyndagerðarfólk bænheyrt og sjóðnum komið til bjargar Kemur til greina að fara dómstólaleiðina Fjárlög samþykkt en VG sat hjá Sækir um leyfi til hrefnuveiða vegna ofgnóttar fyrir vestan Alþingi að ljúka og bjartsýnistónn í deiluaðilum í Karphúsinu Þarf að greiða á sjöunda þúsund fyrir að kjósa Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Tóku skref í rétta átt um helgina Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Ríkissáttasemjari segir viðræðum miða ágætlega Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar Fengu ekki inni hjá borginni og gistu í fangageymslum Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Sjá meira
Það snjóaði gríðarlega á höfuðborgarsvæðinu í nótt en aðeins fimmtán sinnum frá árinu 1949 hefur mælst meiri snjókoma á einum sólahring. Snjódýpt í Reykjavík mældist í morgun 32 sentimetrar. Er það mesta snjódýpt í Reykjavík í nóvember síðan 1979 og sú fjórða mesta í Reykjavík frá stofnun Veðurstofu Íslands samkvæmt Sigurði Þór Guðjónssyni veðursagnfræðingi. Upp úr ellefu í gærkvöldi tók að snjóa í borginni en samkvæmt upplýsingum frá Birtu Líf Kristinsdóttir, vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands, snjóaði nær linnulaust til klukkan sex í morgun. Ekki gert var ráð fyrir svo mikilli ofankomu en síðdegis í gær var þó ljóst að nokkuð myndi snjóa um nóttina. Ástæðan fyrir að það snjóaði svo mikið og svo lengi var sú að éljabakkinn færðist mjög hægt yfir höfuðborgarsvæðið. Að sögn Birtu snjóaði mest á höfuðborgarsvæðinu sé litið til alls landsins en næst mesta snjódýptin mældist á Hólmavík, 24 sentimetrar. Snjómokstursmenn hafa staðið í ströngu við að moka götur en klukkan fjögur í nótt voru allar snjómoksturvélar ræstar út. Höfuðborgarbúum sem er illa við snjóinn geta þó huggað sig við það að ekki er útlit fyrir viðlíka snjókomu næstu dagana. „Það eru einhverjar líkur á éljum en ekkert í líkingu við það sem var í gærkvöldi og í nótt,“ segir Birta. „En það þarf líklega ekkert að segja Íslendingum það að spár geta breyst.“
Veður Tengdar fréttir Þungfært í íbúðargötum: Lögreglan varar fólk við að vera á ferðinni "Fólk er víða í basli,“ segir varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 28. nóvember 2015 10:57 Mest lesið „Þetta er ofboðslega vond tilfinning - mjög vond“ Innlent Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Innlent „Ekki stoltur af því að hafa verið partur af eitraðri menningu“ Innlent Breyting á búvörulögum hefur ekkert gildi Innlent Leita einstaklinga sem hafa lifað óvenjulengi eftir greiningu Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Innlent Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar Innlent Kemur til greina að fara dómstólaleiðina Innlent Fleiri fréttir Ævarandi skömm og tilviljun sem bjargaði fjölskyldu Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins auk matvælaráðherra voru fjarverandi Þörf á efnisreglum eftir fordæmalausan dóm Ekkert verður af verkfalli í Hafnarfirði „Ekki stoltur af því að hafa verið partur af eitraðri menningu“ Bein útsending: Samfélag á krossgötum „Áfellisdómur yfir vinnubrögðum Alþingis“ Lofsamlegar umsagnir um Svanhildi: „Leiðtogi, liðsmaður og drífandi dugnaðarforkur” Deila um Stálskipaauðinn fyrir Hæstarétt Braut bílrúðu með hnefanum og réðst á ökumanninn Fyrsta skóflustunga að Ölfusárbrú á miðvikudag Á sjöunda þúsund hafa kosið utankjörfundar Fuglaflensa greindist í mávi við Reykjavíkurtjörn Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar „Þetta er ofboðslega vond tilfinning - mjög vond“ Breyting á búvörulögum hefur ekkert gildi Kvikmyndagerðarfólk bænheyrt og sjóðnum komið til bjargar Kemur til greina að fara dómstólaleiðina Fjárlög samþykkt en VG sat hjá Sækir um leyfi til hrefnuveiða vegna ofgnóttar fyrir vestan Alþingi að ljúka og bjartsýnistónn í deiluaðilum í Karphúsinu Þarf að greiða á sjöunda þúsund fyrir að kjósa Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Tóku skref í rétta átt um helgina Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Ríkissáttasemjari segir viðræðum miða ágætlega Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar Fengu ekki inni hjá borginni og gistu í fangageymslum Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Sjá meira
Þungfært í íbúðargötum: Lögreglan varar fólk við að vera á ferðinni "Fólk er víða í basli,“ segir varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 28. nóvember 2015 10:57