Ráðgjafarvefur í uppnámi í kjölfar samningsrofs ESB Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 24. febrúar 2015 11:00 Á vefnum naestaskref.is eiga að vera gagnvirk tæki og meðal annars áhugasviðskönnun til að auðvelda fólki að átta sig á við hvað það vill starfa. Vísir/GVA Þróun vefsins naestaskref.is, sem veitir landsmönnum upplýsingar um nám og störf, er í uppnámi þar sem ekki liggur fyrir hvernig fjármagna á smíði hans áfram. Þegar Evrópusambandið, ESB, sagði upp samningum um svokallaða IPA-styrki í febrúar í fyrra var styrkveitingum til Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem stýrði verkefninu hætt í kjölfarið. Þá hafði 30 milljónum króna verið varið til smíði vefsins. Áætlað var að verkefnið, sem hófst árið 2012, myndi kosta um 100 milljónir. „Það er mikilvægt að við getum haldið þessari vinnu áfram til þess að vefurinn hafi það gildi sem hann á að hafa. Upplýsingar á vefnum, sem var opnaður í desember síðastliðnum, um störf og nám gætu orðið úreltar eftir tvö til þrjú ár,“ segir Fjóla María Lárusdóttir, sem veitir verkefninu forystu hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Fjóla getur þess að sent hafi verið erindi vegna samningsrofsins til umboðsmanns Evrópusambandsins sem styðji málstað Fræðslumiðstöðvarinnar. „En óvíst er hvort við fáum aftur fjármagn frá Evrópusambandinu. Það er mikilvægt að einhver grípi boltann. Það er mikið í húfi fyrir markhópinn okkar. Það eru komnar um 200 starfs- og námslýsingar á vefinn en við eigum eftir að ljúka hátt í 300 til viðbótar. Við eigum eftir að bæta við gagnvirkum tækjum um meðal annars áhugasviðskönnun sem gæti verið tæki fyrir fólk til að átta sig á hvað það vill verða. Fólk þarf að vita hvaða störf eru á markaði og vita leiðina að þeim. Það er ástæða til að upplýsa um heim starfanna en ekki bara um nám sem er í boði. Við höldum glæðum í vefnum meðan við getum en það er ekki hægt að gera það af afli fyrr en búið er að skilgreina hvar verkefnið á að vera. Féð er horfið og við þurfum að sinna annarri starfsemi.“ Sérfræðisetur um ævilanga náms- og starfsráðgjöf var samstarfsaðili í þeim þætti verkefnisins sem lýtur að hönnun og þróun vefsins. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, stýrði þeirri vinnu. „Við erum hálfnuð með verk sem lengi var þörf á hér. Nágrannaþjóðir okkar eru allar með svona vefi og þar þykir þetta sjálfsagt. Megintilgangur vefsins er að jafna aðgengi fólks að hlutlausum upplýsingum um nám og störf og veita stuðning á starfsferli í formi ráðgjafar og fræðsluefnis en einnig að vera þeim hvatning sem alla jafna myndu ekki leita persónulegrar náms- og starfsráðgjafar. Nú finnst mér verkefnið vera eins og píanó sem búið er að skera í tvennt og bara vírarnir upp í loftið. Verkefninu var hætt í miðju kafi án þess að gengið væri frá neinu.“ Fjóla tekur það fram að vilji sé hjá mörgum hagsmunaaðilum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um að verkefninu verði haldið áfram. „Við þurfum að finna leiðir til að halda áfram að þróa vefinn og uppfæra upplýsingar þannig að hann sé tæki sem gagnast almenningi í því að taka ákvarðanir um náms- og starfsval.“ Mest lesið „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Innlent Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Innlent Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Innlent Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Innlent Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Innlent Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Innlent Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Innlent Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Fleiri fréttir „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Meirihluti telur stjórnvöld gera of lítið til að draga úr losun Lyfjapokar úr gömlum gardínum og borðdúkum á Selfossi „Þessi ákvörðun var tekin að frumkvæði Þórðar“ Staðan ólík því sem sést í Bandaríkjunum enda fylgið á fleygiferð #ÉgKýs: Kosningafundur ungs fólks „Ég hafna þessari gagnrýni algjörlega“ Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Ráðherra hafnar gagnrýni og óvissa um tónleika á Hvalasafninu Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi Þingmaður Pírata vill í kærunefnd útlendingamála Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Sjá meira
Þróun vefsins naestaskref.is, sem veitir landsmönnum upplýsingar um nám og störf, er í uppnámi þar sem ekki liggur fyrir hvernig fjármagna á smíði hans áfram. Þegar Evrópusambandið, ESB, sagði upp samningum um svokallaða IPA-styrki í febrúar í fyrra var styrkveitingum til Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem stýrði verkefninu hætt í kjölfarið. Þá hafði 30 milljónum króna verið varið til smíði vefsins. Áætlað var að verkefnið, sem hófst árið 2012, myndi kosta um 100 milljónir. „Það er mikilvægt að við getum haldið þessari vinnu áfram til þess að vefurinn hafi það gildi sem hann á að hafa. Upplýsingar á vefnum, sem var opnaður í desember síðastliðnum, um störf og nám gætu orðið úreltar eftir tvö til þrjú ár,“ segir Fjóla María Lárusdóttir, sem veitir verkefninu forystu hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Fjóla getur þess að sent hafi verið erindi vegna samningsrofsins til umboðsmanns Evrópusambandsins sem styðji málstað Fræðslumiðstöðvarinnar. „En óvíst er hvort við fáum aftur fjármagn frá Evrópusambandinu. Það er mikilvægt að einhver grípi boltann. Það er mikið í húfi fyrir markhópinn okkar. Það eru komnar um 200 starfs- og námslýsingar á vefinn en við eigum eftir að ljúka hátt í 300 til viðbótar. Við eigum eftir að bæta við gagnvirkum tækjum um meðal annars áhugasviðskönnun sem gæti verið tæki fyrir fólk til að átta sig á hvað það vill verða. Fólk þarf að vita hvaða störf eru á markaði og vita leiðina að þeim. Það er ástæða til að upplýsa um heim starfanna en ekki bara um nám sem er í boði. Við höldum glæðum í vefnum meðan við getum en það er ekki hægt að gera það af afli fyrr en búið er að skilgreina hvar verkefnið á að vera. Féð er horfið og við þurfum að sinna annarri starfsemi.“ Sérfræðisetur um ævilanga náms- og starfsráðgjöf var samstarfsaðili í þeim þætti verkefnisins sem lýtur að hönnun og þróun vefsins. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, stýrði þeirri vinnu. „Við erum hálfnuð með verk sem lengi var þörf á hér. Nágrannaþjóðir okkar eru allar með svona vefi og þar þykir þetta sjálfsagt. Megintilgangur vefsins er að jafna aðgengi fólks að hlutlausum upplýsingum um nám og störf og veita stuðning á starfsferli í formi ráðgjafar og fræðsluefnis en einnig að vera þeim hvatning sem alla jafna myndu ekki leita persónulegrar náms- og starfsráðgjafar. Nú finnst mér verkefnið vera eins og píanó sem búið er að skera í tvennt og bara vírarnir upp í loftið. Verkefninu var hætt í miðju kafi án þess að gengið væri frá neinu.“ Fjóla tekur það fram að vilji sé hjá mörgum hagsmunaaðilum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um að verkefninu verði haldið áfram. „Við þurfum að finna leiðir til að halda áfram að þróa vefinn og uppfæra upplýsingar þannig að hann sé tæki sem gagnast almenningi í því að taka ákvarðanir um náms- og starfsval.“
Mest lesið „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Innlent Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Innlent Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Innlent Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Innlent Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Innlent Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Innlent Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Innlent Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Fleiri fréttir „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Meirihluti telur stjórnvöld gera of lítið til að draga úr losun Lyfjapokar úr gömlum gardínum og borðdúkum á Selfossi „Þessi ákvörðun var tekin að frumkvæði Þórðar“ Staðan ólík því sem sést í Bandaríkjunum enda fylgið á fleygiferð #ÉgKýs: Kosningafundur ungs fólks „Ég hafna þessari gagnrýni algjörlega“ Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Ráðherra hafnar gagnrýni og óvissa um tónleika á Hvalasafninu Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi Þingmaður Pírata vill í kærunefnd útlendingamála Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Sjá meira